Morgunblaðið - 21.07.1998, Page 48

Morgunblaðið - 21.07.1998, Page 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ EM fyrir spilara 25 ára og yngri Island í 7. sæti eftir sjö umferðir BRIDS Vín EM 25 ÁRA OG YNGRI Norður * Á63 V G97653 * 87 * 97 Evrópumót spilara 25 ára og yngri er haldið í Vín í Austur- rfki dagana 16.-26. júlí. Hægt er að fylgjast með mótinu á Netinu og er slóðin http://wbf.bridge.- gr/tourn/Vienna.98/vienna.htm ÍSLENSKA liðið á EM yngri Vestur AG7 VKIO ♦ D43 *ÁG8543 Austur ♦ 542 V 82 ♦ Á102 + KD1062 Suður * KD1098 VÁD4 ♦ KG96 A — spilara í brids hefur byrjað þokkalega og var í 7. sæti eftir sjö umferðir en alls tala 22 lið þátt í mótinu. Stefnan er sett á eitt af fjórum efstu sætunum sem gefa rétt til keppni á heimsmeistaramóti yngri spil- ara. í fyrstu sjö umferðunum vann íslenska liðið fimm leiki en tapaði tveimur og hafði 118,5 stig. Norðmenn höfðu 135,5 stig, Israel 134, Italía 133, og Holland, Svíþjóð og Tyrkland höfðu 123 stig. Úrslit leikja ís- lenska liðsins hafa verið eftir- farandi: |siand-Austurnki 16-14 ísland - Danmörk 13-17 ísland - Bretland 18-12 ísland - Grikkland 25-2 ísland - Pólland 18-12 ísland - Noregur 3,5-24,5 ísland - Júgóslavía 25-5 í íslenska liðinu spila Sigur- björn Haraldsson, Stefán Jó- hannsson, Tryggvi Ingason, Hlynur Magnússon, Aron Þorfínnsson og Snorri Karlsson en Jónas P. Erlingsson er fyrir- liði. Góð samvinna Leikur íslands og Grikklands var sýningarleikur og Grikkir komust í 8-0 i fyrstu tveimur spilunum en í næstu fjórum spil- um skoruðu Islendingarnir 44 stig. Leikurinn vannst svo 88-16 eða 25-2. Islenska liðið græddi 8 stig á spili sex og bæði íslensku pörin áttu sinn þátt í því: Norður gefur, NS á hættu: Við annað borðið sátu Sigur- björn og Stefán AV en NS sátu Dimitris Konstantopoulos og Dimitris Argyrou. SH DA SJ DK pass pass 1 spaði 3 lauf pass 51auf dobl Sigurbjöm reyndi að grugga vatnið með hindrunarsögn. Ein- hverjir hefðu sagt 3 spaða með norðurspilin en þótt Argyrou segði pass átti Aron nokkuð sjálf- sagða 5-laufa sögn. Þessi fóm fór tvo niður og Grikkimir fengu 300. Við hitt borðið sátu Aron og Snorri NS og Errikos Synodinos og Nokos Tzinieris AV: ES SK NT AÞ 2 hjörtu pass 2grönd pass 3 hjörtu pass 4 hjörtu Snorri opnaði á veikum tveim- ur og spilaði síðan 4 hjörtu; spaðageimið hefði verið auðveld- ara viðfangs í þessari legu. Aust- ur spilaði út laufakóngi sem Snorri trompaði í blindum. Það er hætta fólgin í því að taka hjartaás og spila hjarta- drottningu því þá fær vömin laufaslag og getur spilað tígli frá austri og sagnhafí verður að hitta á rétt háspil. Snorri spilaði því hjartadrottningunni í öðmm slag. Vestur tók með kóng og spilaði laufi, en Snorri gat tromp- að með ás, farið heim á spaðaás, tekið trompin og spaðaslagina. Hann fékk því 11 slagi og ísland græddi 8 stig. Guðm. Sv. Hermannsson BRIDS llmsjón Arnór G. Ragnarsson Gylíí enn efstur í Homaíjarðarleiknum FIMMTUDAGSKVÖLDIÐ 16. júlí spiluðu 32 pör Mitchell-tvímenning. Spilaðar voru 14 umferðir með 2 spilum í umferð. Meðalskor var 364 og þessi pör urðu efst: NS ísak Örn Sigurðsson - Rúnar Einarsson 451 Ragna Briem - Þóranna Pálsdóttir 433 BjömÁmason-AlbertÞorsteinsson 406 Magnús Aspelund - Steingrimur Jónasson 405 AV Vilhjálmur Sigurðss. - Ragnar Hermannss. 463 Georg ísaksson - Snorri Markússon 410 Sigtryggur Jónss. - Guðmundur Agústss. 404 Hallgrímur Hallgrímss. - Sigmundur Stefánss. 395 Föstudaginn 17. júlí mættu 26 pör til leiks. Miðlungur var 312 og árangur efstu para varð þessi: NS Valdimar Sveinsson - Þorsteinn Berg 365 Soffia Daníelsdóttir - Óji Bjöm Gunnarsson 350 Guðrún Óskarsdóttir - Óskar Þór Þráinsson 347 Gísli Steingrimss. - Hróðmar Sigurbjömss. 346 AV Hans Isebam - Guðmundur M. Jónsson 407 Erlendur Jónsson - Guðlaugur Sveinsson 393 GeirlaugMagnúsdóttir-TorfiAxelsson 383 Gunnlaugur Sævarsson - Þórður Sigfússon 318 Eftir tvímenninginn var að venju spiluð útsláttarsveitakeppni. Tíu sveitir tóku þátt og eftir skemmtilega og spennandi spilamennsku vann sveit Unnsteins Jónssonar keppnina. Með Unnsteini spiluðu Skagamaður- inn Magnús Magnússon, auk Guð- laugs Sveinssonar og Erlendar Jóns- sonar. I öðru sæti varð sveit sem bar nafnið Sætu gellumar, en sú sveit var skipuð Hjördísi Sigurjónsdóttur, Önnu Ivarsdóttur, Gylfa Baldurssyni og Steinberg Ríkarðssyni. Lokatölur urðu 19-15 fyrir sveit Únnsteins. Staðan er enn óbreytt í Horna- fjarðarleik Sumarbrids 98. Reglur leiksins eru þær að bronsstig ein- hverra fjögurra samliggjandi spila- kvölda em lögð saman og þeir tveir spilarar sem ná flestum stigum á slíku tímabili fá vegleg verðlaun. Þar er um að ræða flugfar á Horna- fjarðarmótið í tvímenningi sem haldið verður í haust, keppnisgjöld og gistingu á Hótel Höfn. Eins og staðan er núna era það Gylfí Bald- ursson og Anton R. Gunnarsson sem era á leiðinni austur í haust. Gylfí skoraði 109 stig á fjögurra daga tímabili, en Anton fékk 92 stig. Báðir náðu þessum árangri snemma sumars. Ekki verður auðvelt að slá Gylfa út, en Ijóst er að Anton er langt frá því að vera öraggur með verðlaunin. Fróðlegt verður að sjá hvort þeir halda velli út sumarið. Siglufjarðarleikur Sumarbrids 98 stendur frá 19. júlí til 19. ágúst. Hæsta prósentuskor eins kvölds í sumarbrids á þessu tímabili mun gefa rétt til eftirfarandi verðlauna: Keppnisgjöld á 60 ára afmælismót Bridsfélags Siglufjarðar, auk gist- ingar á staðnum á meðan mótið stendur yfir (21.-23. ágúst nk.). í sumarbrids er spilað öll kvöld nema laugardagskvöld og hefst spilamennskan alltaf kl. 19. Spila- staður er Þönglabakki 1 í Mjódd, húsnæði Bridsssambands íslands. f DAG ÞESSAR duglegu stúlkur héldu tombólu nýlega til styrktar Rauða krossi íslands og varð ágóðinn 1.500 krónur. Stúlkurnar heita Hekla Helgadóttir og Steinunn og Marfa Helga Rakelardætur. ÞESSAR myndarlegu stúlkur héldu á dögunum tombólu og létur ágóða hennar, 720. kr., renna til Rauða kross Islands. Stúlkurnar heita Brynhildur Þöll Steinarsdóttir og Sóley Björk Guðmundsdóttir. VELVAKAJMPI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Hugleiðingar leikmanns! GETA leikmenn botnað eitthvað í stjórnmálum eins og þau eru í dag? Davíð situr á sínum stóli. Ekkert virðist bíta á þann mann. Af hveiju ekki bara að gera hann að konungi yfir Islandi? Hann á dygg- an íylgisvein og það tel ég vera að því góða. Hannes Hólmsteinn er trúr sinn sannfæringu og veit sínu viti. Kratarnir eru búnir að missa sinn besta mann, Jón Baldvin. Sighvatur raular sína ágætu vísu, en hvað verður um Finn Ing- ólfsson ráðherra þegar þingið hefst í haust. Bankastjórarnir hugsa bara um lax. Ekki um þorskkvótann heldur bara lax. Síðan eru þeir reknir frá störfum og stofna nýan flokk með nýjum formerkjum. Kommúnistar á Islandi eru á hverfandi hveli og Steingrímur J. farinn. Morgunblaðinu hefur tekist að vera nokkurn veginn hlutlaust. Hvað á almenningur að kjósa? Hvar eru menn og konur eins og Albert Guðmundsson í dag? Auðunn Blöndal, Sléttuvegi 15, Reykjavík. Tapað/fundið Sjóstöng tapaðist í Ólafsvík SJÓSTÖNG hvarf af bryggjunni í Ólafsvík sl. laugardag, þegar sjóstangaveiðimót stóð þar yfir. Stöngin er brún og hvít með svörtu hjóli. Einnig hvarf fjólublá Speedo-íþróttataska af bryggjunni og plastpoki með veiðidóti sem til- heyrir sjóstangaveiðinni. I íþróttatöskunni er fatn- aður og myndavél. Þeir sem hafa orðið dótsins varir vinsamlega hringi í Helgu Guðrúnu í síma 554 4904, eða 569 1290. Dýrahald Páfagaukur tapaðist BLÁR páfagaukur með gráa og hvíta vængi flaug að heiman frá sér, Boða- granda 7, um miðjan dag á laugardag. Þeir sem hafa orðið fuglsins varir hringi í síma 561 7556. Kettlingur tapaðist GULUR kettlingur með hvítar loppur og hvíta bringu tapaðist frá Laufengi 16 sl. fóstudag. Kettlingurinn er 10 vikna. Finnandi vinsamlega hringi í síma 586 2026. SKAK Umsjón Margeir Pétursson STAÐAN kom upp í síðustu umferð á Politiken skák- mótinu í Kaupmannahöfn sem lauk á fimmtudaginn var. Þröstur Þór- hallsson (2.495) var með hvítt og átti leik, en David Coleman (2.245), Englandi, hafði svart. 24. Bxe6! - fxe6 25. Rxe6 - Rc4 26. Hhel - Ba4? (Betri vörn var 26. - Dfó) 27. Dd3 - Bxc2 28. Dd7+ - Kf7 29. Rd8+! - Kg6 30. De6+ og svartur féll á tíma í þessari vonlausu stöðu, en hann er óverjandi mát í þriðja leik. Hannes Hlífar Stefánsson varð efstur á mótinu ásamt fjórum öðrum með 8!4 vinn- ing af 11 mögulegum og var úrskurðaður sigurvegari eftir stigaútreikning. Þröst- ur hlaut IV2 vinning og end- aði í 8.-17. sæti. HVÍTUR á Ieik HÖGNI HREKKVÍSI Víkverji skrifar... AÐ er ástæða til að vekja at- hygli á því framtaki Einars Há- konarsonai- listmálara að byggja stórglæsilegan sýningarsal og afar notalegt kaffi- og veitingahús í Hveragerði. Með þessu framtaki hefur listmálarinn gert hvora tveggja í senn: að skapa aðstöðu austan fjalls til myndlistarsýninga, sem standa undir nafni og gera fólki kleift að njóta matar og drykkjar í menningarlegu umhverfi. Er full ástæða til að hvetja ferðafólk til að koma þar við. Menningarmiðstöðvar sem þess- ar eiga ríkan þátt í að skapa ímynd bæjarfélaga. Nægir þar að nefna þá breytingu, sem hefur orðið á ímynd Kópavogskaupstaðar eftir að Lista- safn Kópavogs-Gerðarsafn var opn- að og ákvörðun var tekin um að reisa þar í nágrenninu fyrsta sér- hannaða tónlistarsalinn á Islandi. Listaskálinn í Hveragerði er hins vegar einkaframtak en Hveragerð- isbær á að leita allra leiða til þess að nýta þetta framtak bæjarfélaginu til framdráttar. Það verður hins vegar að segjast eins og er, að þátt- ur í því hlýtur að vera stórátak í Hveragerði til þess að malbika göt- ur bæjarins. Það er orðið óvenjulegt að fara um bæjarfélag á Islandi, þar sem svo mikið er af malargötum eins og í Hveragerði. Margt fleira þarf raunar að gera til þess að bæta útlit sveitarfélagsins. Með stórmyndarlegum rekstri heilsuhælisins í Hveragerði og Listaskála Einars Hákonarsonar á hins vegar að vera hægt að byggja bæinn upp sem menningarlegan heilsustað, ef svo má að orði kom- ast. En bæjarfélagið sjálft þarf að gera átak, sem kemur á óvart að ekki hefur verið gert fyrir löngu. xxx AÐ er ekki lengur hægt annað en fylgja umferðarreglum í einu og öllu. Umferðarstefnan, sem er laus við allt umburðarlyndi gerir það að verkum, að það er bæði of dýrt fyrir venjulegt fólk að brjóta umferðarreglur og það er líka dýr- keypt vegna ökuleyfismissis. Lög- reglan virðist fara hamförum. Vík- verji skrapp upp á Akranes eins og fleiri í síðustu viku og mætti á leið- inni fram og til baka u.þ.b. tíu lög- reglubflum! Hins vegar er eitt vandamál, sem gerir það að verkum, að það er erfitt að fylgja umferðarreglum í einu og öllu. Sá sem það gerir hefur engan frið fyrir öðram vegfarend- um. Þeir æða fram úr. Þeir flauta til þess að láta vanþóknun sína í ljós. Þeir reka út úr sér tunguna í sama skyni. Hvað eiga löghlýðnir bflstjór- ar að gera? XXX ETTA vandamál snýst sem sagt um það, að samborgararn- ir, sem vilja hundsa umferðarregl- urnar virðast taka höndum saman gegn þeim, sem fylgja þeim. Hvernig ætlar lögreglan að taka á þessum vanda í umferðinni? Og að sjálfsögðu án nokkurs umburðar- lyndis.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.