Morgunblaðið - 21.07.1998, Side 50
50 ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FOLK I FRETTUM
Sýningar hefjast Id. 20.00. CHóttar pantanir sddaTð
föstudaginn 24. júlf • föstudaginn 7. ágúst • laugardaginn 8. ágúst.
Sýningar hefjast kl. 20. Sýningum fer fækkandi.
Miðasala simi 551 1475.
Opin alla daga kl. 15-19. Símapantanir trá kl. 10 virka daga og frá kl. 13 um helgar.
Vel samsett safnskífa
TÖNLIST
fim. 23/7 UPPSELT
fös. 24/7 UPPSELT
lau. 25/7 UPPSELT
sun. 26/7 UPPSELT
fim. 6/8 örfá sæti laus
fös. 7/8 örfá sæti laus
Fjórar klassískar
þri. 21/7 kl. 20.30 UPPSELT
Sýningamar hefjast kl. 20.00
Miðasalaopinkl. 12-18
Miðasölusími: 5 30 30 30
Gcislailiskur
KVISTIR
Kvistir, safnskífa í'slenskra hljóm-
sveita frá útgáfunni Sprota. Á plöt-
unni eiga lög Maus, Móa, 200.000
naglbítar, Quarashi, Stgömukisi,
Vínyll, Gus Gus, Bang gang, Porn-
opop, Bellatrix, Port og Dagbók NN.
Maus á tvö lög en aðrir eitt hver.
Sproti gefur út, Spor dreifir.
51,37 mín.
Gamanleikrit í leikstjórn
Sigurðar Sigurjónssonar
fim 23/7 KL. 21
lau 25/7 KL. 21
Miðaverð kr. 1100 fyrir karla
kr. 1300 fyrir konur
Vörðufélagar Ll fá 30% afslátt
Sýnt í íslensku óperunni
Miðasölusími 551 1475
Ka
Vesturgotu 3
SUMARTONLEIKAROÐ
KAFFILEIKHÚSSINS
„Út og suður“. Sigriður Ella
Magnúsdóttir flytur lög úr öllum áttum.
Fim. 23.7 kl. 21 laus sæti
„Fluga“. Hjörleifur Valsson og Havard
Óieroset leika „hot-club“ tónlist á fiðlu
og gítar. M.a. austur-evrópska sígauna-
tónlist, popp, rokk og diskó.
Lau. 25.7 kl. 21 laus sæti
Matseðill sumartónleika
Indverskur grænmetisréttur að hætti
Lindu, borinn fram með fersku salati og
ristuðum sesamfræjum. Og í eftirrétt:
. „Óvænt endalok1’. Aðeins kr. 1000. y
Miðas. opin alla virka daga kl. 15-18.
Miðap. allan sólarbringinn í s. 551 9055.
Netfang: kaffileik@isholf.is
HLJÓMPLÖTUÚTGÁFAN
Sproti fór vel af stað síðasta sumar
með skemmtilegri safnskífu og síð-
an með því að gefa út eina af bestu
breiðskífum ársins. Enn eru
Sprotaliðar á ferð, höggva í sama
knérunn og síðasta sumar með safn-
skífunni Kvistum. Þar er að finna
sumar af þeim sveitum sem létu til
sín heyra á fyrri safnskífunni, en
nokkrar nýjar hafa slegist í hópinn.
Safnskífan Kvistir er bráðvel
samsett, utan að á henni eru lög
sem stinga nokkuð í stúf, til að
mynda lag Móu, sem á varla þar
heima þótt það sé bráðgott. Einnig
er lag Gus Gus, endurgert Depeche
Mode-lag, nokkur stílbrjótur og þó
Loud! með Quarashi sé gott lag má
setja spurningarmerki við það líka,
enda hefur það komið út áður.
Fátt kemur á óvart á skífunni;
þannig er Mauslagið góð sumar-
keyrsla, 200.000 naglbítar spretta
líka úr spori og fara vel með krafta-
popp sitt. Vínilslagið er líka prýði-
legt þó bjögunin á söngnum sé leiði-
gjörn. Stjörnukisi átti besta lag síð-
ustu safnskífu Spors og heldur
dampi með magnaðri keyrslu, þó
þeir félagar virðist hafa slakað á í
tölvuvæðingunni.
Bang Gang kom mörgun á óvart
með lag sitt á síðustu safnskífu og
lagið So Alone? bendir til þess að
breiðskífa verði forvitnileg. Porn-
opop er einnig mjög forvitnileg
sveit, ekki síst í ljós afbragðsskífu
Pornopop
Morgunblaðið/Jim Smart
sem sveitin sendi frá sér fyrir síð-
ustu jól. Lagið Trumpet bætir þó
litlu við það sem þá var sagt þó gott
sé.
Bellatrix, sem áður hét Kolrassa
krókríðandi, sýnir á sér á sér nýja
hlið og óvænta fyrir þá sem ekki
hafa sé sveitina á tónleikum á und-
anfórnum mánuðum. Bellatrix-
stúlkur hafa tekið hljómborð í þjón-
ustu sína, hert á taktinum og þétt
þannig að niðurstaðan er danspopp
með keyrsluköflum. Bráðgott lag.
Port er hljómsveit sem lofar góðu
með glymjandi gítarpoppi, en Dag-
bók NN er aftur ómótaðra fyrir-
bæri, þó lagið Salt sé um margt vel
heppnað, sérstaklega bergmálar
keyrsluflétta lagsins skemmtilega
af breskri gítarkæfu. Lokalag skíf-
unnar er svo skemmtilegt „slys“ hjá
þeim Mausverjum, en harmonikkan
hefði að skaðlausu mátt víkja fyrir
frumlegra hljóðfæri.
Kvistir er flekkótt skífa og mis-
góð sem vonlegt er en gefur þó
skemmtilega mynd af því er á seyði
íslensku rokki/poppi.
Árni Matthíasson
BIOIN I BORGINNI
Sæbjöm Valdimarsson/ Arnaldur Indríðason/ Hildur Loftsdóttir
BÍÓBORGIN
Armageddon -k-kVz
Afskaplega amerísk stórmynd
með húmor, finum brellum og
miklum hetjum.
Sex dagar, sjö nætur kk'A
Ford og Heche mynda prýðilegt
par í gamanhasarmynd a la
Romancing the Stone. Full tugg-
ið en ekki leiðinlegt.
U beygja kk'Æ
Oliver Stone er í stuði í ofbeldis-
fullri nútíma kúrekamynd.
Skemmtileg og léttgeggjuð en
svolítið langdregin.
Brjáluð borg kk
Fréttamaður (Dustin Hoffman)
notfærir sér lykilstöðu í gísla-
tökumáli til að komast aftur í
fremstu röð en fær skömm á öllu
saman. Travolta fínn í illa skrif-
uðu hlutverki meðaljóns sem
grípur til örþrifaráða. Vel gerð
að mörgu leyti en skortir sann-
færingarkraft eftir því sem á líð-
ur.
SAMBÍÓIN,
ÁLFABAKKA
Armageddon kk'Æ
Afskaplega amerísk stórmynd
með húmor, fínum brellum og
miklum hetjum.
Switchback k
Afleitlega illa skrifuð og leikin
frumraun vaxandi handritshöf-
undar sem leikstjóra. Áhorfand-
inn veit leyndarmálið að bragði;
hver er fjöldamorðinginn. Vel
tekin.
Sex dagar, sjö nætur kk'Æ
Ford og Heche mynda prýðilegt
par í gamanhasarmynd a la Rom-
ancing the Stone. Full tuggið en
ekki leiðinlegt.
‘til there was you kk'/z
Fínasta konumynd; rómantísk og
gamansöm um ólíkar manneskjur
sem rata saman.
The Man Who Knew too Little k
Bill Murray er sá eini með viti í
meðvitaðri klisjusúpu sem gengur
ekki upp.
US Marshalls kkk
Tommy Lee Jones er í toppformi
á eftir flóttamanni sem leikinn er
af Wesley Snipes. Fínasta afþrey-
ing.
Anastasia kkk
Disneyveldið er ekki lengur eitt
um hituna í gerð úrvalsteikni-
mynda. Anastasia jafnast á við
það besta sem gert hefur verið.
Frábærar teikningar, persónur og
saga, sem fer frjálslega með sögn-
ina af keisaradótturinni og bylt-
ingu öreiganna.
Mr. Magoo k
Ófyndin mynd, 20 árum of seint á
ferðinni. Leslie Nielsen lyftir
henni ekki upp, er leiðinlegur Mr.
Magoo.
Litla hafmeyjan kkk
Falleg og fyndin kvikmynd þar
sem töfrar ævintýrsins blómstra
að fullu.
HÁSKÓLABÍÓ
Kvikt hold kkk
Almodóvar heimfærir góða,
breska sakamálasögu uppá blóð-
hita landa sinna, gráglettinn og
bersögull að vanda. Skortir meira
tauleysi til að jafna sín bestu
verk. Magnaður leikur.
Grease kkk
Það er engin spuming, myndin er
algjört „ring a ding a ding“.
Þúsund ekrur k'Æ
Alls ekki nógu vel gerð mynd eft-
ir góðri bók. Skrykkjóttur og lé-
legur leikur hjá annars góðum
leikurum.
The Big Lebowski kkk
Coenbræður eru engum líkir.
Nýja myndin er á köflum mein-
fyndin og kolgeggjuð en nær ekki
að fylgja eftir meistaraverkinu
Fargo. Leikaramir hver öðmm
betri í sundurlausri frásögn af
lúðum í Los Angeles.
Búálfarnir kkk
Virkilega skemmtileg bama- og
fjölskyldumynd, sem hægt er að
mæla með fyrir alla aldursflokka.
Piparkökukarlinn kkk
Dökk og fráhrindandi mynd sem
vinnur á. Fmmleg útgáfa á bók
eftir John Grisham. Branagh er
frábær í aðalhlutverkinu.
KRINGLUBÍÓ
Armageddon kk'Æ
Afskaplega amerísk stórmynd
með húmor, fínum brellum og
miklum hetjum.
Switchback k
Afleitlega illa skrifuð og leikin
frumraun vaxandi handritshöf-
undar sem leikstjóra. Áhorfand-
inn veit leyndarmálið að bragði;
hver er fjöldamorðinginn. Vel
tekin.
Sex dagar, sjö nætur kk'A
Ford og Heche mynda prýðilegt
par í gamanhasarmynd a la Rom-
ancing the Stone. Full tuggið en
ekki leiðinlegt.
Úr öskunni í eldinn k'Æ
Slöpp gamanmynd um ríkisbubba
sem taka að búa með Amish fólki.
LAUGARÁSBÍÓ
Mr. Nice Guy kk
Aulabrandarar og -söguþráður
en Chan er kattliðugur og lokaat-
riðið er þess virði að sjá myndina.
Brúðkaupssöngvarinn kk'Æ
Þægileg, rómantísk gamanmynd
með Adam Sandler í hlutverki
söngvara sem er óheppinn í ást-
um.
REGNBOGINN
The Object Of My Affection
kk'Æ
Ljúf og falleg mynd um ást og
vináttu. Ekki væmin og dýpri en
búast mátti við.
Þá sjaldan það rígnir kk'Æ
Ágætlega gerður, rennblautur
smábæjartryllir með fínum leik-
urum en formúlukenndu plotti.
Titanic kkk'Æ
Mynd sem á eftir að verða sígild
sökum mikilfengleika, vandaðra
vinnubragða í stóru sem smáu og
virðingar fyrir umfjöllunarefninu.
Falleg ástarsaga og ótrúlega vel
unnin endurgerð eins hrikaleg-
asta sjóslyss veraldarsögunnar.
Anastasia kkk
Disney er ekki lengur eitt um hit-
una í gerð úrvalsteiknimynda.
Anastasia jafnast á við það besta
sem gert hefur verið. Frábærar
teikningar, persónur og saga,
sem fer frjálslega með sögnina af
keisaradótturinni (?) og byltingu
öreiganna.
STJÖRNUBÍÓ
Wild Things kk
Leyndardómsfull sakamálamynd
sem týnir sér í alltof flókinni at-
burðarás.
Fyrsta
kynlífs-
reynslan
á netinu
► ÁTJÁN ára par frá Banda-
ríkjunum ætlar að missa sak-
leysið í beinni útsendingu á
netinu. Parið, sem kallar sig
Diane og Mike, ætlar að lifa
kynlífl í fyrsta skipti laugar-
daginn 8. ágúst klukkan 1 eftir
miðnætti að íslenskum tíma.
Myndavél mun fylgjast með
þessum sögulega atburði og
verður hún auga almennings
um heim allan.
Þrátt fyrir útsendinguna
hafa þau í hyggju, að því er
lögfræðingur þeirra greindi frá
á þriðjudag, að „halda þessu
eins jarðbundnu og nánu og
mögulegt er“. Hann neitaði að
gefa upp full nöfn eða segja
hvar þau byggju en sagði að
18. júlí yrðu þau á heimasiðu
sinni (www.ourfirsttime.com)
ojg myndu veita fyrstu viðtölin.
A heimasíðunni verða síðan
veittar upplýsingar um það
hvernig undirbúningurinn fer
fram næstu þrjár vikur.
Fólk hefur deilt sinum nán-
ustu stundum með netinu í
nokkur ár og hafa óteljandi pör
sýnt þar myndir og mynd-
bandsupptökur af kynlífi sínu.
Meðal þeirra óteljandi uppá-
koma sem boðið hefur verið
upp á á netinu var „viðtal“ við
górillu sem fram fór í apríl síð-
astliðnum.
Lögfræðingurinn sagði að
hugmyndin að því að sýna frá
fyrstu kynlífsreynslunni hefði
komið frá Díönu og að það væri
tjáningar- og athafnafrelsið
sem væri henni innblástur.
Hann bætti við að fæðing í
beinni útsendingu á netinu
hefði einnig haft áhrif á hana
en tvær milljónir manna fylgd-
ust með því þegar 40 ára kona
frá Flórída fæddi barn í síðasta
mánuð. „Við viljum sýna að ást-
arleikur, sem er fyrsta skrefið
að fæðingu, er alveg eins fal-
legur - og ekkert til að skamm-
ast sín fyrir,“ skrifar parið
unga á heimasíðunni.
Myndir af parinu sýna ekki
andlitin vegna þess „að það er
fyrirséð að trúarhópar og ein-
staklingur munu reyna að
hindra Díönu og Mike í að
standa við yfirlýsingar sínar.“