Morgunblaðið - 21.08.1998, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 21.08.1998, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 187. TBL. 86. ÁRG. FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Stýriflaugum skotið á bækistöðvar Bins Ladens í Afganistan og efnavopnaverksmiðju í Súdan HRYÐJUVERKAMENN EIGIHVERGIGRIÐLAND Washington. Reuters. BANDARIKJAHER skaut í gær stýriflaugum á skotmörk í Súdan og Afganistan sem Bill Clinton Bandaríkjaforseti sagði tengjast hryðjuverkasamtökum Sádi-Arabans Osama Bins Ladens. Pau samtök bæru ábyrgð á sprengjutilræðum við sendiráð Bandaríkjanna í Kenýa og Tansaníu fyrr í mánuðinum en jafnframt hefði Bandaríkjastjórn heimildii- fyrir því að „bráð ógn“ stafaði af sam- tökunum. Clinton lagði áherslu á að hryðjuverkamenn ættu hvergi að eiga griðland og tók Madel- eine Albright utanríkisráðherra í sama streng. Súdan og Afganistan hefðu á undanförnum árum margsinnis verið vöruð við því að skjóta skjólshúsi yfir hryðjuverkamenn. Bill Riehardsson, sendi- herra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, greindi öryggisráðinu frá því í gær að árásirnar hefðu verið gerðar í sjálfsvörn vegna yfirvofandi hættu í samræmi við stofnsáttmála SÞ. Búist er við að Súdanir muni leggja fram formleg mótmæli í öryggisráðinu í dag. Sandy Berger, öryggisráðgjafi Bandaríkja- stjórnar, sagði í gær að Bandaríkin hefðu sann- anh- fyrir að árásir gegn ákveðnum skotmörk- um hefðu verið í undirbúningi hjá hryðjuverka- hópum Bins Ladens. Hann sagði að nokkrum sendiráðum hefði verið lokað á síðustu dögum og að gefin hefði verið út tilskipun til löggæslu- stofnana í Bandaríkjunum að herða eftirlit. Skotið gegn hryðjuverkum Clinton greindi frá árásunum í sjónvarps- ávarpi síðdegis í gær og hélt skömmu síðar til Washington frá Martha’s Vineyard, þar sem hann hefur dvalist í sumarleyfi. Eftir að hafa fundað með helstu ráðgjöfum sínum á sviði öryggismála flutti Clinton annað ávarp þar sem hann greindi frá því að árásunum hefði verið ætlað að koma í veg fyrir frekari hryðjuverk er talin hefðu verið yfirvofandi. Hann sagði samtök Bins Ladens ekki einungis bera ábyrgð á sprengju- tilræðunum í Nairobi og Dar es Salaam heldur fjölmörgum hryðjuverkum á undanfömum ár- um. Þau hefðu m.a. myrt friðar- gæsluliða í Sómalíu og þýska ferðamenn í Egyptalandi. Þá hefðu þau lagt á ráðin um að myrða forseta Egyptalands og páfann. Einnig hefði bandaríska leyniþjónustan upplýsingar um að hryðjuverkaleiðtogar hefðu ætlað að halda fund í bækistöðvum Bins Ladens í Afganistan. „Þeir hafa morð að markmiði og saga þeirra er blóði drifin," sagði Clinton. Hann sagði að árásir Bandaríkjanna hefðu beinst gegn hryðjuverkum og markmiðið verið að koma höggi á þau samtök og hópa er tengd- ust Bin Laden og væru fjármögnuð af honum. Sagði Bandaríkjaforseti líklegt að Bin Laden væri höfuðpaur alþjóðlegra hryðjuverka. Ekki stríð gegn íslam Clinton lagði áherslu á að Bandaríkin væra ekki að segja íslamstrú stríð á hendur, sem hann sagði vera trú hundraða milljóna friðelsk- andi manna um allan heim. Engin trúarbrögð legðu hins vegar blessun sína yfir morð á sak- lausu fólki. Aðgerðunum hefði verið beint gegn „ofsatrúarmönnum og morðingjum" er notuðu tráarbrögð til að réttlæta illvirki sín. Spáði hann langri baráttu „frelsis og ofsatrúar". Henry Shelton, yfirmaður Bandan'kjahers, sagði að markmið árásarinnar hefði ekki verið að ráða Bin Laden af dögum heldur að koma höggi á hryðjuverkasamtök hans. William Cohen varnarmálaráðherra tók í sama streng og sagði að hundruð og jafnvel þúsundh- hryðjuverkamanna hefðu hlotið þjálfun í bæki- stöðvum Bins Ladens. Að sögn Cohens hófst undirbúningur árásanna í síðustu viku. Stýriflaugunum var skotið frá herskipum á Rauðahafi og Ai-abíuhafi klukkan hálfsex í gær á sex skotmörk í Afganistan og beindust árás- irnar að bækistöðvum Bins Ladens í Zhawar Kili, skammt frá landamærum Pakistans. Þá var stýriflaugum skotið á E1 Shifa-efnaverk- smiðjuna í Khartoum, höfuðborg Súdans, þar sem talið er að framleiðsla efnavopna hafi farið fram. Stjórnvöld í Súdan lýstu því hins vegar yfir að um lyfjaverksmiðju hefði verið að ræða. Sandy Berger, öryggisráðgjafi Bandaríkjafor- seta, sagði gervihnattamyndir benda til veru- legra skemmda á verksmiðjunni og sjónvarpið í Súdan sýndi í gærkvöldi myndir þar sem sjá mátti byggingar standa í Ijósum logum. Flestir þingmenn styðja aðgerðir Margir af helstu andstæðingum Bills Clint- ons Bandan'kjaforseta lýstu í gær yfir ein- dregnum stuðningi við árásirnar og virðist sem þær njóti stuðnings þoraa þingmanna. Jesse Helms, formaður utanríkismála- nefndar öldungadeildarinnar, sagði greinilegt að þeim hefði ver- ið beint að innsta hring hryðju- verkasamtaka er hefðu líf Banda- ríkjamanna á samviskunni. „Ég vona innilega að þessar aðgerðir hafi skilað árangri," sagði Helms. Alfonso d’Amato, er einnig situr í öldungadeildinni fyrir Repú- blikanaflokkinn, sagði að ef ein- hver stæði í þeirai trá að þingið myndi ekki styðja forsetann af fullum heilindum þá færi sá hinn sami villur vegar. Þingmenn stæðu við bak hans óháð öðrum deiluefnum. Newt Gingrich, for- seti fulltrúadeildar þingsins, sagð- ist þeirrar skoðunar að Bandarík- in hefðu staðið rétt að málum. Nokki-ir öldungadeildarþingmenn töldu hins vegar tímasetningu árásanna óheppilega og að trúverðugleiki Bandai-íkjaforseta væri í hættu vegna Lewinsky-málsins. „Ég ætla ekki að gefa í skyn að annarlegar hvatir hafi legið að baki... en mér er mikið í mun að fá skýringar á því hvers vegna þetta var gert einmitt nú,“ sagði Arlen Specter. Alþjóðleg viðbrögð misjöfn Alþjóðleg viðbrögð við árásunum hafa að vonum verið misjöfn. Tony Blair, forsætisráð- herra Bretlands, lýsti yfir eindregnum stuðn- ingi við aðgerðirnar og ísraelar tóku í sama streng. Ríki eins og írak og Líbía sökuðu hins vegai- Bandai'íkin sjálf um hryðjuverk. Arásin á efnaverksmiðjuna í Khartoum hefur vakið mikla reiði í Súdan. Upplýsingamálaráð- heraa landsins, Ghazi Salah-Eddin, lýsti því yfir i sjónvarpsútsendingu að árásin væri „glæpsam- legur verknaður" og að hann teldi að Banda- ríkjaforseti væri að reyna að draga athyglina frá rannsókninni á sambandi sínu við Moniku Lewinsky. Þulur í súdanska ríkissjónvarpinu, sem fyrst skýrði frá loftái'ásinni, endaði fréttina á orðunum „Við munum verja land okkar“. Leiðtogi Talebana í Afganistan, Mullah Mo- hammad Omar, fordæmdi einnig árásirnar og neitaði því að hryðjuverkasveitir Osama Bins Ladens hefðu haft bækistöðvar í landinu. „Við höfðum þegar lokað búðum hans,“ sagði hann við fréttamenn í gær. Hann sagði ennfremur að Bin Laden væri heill á húfi og að Talebanar myndu ekki framselja hann til Bandaríkjanna. Bill Clinton Reuters SÚDANSKA sjónvarpið sýndi í gær myndir af eyðileggingunni er sprengjuárásin olli. Sjá mátti ijúkandi rústir, byggingar er stóðu í Ijósum logum og blóðug fórnarlömb. Yfirlýstur haturs- maður Bandaríkjanna BANDARÍSKIR embættismenn hafa skýrt frá því að Osama Bin Laden hafi strax verið ofarlega á lista yfir þá sem grunaðir voru um að hafa borið ábyrgð á sprengjutilræðunum í Nairobi og Dar es Salaam, vegna þess að hann hefði bæði haft ástæðu, tækifæri og möguleika til að fremja slík hryðjuverk. Hann hefði opinberlega lýst yfir hatri á Bandaríkjunum, hefði haft tiltæka liðsmenn og búnað í Austur-Afr- íku og búið yfir nægilegum auðæf- um. Bin Laden hefur lengi verið undir smásjá bandarísku leyniþjónustunnar. Hann er fæddur í Sádi-Arabíu og meðlimur einnar ríkustu fjölskyldu landsins, en var sviptur ríkisborgararétti árið 1994 vegna gruns um aðild að hryðjuverkum. Hann gekk árið 1979 til liðs við skæruliða sem börðust gegn innrás Sovétmanna í Afganistan og gat sér brátt orð sem stríðshetja. Hann hélt til Súd- an í byijun þessa áratugar, en vegna þrýst- ings frá Vesturlöndum var hann neyddur til að yfirgefa landið árið 1996 og hefur siðan dvalið í Afganistan. Bin Laden lýsti meðal annars yfir ábyrgð á sprengjutilræði sem beint var gegn bandarískum hermönnum í Jemen í desem- ber 1992, og hefur sagt opinberlega að liðs- menn hans hafi barist við bandarfska her- menn í Sómalíu ái'ið 1993. Fjórir fylgismenn hans hafa viðurkennt aðild að sprengjutil- ræði í Riyadh í Saudi Arabíu í nóvember 1995, sem varð fimm bandarískum her- mönnum að bana, og liann er grunaður um að hafa átt þátt í að fjármagna sprengjutilræðið í World Trade Center í New York árið 1993. Heimildir eru óljósar um sam- tök Bins Ladens. Haft er eftir hcimildamönnum innan banda- rísku leyniþjónustunnar að hann hafi yfir að ráða um 3 þúsund manna herliði, sein liafi á undan- förnum árum tekið þátt í bardög- um í Sómalíu, Erítreu, Tsjetsjeníu, Afganistan, Bosniu, Tadsjikistan og Jemen. Bin Laden er einnig tal- inn tengjast egypsku hryðjuverkasamtökun- um Heilagt stríð íslams. Bandaríska utanríkisráðuneytið varaði í júní sl. við því að hætta gæti verið á hryðju- verkum „innan nokkurra vikna“, í kjölfar þess að Bin Laden lýsti yfir „fatwa“, eða heilagri tilskipun um að ráðast gegn Banda- ríkjunum og Israel. „Við teljum að mestu þjófar í veröldinni séu Bandaríkjamenn og að mestu hryðjuverkamenn í veröldinni séu Bandaríkjamenn," sagði Bin Laden í útsend- ingu á ABC sjónvarpsstöðinni 10. júní. „Eina leiðin til að verjast þessum árásum er að beita svipuðum meðulum. Við gerum ekki greinarmun á hermönnum og óbreytt- um borgurum. Allir eru skotmark þessa „fatwa“. Þið munuð hafa ykkur á brott þeg- ar lík bandarískra hermanna og borgara verða send heim í líkkistum. Þá munuð þið hafa ykkur á brott.“ Vitnaði Clinton í þessi orð Bins Ladens er liann útskýrði árásir Bandaríkjahers í sjónvarpsávarpi í gær. Osama Bin Laden

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.