Morgunblaðið - 21.08.1998, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1998 9
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Kristinn
EPLASAFI í ómerktu íláti, karamellur og friðarboðskapur í
plastpoka frá Heimsfriðarsambandi fjólskyldna.
Friðarboðskapur í formi eplasafa
og sælgætis borinn í hús
Tákn um gagn-
kvæma tryggð í
hjónabandinu
ALLMARGIR íbúar í Grafarvogi,
á Akureyri og víðar hafa á síðustu
dögum fengið inn um bréfalúguna
hjá sér lítinn plastpoka með
þremur karamellum og drykk í
litlu lokuðu íláti. Með í pokanum
fylgja skilaboð á miða, þar sem
segir m.a.: „Gjörið svo vel að deila
þessum drykk með maka þínum
og þessum molum með börnum
ykkar sem tákn um gagnkvæma
tryggð í hjónabandi ykkar.“
Á miðanum er fjallað um fjöl-
skylduna sem skóla kærleika og
sameiningar og minnt á ábyrgð
foreldra gagnvart börnum sínum
og maka. Fyrir sendingunni
stendur Heimsfriðarsamband
fjölskyldna. Pauline Sch. Thor-
steinsson hjá íslandsdeild
Heimsfriðarsambándsins segir
hugmyndina vera að hvetja fjöl-
skyldur til þess að standa saman.
Það að neyta drykkjarins og sæl-
gætisins saman eigi að vera tákn-
ræn athöfn til staðfestingar
gagnkvæmri tryggð, eins konar
sakramenti. Hún segir hugmynd-
ina um að senda eplasafann
komna frá félögum í Heimsfrið-
arsambandi fjölskyldna í Þýska-
landi, en eins og nafnið gefur til
kynna er sambandið alþjóðlegt.
Með þessari nýstárlegu leið til
að koma friðarboðskapnum á
framfæri kveðst Pauline vonast
til þess að ná til fólks úti í samfé-
laginu. „Við vonum að fólk muni
hafa samband við okkur, þvi við
viljum mynda net fólks sem trúir
á fjölskylduna," segir hún.
Til skoðunar hjá
Heilbrigðiseftirliti
í drykkjan'látinu er eplasafl,
að sögn Pauline, en engar merk-
ingar eru á því og innihaldsins er
heldur ekki getið á miðanum, svo
viðtakandinn hefur enga hug-
mynd um hvað í ílátinu er. Sam-
kvæmt reglugerð um merkingu,
auglýsingu og kynningu matvæla
frá 1993 skal merkja öll matvæli
með nafni vöru, framleiðanda og
„best fyrir“-dagsetningu. Sýnis-
horn hefur verið sent Heilbrigð-
iseftirliti Reykjavíkur, sem mun
taka sendinguna til skoðunar og
athuga hvort um brot á fyrr-
nefndri reglugerð sé að ræða.
Flutningur Landmælinga
Sýknudómi áfrýj-
að til Hæstaréttar
Dauði hrossanna um borð í Norrænu
Skýrsla verður send
dómsmálaráðuneytinu
SÝKNUDÓMI Héraðsdóms
Reykjavíkur yflr umhverfisráð-
herra vegna flutnings Landmælinga
Islands til Akraness hefur verið
áfrýjað til Hæstaréttar.
Frá áfrýjun málsins, sem María
G. Hafsteinsdóttir, starfsmaður
Landmælinga höfðaði, er sagt í
nýjasta tölublaði BHM-tíðinda.
Þar segir að trúnaðarmenn
starfsmanna Landmælinga og for-
ystumenn BHM, BSRB og Félags
íslenskra nátturufræðinga hafi
rætt niðurstöðu héraðsdóms á
fundi með Ragnari H. Hall, lög-
manni Maríu. „Þar kom m.a. fram
að með dómnum væri ráðherravald
styrkt verulega - sem hreint ekki
væri á bætandi. Útilokað væri að
láta Héraðsdóm Reykjavíkur hafa
síðasta orðið í þessu máli,“ segir í
fréttabréfinu, þar sem fram kemur
að málið muni fá flýtimeðferð fyrir
Hæstarétti, líkt og fyrir héraðs-
dómi, og verði það því væntanlega
flutt í haust.
SKÝRSLUR sem lögregluyfirvöld í
Danmörku og sýslumaðurinn á
Seyðisfírði tóku af gæslumanni
hrossanna níu sem drápust um borð
í ferjunni Non-ænu í síðustu viku
verða sendar dómsmálaráðuneytinu
sem hefur forræði yflr málinu.
Samkvæmt lögum þarf ákvörðun
dómsmálaráðhena ef rannsaka á
mál sem varða atburði sem gerast
um borð í skipum við strendm- lands-
ins eða hvar sem er. Sýslumanns-
embættið á Seyðisfirði fékk beiðni
frá tryggingafélaginu sem tryggði
hrossin um að gera ákveðnar athug-
námskeið
hefst 26. ágúst
• Kennt á rútu, vörubíl og leigubí!
• Kennt á vörubíl með tengivagni
• Sveigjanlegur námstími (áfangakerfi)
® Kennt samkvæmt námsskrá
• Sérmenntaðir kennarar
® Fagleg kennsla - bókleg og verkleg
® Fullkomin kennsluaðstaða
® Góðir kennslubílar
® Námsgögn verða eign nemenda
® Góður námsárangur staðfestir
metnað skólans
••
Kennsla og skrifstofa:
Þarabakka 3, Mjóddinni, Rvík.
UPPLÝSINGAR/BÓKANIR
I SIIVIA 567-0-300
Fífa • Skátabúðin • Krakkakerrur sími562-9589
anir og segir Lárus Bjai'nason sýslu-
maður að hann hefði ekki séð ástæðu
til annars en að verða við því.
Málið í höndum
dómsmálaráðuneytis
„Rannsóknin fólst í því að skoða
bílinn og taka skýrslu af gæslu-
manni hestanna. Framhald málsins
verður svo væntanlega það að við
sendum málið dómsmálaráðherra til
ákvörðunar samkvæmt 4. gi'ein al-
mennra hegningarlaga því reglan er
sú að við höfum ekki forræði yfir
málinu til rannsóknar," segir Lárus.
Hann segir að danska lögreglan
hafi strax hafið rannsókn á málinu
og tekið skýrslu af gæslumanni
hrossanna. „í frumkönnun okkar
kemur það fram að sá eini maður
sem við gátum tekið skýrslu af gef-
ur það til kynna að ábyrgðin liggi
annars staðar en hjá honum,“ segir
Lárus.
Það er svo á valdi dómsmálaráðu-
neytisins hvort það ákveður að frek-
ari rannsókn fari fram. Lárus segir
að gæslumaður hrossanna hafi verið
tekinn fyrir sem vitni þar sem engin
kæra liggi fyrir.
www.mbl.is
Úrvnl «f frönskum
buxnmlrögtum
Opiö virka daga frá kl. 9-18,
laugardaga frá kl. 10-14.
Neðst við Dunhaga, sfmi 562 2230.
/Ý
//
& •
r
m
LA BAGUETTE
Glæsibæ og Tryggvagötu 14, áður Stélið
Kaupið 1 pk. af súkkilaðiboll-
um eða 1 pk. af snúðum og
fáið 5 smjörhorn frítt
á meðan birgðir endast.
LA BAGUETTE Glæsibæ
og Tryggvagöfu 14 (áður Stélið).
Opið frá kl. 1 2-1 8 virka daga,
lau. frá kl. 12-14 í Glæsibæ
og frá kl. 12-17 í Tryggvagötu 14
:
OTs ölunni lýkur á laugardaginn
ÚTSALAN
Seljum síðustu stígvélin á þessu frábæra verði.
Útsölunni lýkur á laugardaginn kl. 16.
SENDUM UM ALLT LAND
Grandagarði 2, Rvfk, sími 552-8855. Opið virka daga 8-18 og laugaid. 22/8 kl. 10-16.