Morgunblaðið - 21.08.1998, Blaðsíða 17
MORGUNB LAÐIÐ
VIÐSKIPTI
FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1998 17
Forstjóri Kaupþings hf. um afkomu fyrirtækisins
Mikilvægt
að skila góð-
um hagnaði
Verkefnastaða prýðileg og
ytri skilyrði áfram góð
SIGURÐUR Einarsson forstjóri Kaupþings hf. segir að afkoma
Kaupþings hafi verið betri á fyrstu sex mánuðum þessa árs en áætl-
anir hafi gert ráð fyrir og sé það mörgum samverkandþ þáttum að
þakka. Hann segir þó að menn verði að vera vakandi. „Ég er mjög
ánægður með afkomuna, og það er gott að hagnast, en menn verða að
muna það að samkeppnin er að harðna og því er mikilvægt að skila
góðum hagnaði núna. Umhverfið versnar og verður erfiðara. E»ví er
nauðsynlegt að búa núna í haginn til hörðu áranna,“ sagði Sigurður í
samtali við Morgunblaðið.
19 Kaupþing hf
B BB&k Úr milliuppgjöri 30/6 1998, samstæða
Rekstrarreikningur mnónir króna 30/6 1998 30/6 1997 Breyting
Vaxtatekjur 380,5 124,8 +205%
Vaxtagjöld 345,9 98,6 +251%
Hreinar vaxtatekjur 34jTj 26,2 +32%
Aðrar rekstrartekjur 585,1 426,1 +37%
Hreinar rekstrartekjur 619,6 452,3 +37%
Önnur rekstrargjöld 402,3 256,1 +57%
Hagnaður fyrir skatta 217,4 196,3 +11%
Tekju- og eignaskattar 74,1 73,7 +0,5%
Hagnaður tímabilsins 143,3 122,5 +17%
Efnahagsreikningur 30/6 '98 31/12 '97 Breyiing
L Eignir: \ Milljónir króna
Kröfur á lánastofnanir 1.445,1 1.746,2 -17%
Útlántil viðskiptamanna 595,8 1.061,8 -44%
Markaðsverðbréf og eignarhl. í fél. 11.267,7 4.769,6 +136%
Aðrar eignir 649,7 554,8 +17%
Eignir samtals 13.958,3 8.132,4 +72%
1 Sku/d/r og eigið fé; \
Skuldir við lánastofnanir 8.643,8 5.198,5 +66%
Lántaka 2.595,8 888,9 +192%
Aðrar skuldir 1.380,4 989,9 +39%
Tekjuskattsskuldbinding 103,9 75,9 +37%
Víkjandi lán 404,3 302,0 +34%
Eigiðfé 830,0 677,1 +23%
Skuldir og eigið fé samtals 13.958,3 8.132,4 +72%
Hagnaður Kaupþings hf. og
dótturfélaga varð 143 m.kr. fyrstu
sex mánuði ársins miðað við rúmar
122 m.kr. á sama tímabili í fyrra.
„Ytri skilyrði voru hagstæð og
höfðu áhrif og síðan má segja að
fyrirtækið hafi stækkað á öllum
vígstöðvum. Eignastýring hefur
aukist mikið, bæði hjá verðbréfa-
sjóðnum hér og í Lúxemborg, og
gjaldeyrisviðskiptin hafa aukist að
umfangi og það sama má einnig
segja um afleiðuviðskipti," sagði
Sigurður um helstu ástæður góðr-
ar afkomu Kaupþings hf á fyrri
helmingi ársins.
Útlitið á síðari hluta ársins er
nokkuð gott að sögn Sigurðar.
Verkefnastaðan er prýðileg að
hans sögn og hann segist búast við
að ytri skilyrði verði áfram góð.
Aðspurður um hugsanlega sam-
einingu FBA og Kaupþings hf. með
kaupum Sparisjóðanna á FBA,
segir hann að ef svo fari komi allt
önnur mynd á fyrirtækið og mjög
spennandi.
Tímamótastarf í tækni-
og upplýsingaþróun
Um helstu verkefni á næstunni
segir hann að verið sé að vinna
tímamótastarf hjá fyrirtækinu.
„Hér er verið að vinna tímamóta-
starf í tækni- og upplýsingaþróun
fyrirtækisins og ég reikna með að
stærstu verkefnin á síðari hluta
ársins verði að koma nýjum kerf-
um í gagnið."
Hann sagði t.d. að verið væri að
taka í gagnið ný upplýsingakerfi
bæði hvað varðar eignastýringu,
verðbréfamiðlun, bókhald og bak-
vinnslu. „Fyrirtækið mun verða í
stakk búið til að auka verulega við
sig viðskiptamagnið, með svipuðum
mannskap og er hjá fyrirtækinu í
dag.“
Vaxtarsjóð-
urinn tapar
8 m.kr.
TAP Vaxtarsjóðsins fyrstu 6 mán-
uði ársins 1998 nam 8.404 mkr. en
hagnaður um 3.989 m.kr. varð
fyrstu sex mánuði ársins 1997.
Heildareignir sjóðsins nema 306
m.kr. en voru 346 mkr. um sl. ára-
mót, að því er fram kemur í árs-
hlutareikningi sjóðsins.
Bjöm Jónsson forstöðumaður hjá
VÍB, bendir á að munurinn á þess-
um sjóði og almennum hlutabréfa-
sjóðum sé sá að Vaxtarsjóðurinn
fjárfesti einungis í hlutabréfum á
meðan hinir leggja mest um 65%
eigna sinna í hlutabréf en restina í
skuldabréf og erlend verðbréf sem
geta dregið úr sveiflum í ávöxtun.
Bjöm segir meginástæðuna fyrir
tapi sjóðsins felast í því að eftir
stofnun hans í nóvember 1996, óx
hann hratt í hálfan milljarð króna á
sama tíma og hlutabréfaverð á inn-
lendum markaði hækkaði: „Öllum
þessum fjármunum hefur verið var-
ið til kaupa á hlutabréfum sem tóku
að lækka í maí sl. og þar af leiðandi
sýnir milliuppgjörið nú taprekstur".
Björn bendir á að ákveðið hafi
verið að gera ákveðnar breytingar á
fjárfestingastefnu sjóðsins vegna
breyttra aðstæðna á markaði: „í
stað þess að kaupa eingöngu hluta-
bréf hér innanlands eins og hingað
til hefur verið gert, þá mun stjórn
sjóðsins framvegis horfa á fjárfest-
ingarmöguleika á erlendum mörk-
uðum og nýta þannig öll tækifæri,
hvar sem þau gefast: „Við emm
bjartsýnir á að hækkandi gengi
hlutabréfa og breyttar áherslur í
fjárfestingarstefnu og eignarstýr-
ingu sjóðsins muni skila okkur betri
afkomu á síðari hluta ársins", segir
Björn.
Viðskiptasendi-
nefnd til Hali-
fax í nóvember
Kynning á íslenskum vörum og þjónustu
FINNUR Ingólfsson viðskipta- og
iðnaðarráðherra fer ásamt við-
skiptanefnd til Halifax í Nova
Scotia 2.-5. nóvember næstkom-
andi. í nefndinni verða fulltrúar ís-
lenskra útflutnings- og innflutn-
ingsfyrirtækja, sem fá þannig
tækifæri til að kynna vöm sína og
þjónustu og afla viðskiptatækifæra
í Nova Scotia.
Útflutningsráð og Fjárfestingar-
stofan standa að ferðinni auk við-
skipta- og iðnaðarráðuneytisins en
Eimskip og Flugleiðir taka einnig
þátt í verkefninu. Ferðin er farin í
kjölfar viljayfirlýsingar sem iðnað-
ar- og viðskiptaráðherra skrifaði
undir ásamt starfsbróður sínum í
Nova Scotia fyrr á þessu ári um að
efla samskipti og viðskipti. Ferðin
hefur hlotið vinnuheitið Halifax ‘98.
Stökkpallur
til Kanada
Þorgeir Pálsson, forstöðumaður
sjávarútvegssviðs Útflutningsráðs,
segir að Halifax ‘98 sé í raun kaup-
stefna þar sem sýndar verða ís-
lenskar vörur og þjónusta verður
kynnt. „Skipulagðir verða fundir
með kanadískum fyrirtækjum fyr-
ir íslensku þátttakendurna og farið
í fyrirtækjaheimsóknir. í heildina
verður lögð áhersla á að skapa já-
kvætt og óformlegt andrúmsloft,
þar sem viðskiptamöguleikar ís-
lensku þátttakendanna eru í fyrir-
rúmi. Nova Scotia er ákjósanlegur
markaður fyrir íslensk fyrirtæki,
ekki síst í sjávarútvegi og iðnaði
tengdum honum, hugbúnaði og
þjónustu. Fótfesta á þessum mark-
aði gæti nýst þeim sem stökkpall-
ur inn á enn stærri markað,
Kanada.“
Þorgeir segir að nokkur íslensk
fyrirtæki eigi nú þegar viðskipti á
svæðinu og vitað sé um önnur fyr-
irtæki sem hafi áhuga á að þreifa
fyrir sér þar. „Þá hef ég orðið var
við mikinn áhuga fyrirtækja í Nova
Scotia á að koma á viðsldptasam-
böndum við Islendinga," segir Þor-
geir.
Þau fyrirtæki, sem áhuga hafa á
að verða með í för, geta fengið nán-
ari upplýsingar hjá Útflutningsráði
en kynningarfundur vegna ferðar-
innar verður haldinn á fimmtudag-
inn í næstu viku.
BRIDGE
blandað sælgæti
Tllboðin gilda til 27. ágúst
HAGKAUP
Alttaf betri kaup