Morgunblaðið - 21.08.1998, Side 4
4 FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Gefur
Grundar-
fjarðarkirkju
ljósakrón-
una dýru
GRUNDFIRÐINGAR fá á næstunni að
njóta gxillhúðuðu ljdsakrónunnar, sera
Gísli Holgersson flutti inn frá Ítalíu og
sagt hefur verið frá í Morgunblaðinu.
Það er Þorkell Jóhann Sigurðsson sem
er kaupandi ljósakrónunnar og hyggst
hann færa Grundarfjarðarkirkju hana
að gjöf til minningar um eiginkonu sína
Kristínu Kristjánsdóttur og foreldra,
þau Sigurð Eggertsson skipstjóra og
Ingibjörgu Pétursdóttur og fjölmörg
ættmenni sem hvfla í kirkjugarðinum á
Grundarfirði.
Þorkell er fæddur í Ólafsvík en fluttist
til Grundarfjarðar tíu ára að aldri með
foreldrum sínum. Þar dvaldi hann mest-
an sinn starfsaldur, var m.a. útibússtjóri
kaupfélagsins á Stykkishólmi og síðar
kaupfélagsstjóri þegar kaupfélag var
sett á laggirnar á Grundarfirði. Þorkell
segist hafa sterkar taugar til Grundfirð-
inga og viljað sýna hug sinn í verki með
því að gefa bæjarbúum gjöf og hafði
hann samband við sóknarprestinn, Karl
Matthíasson, sem benti honum á að
kirkjuna vantaði Ijósakrónu.
Kaupverðið er
ein milljón
Þorkell réðst ekki á garðinn þar sem
hann var Iægstur heldur keypti gullhúð-
uðu Ijósakrónuna en söluverð hennar
var um ein milljón króna. Þorkell lætur
ekki þar við sitja heldur hefur hann
einnig veitt tveimur milljónum króna í
líknar- og mannúðarsjóð á Grundarfirði
sem hann setti á laggimar. Þorkell segir
að þrátt fyrir að flestir ættingjar hans
séu fluttir á brott frá Grundarfirði eigi
hann þar góða kunningja. Sá tími er þó
liðinn þegar hann þekkti alla á staðnum
eins og var raunin á þeim tíma þegar
hann var kaupfélagsstjóri.
Séra Karl segir ætlunina að kveikja
fyrst á ljósakrónunni á afmæli Þorkels,
18. september næstkomandi, en þá verð-
ur hann níræður.
ÞORKELL við nýju ljósakrónuna.
Morgunblaðið/Kristinn
Utanríkisráðherra ræddi við starfsbróður sinn í Suður-Afríku
Aformað að Siglfirðingur
fari til veiða við S-Afríku
Höfðaborg. Morgunblaðið.
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkisráðhen-a
óskaði í gær eftir því á fundi í Höfðaborg með
Alfred Nzo, utanríkisráðherra Suður-Afríku,
að íslenzkum skipstjórnarmönnum yrði auð-
veldað að fá atvinnuleyfi í landinu. Ástæðan er
meðal annars sú að áformað er að íslenzki tog-
arinn Siglfirðingur, sem verið hefur við veiðar
í Namibíu, fari fljótlega til veiða í suður-
afrískri lögsögu.
„Það er nánast ákveðið að Siglfirðingur
verði gerður út héðan frá Suður-Afríku,“ sagði
Halldór í samtali við blaðamann Morgunblaðs-
ins. Hann segir að treglega hafi gengið fyrir
islenzka skipstjómarmenn að fá atvinnuleyfi í
Suður-Afríku, en þar starfar nú einn íslend-
ingur á togara útgerðaríyrirtækisins Irvin og
Johnson, sem er það umsvifamesta í landinu.
„Við tókum upp að mikilvægt væri að hægt
yrði að stíga þetta skref og að íslenzkir yfir-
menn fengju að starfa hér um einhvern tíma.
Því var vel tekið,“ segir Halldór.
Fundi Halldórs með Nzo seinkaði nokkuð,
þar sem sá síðarnefndi þurfti að sitja skyndi-
fund Nelsons Mandela, forseta Suður-Afríku,
og Sams Nujoma, forseta Namibíu, vegna
átakanna í Kongó.
Utanríkisráðherra ræddi við Nzo um stjórn-
málaástandið í Suður-Afriku og um þróunar-
aðstoð íslands við þrjú nágrannaríki, Malaví,
Mósambík og Namibíu. „Það er Suður-Afríku-
mönnum mikilvægt að samstarf við þessar
þjóðir sé gott, því ástandið þar skiptir máli
hér,“ segir Halldór.
Ráðherra fer á fund utanríkisráðherra
Norðurlanda í Svíþjóð síðar í mánuðinum og
fóru suður-afrísk stjómvöld meðal annars
fram á að hann bæri þar upp bón um aðstoð
við friðargæsluæfingu ríkja í sunnanverðri Af-
ríku, sem haldin verður á næstunni. Halldór
segir þó ólíklegt að ísland muni eiga hlut að
þeirri aðstoð, enda verði það einkum hermenn
sem taka þátt í henni.
Utanríkisráðherra skoðaði í gær starfsemi
Irvin og Johnson. Fyrirtækið á mikil viðskipti
við ísland og hefur meðal annars keypt fisk-
vinnsluvélar frá Marel. Halldór segir áhuga
fyrir því hjá forsvarsmönnum fyrirtækisins að
kaupa fleiri vörur frá Islandi, meðal annars
veiðarfæri, en þar standi tollar suður-afrískra
stjórnvalda í vegi. Hafi hann tekið það mál upp
við Nzo og embættismenn hans.
I
I
1
I
»
I
I
i
I
Veiddi 26
punda lax 84
ára gamall
SÖREN Einarsson frá Húsavík er
lýsandi dæmi um að margt er
mögulegt þótt árin færist yfir.
Hann er 84 ára að aldri, en lætur
sig ekki muna um að veiða á
hverju sumri í einni erfiðustu lax-
veiðiá landsins, Laxá í Aðaldal.
Hefur hann gert svo í nær 30 ár,
eða síðan að hann tók við af föður
sínum Einari Sörenssyni.
í vikunni var hann í ánni með
veiðifélaga sínum Magnúsi Þor-
vatdssyni og gerði sér lítið fyrir og
veiddi m.a. tvo af stærstu löxum
sumarsins, 26 punda og 21 punds.
Sá stærri er stærsti lax hans fyrr
og síðar og stærsti lax sem veiðst
hefur á svæðum Laxárfélagsins
um árabil. Hann er einnig annar
tveggja stærsta laxa sumarsins yf-
ir allt landið.
26 punda laxinn veiddi Sören á
sunnudaginn í Hrúthólma í landi
Hólmavaðs. „Ég setti í laxinn á
maðk. Ég er aðallega með maðk,
kasta þó stundum spæni. Laxinn
var dálítið erfiður og lét illa. Viður-
eignin tók 45 mínútur og fylgdum
við Magnús laxinum niður með
Hrúthólmanum og náðum honum
neðst í honum. Það var hætta á því
þarna neðst í hólmanum, að missa
hann niður eftir, niður á Nessvæð-
in, þá hefði þurft að fylgja honum
eftir með tilheyrandi erfiðleikum.
Það varð því ofan á að taka vel á
honum og það gekk eftir að okkur
tókst að landa honum án þess að út
í vandræði færi. Það er meiningin
að stoppa þennan lax upp, Laxár-
félagið ætlar að gera það og hafa
hann uppi á vegg í Vökuholti,"
sagði Sören í samtali við Morgun-
blaðið í gær.
Ekki hættur veiðum
Sören fylgdi þessu eftir með því
að setja í annað tröll á Mjósundi á
miðvikudagsmorguninn. Enn var
hann með maðk á önglinum. „Þessi
lax var smærri, en hann var þung-
ur og fastur fyrir og þarna er dálít-
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
SÖREN t.h. með 26 punda boltann, en veiðifélagi hans Magnús Þorvaldsson heldur á þeim „litla“, 21 punds.
ið mikill straumur og ég var
hræddur um að missa hann fram
af Æðarfossum sem eru þama rétt
fyrir neðan. Ég varð því að taka á
honum, vatt línuna upp á höndina
og gekk upp eftir. Laxinn tók á
móti, en ég lét mig ekki og þá var
gott að geta treyst tækjum sínum.
Eg leiddi hann vel upp fyrir og fór
að kljást við hann þar. Hann var
þægur og góður eftir þetta og það
gekk vel að landa honum. Þetta
var 21 punds hængur," sagði
Sören.
Fer hann kannski líka upp á vegg?
„Nei, hann var merktur og haus-
inn með örmerkinu var sendur
suður. Hann fór því bara í reyk,“
I
í
i
I
I
í
I
í