Morgunblaðið - 21.08.1998, Side 8

Morgunblaðið - 21.08.1998, Side 8
8 FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Arnaldur FRAMKVÆMDUM við möstrin miðar vel áfram og eru 30 möstur nú komin upp Uppsetning á Búrfellslínu 3a stendur yfír Unnið hörðum hönd- um við að ná áætlun RÚSSNESKA fyrirtækið Technopromexport vinnur nú að uppsetningu Búrfellslínu 3a, milli Búrfellsstöðvar og tengivirkis í ná- grenni við Sandskeið. Að sögn Þorsteins Hilmarssonar upplýsingafulltrúa Landsvirkjunar er þetta fyrsta 400kV línan sem reist er á Islandi og mun hún flytja rúmlega þrisvar sinnum meiri orku en stærstu háspennulínurnar á ís- landi til þessa, sem eru 220 kV. Fyrirtækið Technopromexport sér um uppsetningu línunnar og hóf fyrirtækið uppsetninguna u.þ.b. mánuði síðar en gert var ráð fyrir. Landsvirkjun leggur nú áherslu á að hraða verkinu svo að það verði tilbúið á þeim tíma sem gert var ráð fyrir, eða 15. nóvember. „Það er mikilvægt fyrir afhendingu raforku í vetur að þessi lína verði komin upp, en það kæmi niður á öryggi í afhendingu orku á suðvesturhorn- inu ef seinkun verður á,“ segir Þor- steinn. Línan er 94 km, möstrin verða 253 og í gær voru komin upp rúm- lega 30 möstur. Þorsteinn segir að framkvæmdunum miði hratt, sett séu upp 2-4 möstur á dag og hafa menn frá Landsvirkjun einnig unn- ið tímabundið að verkinu. Landsvirkjun fundar með hagsmunaaðilum á Austurlandi LANDSVIRKJUN heldur fund með fulltrúum hinna ýmsu hags- munaaðila á Austurlandi vegna Fljótsdalsvirkjunar á morgun, laugardag. Fundurinn er haldinn á Fosshót- eli, Hallormsstað og hefst klukkan 13 með fundi Landsvirkjunar og fulltrúa sveitarfélaga og orku- og stóriðjunefndar SSA. Milli 14.30 og 15.30 er kaffí og óformlegt spjall með öllum fulltrúum heimamanna og að því loknu tekur við fundur Landsvirkjunar með fulltrúum náttúruverndar, ferðamála, at- vinnuþróunar og landbúnaðar. Fundimir eru ekki opnir almenn- ingi. Markmið fundarins er að sögn Þorsteins Hilmarssonar, upplýs- ingafulltrúa Landsvirkjunar, að gefa stjóm Landvirkjunar færi á að leita eftir viðhorfum og upplýsing- um frá hagsmunaaðilum á svæðinu vegna þeirra ráðagerða sem em á döfínni í virkjunarmálum. „Fundur- inn sem slíkur er upplýsingafundur og ekki kynningarfundur. Stjóm Landsvirkjunar er að móta með sér afstöðu til hvemig framhald þess- ara mála verður, og þetta er ef svo má segja vinnufundur og liður í því,“ segir Þorsteinn. Hyggjast kynna áformin betur Nokkur gagnrýni hefur komið fram að undanfömu á Austurlandi varðandi virkjunaráformin, og hef- ur hún einna helst beinst að því að kynningu Landsvirkjunar á áformunum sé ábótavant. Við því segir Þorsteinn: „Við komum til með að kynna þessi mál, að sjálf- sögðu, með ýmsu móti, en það ligg- ur ekki alveg ljóst fyrir hvenær það verður. Við erum að útbúa skýrslu um mat á umhverfísáhrifum og er- um að leita leiða til þess að geta gefið almenningi kost á að kynna sér það. Við munum kynna áformin þegar hlutirnir liggja ljósar fyrir,“ segir Þorsteinn. Fulltrúar Landsvirkjunar munu í dag skoða nánasta umhverfi fyrir- hugaðra virkjana, meðal annars við Eyjabakka og Kárahnúka. Brazzi appelsínusafi 11. Del Monte 1/2 dós Aprikósur, Ferskjur og Perur Campell’s sveppasúpa INNI HEIM • UM LAND ALLT Þróun og nýbreytni í skólum 20 rannsóknar- verkefni kynnt á málþingi KHÍ MALÞING um þróun og nýbreytni í skól- um verður haldið á vegum Rannsóknarstofn- unar Kennaraháskóla Is- lands laugardaginn 22. ágúst. Málþingið er haldið í húsnæði Kennaraháskól- ans við Stakkahlíð og hefst með setningu klukkan níu árdegis. Þá mun Sigurjón Mýrdal dósent flytja fyrir- lestur sem nefnist „Mennt- un - skólaþekking - upp- lýsingatækni". Á málþing- inu verða kynnt um tutt- ugu þróunar-, mats- og rannsóknarverkefni sem styrkt eru af Þróunarsjóði grunnskóla, Þróunarsjóði leikskóla og Verkefna- og námsstyrkjasjóði Kennara- sambands Islands. I kynn- ingu verkefna eru ætlaðar 20-25 mínútur að viðbættum tíma fyrir fyrirspumir. Málþingið er öllum opið og lýkur dagskránni klukkan 15. - Hvers vegna stendur Rann- sóknarstofnun Kennaraháskól- ans fyrir þessu málþingi? „Eitt af hlutverkum Rannsókn- arstofnunar er að gangast fyrir ráðstefnum, fyrirlestrum og mál- þingum um uppeldis- og skólamál, meðal annars til þess að efla tengsl rannsókna og skólastarfs. Frá upphafi hefur Rannsóknar- stofnun gengist fyrir reglubundnu fyrirlestra- og málstofuhaldi auk nokkurra ráðstefna og málþinga." - Hvert er markmið málþings- ins? „Helsta markmiðið er að efla rannsóknar- og þróunarviðleitni íslenskra kennara en þetta er í annað skipti sem málþing af þessu tagi er haldið á vegum Rannsókn- arstofnunar Kennaraháskóla ís- lands. Hliðstætt málþing var haldið í fyrra og stefnt er að því að það verði árviss viðburður í starfsemi Kennaraháskólans. Þró- unar- og rannsóknastarf er vax- andi þáttur í skólastai'fi hér á landi og því nauðsynlegt að skapa vettvang þar sem koma má ár- angri þessa starfs á framfæri við hinn almenna kennara og þá sem vinna að skólamálum og láta sig slík málefni varða.“ - Hvers konar verkefni er ver- ið að kynna á málþinginu? ,Ákveðið var að flokka verkefn- in og skipta þeim í lotur efth' efni. Yfirskriftir þeirra eru leikskólinn, margmiðlun, nemendui' með sér- þarfir, námsefni af ýmsu tagi, skólar í dreifbýli og stærðfræði. Leikskólalotan er viðamest og vitnar um öfluga uppbyggingu í leikskólunum en þar verða meðal annars kynnt verkefni sem lúta að gæðamati og því hvaða leiðir eru færastar að því. í því sambandi má nefna erindi Hrafnhildar Sig- urðardóttur leikskóla- stjóra um þróun að- ferða við mat á gæð- um leikskólastarfs. Einnig verða kynnt verkefni sem snerta innra starf leikskól- ““’”"’™'" anna og miða að því að auka þroska barna og hæfni. Þar má nefna erindi Jóhönnu Thorsteins- son leikskólastjóra sem fjallar um tónlistaruppeldi í leikskólum og byggist á hugmyndafræði dr. Ed- gars Willems, 1890-1978. Hann setti fram kenningar sínar árið 1934 en þær byggjast á því að taktur, laglína og samhljómur tengist eðli manna líffræðilega, tilfinningalega og vitsmunalega. Jóhanna leggur áherslu á að efla alhliða þroska barnanna og leggur Heiðrún Kristjánsdóttir ► Heiðrún Kristjánsdóttir fædd- ist í Tunguhreppi f Norður-Múla- sýslu árið 1962 og ólst upp í Fnjóskadal í Suður-Þingeyjar- sýslu. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1983 og B.Ed.-prófi frá Kennara- háskóla íslands árið 1988. Að því búnu lagði hún stund á viðbótar- nám í íslensku við skólann með starfi og lauk því árið 1990. Heiðrún kenndi við Álftanesskóla í Bessastaðahreppi frá 1990 til 1993 þegar hún var ráðin verk- efnisstjóri við Rannsóknarstofn- un Kennaraháskóla íslands. Lesefni fyrir þroskahefta unnið úr þjóð sögum sérstaka áherslu á tónlistarstarf með börnum, að efla með þeim til- finningu fyrir fagurfræði og kenna þeim að tjá tilfinningar sín- ar í tónlist. Einnig má nefna verkefni Lauf- eyjai' Erlendsdóttur íþróttakenn- ara og Laufeyjar Óskar Kristó- fersdóttur leikskólastjóra sem fjallar um hreyfiuppeldi barna. Sem dæmi um margmiðlunar- verkefni er erindi Sólrúnar Harð- ardóttur kennara, „Könnum sam- an lóð og mó“, sem ætlað er nem- endum á miðstigi grunnskóla og fjallar um náttúruna í nánasta umhverfí nemandans. Hvað mál- efni nemenda með sérþarfir varð- ar má til dæmis nefna erindi Árna Einarssonar sérkennara sem fjallar um gerð lesefnis fyrir þroskahefta fullorðna einstak- linga. Árni segir að lestrarefni fyrir einstaklinga með lestrarörð- ugleika sé af skornum skammti og oftar en ekki hafi þurft að útbúa efni hjá Fullorðinsfræðslu fatl- aðra. Var lagt af stað með þá hug- mynd að útbúa fyrir þá sérstök lestrarhefti ætluð þeim sem geta lesið einfaldan texta. Sem dæmi hafa verið endurritaðar nokkrar af þjóðsögum Islendinga með lestrarfræðileg sjónarmið í huga. I lotunni námsefni af ýmsu tagi má nefna erindi Her- dísar Egilsdóttur kennara um samþætt nám í ýmsum náms- greinum þar sem bömin nema nýtt land 0g skapa sitt eigið samfélag með öllu sem því fylgh. Að síðustu má nefna erindi Flemmings Jessens skólastjóra og Sigrúnar Einarsdóttur kenn- ai'a um sérstöðu sveitaskóla en markmið þeiiTa er að koma til móts við þá gagnrýni dreifbýlis- fólks að þróun skólahalds hér á landi taki fyrst og fremst mið af þörfum þéttbýlisbúa, til dæmis með lengri árlegum skólatíma.“ Kynningarnar fara fram sam- tímis tíma í þremur stofum bæði fyrir og eftir hádegi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.