Morgunblaðið - 21.08.1998, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1998 13
Flautu- og
gítarleikur
í Deiglunni
KRISTJANA Helgadóttir
flautuleikari og Dario
Macaluso, gítarleikari frá
Sikiley, halda tónleika í
Deiglunni á Akureyri
laugardagskvöldið 22. ágúst
kl. 20.30.
Þau Kristjana og Dario
leika m.a. verk eftir Þorkel
Sigurbjörnsson, svítu eftir
J.S. Bach, gítartónlist eftir 19.
aldar skáldið Mauro Giuliani,
sem talinn er vera fyrsta
tónskáldið sem samdi konsert
fyrir gítar og hljómsveit og
Ástor Piazzolla sem er einna
þekktastur fyrir framlag sitt
til tangó-tónlistar.
Söngkonur í
Deiglunni
SÖNGKONURNAR Sigríður
Aðalsteinsdóttir messo-sopr-
an og Hulda Björk Garðars-
dóttir sopran halda tónleika í
Deiglunni á Akureyri í kvöld,
föstudaginn 21. ágúst kl.
20.30. Meðleikari á tónleikun-
um er Kristinn Öm Kristins-
son píanóleikari.
Á tónleikunum verður flutt
blönduð dagskrá með þekkt-
um íslenskum og erlendum
sönglögum, óperuaríum og
fleira, m.a. eftir Pál Isólfsson,
Sigvalda Kaldalóns, Schubert,
Schumann, Brahms, Mozart
og Rossini.
Þetta eru þriðju tónleikar
listafólksins í vikunni en áður
höfðu þau haldið tónleika í
Gerðarsafni í Kópavogi og
Reykholtskirkju í Borgarfirði.
Síðasta sýn-
ingarhelgi í
Listasafni
Akureyrar
SÝNINGUNNI GROUND í
Listasafninu á Akureyri lýkur
sunnudaginn 23. ágúst.
GROUND er samsýning lista-
mannanna Kristjáns Guð-
mundssonar, Aian Johnston
frá Skotlandi og Franz Graf
frá Austurríki.
Þessir listamenn, sem njóta
alþjóðlegrar viðurkenningar,
leggja áherslu á að nýta form
og eiginleika teikningar sem
grunn jafnt og endanlega
tjáningu sköpunar sinnar.
Sýningin á Listasafninu er
samstarfsverkefni með
skoska listasafninu Pier Art
Centre og Galerie Stadtspark
í Krems í Austurríki.
Síðasta
sýningarhelgi
í Friðbjarnar-
húsi
NÚ UM helgina er síðasta
tækifærið í sumar til að skoða
Friðbjarnarhús, Aðalstræti 46
á Akureyri.
Allir sem áhuga hafa á sögu
Akureyrar og minjum henni
tengdri, eiga erindi í húsið.
Það verður opið laugardag og
sunnudag milli kl. 14 og 17.
Heitt verður á könnunni fyrir
þá sem koma í heimsókn.
AKSJÓN
Föstudagur 21. ágúst
21.00Þ-Sumarlandið Þáttur
fyrir ferðafólk á Akureyri og
Ákureyringa í ferðahug.
Framkvæmdir við nýjan veg yfír Fljótsheiði nokkuð á eftir áætlun
Slitlag lagt í lok september
FRAMKVÆMDIR við lagningu nýs vegar yfir
Fljótsheiði í S-Þingeyjarsýslu eru nokkuð á eftir
áætlun. Samkvæmt útboði átti verkinu að ljúka 1.
ágúst sl. en nú er stefnt að því að verktakinn, Há-
fell, ljúki við að leggja bundið slitlag á veginn í
iok september nk.
Sigurður Oddsson, deildarstjóri framkvæmda
hjá Vegagerðinni á Norðurlandi eystra, sagði að
til að það gengi eftir yrði veðrið að vera þurrt og
skikkanlegt. Þá er frágangur flága og snyrtingar
við veginn eftir og sagði Sigurður að þeirri vinnu
yrði lokið næsta sumar. Hann sagði að komið hafi
upp aukaverk sem eftir væri að taka tillit til og
að það mál yrði skoðað í verklok.
Sigurður sagði að tíðarfarið hafi einnig verið
að angra verktakann í sumar og að ástandið hafi
verið sérlega erfitt í mikilli bleytu. Nú er unnið
við verkið frá kl. 8-21,11 daga í senn. Eftir helg-
ina kemur annað úthald til að keyra út efra burð-
arlag vegarins. Þá er annar verktaki, Arnarfell,
að sprengja og mala klöpp í efra burðarlag og
klæðingu úr námu á háheiðinni.
Miklar tafír á Grenivíkurvegi
Framkvæmdin á Fljótsheiði er sú stærsta sem
Vegagerðin hefur boðið út frá því að unnið var
við göngin í Ólafsfjarðarmúla. Vegurinn, sem er
um 10 km langur, liggur um 30-40 metrum neðar
en gamli vegurinn og er mesti bratti um 7% en er
um og yfir 14% á þeim gamla. Kostnaðaráætlun
Vegagerðarinnar hljóðaði upp á tæpar 188 millj-
ónir króna en Háfell bauðst til að vinna verkið
fyrir 133 milljónir króna, sem er um 71% af
kostnaðaráætlun.
Miklar tafir hafa einnig orðið við framkvæmdir
á Grenivíkurvegi en verktakinn, Jarðverk á Dal-
vík, átti að skila því fullbúnu frá sér í gær. Að
sögn Sigurðar er verkið aðeins hálfnað en að
verktakinn stefni að því að ljúka því upp úr miðj-
um september nk.
Á Grenivíkurvegi er um að ræða framkvæmdir
við 3,9 km vegarkafla, frá Syðri-Grund að
Gljúfurá. Jarðverk átti lægsta tilboð í verkið,
bauð 23,7 milljónir króna eða um 75% af kostnað-
aráætlun Vegagerðarinnar.
Morgunblaðið/Björn Gíslason
STEFNT er að því að lokið verði við að leggja bundið slitlag á nýja veginn yfir Fljótsheiði fyrir lok næsta
mánaðar. I gær voru framkvæmdir þar í fullum gangi.
Samnorrænu jazznámskeiði Sum-
arháskólans á Akureyri að ljúka
SAMNORRÆNT jazznámskeið
hefur staðið yfir síðustu daga á veg-
um Sumarháskólans á Akureyri.
Þátttakendur eru 30 frá Færeyjum,
Grænlandi, Norður-Noregi og Is-
landi og eru þeir flestir á aidrinum
18-20 ára. Sumarháskólinn stendur
fyrir námskeiðiðinu í samvinnu við
Sigurð Flosason, yfirkennara jazz-
deildar Tónlistarskóla FIH og saxó-
fónleikara og Tónlistarskólann á
Akureyri, þar sem námskeiðið er
haldið.
Sigurður sagðist í samtali við
Morgunblaðið vera mjög ánægður
með námskeiðið, enda væri hann
með góðan hóp. Hann sagðist þó
vilja sjá fleiri Islendinga taka þátt
en námskeiðið væri jafnt fyrir ungt
fólk og eldri tónlistarmenn, sem
væru að spila sér til gamans.
Vonandi komið
til að vera
„Námskeið sem þetta er vonandi
komið til vera en það veltur m.a. á
því að við fáum styrki. Við fengum
norrænan styrk í ár til að standa
straum af kostnaði við komu er-
lendu tónlistarmannanna. Hér á
Akureyri er búið vel að okkur og
það eru margir sem koma að þessu
námskeiði og samvinnan hefur verið
mjög jákvæð."
Námskeiðinu lýkur með nem-
endatónleikum í Deiglunni í kvöld,
föstudag kl. 22.30. Sigurður sagði að
Morgunblaðið/Björn Gíslason
SIGURÐUR Flosason saxófónleikari uppfræðir
nokkra þátttakendur námskeiðsins.
þar kæmu fram
fjórar hljóm-
sveitir og gæfist
fólki kostur á að
heyra afrakstur
námskeiðsins.
„Þátttakendur
eru á nokkuð ólíku getustigi en í
þessum hópi eru mjög flinkir tón-
listarmenn og þessi blanda getur
rúmast skemmtilega saman.“
Trommuleikari frá
Færeyjum
Halgir Arge, 19 ára trommuleikari
írá Færeyjum, er á meðal þátttak-
enda á námskeiðinu. Hann hefur
spilað á trommur í 7 ár og leikur
popp og jazz með hljómsveit í heima-
landi sínu en sagðist trúlega snúa
sér enn frekar að jazzinum eftir
námskeiðið. „Eg hef átt góðan tíma á
íslandi og lært mikið á námskeiðinu
hjá góðum kennui-um,“ sagði Halgir,
sem sagðist bíða spenntur eftir tón-
leikunum í Deiglunni.
Hjálmar Stefán Brynjólfsson,
bassaleikari úr Eyjafjarðarsveit og
Ólafur Haukur Sverrisson, saxófón-
leikari úr Reykjavík voru einnig
ánægðir með námskeiðið. Þeir
sögðu að þótt þetta væri ekki lang-
ur tími, hefði margt forvitnilegt
komið fram og þeir lært mikið. Báð-
ir sögðust þeir vera að þreifa fyrir
sér í jazzinum og finnst hann
áhugaverður.
„Málmur í Atómstöð“
• •
Orn Þor-
steinsson í
Ketilhúsinu
ÖRN Þorsteinsson opnar sýningu í
Ketilhúsinu á Akureyri laugardag-
inn 22. ágúst kl. 16.00, sem hann
kallar „Málmur í Atómstöð". Örn á
að baki litríkan feril sem mynd-
höggvari, listmálari og grafíklista-
maður.
Hann hefur haldið tug einkasýn-
inga auk fjölmargi-a samsýninga
heima og erlendis. Verk hans er
m.a. að finna á öllum helstu lista-
söfnum landsins og við ýmsar opin-
berar byggingar.
Á sýningu Amar í Ketilhúsinu
eru flest verkanna frá sl. 2-3 árum
og úr málmi, auk nokkun-a eldri
formynda úr vaxi. Sýningin er opin
frá kl. 14-18 alla vikuna og lýkur
þriðjudaginn 8. september.
Nemendatón-
leikar í Deigl-
unni í kvöld
F0RRÉTTIR
Hrár hvalur
mei soijasósu oq uiasabi
#
Smjörsleihlur smohhjishur
í sœtu chillq
#
Kóhosrisluö hörpushel
mei eplum oq harrq
#
Oéushel i hrqddjurtum
mei ostatoppi
AÐALRÉTTIR
Hunanqsristaiur steinbitur
mcó soqa oq enqifer
#
Sharholi mei banönum,
rœhjum oq qrábosli
#
Rósarsteihtur lambavöbvi
mei qrœnpiparsósu
#
Glóiub hrefna
mei sítrónu oq pipar
#
Hvítvínsso&in hrœhlinqur
EFTIRRÉTTIR
Heimalaqa&ur is
#
Ofnböhui epli meb hanil
#
Súhhulabihaha Buóa
Sírai: 435-6700