Morgunblaðið - 21.08.1998, Qupperneq 18
18 FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1998
ÚR VERINU
Refsitollur á
útflutning SH á
laxi frá Noregi
Hefur lítil áhrif á rekstur skrifstofunn-
ar, seg-ir kynningarstjóri SH
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Bill Clinton lætur
Starr í té lífsvni
Ráðgjafar forset-
ans deila um hvað
ráðlegast sé fyrir
hann að gera næst;
útskýra sambandið
við Lewinsky
frekar fyrir al-
menningi eða
virða að vettugi
þá gagnrýni að
hann hafi ekki sýnt
næga iðrun er
hann ávarpaði
þjóðina síðastliðinn
mánudag.
Reuters
FULLTRÚI bandarísku leyniþjdnustunnar stöðvar og ræðir við ferðamann
við öryggiseftirlitsstöð við aðsetur forsetahjónanna á Martha’s Vineyard.
AFURÐAKAUPASKRIFSTOFA
SH í Noregi, Icelandic Freezing
Plants Norway, er eitt þriggja út-
flutningsfyrirtækja í Noregi, sem
nú verða að greiða refsitoll á út-
fluttan lax frá þeim til Evrópusam-
bandsins. Fyrirtækin þrjú verða að
taka á sig þennan toll, sem er 13 til
14%, vegna útflutnings á laxi til
ESB á verði sem var lægra en um-
samið lágmarksverð milli Noregs
og ESB.
Fyrst í stað mun tollurinn leggj-
ast á útfluttan lax til ESB í fjóra
mánuði, en í versta falli gæti refsi-
tollurinn varað í fjögur ár. Vil-
hjálmur Jens Ámason, kynningar-
stjóri SH, segir að þetta mál hafi
lítil áhrif á rekstur afurðakaupa-
ski’ifstofunnar. Þarna sé um ákveð-
in mistök að ræða og sé unnið að
því að fara yfir gögn málsins.
„Svo virðist sem þarna sé um að
ræða útflutning á 8 tonnum af laxi
til Frakklands á síðasta ári,
skömmu eftir stofnun skrifstof-
SJÁVARÚTVEGSRÁÐHERRA
hefur veitt tveimur námsmönnum
styrki til framhaldsnáms. Er þetta
í fjórða sinn sem styrkurinn er
veittur og bárust að þessu sinni
fjórar styrkumsóknir. Dómnefnd
skipuð þeim Ólafi Ástþórssyni,
deildarstjóra á Hafrannsókna-
stofnun, og Ragnari Árnasyni pró-
fessor fjallaði um umsóknimar.
Skoðar sérstaklega
aðgreiningu kolmunnastofna
Hærri styrkurinn, 750 þúsund
krónur, var veittur Olöfu Yrr Atla-
dóttur sem stundar meistaranám
við East Anglia-háskólann í
Norwich í Englandi. Rannsóknir
hennar eru á sviði stofnerfðafræði
og skoðar hún sérstaklega aðgrein-
ingu kolmunna. Rannsóknir henn-
ar eru hluti af stærra verkefni þar
sem skoðaðar eru fjórar þorskfisk-
tegundir í Norður-Átlantshafi. Ólöf
rannsakar meðal annars breyti-
leika í erfðaefnisbútum til að skoða
hvort finna megi mismun í
kolmunnastofnum í Norður-Atl-
antshafi og greina þannig mismun-
unnar. Laxinn var sendur á bráða-
birgðaverði til Frakklands, en þar
var hann seldur á verði yfir lág-
marksverði ESB. Fyrir vikið kem-
ur svo út að verið sé að selja undir
lágmarksverði. Svo var ekki gert
og reikningur vegna sölunnar sýn-
ir það. ESB hefur fengið þessar
upplýsingar og unnið er að málinu
í samráði við útflutningsráð Nor-
egs og norsku sendinefndina í
Brussel, en niðurstaðan hefur
dregizt á langinn," segir Vilhjálm-
ur Jens.
Hann bætir því við að þó tollur-
inn leggist tímabundið á útflutning
á laxi frá skrifstofunni, hafi það lítil
áhrif, því umsvif hennar séu fyrst
og fremst í útflutningi á bolfiski frá
Noregi. Á því rúma ári sem hún
hafi starfað sé stærsti hluti útflutn-
ingsins bolfiskur til sölufyrirtækja
SH víða um heim.
Hin fyrirtækin tvö, sem refsitoll-
urinn nær til, eru Incofood AS og
Mavo Norge AS.
andi hópa sem séu á einhvern hátt
æxlunarlega einangraðir.
„Það er skemmtileg tilviljun að
nú er kolmunninn einmitt farinn að
ganga inn í íslensku lögsöguna og
verður mikilvægari nytjafiskur fyr-
ir Islendinga. Þá er mikilvægt að
vita hvemig kolmunninn skiptist í
hópa til að sjá hvernig stofnsveiflur
verða,“ segir Ólöf Ýrr.
Æxlunarlíffræði
hnísu
Þá hlaut Sverrir Daníel Hall-
dórsson styrk að upphæð 250 þús-
und krónur til rannsókna á æxíun-
arlíffræði hnísu. Megintilgangur
verkefnisins er að geta staðfest
kynþroskastig hnísu en það er gert
með vefjasýnum úr legi, eistum og
eggjastokkum. Upplýsingar rann-
sóknarinnar eru gmnnupplýsingar
sem notaðar eru til að geta betur
fylgst með þróun stofnstærðar
hnísu og eru rannsóknir Sverris í
tengslum við fjölstofnarannsóknir
Hafrannsóknastofnunar. Sverrir er
í framhaldsnámi við háskólann í
Bergen í Noregi.
BILL Clinton Bandaríkjaforseti
hefur látið embætti sérstaks sak-
sóknara í té lífsýni til þess að ganga
megi úr skugga um hvort forsetinn
sé ábyrgur fyrir blettum í dökkblá-
um kvöldkjól Monicu Lewinsky,
fyrrverandi starfsstúlku í Hvíta hús-
inu. The Daily Telegraph greindi frá
þessu í gær.
Rannsókn saksóknarans, Kenn-
eths Starrs, beinist að sambandi for-
setans og Lewinskys, en í vitnis-
burði frammi fyrir rannsóknarkvið-
dómi Starrs sl. mánudag viður-
kenndi forsetinn að hafa átt í „óvið-
eigandi" sambandi við stúlkuna.
Lewinsky kom fyrir kviðdóminn í
gær, öðru sinni.
Rannsakendur bandarísku alríkis-
lögreglunnar, FBI, hafa rannsakað
kjólinn, sem keyptur var í GAP-
verslun, og segja heimildamenn Tel-
egraph í Washington að fundist hafi
blettir í honum. Forsetinn „var beð-
inn um og veitti“ sýni af erfðaefni úr
sér, að sögn heimildamanna. Sér-
fræðingar segja að nægt hafi að for-
setinn veitti munnvatnssýni eða hár.
Með kynlíf á heilanum
Fréttaskýrandi New York Times
sagði í gær krafa Starrs um lífsýni
taki af allan vafa um að saksóknar-
inn sé staðráðinn í að komast að
hinu sanna um líkamlegt samband
Clintons og Lewinskys, væntanlega
í þeim tilgangi að finna mótsagnir
milli framburðar hvors fyrir sig.
Með þeim hætti geti Starr gengið ur
skugga um hvort forsetinn hafi
gerst sekur um meinsæri í fram-
þurði í máli Paulu Jones gegn hon-
um.
Bent er á að sumir ráðgjafa Clint-
ons telji þessar tilraunir Starrs
koma sér vel fyrir forsetann ef þing-
ið þurfi að skera úr um hvort Clint-
on skuli ákærður fyrir embættisaf-
glöp og neyddur til að segja af sér.
Segja ráðgjafarnir að þessar aðferð-
ir Starrs sýni að saksóknarar séu
með kynlíf á heilanum, en skoðana-
kannanir hafi sýnt að almenningur í
Bandaríkjunum telji sig vita meira
en nóg um lygar, blekkingar og kyn-
líf í Hvíta húsinu.
Játaði ekki munnmök
í framburði sínum á mánudag
hélt Clinton því fram að sambandið
sem hann átti við Lewinsky sam-
ræmdist ekki skilgreiningu lög-
manna Jones á kynferðislegu sam-
bandi. Clinton neitaði að svara
spurningum saksóknara um hvernig
kynferðislegu sambandi sínu og
Lewinsky hefði verið háttað, en
svaraði spurningum um það hvers
konar atferli hann teldi samræmast
skilgreiningunni, að því er New
York Times hafði eftir ónafngreind-
um ráðgjafa forsetans í gær.
Ráðgjafinn sagði að forsetinn
hefði ekki viðurkennt að hafa átt
munnmök eða nokkur önnur tiltekin
mök við Lewinsky, en hefði þess í
stað bent saksóknurum á upphaf-
lega yfirlýsingu sína. „Hvað eftir
annað sagði hann: Eg er búinn að
segja að þetta hafi verið óviðeig-
andi,“ sagði ráðgjafinn.
Nielsen-fyrirtækið, sem mælir
sjónvarpsáhorf í Bandaríkjunum,
greindi frá því að alls hefðu 67,6
milljónir Bandaríkjamanna fylgst
með sjónvarpsávarpi forsetans að
loknum vitnisburði hans á mánudag.
Um 53 milljónir fylgdust með
stefnuræðunni sem Clinton flutti
skömmu eftir að ásakanirnar um
sambandið við Lewinsky komu fyrst
upp á yfirborðið.
Lewinsky og Clinton svöruðu
spurningum saksóknara um hvernig
gjöfum forsetans til hennar var skil-
að hvort á sinn hátt, að því er Was-
hington Post greindi frá í gær.
Lewinsky sagði að einkaritari for-
setans, Bettie Currie, hefði komið til
sín og beðið sig um að skila gjöfun-
um.
Frásögn Clintons, við framburð-
inn á mánudag, mun stangast á við
frásögn bæði Lewinskys og Cun-ies,
en að sögn Washington Post hefur
ekki komið í Ijós í hverju mismunur-
inn er fólginn. Lögspekingar tjáðu
blaðinu að þetta misræmi í fram-
burði væri sennilega alvarlegasti
lögfræðilegi vandinn sem forsetinn
stæði frammi fyiár.
Lewinsky óánægð
Nánir vinir Lewinskys tjáðu New
York Times að hún væri ákaflega
ósátt við ávarp Clintons. Henni hafí
þótt slæmt að heyra forsetann af-
greiða sem óviðeigandi daður það
sem hún hafi talið hafa verið eins og
hálfs árs náið tilfinningasamband,
með gjöfum, ljóðum og hálsmenum.
New York Times sagði í gær að
frá því Clinton hafi játað óviðeigandi
samband sitt við Lewinsky hafi ráð-
gjafar forsetans og framámenn í
Demókrataflokknum hver á fætur
öðrum látið í ljósi vonbrigði sín með
afhjúpanirnar undanfarna daga.
Sumir hafi farið fram á samúð al-
mennings.
En aðrir hafi látið vaða á súðum.
Þeirra á meðal sé Dianne Feinstein,
öldungadeildarþingmaður frá Kali-
forníu. Hún sagði að verulega hefði
dregið úr trausti sínu á forsetanum.
New York Times segir að fljótlega
eftir að Lewinsky-málið kom fyrst
upp á yfirborðið hafi Clinton hringt
sjálfur í Feinstein og útskýrt fyrir
henni að orðið hefði að flytja Lewin-
sky úr starfi í Hvíta húsinu því að
hún hafi verið farin að ofsækja hann.
Þetta sé ein ástæða þess hversu
vonsvikin Feinstein sé nú.
Ýmsir leiðarahöfundar í Banda-
ríkjunum og þingmenn repúblíkana
hafa krafist þess að forsetinn segi af
sér. Ráðgjafar forsetans sögðust
ekki taka mark á slíkum upphrópun-
um valdaklíkunnar í Washington.
Almenningur væri búinn að fá sig
fullsaddan af Lewinsky-málinu.
Innan og utan hringsins
Annar fréttaskýrandi New York
Times tekur undir: „Innan hring-
brautarinnar [sem liggur umhverfis
Washingtonborg] fara álitsgjafar og
leiðarahöfundar mörgum orðum um
fallandi forseta. [...] Utan við [hring-
inn] segir almenningur við skoðana-
kannara að hann sé þreyttur á að
heyra um Monicu Lewinsky og vilji
að þjóðin snúi sér að öðru.“
Fréttaskýrandinn heldur áfram
og segir að það sé einmitt þessi gjá á
milli raunveruleikans annars vegar
og sjálfskipaðs stjórnmálaaðals í
Washington hins vegar sem ráðgjaf-
ar forsetans segi að muni hjálpa
Clinton að standa af sér Lewinsky-
fárviðrið. Þingmenn muni taka tillit
til almenningsálitsins og ekki draga
málið frekar á langinn með því að
fara fram á yfirheyrslur vegna hugs-
anlegrar ákæru á hendur forsetan-
um fyrir embættisafglöp.
„Þetta er greinilega svipað og
stefnuræðan 1995,“ er haft eftir ráð-
gjafa forsetans. Álitsgjafar hafi tætt
í sig ræðuna en almenningur hrósað
henni í hástert. „Viðbrögðin innan
við hringbrautina eru allt önnur en í
Bandaríkjunum."
Fréttaskýrendur telja að þetta
geti farið á hvort veginn sem er:
„Annaðhvort mótar aðallinn viðhorf
almennings á næstu vikum og fær
hann á þá skoðun að forsetinn verði
að víkja, eða þá að aðallinn áttar sig
á þeim vísdómi er liggur að baki
stuðnings almennings við forset-
ann,“ hafði New York Times eftir
Thomas Mann, stjórnmálafræðingi
við Brookings-stofnunina í Was-
hington.
Beðið átekta
Forsetinn dvelur nú með fjöl-
skyldu sinni á Martha’s Vineyard,
sem er eyja úti fyrir strönd Nýja
Englands og vinsæll sumardvalar-
staður, en fréttaskýrendur segja að
á meðan séu ráðgjafar forsetans
uppteknir af því að velta fyrir sér
hvaða skref skuli taka næst til þess
að vinna upp það sem tapaðist vegna
ávarpsins á mánudagskvöldið.
Ráðgjafarnir tjáðu Washington
Post að ekkert yrði ákveðið alveg á
næstunni. Sumir ráðgjafanna telja
að forsetinn verði að útskýra sam-
band sitt við Lewinsky betur, en
aðrir segja að hann geti virt að
vettugi þá gagnrýni að hann hafí
ekki sýnt næga iðrun í ávarpinu.
Morgunblaðið/Þorkell
OLAFUR Ástþórsson, formaður dómnefndar, Þorsteinn Pálsson sjáv-
arútvegsráðherra, Björn Halldórsson, sem tók við styrknum fyrir
hönd bróður síns, Sverris, og Ólöf Ýrr Atladóttir.
Rannsaka hnísu
og kolmunnastofna
Sjávarútvegsráðherra
úthlutar námsstyrkjum