Morgunblaðið - 21.08.1998, Page 22
22 FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1998
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Afmælishátíð í
Norræna húsinu
SVEND Asmundssen fiðluleikari
NORRÆNA húsið stendur
fyrir 30 ára afmælishátíð
frá kl. 14-22.30 í tengslum
við Menningarnótt. I tilefni
þessara tímamóta verður í
boði fjölbreytt dagskrá.
Fram koma Draupner,
sænskur þjóðlagahópur,
söngkonan og kantele-Ieik-
arinn Sinikka Langeland
frá Noregi, Jigme Drupka,
afrískur tónlistarmaður
sem kemur líka frá Nor-
egi, og þjóðlagasöngvarinn
Juakka Lyberth kemur frá
Grænlandi.
Kl. 16-17 taka gestir til
máls og tekið verður á
móti heillaóskum.
Kl. 17-22.20 skemmta
gestum Mikael Fagerholm,
tenórsöngvari, Kjell Frisk,
klarínettuleikari, og
Marcus Boman, pianóleikari frá
Álandseyjum, og kvartett Svend
Asmussen frá Danmörku.
í bókasafninu verður sýning frá
Þjóðfræðisafninu í Eistlandi á
prjónuðum vettlingum og sjölum
með hefðbundu eistnesku
mynstri.
f anddyri verða sýndar ljós-
myndir af listakonunum sem eiga
frá Danmörku.
verk á sumarsýningu Norræna
hússius í sýningarsölum í kjallara,
fslandsdætur í myndlist.
í sýningarsölum er svo sfðasta
sýningarvika á sýningunni: Þeirra
mál ei talar tunga, íslandsdætur í
myndlist.
Sýnd eru verk eftir 11 íslenskar
listakonur.
Líf manns frumsýnt
í Kaffíleikhúsinu
Morgunblaðið/Kristinn
DAVID Máj og Stefanía Thors í hlut-
verkum sfnum í Lífi manns.
í TILEFNI Menningamætur
í Reykjavík frumsýnir Kaffi-
leikhúsið í Hlaðvarpanum sýn-
inguna Líf manns sem byggð
er á leikriti eftir rússneska rit-
höfundinn Leoníd Andrejev
(1871-1919). Leikritið er um líf
manns, frá fæðingu til dauða,
um samskipti hans við sjálfan
sig, fjölskyldu og æðri máttar-
völd. í kynningu segir að í
verkinu sé velt upp mörgum
áleitnum spumingum, meðal
annars hver stjómi lífi fólks?
Það sjálft, ástin, dauðinn eða
guð?
Leikaramir Stefanía Thors
og David Máj nota verk
Andrejevs sem gmnn sem þau
vinna út frá í spuna sem unn-
inn er í samvinnu við leikstjóra
þeirra í Listaháskólanum í
Prag, Jönu Pilátová, og með
hjálp Rebekku A. Ingimundar-
dóttur hafa þau þróað sýning-
una enn frekar.
í sýningu Kaffíleikhússins á
Lífi manns er notast við brúð-
ur og mjög einfalda leikmuni. Jafn-
framt er unnið út frá ævagömlum
helgisiðum sem og sígildum barna-
leikjum. Sýningin er bæði á tékk-
nesku og íslensku en þýðing á tékk-
neskum texta fylgir.
Stefanía Thors er Reykvíkingur
en stundar nú leiklistarnám við
Listaháskólann í Prag. David Máj er
fæddur í Pardubice í Tékklandi. Áð-
ur en hann hóf nám við listaháskól-
ann vann hann í þrjú ár við brúðu-
leikhús í Most og hefur tekið þátt í
yfir 1.200 sýningum.
Lióðamaraþon í Iðnó
NÓTT hinna löngu ljóða nefnist
Ijóðamaraþon sem Sparisjóður
Reykjavíkur og nágrennis býður
borgarbúum til í Iðnó á Menning-
amótt. Umsjón hafa skáldin Linda
Vilhjálmsdóttir, Sjón og Andri Snær
Magnason. Formleg dagskrá hefst
kl. 19.30 og stendur til kl. 2.
Kl. 15-20 munu skáldin skjóta upp
kollinum hér og þar í bænum. Kl.
19.30 verður lesið ljóð í Tjamar-
hólmanum og ljóðið síðan flutt í land.
Kl. 20-20.45 munu Elísabet Jök-
ulsdóttir, Gyrðir Elíasson, Vilborg
Dagbjartsdóttir og Sveinbjörn I.
Baldvinsson flytja ljóð. Snorri Sigfús
Birgisson tónskáld frumflytur píanó-
verkið Divertimento í sól tileinkað
Þorkeli Sigurbjörnssyni tónskáldi.
Kl. 21-21.45 munu Kristján Þórð-
ur Hrafnsson, G. Eva Mínervudóttir,
Helgi Hálfdanarson og Steinunn
Sigurðardóttir flytja ljóð. Vigdís Hr-
efna Pálsdóttir syngur og Karl 01-
geirsson leikur á píanó.
Kl. 22-22.45 munu Þorsteinn
Gylfason skáld og þýðandi, Ásgerður
Júníusdóttir mezzósópransöngkona
og Iwona Jagla píanóleikari, flytja
ljóð og lög.
Kl. 23-23.40 munu Óh'na Þorvarð-
ardóttir, Bragi Ólafsson, og Þórar-
inn Eldjám flytja ljóð. Ragnhildur
Gísladóttir syngur.
Kl. 00.30-2 munu Ingibergur Sig-
urðsson glímukóngur íslands og Sig-
urður Nikulásson glíma. Andri Snær
Magnason, Kristján Árnason, Har-
aldur Jónsson, Hallgrímur Helga-
son, Gerður Kristný, Sigtryggur
Magnason og Berglind Ágústsdóttir
flytja ljóð. Doktor Gunni og Heiða
spila og syngja.
Aðstandendur vekja athygli á því
að klapp í salnum verður mælt með
þar til gerðu tæki og niðurstöður
kynntar jafnóðum. í lokin verða því
skáldi veitt verðlaun sem bestar við-
tökur hlýtur. Ingibjörg Þórisdóttir
leikkona kynnir niðurstöður.
Vökum af list
í höfuðborgínni
Á MENNINGARNÓTT í Reykja-
vík munu söfn, gallerí, kirkjur,
kaffihús, veitingahús, verslanir og
fleiri þjónustuaðilar í miðborg
Reykjavíkur hafa opið fram á nótt
og bjóða upp á fjölbreyttar sýning-
ar, tónleika, uppákomur, leiklist og
aðra menningaratburði. Á mið-
nætti verður skotið upp flugeldum
við Tjömina í hjarta miðborgarinn-
ar. Dagskráin miðast við alla fjöl-
skylduna. Sumir viðburðir eru
hefðbundinn þáttur í menningarlífi
borgarinnar en til annarra er sér-
staklega stofnað í tilefni Menning-
amætur.
Setning Menningarnætur fer
fram við Hallgrímskirkju kl. 17.
Við sama tækifæri verður torgið
við kirkjuna opnað og því gefið
nafn. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
borgarstjóri og séra Sigurður Páls-
son sóknarprestur flytja ávörp.
Þátttakendur í dagskrá í Hall-
grímskirkju í framhaldi af setningu
verða Ingveldur Yr Jónsdóttir
söngkona, Matthías Johannessen
ijóðskáld, Ragnhildur Gísladóttir
söngkona, félagar úr málmblásara-
hópnum Serpent, Hörður Áskels-
son organisti, Douglas A. Brotchie
organisti og Steinunn Birna Ragn-
arsdóttir píanóleikari. Að auki taka
börnin af leikskólanum Grænuborg
þátt í setningu Menningamætur og
Bréfdúfusamband Islands setur
svip á dagskrána.
Ýmsir viðburðir
I Ráðhúsi Reykjavíkur kl. 14
opnar formaður Menningarmála-
nefndar sýningu á verkum Dieters
Roth. Hluti sýningarinnar er
myndir sem Dieter tók af húsunum
á Seyðisfirði en Seyðisfjarðarkaup-
stað er með þessum hætti sérstak-
lega boðið til þátttöku í Menning-
amótt í ár. „Sýningin er dæmi um
það hvernig frumlegur og hug-
myndaríkur listamaður af erlendu
bergi brotinn sér landið okkar með
öðmm og óvæntum hætti,“ segir í
kynningu. Sýningin verður opin á
Menningamótt til kl. 01 en annars
kl. 08-19 virka daga og 10-18 um
helgar.
Kl. 14 verður gengið í fylgd með
Auði Ólafsdóttur listfræðingi um
sýningu Myndhöggvarafélagsins á
strandlengjunni meðfram Ægisíðu
og út að Óskjuhlíð. Lagt af stað frá
höggmyndinni Áningu við Sörla-
skjól.
Reykjavík fyrr og nú nefnist
dagskrá í Sölvasal á efri hæð veit-
ingastaðarins Sólon Islandus sem
Vökum af list er yfir-
skrift Menningarnætur
í miðborg Reykjavíkur
sem haldin verður
þriðja sinni á morgun,
laugardaginn 22. ágúst.
Hér á eftir verður
stiklað á helstu dag-
skrárliðum.
SÝNING á verkum Dieters
Roth verður opnuð í Ráðhúsinu
kl. 14 á morgun.
hefst kl. 15. Pétur Pétursson, fyrr-
verandi þulur, segir frá Reykjavík
fyrri tíma.
Brúðubíllinn verður á ferð kl. 16
á Austurvelli við Landsímahúsið.
Kl. 18.30 verður götuleikhúsið
Zirkus Ziemsen á leikskólanum
Grænuborg á Skólavörðuholti og
flytur barnaleikritið Stjömuferð-
ina. Leikritið er ekki síður fyrir
fullorðna.
Kl. 19 og kl. 20 verður sérstök
leiðsögn um Höfða í tilefni Menn-
ingarnætur. Takmarkaður fjöldi.
Graffítí í góðu lagi er yfirskrift
verkefnis sem efnt verður til kl.
20-23 við Laugaveg 24-26. Ungir
úðabrúsalistamenn skreyta veggi
og diskaþeytari spilar hressilega
tónlist undir. Þá vekja aðstandend-
ur Menningarnætur athygli á því
að undanfarið hefur ungt fólk í
Vinnuskóla Reykjavíkur unnið
stórar veggmyndir í frítíma sínum
við Austurbæjarskóla. Þá verður
veggmynd, sem unnin hefur verið á
húsi Máls og menningar við Vega-
mótastíg, afhjúpuð á Menning-
amótt kl. 22.30.
Seglskipið Kerzones liggur við
festar í gömlu höfninni. Gestir em
velkomnir um borð frá kl. 20-22.
Kl. 20 verður stiginn línudans
við Miðbakka. Jóhann Örn dans-
kennari ásamt hópi dansara sýnir.
Kl. 22 verður efnt til tónhstar-
flutnings í boði Reykjavíkurhafnar
á sýningunni Konur í Listasafni
Reykjavíkur, Hafnarhúsinu.
VISA Island býður bömum að
koma og taka þátt í myndasam-
keppni á 2. hæð Hins hússins við
Ingólfstorg kl. 14-17 í tilefni af 15
ára afmæli VISA.
Zirkus Ziemsen verður með
heita og eldfima sýningu við úti-
taflið, Bernhöftstorfu kl. 23.30.
Skyggnimyndalýsing fer fram
við Klapparstíg 24 kl. 24. Inga Sól-
veig Friðjónsdóttir Ijósmyndari
sýnir skyggnur.
Tónleikar
Hitt húsið býður upp á útitón-
leika á Ingólfstorgi frá kl. 20-23.
Kl. 20-20.15: To Hell with love.
Flytjendur Rosemary Kajioka á
flautu, Guðrún Dalía Salomons-
dóttir á trommur, Ólöf Helga Arn-
alds á gítar, Erla Björk Þórisdóttir
á bassa, Soffía Birgisdóttir á
hljómborð og Hildur Loftsdóttir
syngur.
Kl. 20.30-21.00: Fortuna-kvar-
tettinn leikur framsaminn jazz-
bræðing, sem og lög eftir aðra.
Fortuna-kvartettinn skipa þeir
Gestur Pálsson á saxófón, Ludvig
Forberg á víbrafón, Magnús Sig-
urðarson á bassa og Ingvi Rafn
Ingvason á trommur.
Kl. 21.00-21.40: Flutt verður
verkið Skammdegi 2 eftir Kjartan
Ólafsson tónskáld. Elektrónískt
verk. Flytjendur: Kjartan Ólafsson
á tölvuhljómborð, Hilmar Jensson
á gítar og Matthías Hemstock á
trommur.
22.00-23.00 Magga Stína ásamt
hljómsveit flytur lög af væntan-
legri hljómplötu. Flytjendur:
Magga Stína á fiðlu, Amar Geir
Ómarsson á trommur, Pétur Hall-
grímsson á gítara, Guðni Finnsson
á bassa, Valgeir Sigurðsson á ví-
brafón og hljómborð og Óskar
Guðjónsson á blásturshljóðfæri.
Önnur tónlistaratriði verða vítt
Nýjar sýningar opnaðar
í Nýlistasafninu
FJÓRIR myndlistarmenn opna
sýningar á Menningarnótt í
Nýlistasafninu kl. 20. Það eru
þeir Dani'el Þ. Magnússon, Hrafn-
hildur Arnardóttir, Juan Geuer
og Finnur Arnar.
Við opnunina kl. 21 spilar
pönkhljómsveitin PPPönk, hún
er á vegum Finns Arnar en hann
sýnir í gryfju. Verk hans Ijalla
m.a. um þá drauma sem við eig-
um um framtíðina. Hvað viljum
við verða og hveijar eru hug-
myndir okkar um framhaldið?
Verkið er að hluta til unnið í
samvinnu við PPPönk.
Daníel Þ. Magnússon opnar að
þessu sinni húsgagnasýningu í
SUM sal. Sem uppfyllingu á sýn-
ingunni notar Daniel Iandslags-
málverk, svokölluð slembimál-
verk sem hann hefur gert sjálfur.
I forsal Nýlistasafnsins sýnir
Hrafnhildur Arnardóttir yfir 300
andlitsmyndir af allri Laugar-
vatnsættinni unnar með tússlitum
á glanspappír. „Eg er að gera
eins konar hópmynd af öllum sem
eru mér blóðtengdir í móðurætt-
ina frá langömmu og langafa,"
segir Hrafnhildur. Myndirnar
vann hún upp úr ættfræðibók um
Laugarvatnsættina sem hún fékk
senda og mun verkið hafa þróast
af söknuði og ást á því sem sérís-
lenskt er. Hrafnhildur stundaði
framhaldsnám í myndlist í New
York og býr þar nú.
Juan Gauer (fæddur í Hollandi
1917) sýnir í bjarta og svartasal
safnsins. Hann kom til landsins
að kenna á Seminar on Art 98, en
setur upp tvær af innsetningum
sínum á Nýlistasafninu. Ásamt
því að hafa unnið í gler og málað
hefur Geuer, síðan 1968, unnið
þrívíðar innsetningar tengdar
starfi hans við vísindarannsóknir
en einnig tengdar pólitískri með-
vitund hans. Verk hans verður
hægt að skoða til sunnudagsins
30. ágúst.
Sýningarnar standa til sunnu-
dagsins 6. september.
Nýlistasafnið er opið alla daga
nema mánudaga frá 14-18.