Morgunblaðið - 21.08.1998, Side 25

Morgunblaðið - 21.08.1998, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1998 25 Jennifer Jason Albert Ben Maggie LEIGH FINNEY CHAPLIN SMITH Washington Torg Textilskúlptúrar OLÍKUMÁLVERKIÐ Dögun eftir Nönnu Dýrunni er meðal verka á sýninguni í Perlunni. Sýningu í Perlunni lýkur MÁLVERKASÝNINGU Nönnu Dýrunnar Björnsdóttur og Marks Dickens í Perlunni lýkur nú á sunnudag. Sýningin hefur staðið frá því í byrjun ágúst. Á sýningunni eru m.a. myndir frá íslandi eða undir áhrifum frá íslensku landslagi og hugmynda- heimi. Nanna Dýrunn lagði stund á högg- myndalist í London en útskrifaðist seinna í málaralist frá City and Guild of London Art School. Mark Dickens lauk prófí frá Central School of Art and Design í London í málalist og grafík og stundaði framhaldsnám í Flórens á Ítalíu. Nanna Dýrunn og Mark hafa bæði tekið þátt í mörgum samsýn- ingum ytra undanfarin ár en þetta er í fyrsta sinn sem þau sýna mál- verk sín hér á landi. Sýning þeirra er opin daglega kl. 10-22. MYMPLIST Listhns Ofeigs MYNDVERK ISA ÖHMAN Opið alla daga á timum verslunarinn- ar. Til 22. ágúst. Aðgangur ókeypis. ÞAÐ gerist æ oftar, að listamenn hagnýti sér hin aðskiljanlegustu efni í myndverk sín, hvort tveggja tví- og þrívíð. Þetta kemur afar vel fram í skúlptúrum Isu Öhman sem vinnur í blandaðri tækni, svo sem rýa, línugarnsvafningar sem hún vefur utan um bómullarefni. Notar akrýlliti bæði á skúlptúrana og í tví- víð verk, þannig eru klippimyndirn- ar unnar í akryl, gvass, pappír og taui. Vill flétta inn í þau fjölbreytni og hraða samfélagsins í bland við gáska, mjúka og græskulausa kímni. Hér er um lærðan textíllistamann að ræða, sem stundaði nám við Textílstofnunina í Borás, Vefskóla velunnara listíða og Konstfack í Stokkhólmi og útskrifaðist þaðan ^ (j\ J . QvJQÁ'' r-'v n P ....* '“*•* ' ^ Ljósmynd/Bragi Ásgeirsson HINN velviljaði, blönduð efnistækni. sem textílhönnuður 1979. Rekur eigin vinnustofu í Stokkhólmi og hefur haldið ýmsar sérsýningar í heimalandi sínu. Það er leikurinn við efnið sem helst kveikir í sköpunargáfu lista- konunnar, sem kemur sýnu best fram í skúlptúrunum sem geta ögrað fýrir undirfurðulega kímni og óvenjulegt vinnulag. Ferlið er þó ekki með öllu óþekkt og sér helst stað í almennum íðum hvers konar, svo og verkum núlistamanna sem hafa tekið föndur og ódýr efni upp á arma sína, jafnvel hnoð og glingur- list, kitsch. Slíkir eru yfirburðir skúlptúrverkanna að skoðandinn tekur vart eftir klippimyndunum, og þó njóta þeir sín naumast í rým- inu, því þessi fjölbreyni kallar á sveigjanleika og afmarkaða bása fyrir einstök verk. Nokkrir skúlpt- úranna myndu að mínu viti vafa- laust vekja drjúga athygli í öðru umhverfi, t.d. í listhúsum núlista, þar sem þeir eiga kannski meira heima, en aðrir sverja sig í ætt við almennari textíl og íðir. Rýnirinn hafði giska gaman af þessum skúlptúrum sem léttu lund og fylgdu honum drjúga stund eftir að hann yfírgaf staðinn. Bragi Ásgeirsson Fiðlutón- leikar í Hveragerð- iskirkju MÆÐGURNAR Eva Mjöll Ing- ólfsdóttirr og Andrea Kristins- dóttir, níu ára, verða í Hvera- gerðiskirkju sunnudaginn 23. ágúst kl. 17. Undirleikari á pí- anó er Peter Máté. Á efnisskrá tónleikanna eru vinsæl verk fyrir einsleiksfiðlu, t.d. Partita eftir J.S. Bach í d-moll, sem þykir eitt af meist- arastykkjum fíðlubókmennt- anna, sónata fyrir fíðlu og píanó eftir Cesar Franck, auk smærri, vinsælla verka eftir Fritz Kreisler o.fl. Heimsklúbbur Ingólfs styrkir tónleikana en listasjóður Heims- klúbbsins hefur á undanförnum árum Iagt fram fé til styrktar Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason ANDREA Kristinsdóttir á tón- leikum í Stykkishólmskirkju um síðustu helgi. Einnig komu þar fram móðir hennar Eva Mjöll Ingólfsdóttirr og Peter Máté. ungu listafólki. Styrkurinn nú er til að örva foreldra til að koma með börn sín á tónleika, segir m.a. í fréttatilkynningu. Þekking Reynsla Þjónusta FALKINN Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Sími: 540 7000 Fax: 540 7001 • Netfang: mm@falkinn.is Hafnarborg Píanótónleik- ar Valgerðar Andrésdóttur PÍANÓTÓNLEIKAR Valgerðar Andrésdóttur, sem haldnir verða sunnudaginn 23. ágúst kl. 20.30, eru fjórðu í röð- inni „Tónleikar á afmælisári". Fyr- ir tónleikaröð þessari stendur Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar, í tilefni af 90 ára kaupstaðaraf- mæli Hafnar- fjarðar, og 15 ára afmæli Hafnar- borgar. A efnisskrá tónleikanna á sunnu- dag eru Svíta op. 14 eftir Béla Bartók, Sónata í As dúr, op. 110 eftir Ludwig van Beethoven og Sónata í b moll, op. 35 eftir Fréder- ic Francois Chopin. Valgerður stundaði framhalds- nám við Listaháskólann í Berlín, þaðan sem hún lauk burtfararprófi árið 1992. Hún bjó um tíma í Kaup- mannahöfn og starfar nú sem pí- anókennari og undirleikari við Tónlistarskólana í Hafnarfirði og Garðabæ. Valgerður Andrésdóttir Tsurumi Pump VATNS- DÆLUR SÆTÚNI 8 SÍMI 5691500 www.ht.is Umboösmenn um land allt 3“ með bensínmótor. Afköst 1000 L/mín. Frábært verð aðeins kr. 67.550 m/vsk. jjPjl '< 111II oj Skútuvogi t2fl, s. 5681044 Verð frá kr. 59.900 stgr. Heimilistæki hf tUIVICIVIM Euronova þvottavél • 3 kg af þvotti • vinduhraði 600 snún./mfn. eða 800 snún./mfn. • mál 67 x 46 x 45 cm EUMENIAX

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.