Morgunblaðið - 21.08.1998, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1998 27
HESTAR
Stórmótið á Gaddstaðaflötum hafíð
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
GOÐ stígandi hefur verið í Oturssyninum unga, Ofsa frá Viðborðsseli,
sem heimsmeistarinn í tölti, Vignir Siggeirsson, hefur sýnt með mikl-
um ágætum í sumar. Þeir tróna nú á toppnum á Hellu en vísast verður
við ramman reip að draga í úrslitunum á laugardag.
Oturssynir atkvæða-
miklir í B-flokki
Jóhann R. Skúlason undrandi á niðurstöðu dýralæknis mótsins
Hafði Náttþrym til
sýnis á mótsstað
, Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
JÓHANN var að vonum undrandi og svekktur yfir því að Náttþrymur
frá Arnþórsholti var dæmdur úr leik vegna megurðar á Norðurlanda-
mótinu. Jóhann ákvað að hafa hestinn á mótssvæðinu svo fólk gæti
skoðað hann og myndað sér skoðanir á málinu, sem að því er best varð
skilið voru á eina lund.
STÓRMÓT sunnlenskra hesta-
manna hófst á miðvikudag með
keppni B-flokksgæðinga og standa
þar efstir Ofsi frá Viðborðsseli og
Vignir Siggeirsson með 8,66 í ein-
kunn. Næst er Duld frá Víðivöllum
fremri sem Þórður Þorgeirsson sit-
ur með 8,64 og Ás frá Hofsstaðaseli
og Sigrún Erlingsdóttir koma næst
með 8,62.
Hasar frá Þykkvabæ og Hall-
grímur Birkisson era í fjórða sæti
með 8,49 og Verðandi frá Hjálmholti
og Sigurður Óli Kristinsson eru
fimmtu með 8,47. Þessir fimm keppa
í úrslitum á laugardag en komið
hafa fram óskir um að átta efstu
keppi í úrslitum í stað fimm en
ákvörðun hafði ekki verið tekin í
gær hvort orðið verður við þeiiri
beiðni. I þessum fimm hesta hópi
eru tveir synir Oturs frá Sauðár-
króki, Ofsi og Hasar.
í ungmennaflokki eru efst Glanni
frá Vindási og Kristín Þórðardóttir
með 8,49. Höldur frá Undirfelli og
Guðmar Þór Pétursson koma næstir
með 8,34. í þriðja sæti eru Ögri frá
Vindási og Hrafnhildur Guðmunds-
dóttir með 8,14 og Hrefna frá Búð
og Unnur Olga Ingvarsdóttir fjórðu
með 8,07. I fimmta sæti eru Örn frá
Grundarfirði og Davíð Matthíasson
með 7,99.
I unglingaflokki eru efstir Seiður
frá Sigmundarstöðum og Daníel I.
Smárason með 8,79. Næst koma
Djákni frá Litla-Dunhaga og Sylvía
Sigurbjörnsdóttir með 8,53 og
Staka frá Ytri-Skógum og Rakel
Róbertsdóttir með 8,48. Léttingur
frá Berustöðum og Andri Léo
Egilsson eru í fjórða sæti með 8,46
en Hrafnar frá Hrafnhólum og Hr-
efna M. Ómarsdóttir eru í fimmta
sæti með 8,41.
HESTAR
Hedeland f Danmörku
NORÐURLANDAMÓT
í HESTAÍÞRÓTTUM
ATHYGLI vakti frétt Morgun-
blaðsins þess efnis að Jóhann R.
Skúlason, sem hugðist keppa á
Norðurlandamótinu í hestaíþrótt-
um fyrir hönd Danmerkur, hefði
verið dæmdur úr leik sökum þess
hversu magur hestur hans, Nátt-
þrymur frá Ai-nþórsholti, var. Það
hefur löngum þótt hverjum manni
til skammar að fóðra skepnur sínar
illa og því lék blaðamanni forvitni á
að sjá þennan meinta horaða grip.
Jóhann brást vel við beiðni blaða-
manns, enda tók hann þá ákvörðun
að hafa hestinn á mótsstað meðan
á mótinu stæði svo fólk gæti séð
með eigin augum fóðurástand
Náttþiyms.
„Það hefði ekki litið vel út ef ég
hefði rokið með hestinn strax í
burtu án þess að gefa nokkrum
kost á að sjá hann. Ætla má að fólk
hefði stimplað mig alræmdan dýra-
kvalara," segir Jóhann og bætir við
að þessi úrskurður dýi-alæknisms
hafi komið sér mjög á óvart. „Eg
hef verið að keppa á hestinum í
sumar með góðum árangri og ekki
séð nein teikn um að hann væri
eitthvað slappur eða grennri en
gerist og gengur með stóðhesta á
þessum árstíma. Dýralæknir móts-
ins skoðaði hann á laugardegi fyrir
mótið og gerir þá engar athuga-
semdir. Á sunnudeginum ríð ég
hestinum hér á mótsstað og hún
sér hestinn hjá mér í reið. Á mánu-
dag er hann aftur skoðaður klukk-
an níu og klukkan ellefu fæ ég bréf
þar sem sagt er að hann sé ekki
hæfur til keppni sökum megurðar.
Eg er búinn að ræða við aðra dýra-
lækna og ber þeim saman um að ef
dæma hefði átt hestinn úr leik
hefði verið eðlilegt að mæla hann
og vigta og jafnvel taka blóðsýni,
sem ekki var gert. Ef eitthvað væri
að hestinum væri ég að sjálfsögðu
ekki með hann í keppni,“ segir Jó-
hann, súr í bragði yfir lyktum
mála. Hann sagði að fjöldi manns
hefði komið að skoða klárinn og
væru allir mjög undrandi yfir
þessu uppátæki dýralæknisins.
Athygli vakti, eins og blaða-
manni var bent á, að finna mátti
hesta á mótinu í svipuðu holdafari
og Náttþrymur og sá blaðamaður
einn stóðhest sem var óumdeilan-
lega grennri, en engin athugasemd
var gerð við holdafar hans í dýra-
læknisskoðun. Gömul hálfgróin sár
vegna sumarexems mátti greina á
makka Náttþryms en ekki var gerð
athugasemd vegna þeirra af hálfu
dýralæknisins, enda ekki ástæða
til.
Oft er það notað til viðmiðunar
um holdafar hrossa hvort greina
megi rifbeinin á síðunni. Ef Nátt-
þrymur var sveigður til hliðar
mátti greina rifbeinin á þeirri hlið
sem strekkt var á. Stæði hann hins
vegar eðlilega voru öftustu rifbein-
in vart gi-einanleg. Er vart annað
hægt en taka undir undrun vegna
niðurstöðu dýralæknisins. Því mið-
ur náðist ekki í dýralækninn til að
fá hans hlið á málinu.
Valdimar Kristinsson
Tvo milljarða króna kostar að halda íslenska hrossastofninn á ári
Kostnaðarverð á tömdum
6 vetra hesti er 277.000
KOSTNAÐUR við að ala upp hross
að tamningaraldri er 115.592 krón-
ur samkvæmt útreikningum Hag-
þjónustu landbúnaðarins. Kostnað-
arverð á tömdum hesti, 6 vetra, sem
tilbúinn er til útflutnings eða sölu
innanlands er hins vegar komið upp
í 276.788 krónur. Þetta kemur með-
al annars fram í skýrslu Hagþjón-
ustu landbúnaðarins um úttekt og
stöðumat á hrossabúskap og
hrossaeign á Islandi til landbúnað-
arráðherra sem kynnt var í vikunni.
Samkvæmt þessum útreikningum
er ljóst að hrossaræktendur selja
stóran hluta hrossa sinna undir
kostnaðaiverði. Hér er einungis
reiknað með fjöguiTa mánaða
tamningu og auk þess er annar
kostnaður, svo sem dýralækna-
kostnaður, oi-malyfsgjöf, járningar
og fleira svo sem fóðrun og hirðing,
ekki reiknaður inn í dæmið.
Kostnaður á ári við
að halda hross
Árlegur kostnaður
Graðhestar 35.568
Reiðhestar/hryssur á húsi 25.598
Hryssur, útigangur 22.966
Foíald/tryppi 23.834
Kostnaður við uppeldi
og tamningu hrossa:
Krónur
Kostnaður og afskrift á hryssu
29.090
Folatollur 15.000
Uppeldiskostnaður að 4. vetri
71.502
Samtals að 4. v.: 115.592
Kostnaður við tamningu (4 mán.)
60.000
Uppeldiskostnaður (2 ár) í húsi
51.196
Annað 50.000
Samtals 276.788
Tekið er fram að kostnaður við
uppeldi og eign hrossa getur verið
mismunandi eftir því hvaða aðstæð-
ur eru fyrir hendi, svo sem land-
gæði, veðurfarsskilyrði, samnýting
á föstum kostnaði og fleira.
Reiknað er með kostnaði við hús,
girðingar og fóður í útreikningun-
um. Gert ráð fyrir að verð á hvern
fermetra í hesthúsi sé 23.685 krón-
ur, afskriftartími 30 ár og vextir
5,5%. Hver graðhestur þarf 3 fer-
metra, hryssur og reiðhestar 1,81
fermeti-a og ti-yppi 2 fermetra.
Miðað er við rafgirðingu með 20
ára endingartíma. Stofnverð á
hvern metra er 52,63 krónur. Grað-
hestur er talinn þurfa 2,3 ha á ári
en tryppi um 2 ha. Þá er miðað við
að graðhestur sé hýstur í 6-7 mán-
uði og tryppi í 7 mánuði á ári.
Reiknað er með að hryssur sem
ganga úti allan ársins hring þurfi 4
ha af góðu beitilandi auk heygjafar
að vetri í um 6 mánuði.
Miðað er við að dagleg fóðurþörf
tryppa og folalda á gjöf, hvort sem
er úti eða inni, sé 5 fóðureiningar
(FE), graðhesta 5,5 FE og reið-
hesta, fylfullra og mjólkandi
hiyssna 4,6 FE. Miðað er við bund-
ið þurrhey með 85% þurrefni og að
kostnaður á hverja FE sé 19,43
krónur.
Kostar 2 milljarða að halda
íslenska hrossastofninn
Nú tíðkast að gefa öllum hross-
um fóður yfir vetrartímann, hvort
sem þau era á húsi eða á útigangi
og er reiknað með því í úttekt Hag-
þjónustunnar. Miðað við þær for-
sendur sem gefnar eru í úttektinni
og að um 20.000 hross séu á húsi
um vetur er árlegur kostnaður við
að halda íslenska hrossastofninn
um 1.900 milljónir króna. í töflu 1
kemur fram kostnaður við að halda
hross á hverju ári á bújörð.
Þéttbýlisbúar kaupa hey
fyrir 225 milljónir...
Kostnaður við að halda hross í
þéttbýli er ekki að öllu leyti sam-
bærilegur við hrossahald á bújörð-
um þar sem kaupa þarf hagagöngu
og hey fyi-ir hrossin.
í úttektinni er heysala til þétt-
býlisins áætluð út frá gjöf í fimm
mánuði, frá janúar til maí. Miðað er
við að hver reiðhestur þurfi að jafn-
aði 4,2 FE á dag og að í hverri FE
sé 1,8 kg. Hverju hrossi séu því gef-
in um 7 kg af heyi á dag. Sam-
kvæmt því getur árleg heysala til
þéttbýlisins verið um 15.750 tonn.
Áætlaður framleiðslukostnaður á
hvert kg af heyi miðað við 85%
þurrefni er um 14 krónur. Fram-
leiðslukostnaður á heyi sem selt er
til þéttbýlisins er því reiknaður 220
milljónir króna. Hvert hross á fóðr-
um þarf um það bil 5 heyrúllur yfir
veturinn og ekki er óalgengt að
rúllan sé seld á 3.000 krónur. Miðað
við 15.000 hross reiknast heysala til
þéttbýlisins vera 225 milljónir
króna og samkvæmt skýrslunni
virðist hey vera selt nánast á fram-
leiðslukostnaðarverði. Hey ofan í
hvert hross í þéttbýli kostar því
15.000 krónur á ári samkvæmt
þessu.
... og hagagöngu fyrir
115 milljónir
Kostnaðm’ vegna hagagöngu
miðar við sama fjölda hrossa í sjö
mánuði, frá júlí til desember. Á
tímabilinu frá júní til og með nóv-
ember, er viðmiðunarverð fyrir
hagagöngu 850 krónur á mánuði.
Eftir það og til maíloka kostar
hagaganga 2.550 ki’ónur á mánuði.
Hagaganga fyrir hvert hross í sjö
mánuði kostar því 7.650 krónur og
kostnaður vegna hagagöngu þétt-
býlishrossa nemur alls um 115
milljónum króna. Samtals kostar
því hagaganga og hey fyrir hvert
hross í eigu þéttbýlisbúa 22.320
krónur á ári.
Ásdís Haraldsdóttir