Morgunblaðið - 21.08.1998, Page 41

Morgunblaðið - 21.08.1998, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1998 41 < ( ( ( I < i ( i ( ( i i ( ( i < < < < I < < I i < i : 4 Nefnd kanni starfs- skilyrði stjórnvalda FORSÆTISRÁÐHERRA hefur í samræmi við ályktun Alþingis frá 2. júní sl. skipað nefnd til að kanna starfsskilyrði stjórnvalda, eftirlit með starfsemi þeirra og viðurlög við réttarbrotum í stjórnsýslunni. I því skyni skal nefndin semja skýrslu um eftirtalin atriði: 1. Almennar efnisreglur stjóm- sýsluréttarins. Kanna ber hvaða óskráðu efnis- reglum stjórnvöldum ber að fylgja þegar skýrum og fastmótuðum sett- um reglum sleppir og stjórnvöldum er eftirlátið svokallað frjálst mat við töku stjórnvaldsákvarðana. Gerð skal grein fyrir hvaða reglur gildi um meðferð slíks vald og hvort þær séu í samræmi við siðferðishug- mjmdir manna. 2. Stjórnkerfið og eftirlit með starfsemi stjómvalda. Kanna ber uppbyggingu stjórn- kerfisins og að hve miklu leyti eftir- lit er innbyggt í það sjálft og að hve miklu leyti það er utanaðkomandi. 3. Áfleiðingar réttarbrota í stjórnsýslunni. Kanna ber hvaða afleiðingar rétt- arbrot í stjórnsýslunni geti haft, m.a. hvaða viðurlög em við þeim og hverjir geta sætt ábyrgð samkvæmt þeim, þ. á m. stjórnsýsluviðurlög- um, refsiábyrgð, bótaábyrgð opin- berra starfsmanna og húsbóndaá- byi’gð hins opinbera. 4. Úrbætur. Nefndin skal setja fram sjónar- mið um leiðir sem færar era til úr- bóta í þeim tilvikum sem gefa tilefni til þess, segir í fréttatilkynningu. Gert er ráð fyrir að unnt verði að leggja skýrslu nefndarinnar fyrir Alþingi áður en fundum þess verður frestað á vorþingi 1999. í nefndinni eiga sæti Páll Hreins- son, dósent við lagadeild Háskóla Is- lands, sem jafnframt er formaður, Ragnar Amalds, alþingismaður, og Þórann Guðmunsdóttir, hæstaréttar- lögmaður. Jafnframt hefur Kristjáni Andra Stefánssyni, deildarstjóra, verið falið að starfa með nefndinni af hálfu forsætisráðuneytis. Málverkasýning á Laugarvatni STEINGRÍMUR St. Th. Sigurðs- son opnar sína 89. málverkasýn- ingu í Hótel Eddu, Mennta- skólanum á Laugarvatni, kl. 18 í dag, föstu- dag. Steingrímur sýnir 40 nýjar myndir; lands- _ . lagsmyndir, Steingnmur St. j - i: Th. Sigurðsson sjavarmynclir, listamaður. fantasiur, por- tret og abstraksjónir. Kvaðst listamaðurinn beita svipuðum lffstóni í allra nýjustu myndum sfnum eins og fram kemur í lífs- bók hans Lausnarsteinn sem kemur út í haust, segir í fréttatil- kynningu. Sýningin verður opin í þrjá daga og lýkur sunnudagskvöldið 23. ágúst. Jass-duo þeirra Þóris Baldurssonar og Guðmundar Steingrfms Steingrímssonar mun leika Dixieland og blueslög opn- uuarkvöldið. Afmælishátíð í Kringlunni í TILEFNI af því að Kringlan fagnar nú 11 ára afmæli verður haldin afmælishátíð í Kringlunni á morgun, laugardaginn 22. ágúst. Veislan byrjar kl. 11 en þá er boð- ið frítt í Kringlubíó á Disneymynd- ina Hafmeyjuna og Mouse Hunting. Á Kringlutorginu verða sett um ieiktæki fyrir börnin, hringekja, hoppukastali, risarennubraut o.fl. og boðið verður upp á andlitsmálun. Innandyra sýnir Kómedíuleikhúsið leikritið Töfratöskuna fyrir yngri kynslóðina, trúðar verða á ferðinni og öll börn fá blöðrar. Leikhópurinn Leyndir draumar verður á ferðinni með ósýnilegt leikhús, söngkonum- ar Fjórar klassískar verða í léttri sveiflu o.fl. Allir sem koma á afmælishátíð Kringlunnar fá ókeypis happdrætt- ismiða þar sem veglegir vinningar eru í boði. Aðalvinningarnir era Fartölva frá Landssíma Islands og flug og gisting fyrir tvo til Flórída frá Flugleiðum. Ennfremur era eft- irfarandi vinningar frá verslunum í Kringlunni: Mokkabollar eftir Guð- björgu Káradóttur frá Gallerí Fold, G-Shock úr frá MEBA, úttekt á silf- urskartgripum frá Jens, barnareið- hjól með hjálpardekkjum frá Byggt og búið, úttekt á Grisali-perluskart- gripum frá Jens, tréstytta frá Jóni Indíafara, spegill frá AHA og vöra- úttekt frá Steinari Waage, Cha*Cha og Lapagayo. Aukavinningarnir eru 50 miðar fyrir tvo frá Borgarleik- húsinu á Sex í sveit. í tengslum við afmæli Kringlunn- ar hefur á undanfórnum áram verið efnt til myndlistarsýningar í versl- unarmiðstöðinni. Að þessu sinni er afmælissýning tileinkuð vefnaðarlist og nefnist Vefur Styrgerðar. Vefur Styrgerðar er sýning á vefnaði eftir listakonuna Ingibjörgu Styrgerði Haraldsdóttur og verður hún opnuð í Kringlunni í dag. Sýningin er sett upp í samstarfi við Gallerí Fold. Arkitektafélag fslands Ráðstefna um snjóflóða- varnir og öryggi bæja STJÓRN Arkitektafélags íslands boðar til ráðstefnu 5. október nk. undir yfirskriftinni Öruggari bæir, þar sem fjallað verður um þær um- fangsmiklu snjóflóðavarnir sem nú er unnið að. Þetta verður þáttur í alþjóðadegi Sameinuðu þjóðanna um búsetu og byggðaþróun. Stjórn AÍ lýsir í fréttatilkynningu yfir verulegum áhyggjum vegna framkvæmda við snjóflóðagarða sem fyrirhugaðir era á næstu ánim og ef- ast um að þessar feikilega kostnað- arsömu framkvæmdir tryggi raun- veralegt öryggi og áframhaldandi búsetu á þeim stöðum þar sem þær eru fyrirhugðar. Með þeim verðui- yfirbragði og náttúralegri umgjörð bæja eins og ísafjarðar, Siglufjai-ðar og Seyðisfjarðar gerbreytt. Stjórn AI minnir á að íslenskir bæir og umhverfi þeirra eru veru- legur hluti íslenskrar menningar- arfleifðar sem ber að vernda og hlúa að og því era umhverfisleg og sjónræn áhrif þessara snjóflóða- garða algerlega óviðunanleg. Stjórn AÍ telur mikilvægt að tryggja öryggi og búsetumöguleika fjólks um land allt og styrkja stoðir undir áframhaldandi búsetu í dreif- býli sem þéttbýli. í því samhengi telur stjórn Áí nauðsynlegt að kannaðir verði fleiri kostir til að tryggja öryggi þeirra; kostir sem kynnu að vera skynsamlegri gagn- vart umhverfinu og framtíðarskipu- lagi byggðar í landinu. Snjóflóðavá er vissulega skelfileg en hún er þó aðeins ein af mörgum hættum sem steðja að íslensku samfélagi. Stjóm AÍ vill með ráðstefnunni gangast fyi-n- opinskái-ri umræðu um þessar íyrirætlanir og að þær verði skoðaðar í samhengi við almennar og eðlilegar kröfur til öryggis á byggð- um svæðum, að því er segir í frétta- tilkynningu frá félaginu. Ferð að rótum Vatnajökuls EIN af síðustu sumarleyfisferðum Ferðafélags íslands er ný ferð, 27.-31. ágúst, í samvinnu við Hið ís- lenska náttúrafræðifélag og kallast ferðin: „Við rætur Vatnajökuls.“ Gist er allar næturnar í svefnpoka- plássi í tveggja manna herbergjum á ferðaþjónustubænum Smyrla- björgum í Suðursveit og farið í dagsferðir þaðan. A fyrsta degi verður farið með Öræfaferðum út í Ingólfshöfða en dagskrá hinna daganna snýst um öku-, göngu- og skoðunarferðir í Austur-Skaftafellssýslu. Guttormur Sigurbjarnarson, jarðfræðingur, verður með í for. Þeim sem hafa áhuga á ferðinni er bent á að hafa strax samband við skrifstofu ferða- félagsins í Mörkinni 6. Bent er á í fréttatilkynningu að Árbók ferðafélagsins 1993, með sama nafni og ferðin, sé góð lesning fyrir ferðina. Höfundur bókarinnar er Hjörleifur Guttormsson. Tískusýning á menningarnótt í TILEFNI menningamætur í Reykjavík 1998 mun María Lovísa fatahönnuður halda tískusýningu 22. ágúst kl. 20 á Skólavörðustíg 8. 20% afsláttur verður veittur af öllum fatnaði að gefnu tilefni. Fyrir- hugað er að halda sýninguna ut- andyra. Síðustu sýningar íslenska óperan SIÐASTA sýning á söngleiknum Carmen Negra verður í laugardags- kvöldið 22. ágúst kl. 20. Það eru þau Caron, Egill Ólafs- son, Helgi Björnsson, Bergþór Pálsson, Vilborg Halldórssdóttir og Bubbi Morthens sem fara með aðal- hlutverkin í Carmen. Caron er á förum til Finnlands þar sem bíður hennar aðalhlutverk- ið í söngleiknum Rent sem hefur notið mikilla vinsælda á Brodway. Morgunblaðið/Jón Svavarsson STUÐMENN við opnun Hvalfjarðarganga. Stuðmenn á Hótel Sýrlandi í kvöld BROADWAY verður í sýrlenskum Stuðmannabúningi í kvöld, þegar þessi gamalkunna hljómsveit treð- ur upp ásamt fjölbreyttum hópi annarra listamanna. Stuðmenn eni um þessar mundir á hljómleika- ferð og koma nú í fyrsta sinn við í Reykjavík. Dagskrá kvöldsins hefst klukk- an 23 með dægurlagasöngvaran- um Jóni Kr. Ólafssyni frá Bíldudal, sem þekktastur er fyrir að hafa flutt lagið „Eg er frjáls“ með hljómsveitinni Falcon fyrir þijátíu árum eða svo. Rappsveitin Real Flavaz, plötu- snúðurinn Herb Legowitz og einn elsti og virtasti breakdansari lands- ins, Bjarni Böðvarsson, öðru nafni Bjarni „Bö“, munu koma fram. Einnig munu valdir gó-gódansarar úr Frakkahverfínu í Reykjavík stíga á svið, íslenska fjallkonan kemur við sögu og fara mun fram blautbuxnakeppni, en Stuðmenn taka við stjórn um miðnætti. Á meðan aðrir borgarbúar hylla hámenninguna á laugardagskvöld hyggjast Stuðmenn standa fyrir lágmenningarnótt. Vinningaslcrái 15. útdráttur 20. ágúst 1998. íbúðarvinningur Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur) 21808 Ferðavinningur Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur) 405 37064 52140 55937 Ferðavinningur Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur) 8826 31337 43823 48897 53404 69696 11281 41236 46366 49270 57222 73259 Húsbúnaðarvinningur Kr. 10.000 Kr. 20.000 (tvöfaldur) 1301 9117 23426 32212 39409 48932 60700 73112 1706 9521 23531 33320 39646 49581 61015 73121 1768 11822 24248 33397 40173 50912 61303 75083 2427 12393 25495 33635 40863 50964 62146 75427 2441 14263 26855 34497 42520 53023 62626 78276 3256 14302 27555 34934 43548 54650 62849 78542 4554 15424 28138 35861 45421 55470 65604 79049 4578 16047 28176 36288 45595 55815 65861 79078 6708 16686 29360 36995 45913 56074 66879 79187 8125 19888 30838 37188 47155 56227 67269 8318 20343 31188 38071 47506 56742 68501 8453 22468 31329 38637 47536 57642 70604 8870 23391 31989 39240 47745 58241 72238 nusDunaoarvinningur Kr. 5.000 Kr. 10.000 (tvöfaldur) 52 8549 19569 29126 40425 49526 60167 71420 79 8584 20583 29915 40984 49539 60316 71535 375 9351 20929 30087 41546 49728 60568 71769 690 9462 22044 30302 41559 49850 60928 71852 860 9716 22303 30724 41987 50807 61336 72065 954 10106 22884 31259 42188 50892 61694 72139 1082 10280 22931 31977 42577 51183 61815 73029 1125 10533 23017 32940 42858 51226 62349 73189 2142 10905 23282 33031 43095 51929 63449 74055 2470 11223 23396 33292 43132 52008 64230 74565 2727 11315 23497 33588 43178 52350 64340 74577 2890 11320 23501 33620 43687 52441 64447 74652 2930 11673 23667 33672 43834 52655 64536 74744 3359 11906 24330 33840 44061 52844 64865 75045 3479 12192 24546 34273 44397 53481 64886 75168 4037 12480 24752 34404 44493 53907 65336 75461 4122 12605 24886 34409 44941 54100 65433 75521 4446 14036 25504 34769 44985 54141 65651 75770 4503 14230 26442 34966 45509 54348 65862 76113 4683 14288 26460 35049 45756 54632 65874 76202 4796 14460 27081 35805 45818 55527 66084 77491 5133 15503 27161 36353 46326 56671 67002 77525 5624 15710 27593 36539 47125 57519 67377 77626 6542 16014 27761 38193 47201 57997 67757 78938 6577 16018 27812 38581 47203 58257 67766 79590 6593 16373 27848 39561 47450 58279 69875 79824 7118 17318 27851 39586 47649 58569 69921 7517 17396 28485 39596 48127 58584 70492 7857 17512 28704 39672 48468 58586 70513 7946 17734 28773 40136 48662 58710 70603 7949 17836 28793 40236 49426 58748 71062 8450 19370 28872 40347 49443 60038 71203 Nacsti útdráttur fer fram 27. ágúst 1998 Heimasíða á Interncti: www.itn.is/das/

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.