Morgunblaðið - 21.08.1998, Síða 44

Morgunblaðið - 21.08.1998, Síða 44
44 FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1998 MORGUNBLAÐIÐ _____AFMÆLI___ MARGRÉT ÁSGEIRSDÓTTIR Hún, þessi kona að vestan, er óvæmnasti kvenmaður á íslandi, sagði náungi henni kunnugur. Undir þetta er tekið af eiginmanni hennar número duo. Margrét Ásgeirs- dóttir frá Skógum í Amarfirði er í sér- umslagi sem mann- eskja og kona. Hún átti því láni að fagna eða eigum við ekki öllu heldur að segja að það var ég sem var svo lán- samur að verða hennar eiginmaður og stoð og stytta - „skaffari", eins og vestfirzkar konur nefna maka sína. Raunar bannaði pápíska kirkjan mér að kvænast henni. Kaþólskt brúðkaup hefur jafnan verið gert með stíl og sýnir virðingu gagnvart guði og hjóna- bandinu. Margrét, sem er aðeins sjötíu ára í dag og hefur ekkert tímatal í venjulegum skilningi, er forn í hugsun og minnir oft á skap- ferli ýmissa kvenpersóna í Islend- ingasögunum. Árin með Margréti voru eins og sjórinn. Þarf ekki að skýra slíkt nánar. Hvort verndaði hvort í stór- skotaorrustum og árásum, sem fylgir lifandi lífi. Læt ég ósagt um slíkt. Margrét er hreinræktuð alv- estfirzk kona af „svörtu ættinni" svokölluðu. En sjálf hefur hún sagt að Amardalsættin skreyti sig með hennar ætt. Svo ákveðin er Margrét að hún lítur ekki á Isfirðinga og Djúpverja sem dæmigert vestfirzkt fólk. Að búa með Margréti var mesta reynsla lífs míns og menntun út af fyrir sig. ÁJíka mikil eins og að hafa farið í gegnum Sorbonne og Oxford. Sagt hefur verið að lífs- reynsla sé fyllilega á við akademíska menntun. Á þessum áram var lífið stundum eins og orrusta, rannsóknarblaða- mennska á Vísi sem var gott íhalds- blað, húsbygging á mettíma á Laug- arvatni - þá fæddust þrjú böm með stuttu millibili og þá jókst sólsldnið að miklum mun og gaf lífinu bæði tilgang og mýkt. Margrét flutti inn á heimili okkar þennan sterka vest- firzka blæ, sem er lit- aður af suðrænu blóði hennar og víkingalög- um. Það var aldrei leið- inlegt í slotinu okkar á Laugarvatni - engin lognmolla eða hvers- dagsleiki. Enn þykir mér fima vænt um Margréti, enda þótt mörg vötn hafi fallið til sjávar síðan slit urðu einhvern tímann undir 1970 - von- andi með algjörum heiðarleik. Við vomm of sjálfstæðar persónur bæði tvö til að lúta borgaralegum lögum í hjúskap. Ef til vill kunnum við bet- ur en margir skil á réttu og röngu í óskráðum lögum trússbindingar. Margrét er af góðu fólki komin, harðduglegu og mögnuðu og það er eins og Dynjandisfoss, þessi óbeizl- aða orka sé táknmynd þessa gens í amfirzku ættinni hennar. Það er ekki nema ár sáðan ég freistaði þess að mála tröllvaxna mynd af þessu náttúrufyrirbæri. Sjaldan hef ég glaðzt meira en þegar Margrét sagði, að mér hefði heppnazt þessi mynd. Túristi, sem átti nýlega leið um Arnarfjörð, sagði við mig að Dynjandisfoss bæri af Niagara foss- um í Bandaríkjunum. Stórfengleiki amfirzka fossins væri slíkur. Fyrstu kynni okkar Margrétar byrjuðu þannig að hún var nemandi minn í Menntaskólanum á Akureyri næstsíðasta stríðsárið. Þá stóð ég hana að því að skapa óróa í bekkn- um og hastaði á hana margsinnis, en allt kom fyrir ekki. Mér leiddist þóf þetta og tók krítarmola - end- ann á þykkri ferstrendri danskri skólakrít og grýtti til hennar og hitti hana beint í ennið - á þann stað, þar sem sagt er að þriðja aug- að sé. Hún leit upp og var greini- lega hissa og horfði beint á mig. Þetta var skot - það má nú segja. Steingrímur St. Th. Sigurðsson. INNLENT Verkleg sjóvinna í Sjóminjasafni Islands VERKLEG sjóvinna verður kynnt í Sjóminjasafni Islands, Vesturgötu 8, Hafnarfirði, sunnu- daginn 23. ágúst frá kl. 13-17. Aldraðir sjómenn sýna ýmis handbrögð við sjóvinnu og gest- um gefst kostur á að þjálfa hand- tökin. Meðal annars verður sýnd vinna við lóðir, net, hnúta og splæsingar. I forsal safnsins stendur yfir sumarsýning á ljósmyndum úr Skaftafellssýslu eftir Helga Ara- son. Boðið er upp á myndbanda- sýningu á 3. hæð safnsins í sumar og verður sýnd ensk útgáfa af kvikmynd Erlendar Sveinssonar Islands þúsund ár. Frá því í júní sl. hefur verið hægt að kaupa sameiginlegan af- sláttarmiða að Sjóminjasafninu og Byggðasafni Hafnarfjarðar. Nú er unnið að viðhaldi og end- urbótum á safnhúsinu, málun, endurnýjun á þakrennum o.fl. Fram til 30. september er Sjóminjasafnið opið alla daga kl. 13-17. Hátíðarfundur vegna 60 ára afmæli SÍBS Á HÁTÍÐARFUNDI í Súlnasal Hótel Sögu laugardaginn 22. ágúst verður þess minnst að 60 ár eru liðin frá stofnun SÍBS á Víf- ilsstöðum 24. október 1938 og 50 ár frá stofnun Sambands nor- rænná berklasjúklinga, en þau samtök vom stofnuð á Reykja- lundi dagana 15.-20. ágúst 1948. Nafn þessara samtaka hefur nú breyst í Norrænu hjarta- og lungnasamtökin. Á hátíðarfundinum, sem hefst kl. 13.45 og er opinn öllum velunnumm SIBS, flytur forseti íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, ávarp. Sven Erik Myrseth, formaður Samtaka hjarta- og lungnasjúkra í Noregi, flytur erindi um heilbrigðisþjón- ustu fyrir lungnasjúklinga á komandi öld. Þorsteinn Blöndal, yfirlæknir lungna- og berkla- varnardeildar á Heilsuvemdar- stöðinni, ræðir um berklaveiki á hverfandi hveli. Fleiri stutt ávörp verða flutt, kaffiveitingar, söngur og tónlistarflutningur. I tilefni þessara tímamóta koma um 30 erlendir gestir til landsins. I' DAG VELVAKANPI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Standi við það sera auglýst er í MORGUNBLAÐINU sl. sunnudag var auglýsing þar sem auglýst vom gef- ins húsgögn írá Fjöl- brautaskólanum í Garða- bæ. I auglýsingunni sagði að opið yrði frá kl. 13. Þeg- ar undirrituð kom á stað- inn rétt fyrir klukkan 13 vom flest húsgögnin farin, því umsjónarmaður þess- arar sölu hafði hleypt fólki inn fyrirfram eða fyrir há- degi. Það er mjög slæmt að auglýsa svona og standa ekki við það, fólk kemur jafnvel langar leiðir og treystir því sem auglýst er. Betra hefði verið að sleppa því að auglýsa held- ur en að plata fólk til að mæta þarna á vissum tíma. Ester. Þakkir STEINUNN hafði sam- band við Velvakanda og vildi hún koma á framfæri þakklæti til konunnar sem vísaði henni á fjólu- bláa/bleika hjólið sem dótt- ir hennar hafði týnt í Hlíð- unum. Orðsending til Braga Bergmann HVERNIG væri að biðja Arnór afsökunar þar sem hann átti innkastið og mót- mælti þessu ranglæti við línuvörð? Ingi St. Agnarsson. Tapað/fundið tílli úlfur horfínn Á ÞJÓÐHÁTÍÐ í Eyjum, þar sem Brúðubíllinn var að skemmta, hvarf úr bíln- um stór og fallegur úlfs- haus. Þetta er hann Úlli úlfur og hann er organe- brúnn með brúnu skinni, stór augu, stór eyru og stórt trýni. Er það mjög bagalegt fyrir Brúðubílinn að missa hausinn og er hans sárt saknað. Þeir sem vita um hausinn eru beðnir að skila honum til Brúðu- bílsins eða hafa samband við Helgu í síma 552 5098. Svartur bakpoki týndist í strætó SVARTUR bakpoki, merktur Lotto, týndist í strætó, leið 111, sl. mið- vikudag, 12. ágúst. í bak- pokanum era íþróttafót og skór. Skilvis finnandi hafi samband í síma 557 7155. Monsi týndist á Laugaveginum MONSI, brúnn bangsi, týndist á Laugaveginum 15. júh. Monsi var í bláum heimasaumuðum galla. Hans er sárt saknað þvi hann var alveg nýr. Skilvís finnandi hafi samband í síma 551 5216. Flöffí er týndur FLÖFFI er 4-5 mánaða fress, hálfur angóraköttur, gulur með hvita bringu, mjög gæfur. Hann er ómerktur og ólarlaus. Hann týndist sh sunnudag frá Sólvallagötu 33. Þeir sem hafa orðið hans varir hafi samband í síma 899 5993. Læða í óskilum UNG, ómerkt, bhð og heimavön bröndótt (brún, hvit, svört) læða leitar ákaft eigenda sinna. Upp- lýsingar í síma 553 8985. SKAK Uinsjðn Margeir Pétursson STAÐAN kom upp á alþjóð- legu móti í Recklinghausen í Þýskalandi í sumar. Búlgarski stórmeistarinn stigahái Kiril Georgicv (2.675) hafði hvitt og átti leik gegn Þjóðverjanum T. Henrichs (2.445). Svartur hafði átt ágætar bætur fyrir skiptamun, en var að leika 33. - a7-a5?? Hann hefði átt að láta duga að leika peðinu einum reit skemmra fram. 34. axb5! og svartur gafst upp, því hann stendur skyndilega uppi með von- laust endatafl. Eftir 34. - axb4 35. b6 fær hvítur nýja drottningu. Helgarskákmót Taflfélags Reykjavíkur hefst í kvöld kl. 20 í félagsheimilinu Faxafeni 12. I kvöld verða tefldar þrjár umferðir með hálftíma umhugsunartíma, en laugardag og sunnudag er teflt með lengri umhugs- unartíma. Ollum er heimil þátttaka. HVÍTUR leikur og vinnur. Með morgunkaffinu Ást er... ... að vera bestu vinir hvors annars. HLÆÐU bara, en þú hefðir sjálfur gott af að fara í megrun. svo gestirnir verði ekki feimnir við að fá sér í glas. Víkveiji skrifar... EIR sem hafa lagt leið sína um aðalverslunargötu Reykjavíkur, Laugaveg, era ánægðir með hvað vel hefur tekist til með umbætur frá Frakkastíg að Vitastíg, sem kemur í beinu framhaldi af breytingum sem áður vom gerðar frá Skólavörðustíg að Frakkastíg. Umferð gangandi vegfarenda um Laugaveg hefur aukist og það hefur myndast ákveð- in stemmning um helgar á Lauga- veginum, sem er eins og áður ein aðalæðin að miðbæ Reykjavíkur. Víkverji hefur oftar en áður lagt leið sína niður í miðbæ eftir að breytingarnar voru gerðar og hitt þar íyrir gamla kunningja, sem einnig em oftar á ferð í miðbænum. Allir em sammála um að með breyt- ingunum hafi verið opnuð ný göngu- leið. XXX EITT er það sem Víkverja finnst stinga í augu á „nýja Laugaveg- inum“ - það er frágangur á hellum upp við sum húsin. Greinilegt er að þar hefur verið kastað til höndunum í kapphlaupinu við að opna götuna á fyrirfram ákveðnum tíma. Á nokkrum stöðum era ójöfnur, þar sem hellur hafa sigið og gengið til. Ekki hefur verið gengið nægilega vel frá undirlagi. Verslunareigend- ur við Laugaveg ættu ekki að vera í vandræðum með að hafa samband við verktaka til að láta lagfæra hellumisgengi. Nokkur hús við Laugaveginn eru farin að láta á sjá og hefðu mátt fá andlitslyftingu eins og gatan. Einn kunningi Víkverja, sem hann mætti á göngu, sagðist vera undrandi á að húsráðendur hefðu ekki nýtt tímann þegar Laugavegurinn var lokaður, til að lagfæra hús sín svo að öll um- gjörð Laugavegarins mætti verða enn glæsilegri. XXX AÐ ER alltaf verið að brýna fyrir gangandi vegfarendum að fara ekki yfir á rauðu ljósi, sem er vel. Aftur á móti er það hvimleitt fyrir vegfarendur hvað gönguljós við gatnamót eru illa stillt, hvað „grænu karlarnir“, eins og börnin segja, eru örir til leiks og flýta sér miklu meira en þeir rauðu. Gang- andi vegfarendur eiga oft fótum fjör að launa við að komast yfir götur og oftar en ekki er það þeirra heppni að eyja er úti á miðri götu, þar sem þeir geta kastað mæðinni og búið sig undir að hlaupa yfir hina akrein- ina í kapphlaupi við þann græna. Víkverji var á ferðinni niðri við Mið- bakka á dögunum, eins og svo margir sem leggja leið sína niður á gömlu Reykjavíkurhöfnina, sem laðar alltaf að. Þegar farið var yfir Geirsgötu við Austurbakka átti Vík- verji og aðrir menn í miklum ei*fið- leikum með að komast yfir tvær akreinar, því að sá græni var farinn þegar menn voru úti á miðri götu - sá rauði blasti við á siðustu metrun- um. Það ætti ekki að vera neitt mál fyrir gatnamálastjóra Reykjavíkur og lögregluna að mæta á staðinn og sjá til þess að „græni karlinn" hægi á sér, svo að menn komist yfir göt- una án þess að eiga á hættu að verða fyrir bíl.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.