Morgunblaðið - 04.09.1998, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBBR 1998 11
FRÉTTIR
LÓÐSBÁTURINN úr Eyjum með prammann á Skerjafirði.
Prammi undir
Keikó settur
í farbann
Grágæs hefur fækkað hér á landi síðastliðin fímm ár
Æskilegt talið að
minnka veiðiþunga
Morgunblaðið/Kristján
GRÁGÆS við Laxá í Aðaldal.
PRAMMINN sem flytja á hvalinn
Keikó frá höfninni í Eyjum út í sjó-
kvína í Klettsvík var settur í far-
bann í Hafnarfirði síðdegis í gær
þar sem hann hefur ekki haffærnis-
skírteini. Ráðgert hafði verið að
hafnsögubátur úr Vestmannaeyjum
legði af stað með prammann frá
Hafnarfirði til Vestmannaeyja í
gærkvöldi og var áætlað að ferðin
tæki um sólarhring, að sögn Ágústs
Bergssonar skipstjóra.
Pramminn hefur ekki haft haf-
færnisskírteini í nokkurn tíma, en
um hann gilda sömu reglur og skip,
þó hann sé ekki með vél, að sögn
Hálfdanar Henryssonar deildar-
stjóra eftirlitsdeildar Siglingastofn-
unar Islands.
Fulltrúar Siglingastofnunar tóku
eftir því í gærmorgun að verið var
að draga prammann út Skerjafjörð-
inn, þar sem hann hafði legið um
tíma, og þvi var sett á hann farbann
samkvæmt lögum um eftirlit með
skipum, þegar hann kom til Hafnar-
fjarðar, segir Hálfdan.
Hallur Hallsson, talsmaður Free
Willy-Keiko Foundation, hafði ekki
frétt af málinu er Morgunblaðið
hafði samband við hann og gat hann
því ekki tjáð sig um hvaða áhrif
þetta hefði á áætlanir um flutning
hvalsins.
GRÁGÆS hefur fækkað hér á landi
samkvæmt vetrartalningum allt frá
1993 og ekki er útlit fyrir að henni
hafi fjölgað á síðasta ári samkvæmt
bráðabirgðatalningu. Þetta kemur
fram í grein Arnórs Þóris Sigfús-
sonar, fuglafræðings hjá Náttúru-
fræðistofnun Islands, í nýjasta tölu-
blaði Skotvíss, fagrits um skotveið-
ar og útivist.
Arnór segir í grein sinni að marg-
ir telji veiðiþunga á grágæs of mik-
inn og æskilegt væri að minnka
hann. Hann hefur beint því til skot-
veiðimanna að þeir dragi úr sókn í
grágæs og beini sjónum meira að
heiðagæs sem ætti að geta þolað
meira veiðiálag.
Sala bönnuð
á villtum gæsum
Amór bendir á að á Bret-
landseyjum var farin sú leið til að
minnka veiðiálag á villigæsir að
banna sölu á villtum gæsum, en
bannið hafði í fór með sér að at-
vinnuveiðar á gæs lögðust af. Hann
telur að sú leið sé líklegust til ár-
angurs hér á landi og hafi minnst
áhrif á veiðimenn. Við athugun á
veiðiskýrslum komi í ljós að frá
1995 hafi 3.201 veiðimaður veitt
grágæsir. Mikil dreifing sé á veiði,
eða allt frá einni upp í 325 gæsir á
mann. Einungis 424 veiðimenn hafi
veitt meira en 20 gæsir, eða um 13%
veiðimanna. Þessi 13% veiddu þó
meira en helming grágæsanna 1995
eða rúmlega 19.000 gæsir. Hin 87%
veiddu einungis 16.000 gæsir.
Fjallað um fslenska
veiðikortakerfið í Bretlandi
Síðastliðin 10-15 ár hefur fjöldi
grágæsa sem hefur veturstöðvar í
Bretlandi ekki aukist. I tímaritinu
Shooting Times & Country Mag-
azine segir að frá 1994 hafi öllum
skotveiðimönnum á Islandi verið
gert skylt að kaupa veiðikort og
skila veiðiskýrslum. Með þessu móti
hafi Islendingar fengið vitneskju
um hve margar gæsir þeir skjóta.
Slíkt eftirlitskerfi sé ekki í Bret-
landi og segir tímaritið að enginn
viti með sanni hve margar gæsir
séu veiddar þar. Tímaritið segir að
svo virðist sem íslenska kerfið sé
skilvirkt. Veiðileyfi séu seld í apríl
ár hvert og andvirði þeirra fari til
að reka kerfið og standa straum af
rannsóknum. I desember ár hvert
séu send út eyðublöð til veiðikorta-
hafa ásamt umsóknareyðublöðum
íyrir ný veiðileyfi. Skili veiðikorta-
hafi ekki veiðiskýrslu fái hann ekki
veiðileyfi sitt endurnýjað í apríl.
Tímaritið óttast þó að náttúru-
verndarsinnar muni beita kerfinu
fyrir sig, t.d. á þann hátt að skipu-
lagðir hópar kaupi veiðileyfi og skili
inn fölsuðum skýrslum, um t.a.m.
veiði á friðuðum tegundum, til að
þjóna sínum hagsmunum.
„Fáum
meira
næst“
Morgunblaðið/Kristján Kristjánsson
ENGLENDINGURINN Graham Ferguson landar vænum urriða úr
Laxá í Mvvatnssveit á dögunum.
„VEIÐIN hefur gengið vel í sumar,
að vísu hefur verið tregt undir það
síðasta, en við erum að vona að áin
skríði í 1.000 laxa. Það ætti að vera
raunhæfur möguleiki, það eru
komnh' 965 laxar á land og það er
veitt til 15. september. Þetta er allt
í áttina og á góðri uppleið, en það
hefur verið svoleiðis mok í sumum
ánum í kringum okkur að eðlilega
hefur Víðidalsá verið aðeins í
skugganum,“ sagði Ragnar Gunn-
laugsson á Bakka í Víðidal, en hann
er formaður veiðifélags árinnar.
Ragnar bætti við, að svo stórt
hlutfall laxa í Víðidalsá kæmi í ána
að afloknum tveimur árum í sjó, að
menn reiknuðu með því að sjá
meiri bata næsta sumar, þ.e.a.s. ef
ekki kæmi upp eitthvað óvænt í
hafinu. „Hann hringdi í mig hann
Magnús á Sveinsstöðum og við vor-
um að tala um þetta, mokið í Mið-
fjarðará og að Böðvar á Barði væri
brosandi út í bæði þessa dagana.
Hann á það alveg inni, en ég hugg-
aði Magnús með því að við mynd-
um fá meira næsta sumar,“ bætti
Ragnar við.
Hann sagði og að sjóbleikjuveið-
in hefði verið afar góð í allt sumar,
um 1.000 fiskar væru komnir á
land, allt að 6 punda fiskar og mikið
af bleikju hefði einnig veiðst saman
við laxinn ofar í ánni. 26 laxar hafa
einnig veiðst á silungasvæðinu sem
er með því mesta sem gerist. Einn
24 punda veiddist fyrir skömmu og
er stærstur í sumar, einnig hafa
þrír 22 punda veiðst.
Svæði SVFK öll að koma til
Gunnlaugur Óskarsson, formað-
ur Stangaveiðifélags Keflavíkur,
sagði í samtali í gærdag að öll
þeirra svæði væru að gefa veiði
þessa dagana. „Þetta fór seint í
gang á sjóbirtingsslóðunum fyrir
austan, en er nú loksins komið í
gang. Það eru menn í Geirlandsá
núna sem voru komnir með sjö 4 til
7 punda bh-tinga eftir einn dag. Áin
er að koma til aftur eftir mikil flóð
og þessir menn urðu varh- við birt-
ing um alla á. Á sama tíma komu
skot neðar á vatnasvæðinu, niðri í
Skaftá. Það hefur líka verið reyt-
ingur í Fossálunum og eitthvað er
farið að hreyfast í Hörgsá fyrir of-
an brú,“ sagði Gunnlaugur.
Af öðrum svæðum félagsins
sagði hann menn mjög ánægða með
Reykjadalsá í Borgarfirði, öll holl
hefðu verið að slíta upp fisk, frá
einum upp í sjö laxa og þeir
stærstu 1 sumar væru um 16 pund.
í Hrollleifsdalsá á Skaga eru
komnar á fimmta hundrað sjó-
bleikjur og hollin hafa verið að fá
frá 15 og upp í 55 bleikjur og gjarn-
an einn eða tvo laxa með í bónus.
Síðasta holl vai- með 37 bleikjur og
einn lax. „Við ætluðum að hafa
Hrolluna opna til 20. september, en
það hefur ekki selst nógu vel í hana
og það gæti því farið svo að við lok-
um henni fyrr en til stóð,“ sagði
Ragnar.
Fréttir héðan og þaðan
Milli 90 og 100 laxar eru konmir
úr Sæmundará í Skagafirði og er
að sögn talsvert af laxi víða um ána.
Holl sem var fyrir skömmu fékk 9
laxa, mest 6-7 punda. Stærsti lax-
inn var 17 pund. Mikil sjóbleikju-
veiði hefur ki-yddað veiðiskapinn.
Miðá í Dölum er einnig komin
með um 100 laxa og eru ár og dag-
ur siðan hún hefur losað þriggja
stafa tölu. Mikil bleikjuveiði hefur
einnig verið í ánni, en sjóbleikjan
fór reyndar í fýlu í nokkra daga eft-
ir flóðin, tvístraðist um allt og tók
illa. En það hefur ræst aftur úr.
Malarnáma í landi Glerár ofan Akureyrar
Hauskúpa og brot
úr lærlegg fundust
Akureyri. Mtirgunblaðið.
HAUSKÚPA og brot úr lærlegg
fannst í gærkvöld í malarnámu sem
fyrirtækið Möl og sandur á Akureyri
hefur í landi Glerár skammt ofan við
bæinn. Á hauskúpuna vantar neðri
hlutann, en auk hennar og lærleggs-
brotsins voru nokkur fleiri brot á
svæðinu.
Starfsmenn voru að ljúka vinnu
þegar beinin fundust, gröfumaður
rak augun í hauskúpuna þegar hann
sté út úr vél sinni og við eftir-
grennslan sá hann fleiri bein.
Malarhaugur var á þeim stað sem
beinin fundust á og var ýtt ofan af
honum I fyirahaust. Síðasta vetur
hefur sennilega veðrast ofan af
haugnum og því komu beinin í ljós
nú. Höfðu starfsmenn Malar og
sands heyrt af því sögu að fyrir
nokkur hundruð árum hefði kirkju-
garður verið nokkru ofar í landi
Glerár, en ekki var nákvæmlega vit-
að hvar hann var fyrr en fyrir um
tveimur árum þegar komið var niður
á bein á þessum slóðum.
Morgunblaðið/Þorkell
Skáksveit Melaskólans
í öðru sæti
SVEIT Melaskóla hreppti annað
sætið á Norðurlandamóti barna-
skólasveita í skák sem haldið var
í Finnlandi síðustu daga ágúst-
mánaðar.
Hlaut sveitin 11,5 vinninga í
tuttugu skákum en sigurvegari
varð danska sveitin sem hlaut
14,5 vinninga. Taldir frá vinstri
Ellert Berndsen, Viðar Berndsen,
Davíð Berndsen, Aron Sigurðs-
son, Þorvaldur Sigurðsson, Arn-
grímur Þór Gunnhallsson og
Dagur Arngrímsson.