Morgunblaðið - 04.09.1998, Page 40
MORGUNBLAÐIÐ
>40 FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1998
AÐSENDAR GREINAR
Framkvæmdavald
á villigötum
Á DÖGUNUM lét
forsætisráðherra þess
getið, að sér geðjaðist
ekkert betur að einok-
un einstaklinga en ein-
okun ríkisins. Að vísu
hefír hann ekki haft
umboð fóstra síns
Hólmsteins til að gefa
slíka yfirlýsingu, enda
er ráðherrann þarna í
,orði en ekki á borði. Á
borði ber hann nú
einna þyngsta ábjrrgð á
því, að örfáir þegnar
þjóðfélagsins fái einok-
að auðlind Islands,
fiskimiðin við strendur
landsins, í eigin þágu
og rakað saman ótrúlegum einka-
gróða í skjóli þeirrar einokunar.
Það er vægt til orða tekið að nefna
það framferði gripdeild, enda brot á
lögum, sem kveða á um að fiskimið-
in skuli vera sameign þjóðarinnar.
Bætir ekki úr skák að gripdeildin
skuli framin beinlínis í skjóli fram-
kvæmdavaldsins.
Það er mikið áhyggjuefni hvernig
framkvæmdavaldið leyfir sér að fót-
um troða lög og reglur, sem því ber
augljóslega að fara eftir. Raunar á
slík gagm-ýni beint erindi við lög-
gjafarvaldið í hvers umboði fram-
kvæmdavaldið starfar.
Allir, sem nærri löggjöf hafa
komið, og eins þeir sem lög túlka,
vita fullvel að yfírlýsingar og útlist-
anir, sem fylgja lagafrumvörpum,
öðlast lagaígildi þegar frumvarp
verður að lögum. Til laganna og
skýringa sem þeim fylgir, nær um-
^fíoð framkvæmdavaldsins - en
lengra ekki.
Við setningu laga um einkavæð-
ingu ríkisbankanna lýsti banka-
málaráðherra þvi yfir, fyi'ir hönd
ríkisstjórnarinnar, að bankarnir
myndu verða í eigu ríkisins a.m.k.
næstu fjögur ár. Fleiri yfirlýsingar
voru gefnar, s.s. eins og um samráð
við starfsmenn bank-
anna o.fl.
Blekið var vart
þornað á undirskrift
bankamálaráðherrans
undir lögin, þegar
hann sendi mann út af
örkinni til Svíþjóðar að
ræða við Wallenberga
um kaup SE-bankans
á „ráðandi hlut“ í
Landsbanka íslands,
eins og það var orðað.
Forsætisráðherra
sagði í viðtali við
Morgunblaðið að hann
teldi „glapræði“ að
hefja ekki slíkar við-
ræður. Og varaforsæt-
isráðherra, Halldór Ásgrímsson,
lýsti yfír fullu samþykki sínu við
svo „gagnlegar“ viðræður.
Þá rauk íslandsbanki upp til
Öll meðferð bankamála
undanfarna mánuði,
segir Sverrir Her-
mannsson, er ömur-
legt klúður manna,
sem kunna ekki til
verka, en sjást ekki
fyrir í valdabrölti sínu.
handa og fóta og vildi fá keyptan
Búnaðarbankann. Bankamálaráð-
herra leizt kannski ekki eins vel á
það, af öðrum ástæðum, en til-
nefndi strax menn í samningavið-
ræður.
Nú liggur það fyrir, deginum ljós-
ara, að bankamálaráðherra hafði
ekkert umboð til fyrrgreindra at-
hafna, né heldur aðrir ríkisstjórnar-
menn. Þvert á móti voru þeir að
brjóta lög, eða ígildi laga, með fram-
Sverrir
Hermannsson
ferði sínu. Gagnvart Alþingi verða
þetta að teljast umboðssvik og
myndi ráðherra í venjulegu lýðræð-
isríki samstundis leystur frá störf-
um fyrir slík afglöp, sem í þessu
falli eru raunar afbrot af ráðnum
hug.
Meðferð ríkisstjórnarinnar á
bankamálum síðustu mánuði er
skrípaleik líkust. Lög og lagaígildi
frá Alþingi eru virt að vettugi og
gengið yfír þau á skítugum Fram-
sóknarskóm, sem forsætisráðherr-
ann reynir jafnóðum að pússa.
Þegar á því hefir gengið lengi, til-
kynnir ríkisstjórnin að hún hafi
komið sér ásamt um nýja stefnu í
bankamálum. Og bankamálaráð-
herra setur ábúðarmikill blaða-
mannafund og tilkynnir um niður-
stöðu: Ríkisstjórnin hefir ákveðið
að taka upp sömu stefnu í banka-
málum og mörkuð var með laga-
setningu sl. vor! Og hverfa þar
með frá hinni stefnunni sem hún
hafði tekið í blóra við vilja Alþing-
is!
Nema að einu leyti, og þar hrapar
ríkisstjórnin á ný í sömu vilpuna:
Ákveðið er að selja allan Fjárfest-
ingabanka atvinnulífsins, tilkynnir
bankamálaráðherra.
Nú vill svo til að skýi', ný lög
kveða svo á að heimilt skuli að selja
49% hlutafjár Fjárfestingabankans.
Af þeim lögum takmai'kast umboð
framkvæmdavaldsins og breytir í
engu þótt stoppa þurfi í fjárlagagat
með andvirði bankans.
011 er meðferð bankamála und-
anfarna mánuði ömurlegt klúður
manna, sem kunna ekki til verka,
en sjást ekki fyrir í valdabrölti
sínu. Það er gróflega dapurlegt til
þess að hugsa að formaður Sjálf-
stæðisflokksins skuli hafa samið
um framhaldslíf núverandi banka-
málaráðherra í embætti, ef núver-
andi stjórnarflokkar halda meiri-
hluta á Alþingi í næstu þingkosn-
ingum. Tæplega verða allir kjós-
endur Sjálfstæðisflokksins með
hýrri há þegar rennur upp fyrir
þeim að til þess muni afl atkvæða
þeirra verða notað ef forystunni
gefst færi.
Höfundur er fv. bnnkastjóri.
Rfldsstyrkt
tímaskekkja
? MÁLEFNI Útflutn-
ingsráðs Islands hafa
verið til umíjöllunar í
fjölmiðlum að undan-
fömu. Deildar mein-
ingar era um starf-
semi ráðsins og starfs-
hætti, sem og fjár-
mögnun. Enginn dreg-
ur í efa nauðsyn öfl-
ugrar kynningarstarf-
semi fyrir íslensk fyr-
irtæki og íslenska
framleiðslu. Menn
greinir hins vegar á
um þau formerki sem
notuð eru og afskipti
'' Útflutningsráðs af
þeim greinum þar sem
hörð samkeppni ríkir milli fyrir-
tækja.
Um meinta mismunun Útflutn-
ingsráðs má nefna mörg dæmi.
Mismunun sem felst í því að ein-
stök fyrirtæki eru sniðgengin og
beint eða óbeint unnið gegn hags-
munum þeirra í samkeppni við
aðra útflytjendur. Undirritaður
hefur um árabil stundað útflutn-
ing sjávarafurða, þar á meðal til
Japans, og einnig nokkuð til Taí-
- vans. Fyrir þremur árum kom
hingað til lands sendinefnd fisk-
kaupenda frá Japan, ég frétti af
þessari sendinefnd fyrir tilviljun
og því að efnt yrði til sérstaks
fundar þeirra og helstu útflytj-
enda til Japans. Þegar ég hafði
samband við Útflutningsráð og
___yildi vita hvers vegna ég hefði
ekki verið látinn vita um þetta,
varð fátt um svör, en
mér var síðan bætt
inn í hópinn á sein-
ustu stundu.
Sama var uppi á
teningnum þegar
sendinefnd kom ný-
lega frá Taívan, ég
frétti fyrst að hún
væri komin til lands-
ins í fjölmiðlum. Þeg-
ar leitað var til Út-
flutningsráðs um
hugsanleg tækifæri
til að hitta nefndar-
menn, var svarið það,
að dagskráin væri
fullskipuð og að ekki
væri hægt að bæta
fleiri fundum við, en ég gæti sent
bæklinga á hótelherbergin þeirra,
mér tókst þó að lokum, með því að
hafa samband beint við einn full-
trúann, að fá fund með honum
snemma á sunnudagsmorgni, rétt
áður en þeir fóru af landi brott.
Mér þætti frqðlegt að vita hvernig
Úí velur þau fyrirtæki sem fá að
hitta þær sendinefndir sem koma
hingað til lands.
Það er löngu tímabært að skil-
greina að nýju hlutverk Útflutn-
ingsráðs íslands. Undanfarin ár
hefur starfsemin æ meira færst
yfir í þann farveg að vinna beint
með einstökum fyrirtækjum og
þannig farið niður á samkeppnis-
og sölusviðið sem er viðfangsefni
atvinnulífsins. Þessi starfsemi er
að stærstum hluta fjármögnuð
með veltuskatti, svonefndu mark-
Einar
Guðbjörnsson
Ríkisstyrkt kynningar-
starf sem mismunar
einstökum fyrirtækj-
um, segir Einar Guð-
björnsson, er ekki
viðeigandi í nútíma-
samfélagi.
aðsgjaldi, sem leggst jafnt á öll
fyrirtæki, án tillits til þess hvort
þau stundi úftlutning eða hvort
þau njóta þjónustu Úí. Stjórn
ráðsins er skipuð fulltrúum ein-
stakra fyrirtækja, að öllu jöfnu
þeirra stærstu á sínu sviði. Það
eitt býður upp á beina hagsmuna-
árekstra.
Enginn dregur í efa gildi öfl-
ugrar og skipulagðrar kynningar
fyrir land og þjóð, enda verja
flestar þjóðir umtalsverðum fjár-
munum í slíka starfsemi. Það
starf á hins vegar að vera undir
almennum formerkjum og þannig
að allir njóti góðs af. Eðlilegast
væri að starfsemi ÚI félli beint
undir utanríkisþjónustuna. Hlut-
verk þess ætti að vera að sinna al-
mennri kynningu á íslensku at-
vinnulífi og einstökum útflutn-
ingsgreinum án beinna tengsla
við ákveðin fyrirtæki. Á því sviði
er mikið starf óunnið. Slíka starf-
semi ber að fjármagna með beinu
framlagi á íjárlögum, enda til-
gangurinn sá að kynningin komi
öllum til góða. Ríkisstyrkt kynn-
ingarstarf sem mismunar einstök-
um fyrirtækjum er ekki viðeig-
andi í nútímasamfélagi. Það er
tímaskekkja.
Höfundur er framkviemdastjóri
Sameinaðra útflytjenda og situr í
stjórn Samtaka verslunarinnar.
HESTAR
Haustbeit
MIKILVÆGT er að hestar komist í loðna og helst óbitna haga á
haustin, hafi nóg skjól og vatn og hafi þurrt undir fótum.
Loðnir hagar,
þurrt land, gott
skjól og vatn
ÞRÁTT fyrir gott veður að undan-
fórnu er það staðreynd að haustið er
framundan. Hefð hefur verið fyrir
því hér á landi að hestamenn taka
sér frí og sleppa hrossunum á haust-
beit. Þeir sem stunda hestamennsk-
una af kappi, vetur, vor og sumar
hlaða batteríin íyrir næstu vertíð og
vafalaust er fríið ekki síður kærkom-
ið hestunum. Ásdís Haraldsdóttir
bendir hér á nokkur mikilvæg atriði í
sambandi við haustbeit hrossa.
Þegar hestunum er sleppt í haust-
hagana þarf fyrst að huga að tvennu.
Nauðsynlegt er að draga undan
þeim og gefa ormalyf. Grundvallar-
atriði ei' að landið sé loðið og nógu
stórt. Þar þarf að vera gott vatn og
góð skjól. Ef skjól eru ekki frá nátt-
úrunnar hendi verður að útbúa ein-
hvers konar skýli fyrir hrossin þar
sem þau geta staðið af sér illviðri.
Slæmt að vera á
blautu landi
Mjög slæmt er fyrir hross að
ganga á blautu landi á haustin og ber
að hafa í huga að mýrlendi sem ekki
virðist blautt á sumrin getur tekið
stakkaskiptum í rigningatíð. Það
getur verið í lagi að hafa hross á
slíku landi ef þau hafa jafnframt að-
gang að þurrlendi. Ef hross standa
lengi í bleytu er hætta á að þau fái
holdhnjóska. Ef það gerist eiga þau
erfitt með að halda holdum, sérstak-
lega í slæmri tíð.
Ef öllum þessum atriðum er fylgt
ætti ekki að væsa um hrossin, en
nauðsynlegt er að hafa gott eftirlit
með þeim. Hross eru mjög misjöfn í
hárafari og misdugleg að bjarga sér.
Því er gott að heilsa upp á þau öðru
hverju og taka á þeim til að kanna
holdafarið og ekki síður hárafarið.
Ef holdhnjóskar finnast í hrossum
verður að gera ráðstafanir enda geta
þau hrunið niður á nokki'um dögum í
vondu veðri sé ekkert að gert.
Borgar sig ekki að spara beitina
Að sögn Olafs Dýi'mundssonar
landnýtingan'áðunautar hjá Bænda-
samtökunum hafa margh' hesta sína
á snöggu landi á sumrin til að halda
holdsöfnun í skefjum. Hann segir
það afai' mikilvægt að þessum hross-
um sé sleppt á vel loðna haga á
haustinn. „Ef gert er ráð fyrir 1 ha.
vel gróins lands á hross yfir sumarið
verður að reikna með að bæta öðrum
hektara við fyrir haustbeitina. Land-
ið verður að vera vel loðið, helst óbit-
ið. Gróður hættir að spretta og það
gengur á hann,“ segir hann.
„Ef ekki er hugað að þessu lendir
fólk í vandræðum. Hrossin fara að
leggja af í stað þess að safna holdum,
eins og þau eiga að gera á þessum
tíma, og það verður jafnvel að taka
þau inn og byrja að gefa þeim. Oft
getur tekið marga mánuði að ná
hrossi upp ef það lendir í aflögn. Það
er því engum greiði gerður við að
spara beitina við hrossin á haustin,
hvorki hrossunum, né mönnunum."
Skjótt skipast veður
Þótt veðrið sé milt um þessar
mundir skipast skjótt veður í lofti á
íslandi eins og allir vita. Oftast er
hægt að hafa hross á haustbeit til
áramóta, en þó kemur fyrir að vet-
urinn byrjar snemma og hefur kom-
ið fyrir á undanförnum árum að
jarðbönn hafa verið í nóvember.
Hestaeigendur verða því að gera
ráð fyrir þessu og vera viðbúnir því
að þurfa að byrja að gefa hrossun-
um út snemma eða taka þau inn.
Frægir garpar á
meistaramóti And-
vara um helgina
ALLS bárust 230 skráningar á opna
meistaramótið sem Andvari heldur á
Kjóavöllum um helgina og eru for-
svarsmenn mótsins að vonum
ánægðh'. Mótið hefst klukkan 16 í
dag með keppni í B-flokki.
Þeir eru ekki af lakari endanum
hestarnir sem taka þátt í mótinu.
Sem dæmi má nefna að í 150 m
skeiði keppir nýbakaður Islands-
meistari, Neisti frá Miðey, auk Áka
frá Laugarvatni og fleiri. í 250 m
skeiði keppa m.a. Glaður frá Sigríð-
arstöðum, Bendill frá Sauðafelli og
Snarfari frá Kjalarlandi.
Siguivegai'inn í tölti á íslandsmót-
inu á Æðarodda, Laufi frá Kollaleiru,
mætir í töltkeppnina og að sjálfsögðu
Oddur frá Blönduósi. Aðra fræga
töltara má nefna, svo sem Ás frá
Brekkum og Geysi frá Gerðum.
I B-flokki verður keppt á beinni
braut og þar keppa meðal annai'ra
stóðhestarnir Kjarkur frá Egils-
staðabæ og Víkingur frá Voðmúla-
stöðum. Vali frá Nýja-bæ og Klakk-
ur frá Búlandi eru meðal þeirra sem
keppa í A-flokki.