Morgunblaðið - 08.10.1998, Blaðsíða 44
■ 44 FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1998
AÐSENDAR GREINAR
MORGUNBLAÐIÐ
SÍÐASTLIÐIN
fímm ár, sem ég hef
starfað við sérkennslu
á Suðumesjum, hef ég
orðið vör við sterkar
væntingar af hálfu
foreldra. Ef barninu,
að þeirra áliti, gengur
ekki nægilega vel,
þrýsta foreldrarnir á
að fá sérkennslu og
halda, að þar sé töfra-
lausn að fínna. Skólinn
reynir eftir bestu getu
að koma til móts við
þessar kröfur for-
eldra, en oft er það
ekki hægt, bæði vegna
skorts á kennurum,
'f tímakvóta eða af öðrum ástæðum.
Eðlilegt er að við slíkar aðstæður
finnist foreldrum að þeir hafi verið
sviknir, þeir verða bitrir og reiðir,
því að sérhvert foreldri vill það
besta fyrir barnið sitt.
Þar sem þetta mál snertir svo
marga lesendur blaðsins, langar
mig lítillega að fjalla um sér-
kennsluna og lýsa því, hvemig hún
lítur út frá sjónarmiði kennara.
Breytt stefna
Sérkennsla, eins og hvert annað
fag, og sérkennslufræði, sem vís-
indagrein, em hvortveggja breyt-
ingum undirorpnar. Nýjar rann-
sóknir leiða í ljós nýja þekkingu og
þessi þekking getur af sér nýjar
kenningar. Sumir þættir virðast
þó standast tímans tönn og vera í
íúllu gildi nú eins og þá.
Fyrir um aldarfjórðungi var
ríkjandi stefna enn sú að hafa fatl-
aða nemendur í sérskólum, og
þannig er málum enn háttað víða
um lönd. Hin síðari ár
hefur aftur á móti sú
stefna ratt sér til rúms
á Vesturlöndum, að
sem flest böm, helst
öll, njóti kennslu í
sama bekk með jafn-
öldram sínum. Þessi
er einnig yfirlýst
stefna yfirvalda
menntamála hér á
landi, og kemur ef til
vill best fram í því, að
orðið „sérkennsia" er
ekki nefnd á nafn í
nýjustu grannskóla-
lögunum.
Skiptar skoðanir
Skoðanir um sérkennslu hafa
ávallt verið mjög skiptar og eru
enn og virðist hver hafa sitthvað til
síns máls. Meirihluti fagmanna á
Vesturlöndum virðist þó aðhyllast
Sérkennsla er mál sem
snertir marga.
Marjatta Isberg fjallar
hér um sérkennslu út
frá sjónarmiði kennara.
sk. blöndun, sem áður var nefnd
sem stefna íslenskra skólayfir-
valda. Samkvæmt þeim kenning-
um er ekki æskilegt að taka barnið
úr bekknum, að minnsta kosti ekki
mikið. Sumir sérfræðingar telja
það jafnvel skaðlegt íyrir þroska
bamsins.
Samkvæmt lögum á hvert bam
að fá kennslu við hæfi. En ef öllum
bömum er kennt saman, þýðir
það, að skólaumhverfi þarf að vera
allt öðravísi en á áram afa og
ömmu. Til að mæta þörfum allra
nemenda sinna þarf kennari að
undirbúa kennslustundir sínar
vandlega og taka mið af hverju
barni sem einstaklingi. Þetta kall-
ar bæði á endurmenntun eldri
kennara, lægi-i kennsluskyldu,
minni bekkjardeildir og einnig á
mikla samvinnu milli allra þeirra
sem við skólann starfa.
Eðli kennslunnar
Annað, sem mig langar að
minna á í þessu sambandi, er eðli
kennslunnar. I gamla daga miðlaði
kennarinn af þekkingu sinni, nem-
endur hlustuðu og reyndu að festa
í minni. Nú getur kennslan ekki
farið þannig fram. Þekkingin
breytist svo ört, að ekki væri skyn-
samlegt heldur að nota þess konar
kennsluaðferðir. I staðinn þurfa
kennararnir að virkja börnin, vísa
þeim veginn að upplýsingum og
kenna hvemig á að koma frá sér
hugsunum sínum. I stuttu máli
sagt: Kenna þeim hvernig eigi að
vera virkur þátttakandi í nútíma
þjóðfélagi.
Aður var nefnt að ef öllum börn-
um er kennt saman, geta bekkirnir
ekki verið mjög fjölmennir. í
Sandgerði hafa þeir sem að skól-
anum standa, haft skilning á þessu
og era nú mjög fáir nemendur í
flestum bekkjum. I slíkum náms-
hópum er auðveldara, jafnvel fyrir
hægari nemendur, að tileinka sér
námsefnið. Þeir nemendur, sem í
stærri bekkjum fengju „sér-
kennslu“ í hefðbundnum skilningi,
era nú ef til vill betur settir í sín-
um eigin bekk, þar sem kennari
hefur góða yfirsýn og fylgist dag-
lega með námi og störfum sér-
hvers barns. Þetta ætti einnig að
koma í veg fyrir félagslega ein-
angrun. í slíkum tilvikum er krafa
foreldra um „sérkennslu" oft
byggð á þekkingarleysi og megum
við skólamenn kenna okkur um.
Þessi grein er tilraun til að upp-
lýsa foreldra um áherslubreyting-
ar í sérkennslu, sem átt hafa sér
stað síðustu árin. I vafamálum era
foreldrar eindregið hvattir til að
leita upplýsinga hjá kennuram.
Höfundur er fil.nmg., kennari við
Grunnskóla Sandgerðis.
Þurfum við
á sérkennslu
að halda?
Til foreldra á Suðurnesjum
Maijatta
Isberg
< Krabbamein í eistum
FYRIR u.þ.b. 15 ár-
um leiddi krabbamein
í eistum unga menn
oft til dauða vegna út-
breiðslu sjúkdómsins
til annarra líffæra svo
sem til lungna. í dag
er þessi tegund
krabbameins sú sem
einna best gengur að
lækna. Þótt krabba-
mein í eistum sé frem-
ur fátíður sjúkdómur
er það ein algengasta
tegund krabbameina
hjá karlmönnum á
aldrinum 15 til 35 ára.
A Islandi greinast um
tíu ný tilfelli árlega og
hefur tíðnin farið vaxandi.
Hlutverk eistnanna er að mynda
sæðisframur og karl-
hormón (testósterón).
Orsök krabbameins í
eistum er ekki þekkt.
Þótt allir karlar geti
fengið þennan sjúk-
dóm er hættan mest
þegar eistun hafa ekki
gengið að fullu niður í
pung. Því er mikil-
vægt að fylgjast með
því hvort eistu gangi
niður hjá ungum
drengjum og ef svo er
ekki er það lagað með
einfaldri aðgerð.
Hver eru
einkennin?
Fyrstu einkenni krabbameins í
eistum eru oftast verkjalaus fyr-
Guðmundur
Geirsson
- Gæðavara
Gjafavara-matar- og kaííistell.
Allir verðflokkar.
VERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.
Heimsfrægir hönnuðir
m.a. Gianni Versace.
www.mbl.is
/ /
A Islandi greinast um
tíu ný tilfelli af
krabbameinum í eistum
árlega og tíðnin hefur
farið vaxandi, segir
Guðmundur Geirsson í
greinarflokki um karla
og krabbamein.
irferðaraukning eða hnútur í
eista. Stundum fá menn þó væg
óþægindi í nára og/eða þyngsla-
tilfinningu í eistað. Þessi sömu
einkenni geta einnig komið fram
við aðra sjúkdóma, t.d. sýkingu
eða samsöfnun á vökva við eist-
Hvað er til ráða?
Krabbamein í eistum er yfirleitt
vel læknanlegt og því fyrr sem
meinið finnst þeim mun auðveldari
er meðferðin. Mönnum er ráðlagt
að þreifa á sér eistun reglulega, t.d
einu sinni mánuði. Auðveldast er
að skoða eistun eftir heitt bað eða
sturtu því þá er húðin á pungnum
slök. Rúlla skal hvora eista mjúk-
lega milli þumals og fingra beggja
handa. Ofan á og fyrir aftan eistað
liggur flangur strengur sem heitir
eistalyppa sem sér um að geyma
Tökum höndum
saman og bætum
hag geðsjúkra
KÆRU íslending-
ar, horfum okkur
nær. Allir eiga á
hættu að þurfa að
glíma við geðræn
vandamál. Talið er að
fimmti hver einstak-
lingur eigi við alvar-
leg geðræn vandamál
að stríða. Hætt er við
að flestir hugsi sem
svo: Ekkert vandamál
af geðrænum toga
hendir mig eða mína
nánustu. - Það er
ekki fyrr en sjúkdóm-
urinn fer að herja á
mann sjálfan eða fjöl-
skyldu manns að mað-
ur fer að hugsa um geðsjúkdóma
og hvað sé til ráða. Aður fyrr var
fólk sagt geðveikt og ekkert við
því að gera. En í dag, sökum
meiri þekkingar, er hægt að
hjálpa fólki mjög mikið, bæði með
lyfjagjöf og endurhæfingu af
ýmsu tagi. Fordómar gagnvart
geðsjúkum hafa verið miklir, en
nú á seinni áram er skilningur að
aukast á þessum sjúkdómum og
fólk með geðsjúkdóma er farið að
þora að láta meira til sín heyra.
Ekki ætla ég að hætta mér út á
þá braut að skrifa fræðilega grein
um geðsjúkdóma, enda er ég bara
leikmaður eins og þú, lesandi
góður.
Hvað er til úrbóta?
Kiwanishreyfingin á Islandi hef-
ur frá árinu 1974 unnið að því að
safna fé til að stuðla að bættum
hag geðsjúkra, enda hafa þeir ekki
átt marga málsvara. Kiwanis-
hreyfingin hefur staðið fyrir lands-
söfnun þriðja hvert ár frá 1974,
undir kjörorðunum „Gleymum
ekki geðsjúkum". Hefur þá verið
og flytja sæðisframur áfram. Finn-
ist harður hnútur eða þykkildi í
sjálfu eistanu skal leita læknis
strax.
Greining:
Læknirinn skoðar eistun og
finni hann eitthvað óeðlilegt mun
hann e.t.v. panta ómskoðunar-
rannsókn, sem er nokkurs konar
hljóðbylgjumyndataka, af eistun-
um. Sjúkdómsgreiningin er svo
staðfest með lítilli skurðaðgerð
og vefjarannsókn á eistanu. Sé
um krabbamein að ræða eru
teknar blóðprafur og röntgen-
myndir til að kanna útbreiðslu
sjúkdómsins.
Meðferð:
I nær öllum tilfellum er hið
sjúka eista fjarlægt og það ræðst
síðan af útbreiðslustigi og tegund
æxlis hvort frekari meðferð er
gefin. Meðferðin felst í gjöf
frumudrepandi lyfja (krabba-
meinslyfja) og/eða geislameðferð.
Krabbamein myndast yfirleitt að-
eins í öðru eistanu og þótt það sé
fjarlægt verður hórmóna- og þar
með kynlífsstarfsemi jafn eðlileg
og áður.
Horfur:
í dag er árangur meðferðar
mjög góður, sérstaklega ef sjúk-
dómurinn er greindur og með-
höndlaður snemma. Um og yfir
90% sjúklinga era á lífi fimm áram
eftir greiningu.
Höfundur er læknir og sérfræðing-
ur íþvagfæraskurðlækningum.
seldur svokallaður K-
lykill til almennings
og nytjahlutir seldir
fyrirtækjum. Haldnir
hafa verið átta K-dag-
ar til þessa og hafa
safnast að núvirði um
150.000.000 kr. Þessir
peningar hafa komið
að góðum notum til
hinna ýmsu mála-
flokka sem snúa að að-
stoð við geðsjúka.
Afrakstur fyrstu
tveggja K-daganna
fór í að byggja upp
verndaðan vinnustað
við Kleppsspítala í
Reykjavík, Bergiðj-
una. Agóði næstu tveggja fór í að
reisa áfangastað við Alfaland í
Reykjavík í samvinnu við Geð-
verndarfélag íslands. Söfnunarfé
af fimmta K-deginum var síðan
Greinarhöfundur,
Sæmundur H.
Sæmundsson, hvetur
landsmenn til að nota
K-lykilinn til að opna
dyr til bætts hags
geðsjúkra.
varið til uppbyggingar unglinga-
geðdeildar við Dalbraut í Reykja-
vík og afrakstri af þeim sjötta til
kaupa á sambýlum fyrir þá sem
dvalið hafa á geðdeildum eða á
endurhæfingarheimilum, bæði á
Akureyri og í Reykjavík. Arangur
sjöunda K-dagsins fór í að byggja
veralega við Bergiðjuna. Útkoma
úr síðasta K-degi, sem haldinn var
1995, var það góð að hægt var að
styrkja Bjarg á Akureyri, Sogn í
Ölfusi og einnig kaupa íbúð í
Reykjavík, sem hugsuð er til af-
nota fyrir foreldra bama af lands-
byggðinni sem dvelja um lengri
eða skemmri tíma í Reykjavík
meðan börn þeirra eru í meðferð á
unglingageðdeildinni við Dalbraut.
Nú um helgina era Kiwanisfé-
lagar á ferðinni í níunda sinn að
leita eftir stuðningi þjóðarinnar
við það góða málefni að styrkja
geðsjúka til betra lífs. Kiwanisfé-
lagar hafa ákveðið að allt það fé
sem safnast á þessum K-degi renni
til landssamtakanna Geðhjálpar,
til uppbyggingar, breytinga og
endurbóta á nýju húsnæði á Tún-
götu 7 í Reykjavík. Það hús gaf
ríkisstjórn Islands samtökunum,
að undirlagi heilbrigðisráðherra,
nú fyrir nokkrum dögum. Hús-
næðið gjörbreytir allri aðstöðu
Geðhjálpar til að geta betur stutt
umbjóðendur sína til betra lífs. Ef
vel tekst til á þessum níunda K-
degi er mögulegt að Geðhjálp
verði komin í fullbúið eigið hús-
næði í byrjun næsta árs.
Undirritaður fer þess á leit við
landsmenn að þeir taki vel á móti
Kiwanisfélögum og fólki á vegum
Kiwanishreyfingarinnar sem verð-
ur á ferðinni um helgina að selja
K-lykilinn. Sölumenn verða við
verslanii' sem víðast en einnig
verður gengið í hús um land allt.
K-lykillinn er lykill að framtíð
Geðhjálpar.
Kæra landsmenn, gleymum ekki
geðsjúkum.
Höfundur er formaður K-dags-
ncfndar og fyrrverandi umdæmis-
stjóri Kiwanishreyfingarinnar á Is-
landi og i Færeyjum.
Sæmundur H.
Sæmundsson