Morgunblaðið - 08.10.1998, Blaðsíða 52
MORGUNBLAÐIÐ
52 FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1998
MINNINGAR
+
Ástkasr móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
ÞÓRDÍS BENEDIKTSDÓTTIR
frá Smáhömrum,
verður jarðsungin frá Hólmavíkurkirkju laugar-
daginn 10. október kl. 14.00.
Jarðsett verður í Kollafjarðarneskirkjugarði.
Björn H. Karlsson, Matthildur Guðbrandsdóttir,
Elínborg Karlsdóttir, Helgi Eiríksson,
börn og barnabörn.
+
Konan mín, móðir okkar, tengdamóðir, fóstur-
móðir og amma,
SIGRÍÐUR JÓNA ÓLAFSDÓTTIR,
Engjavegi 67,
Selfossi,
verður jarðsungin frá Selfosskirkju laugardag-
inn 10. október kl. 13.30.
Pétur M. Sigurðsson,
böm, tengdabörn, fósturdóttir og barnabörn.
Kristín Ágústa Viggósdóttir, Hörður V. Jóhannsson,
Rakel Margrét Viggósdóttir, Sigurður S. Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
VIGGÓ NATHANAELSSON,
Skjóli v/Kleppsveg,
Reykjavík,
sem lést 1. október sl., verður jarðsunginn frá
Neskirkju, á morgun, föstudaginn 9. október
kl. 13.30.
Blóm og kransar afbeðnir en þeim sem vildu
minnast hans, er bent á Minningarsjóð hjúkrunarheimilisins Skjóls.
+
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
SIGURÐUR RÍKHARÐ ÞORSTEINSSON,
Grundarbraut 28,
Ólafsvík,
verður jarðsunginn frá Ólafsvíkurkirkju laugar-
daginn 10. október kl. 14.00.
Pálína Halldórsdóttir,
Sigrún Málfríður Sigurðardóttir, Hanns Peter Wensauer,
Halldór Sigurðsson, Marý Anna Guðmundsdóttir,
Steinar Sigurðsson, Hafdís Finnbogadóttir,
Ragnar Matthías Sigurðsson, Jóhanna Margrét Hjartardóttir,
Már Sigurðsson, Ólöf Sigurðardóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
+
Ástkær bróðir okkar,
HALLGEIR BJARNI SIGURÐSSON,
Hátúni 10b,
er lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur miðvikudag-
inn 30. september sl., verður jarðsunginn frá
Fossvogskapellu, á morgun, föstudaginn 9.
október kl. 13.30.
Guðmundur H. Sigurðsson,
Ema G. Sigurðardóttir Ohlsson,
Dóra Sigurðardóttir,
Jónína B. Sigurðardóttir
og fjölskyidur.
+
Útför móður minnar,
UNNAR ARADÓTTUR HAGALÍN,
fer fram frá Reykholtskirkju laugardaginn 10. október kl. 14.00.
Þór Hagalín og fjölskylda.
PÁLL
ANDREASSON
+ Páll Andreasson
fæddist í Kaup-
mannahöfn 8. mars
1933. Hann varð
bráðkvaddur á
heimili sínu 27.
september síðastlið-
inn og fór útför
hans fram í kyrrþey
að ósk hins látna.
Á Akureyrarárum
bemsku minnar fannst
mér Möllershús uppi á
Brekkunni, við Þór-
unnarstræti, vera eitt
allra skemmtilegasta hús bæjarins.
Húsráðendur þar voru Eðvald
Eilert Möller og kona hans, Páh'na
Jóhannesdóttir Möller, sem var
föðursystir mín. Þau hjón áttu
þrjár dætur, Sigríði, Ragnheiði og
Hönnu, og soninn Friðrik. Eg naut
velvildar alls þessa frændfólks
míns, enda sonur kærs bróður hús-
freyjunnar og langyngstur. En á
vordegi árið 1931 var ég skyndi-
lega búinn að fá keppinauta um
hylli húsbænda því komnir voru
þar í hús tveir bræður, Olgeir hét
sá eldri, Páll hinn yngri. Þeir voru
dóttursynir þeirra Möllershjóna,
synir Sigríðar frænku minnar sem
hafði gifst dönskum manni, Andre-
as Fynning, en voru nú skilin og
Hanna frænka þeirra hafði komið
með drengina í foreldrahús alla
leið frá Kaupmannahöfn þar sem
þeir voru fæddir. Olgeir var á
fjórða ári, en Páll á hinu fyrsta. Og
síðan hef ég vitað af þessum
frændum mínum úr Möllershúsi og
glaðst yfir velgengni þeirra í lífinu
og fjölskylduláni þótt lengst af hafi
verið vík á milli vina. Það snart mig
því illa og kom mér gjörsamlega á
óvart þegar Olgeir sagði mér frá
láti Páls bróður síns sem bar
skyndilega að sunnudaginn 27.
september síðastlið-
inn. Páll Eiríkur hét
hann fullu nafni. Voru
það nöfn ömmu hans
og föður míns. Hann
var fæddur 8. mars
1930 í Kaupmannahöfn
eins og fyrr er frá
greint. Og í Möllers-
húsi ólst hann upp
ásamt bróður sínum
Olgeiri, og frænku
þeirra, Margrétu Pá-
línu, dóttur Hönnu
móðursystur þeirra
sem varð ekkja eftir
Þormóðsslysið hörmu-
lega á stríðsárunum og fluttist eftir
það í foreldrahús með dótturina.
Það var ekki ríkidæminu fyrir að
fara hjá þeim Möllershjónum.
A.m.k. fannst mér stundum á
skapstórri og þykkjuþungri fóður-
systur minni að tekjur heimilisins
væri í engu samræmi við gáfur og
menntun bónda hennar. En þeir
bræður hafa sagt mér að þeir hafi
átt góða æsku þarna uppi á
Brekkunni á Akureyri. Eðvald
Möller, afi þeirra, var skemmtileg-
ur maður og margfróður um inn-
lend fræði sem og klassísk fræði
háskólamenntunarinnar gömiu.
Mér fannst hann vera snillingur
viðræðulistarinnar hvort sem hann
talaði við íslendinga eða útlenda
ferðamenn sem ég var oft vitni að.
Og amma, Pálína, var vönduð til
orðs og æðis, kappsfull í störfum
sínum og fyrirmynd um virðulega
framkomu. Þá má ekki gleyma
henni Hönnu frænku okkar sem
tók við stjórn heimilisins eftir and-
lát Pálínu. Eg þekki vel mannkosti
hennar. Hanna dvelur nú í hárri
elli á dvalarheimilinu Sunnuhlíð í
Kópavogi. Þeir Olgeir og Páll hafa
því áreiðanlega fengið gott vegar-
nesti út í lífið í uppeldinu hjá
frændfólkinu í Möllershúsi. Eg
veit ekki hvort hún er enn til
myndin sem Páll málaði af afa sín-
um í rauða eldhúsinu í Möllers-
húsi. Hún sýndi vel að eitthvað
skemmtilegt hefur borið á góma í
samskiptum þeirra frænda. Páll
var mjög snjaU að teikna, og naut
um tíma tiisagnar í Myndlistar-
skólanum. Hann hélt málverka-
sýningar og málverk hans, sem
voru mörg, fundust mér afburða
góð. En Páll ætlaði sér ekki að
verða listamaður. Árið 1951 tók
hann kennarapróf frá Kennara-
skólanum. En einhvern veginn
fannst honum kennsla ekki hæfa
sér svo hann lagði hana á hilluna
og sneri sér að öðru. Fyrst varð
hann skrifstofumaður á Keflavík-
urflugvelli og svo hjá Agli Vil-
hjálmssyni. Og ég man hvað það
snerti frændhjartað þegar góður
kunningi minn hældi þessum sölu-
manni hjá Agli fyrir vönduð vinnu-
brögð og vissi hann ekki af frænd-
semi okkar Páls. Á fleiri stöðum
mun hann hafa unnið við verslun-
arstörf. Um tíma stóð hugur hans
til athafnasemi. Hann varð kaupfé-
lagsstjóri vestur á Þingeyri og
stóð þar fyrir útgerð. Einnig varð
hann um skamman tíma fram-
kvæmdastjóri hjá Meitlinum í Þor-
lákshöfn. En þegar hann stofnaði
eigin heildsöluverslun hefur hann
án efa fundið starfsvettvang sem
hentaði honum vel. Og við eigið
fyrirtæki starfaði hann til hinstu
stundar. Árið 1953 kvæntist Páll
Guðríði Björgvinsdóttur héðan úr
Reykjavík. Þau eignuðust þrjár
dætur og einn son. Þessi börn eru
öll uppkomin og hið mannvænleg-
asta fólk. Eg drúpi höfði í virðingu
fyrir þessum látna frænda mínum
og þakka kynnin meðan þeirra
naut við. Og við Rósa, kona mín,
færum Guðríði og frændfólkinu
dýpstu samúðarkveðjur og óskum
þeim velfamaðar á framtíðarbraut.
Olgeiri, Hönnu, Margréti Pálínu,
og þeirra fólki, sendum við einnig
samúðarkveðjur því við vissum vei
hvaða sess Páll Eiríkur átti í hug-
um þeirra.
Eiríkur Eiríksson.
NANNA
SÖRLADÓTTIR
+ Nanna Sörla-
dóttir fæddist í
Kjós ( Árneshreppi í
Strandasýslu 10.
maí 1931. Hún lést á
Landspítalanum 15.
september síðastlið-
inn og fór útför
hennar fram frá
Patreksfjarðar-
kirkju 19. septem-
ber.
Elsku Bára og
Kolla. Þegar ég sit
hér heima í Garðabæ
og læt hugann reika
til baka til þeirra ára
heima á Patró þegar
ég kynntist ykkur
systrum og fjölskyldu
ykkar rifjast upp
margar góðar og
skemmtilegar minn-
ingar. Við urðum allar
þrjár góðar vinkonur.
Alltaf var mér tekið
vel á heimili foreldra
ykkar á Aðalstræti 37
á Klifinu eins og það
er kallað, eins og ég
væri eitt af börnunum
Birting afmælis- og
minningargreina
MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar
endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í Kr-
inglunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1,
Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569
1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina
inni í bréfinu, ekki sem viðhengi.
Um hvern látinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfilegri
lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk,
A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um
25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við
eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín
en ekki stuttnefni undir greinunum.
Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar greinar
um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfréttir
ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra.
Mikil áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða
tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprent-
uninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverkn-
að. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa sem í daglegu tali
ena nefndar DOS-textaskrár. Þá eru ritvinnslukerfin Word og
Wordperfect einnig auðveld í úrvinnslu.
þeirra. Mamma ykkar og pabbi
sýndu mér alltaf gott viðmót og
hlýju. Mamma ykkar gaf sér alltaf
tíma til að setjast niður með okk-
ur til að spjalla við eldhúsborðið
þó að hún hefði nóg annað að gera
á sínu stóra heimili og nóg af ný-
löguðu kaffi ásamt nýbökuðu
heimabakkelsi var okkur ætíð
boðið upp á.
Kæra Bára og Kolla, við áttum
margar góðar og skemmtilegar
stundir saman. Oft sakna ég þess-
ara ára. Heima hver hjá annarri
spjölluðum við mikið saman, og
gátum hlegið og slegið á létta
strengi svo ég tali nú ekki um all-
ar pælingamar sem oft voru í
gangi hjá ykkur systrum. Aldrei
slóst neitt upp á vinskap okkar.
Kynni okkar byrjuðu á símstöð-
inni á Patró þar sem við unnum á
næturvöktum á símanum hver á
móti ver annarri, og oft var þar
mikið um glens og grín okkar á
milli.
Ég veit að missir ykkar allra
systkinanna er mikill og ekki síst
pabba ykkar sem á nú um sárt að
binda svo ég tali nú ekki um öll
barnabörnin sem sakna ömmu
sinnar mikið. Megi góður guð
styrkja ykkur öll í þessari miklu
sorg. Blessuð sé minning um góða
og mæta konu, eiginkonu, móður
og ömmu sem stóð alltaf eins og
klettur við hlið ykkar allra. Ég
votta Páli, eiginmanni Nönnu, og
svo öllum stóra fjölskylduhópnum
mína dýpstu samúð. Guð veri með
ykkur öllum.
Hví skyldi ég yrkja um önnur fljóð,
en ekkert um þig, ó, móðir góð? -
Upp, þú minn hjartans óður!
Því hvað er ástar og hróðrar dís,
og hvað er engill úr Paradís
hjá góðri og göfugri móður?
(M. Joch.)
Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir.