Morgunblaðið - 08.10.1998, Side 55

Morgunblaðið - 08.10.1998, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1998 55 FRÉTTIR Rjúpum fjölgar nyrðra en fækkar suðvestanlands RJÚPNATALNINGAR á vegum Náttúrufræðistofnunar íslands nú síðsumars sýna að stofnstærðin á Norður-, Norðaustur- og Austur- landi er í góðu meðallagi miðað við fyrri ár og stofninn stækkar. Fara þarf aftur til 1989 til að fmna álíka stóran hauststofn, segir í frétt um ástand rjúpnastofnsins haustið 1998 frá Náttúrufræðistofnun ís- lands. Fækkun virðist hins vegar hafin í rjúpnastofninum á Suðaustur- landi. Á Suðvestur- og Vesturlandi er lítið af rjúpum og stofninn er í kyrrstöðu eða fækkun og stofn- breytingar á þessum svæðum eru ekki lengur í takt við það sem er að gerast í öðrum landshlutum. Þessa fækkun má rekja til mikilla vetraraffalla og eru skotveiðar þýðingarmesti affallaþátturinn. Stofnvísitala rjúpu á Norðaust- urlandi, í Hrísey og á Kvískerjum. Karratalningar á Kvískerjum spanna tímabilið 1963 til 1998, í Hrísey 1963 til 1986 og 1983 til 1998 og á Norðausturlandi 1981 til 1998. Tölur fyrir Norðausturland eru samanlagður fjöldi karra á 6 talningasvæðum. Til að gera kvarðann sambærilegan voru töl- ur staðlaðar með því að reikna frá- vik hvers árs frá meðaltali við- komandi raðar og deila í frávikið með staðalfráviki raðarinnar. Vortalningar hafa sýnt að stofn- breytingar voru samstiga um allt land á 7. og 8. áratugnum en síð- ustu 13 ár hefur samsvörunin ekki verið eins góð. Þannig hafa stofn- breytingar á Kvískerjum á Suð- austurlandi verið um tveimur ár- um á undan því sem er á Norður- landi og á talningasvæðum suð- vestan- og vestanlands hefur verið fækkun eða stöðnun síðustu ár meðan aukning hefur verið annars staðar. Á Norður-, Norðaustur- og Austurlandi var aukning karra á talningasvæðum að meðaltali um 30% á milli 1997 og 1998 (dreifing 14-59%). Samkvæmt ungatalning- um sem gerðar voru síðsumars á Norðausturlandi, komst mikið upp af ungum 1998 og voru að meðal- tali 8,6 ungar á kvenfugl. Það þarf því að fara aftur til 1989 til að fínna viðlíka mikið af rjúpum í þessum landshlutum, en þó er þetta ekki nema 60-65% af því sem var í síðasta hámarksári vorið 1986. Miðað við að stofnbreytingar rjúpu á þessum svæðum séu um tveimur árum á eftir stofnbreyt- ingum á Kvískerjum, en þannig hefur ástandið verið frá um 1985, þá má búast við fækkun eftir tvö ár. Ástandið á rjúpnatalninga- svæðum á Suðvestur- og Vestur- landi er annað, þéttleiki rjúpna á þessum svæðum er lágur, þar rík- ir kyrrstaða eða fækkun og stofn- breytingar eru ekki lengur í takt við það sem er að gerast í öðrum landshlutum. Ungatalningar hafa sýnt að afkoma unga er ágæt. Rannsóknir með radíómerkta fugla í nágrenni Reykjavíkur á síðustu árum hafa aftur á móti sýnt mjög há vetrarafföll og eru skotveiðar þýðingarmesti affalla- þátturinn. Skotveiðimenn felldu um 70% fugla á lífi í upphafi veiði- tíma. Hliðstæðar tölur frá Eyja- fjarðarsvæðinu 1994-1997 sýndu að þar féllu fyrir hendi veiðimanna að meðaltali 33% fugla á lífi í upp- hafi veiðitíma (dreifing 25-51%). Svæðisbundið veiðiálag Merkingar hafa sýnt að rjúpan er tiltölulega staðbundin og eins að veiðiálag er verulega mismun- andi á milli svæða. Við Eyjafjörð er veiðiálagið innan þeirra marka sem stofninn þolir en í nágrenni Reykjavíkur er augljóslega um of- veiði að ræða. Þetta er áhyggju- efni í ljósi þeirrar kyrrstöðu sem verið hefur á rjúpnatalningasvæð- um á Suðvestur- og Vesturlandi undanfarin ár sem bendir sterk- lega til þess að þessi vandi sé ekki aðeins bundinn við nágrenni Reykjavíkur. Rjúpnamerkin eru dýrmæt Á vegum Náttúrufræðistofnun- ar íslands hafa á fimmta hundrað rjúpur verið merktar það sem af er árinu 1998. Merkingar veita mikilvægar upplýsingar um ferða- lög rjúpna og afföll vegna veiða. Merkið er fóthringur. Eitthvað af fuglum er með radíósenda um hálsinn. Veiðimenn eru hvattir til að huga vel að þeim fuglum sem þeir fella og skila merkjum ásamt upp- lýsingum um veiðistað og veiðidag til Náttúrufræðistofnunar. Radíó- sendana er hægt að endurnýta og því er mikilvægt að fá þá til baka, segir í frétt frá Náttúrufræði- stofnun. Islenski rjúpnastofninn sveiflast mikið og um tíu ár hafa verið á milli toppa. Munur á stofnstærð milli hámarks- og lágmarksára hefur verið um fimm- til tífaldur. Síðasta hámark var 1986, síðan fækkaði ár frá ári og lágmark var á árunum 1991 til 1994, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Hugleiðsluvika um allt land ÓKEYPIS kynningarnámskeið í hugleiðslu verða haldin um vítt og breitt um landið dagana 12.-18. október. Það er ætlað fólki sem hefur áhuga á að ná fram slökun og aukinni einbeitingu og vinna þannig að meira jafnvægi og betri árangri í lífi sínu, segir í fréttatil- kynningu. Þessi kynningarnámskeið eru hluti af hugleiðsluviku, 12.-18.októ- ber, sem Sri Chinmoy-miðstöðin stendur að samtímis á fimm stöð- um á landinu, þ.e. í Reykjavík, Reykjanesbæ og á Selfossi, Akur- eyri og Akranesi. Eftir kynningar- námskeiðið býður Sri Chinmoy- miðstöðin upp á ókeypis fjögun-a vikna framhaldsnámskeið í jóga og hugleiðslu fyrir þá sem vilja ná meira valdi á hugleiðslunni. Dagskrá hugleiðsluvikunnar er eftirfarandi: Reykjavík; í Sri Chinmoy-mið- stöðinni, Skúlagötu 61b: Mánudag kl. 15-17 og 20-22, þriðjudag kl. 15-17 og 20-22, miðvikudag kl. 15-17, fimmtudag kl. 15-17 og 20-22, fóstudag kl. 15-17 og 20-22, laugardag kl. 10-12 og 15-17 og sunnudag kl. 10-12 og 15-17. Akureyri; í Menntaskólanum á Akureyri: Laugardag kl. 15-17 og 19-21 sunnudag kl. 10-12. Akranesi; í Grundaskóla: Þriðju- dag kl. 20-22 og fimmtudag 20-22. Reykjanesbæ; í Fjölbrautaskóla Suðurnesja: Þriðjudag kl. 20-22 og fimmtudag kl. 20-22. Selfossi; í Sólvallaskóla: Þriðju- dag kl. 20-22 og laugardag kl. 15-17. Það nægir að mæta á aðeins eitt af ofantöldum námskeiðum. Á námskeiðinu verða til sölu bækur og diskar sem tengjast efni nám- skeiðsins. Alþingismenn funda á Austurlandi SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN efnir til funda á Eskifirði fimmtu- daginn 8. október og Norðfirði Iföstudaginn 9. október. Fundirnir hefjast kl. 20.30. I næstu viku er svo áformað að halda fund á Reyðarfirði og Egils- stöðum. Þeir fundir verða boðaðir síðar. Umræðuefni þessara funda verður byggðamál og orku- og stór- iðjumál auk sjávarútvegsmála. Málshefjandi verður Árni Ragnar Árnason, alþingismaður, en hann á sem kunnugt er sæti í iðnaðarnefnd Alþingis og er varaformaður sjávar- útvegsnefndar Alþingis. Hann er því vel kunnugur þeim málefnum sem fjallað er um í þessum nefnd- um. Enn fremur munu þingmenn Sjálfstæðisflokksins á Austurlandi, þau Ai-nbjörg Sveindóttir og Egill Jónsson, mæta á þessa fundi. Fund- irnir eru öllum opnir. Framsóknarfélag Reykjavíkur Furðar sig á óút- færðum STJÓRN Framsóknarfélags Reykjavíkur lýsir yfir furðu sinni á óútfærðum tillögum forsætisráð- herra varðandi þátttöku almenn- ings í sjávarútvegi, í samþykkt sem gerð var í gær. Stjórnin telur að hugmyndir for- sætisráðherrans um að fjármagns- eigendum verði gefinn kostur á að tillögum kaupa k\7óta af útgerðai-mönnum í formi niðurgreiddra hlutabréfa í sjávarútvegsfyrirtækjum ekki til þess fallnar að skapa þjóðarsátt um sjávarútveginn. Stjórn FR telur að skila vei'ði þeim arði sem skapast af stjórn- kerfi fiskveiða á annan og jafnari hátt til samfélagsins. Heilladísirnar gengu í lið með Islendingum Sk\k Elista, Kalm.ykíu ÓLYMPÍUSKÁKMÓT ÁTTUNDA umferð á ólympíu- skákmótinu í Elista, Kalmykíu, var tefld í gær. Islendingar tefldu við harðsnúna sveit Ai-gentínu- manna og báru sigur úr býtum, 2V2-V/2. Heilladísii-nar gengu í lið með okkar mönn- um að þessu sinni, en þær hafa lítið sinnt þeim til þessa á mót- inu. Þröstur fékk biskup á silfurfati og Jón Viktor vann tap- aða stöðu, eftir mikl- ar sviptingar. Að sögn Áskels Amar Kárasonar, fréttaritara Morgun- blaðsins í Elista, var taflmennska okkar manna tilviljunar- kennd í þessari um- ferð. Hannes Hlífar Stefánsson tefldi með hvítu við stói-meistar- ann Maxim Soi'okin og tefldi byrj- unina rólega. í miðtaflinu náði Ar- gentínumaðurinn undii'tökunum á miðborðinu, eftir mistök Hannes- ar, og vann tvö peð. Hannes slapp þó út í di'ottningai'endatafl, þar sem hann átti jafnteflismöguleika, sem honum tókst ekki að nýta og mátti gefast upp eftir 81 ieik. Þi-östur Þói’hallsson hafði svart gegn Hoffman á öðru boi'ði og fékk örlítið lakai'a tafl út úr byrj- uninni. Argentínumaðiu'inn er stórmeistari, sem nýlega vann sér í'étt til að tefla á heimsmeistai’a- mótinu í Las Vegas í árslok. Hann gleymdi sér illilega í skákinni við Þi’öst og lék af sér manni og skák- inni á sáraeinfaldan hátt. Helgi Áss Grétarsson gerði jafntefli í 15 leikjum við Spangenberg á þriðja borði. Jón Viktor Gunnarsson fékk góða stöðu í friðsamlegi’i byrjun gegn Malbran, þar sem upp kom jafnt endatafi. Jón Viktor fói’naði Þröstur Þórhallsson peði til að flækja taflið og upphófst hörð barátta. Jón Viktor teygði sig of langt og fékk tapað tafl. Honum tókst að rugla andstæðinginn í tímahrakinu og snúa taflinu sér í vil. Skákina vann hann svo í 95 leikjum, eftir að Malbran hafði misst af jafnteflinu. Islenska sveitin hefur nú hlotið I8V2 vinning í 32 skákum, er nálægt 20. sæti, en Bandaríkja- menn eru efstir, hafa 22 vinninga, 2.-3. Búlgaría og Rússland A, 21‘/2 v. hvor sveit; 4.-5. England og Frakkland, 21 v. Við skulum nú sjá tvær skákir Þrastar Þórhallssonar. Fyrst er það góður sigur á kólumbíska stór- meistaranum Zapata í 7. umferð mótsins og síðan sigurinn á Ar- gentínumanninum í gær. Svartur á engin færi á gagnsókn á drottningarvæng og hann getur ekki beðið þess, að hvítur leiki 18. Rh4 og 19. Rg4. Hann reynir þess vegna að trufla sóknaraðgerðir hvíts. 18. Rh4 - Rf4 Eftir 18. - Rf6 19. Rh4xf5 verður fátt um varnir hjá svarti. 19. gxf4 - Bxh6 20. Dh5 - Bg7 21. exf5 - Bf6 22. fxe5 - dxe5 Hvítt: Þröstur Þórhallsson Svart: Alonso Zapata Sikileyjarvörn I. e4 - c5 2. Rf3 - e6 3. g3 - Þröstur teflir lokað afbrigði af Sikileyjai’vörn að þessu sinni, en algengast er að leika 3. d4 - cxd4 4. Rxd4 o.s.frv. 3. - Rc6 4. Bg2 - Rf6 5. De2 - d6 6. 0-0 - Be7 7. c3 - e5 8. d3 - 0-0 9. Rbd2 - b5 Svai-tur hefði betur undirbúið þennan leik með 9. - Hb8. 10. d4 - Db6 Eftir 10. - cxd4 11. cxd4 - exd4 12. Dxb5 verður peðið á d4 dauðans matur. II. d5 - Rd8 12. Rh4 - g6 13. f4 - Rh5 Eftir 13. - Rd7 14. Rdf3 lendir svai'tur í miklum þrengingum, og ekki gengur 13. - Bg4 14. DÍ2 - Rd7 15. Rdf3 og biskupinn stendur illa á g4. 14. Rf5! - Bf6 15. Rh6+ - Kh8 16. f5 - Bg7 17. Rf3 - gxf5 23. Rg6+! - fxg6 24. fxg6 - c4+ 25. Hf2 - Dc7 Hvítur hótar máti á h7. 26. d6 og svartur féll á tíma í þessari gjörtöpuðu stöðu. Eftir 26. - Dd7 27. Bg5 getur hvítur unnið að vild. Hvítt: Alexandro Hoffman Svart: Þröstur Þórhallsson Di’ottningarpeðsbyrjun 1. d4 - d5 2. c4 - c6 3. Rf3 - Rf6 4. Dc2 - e6 5. g3 - Be7 6. Bg2 - 0-0 7. 0-0 - Rbd7 8. Hfdl - b6 9. b3 - Bb7 10. Rc3 - Dc7 11. Bf4 - Bd6 12. Bxd6 - Dxd6 13. e4 - Rxe4 14. Rxe4 - dxe4 15. Dxe4 - Had8 16. Dc2 - g6 17. Hd2 - Dc7 18. Hadl - c5 19. Db2 - cxd4 20. Hxd4 - Rc5 21. h4 - h5 22. b4 - Re4 23. Dc2 - Rf6 24. Dd2 - Hxd4 25. Dxd4 - Rg4 26. Dd7?? - Dxd7 27. Hxd7 - Bxf3 28. Bxf3 - Re5 29. Hxa7 - Rxf3+ 30. Kg2 - Re5 31. c5 - bxe5 32. bxc5 - c4 33. Hc7 - Kg7 34. b6 - Hb8 35. b7 - c3 og hvítur gafst upp. Bragi Kristjánsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.