Morgunblaðið - 08.10.1998, Blaðsíða 66
66 FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FOLK I FRETTUM
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
SUMIR dansa en aðrir fylgjast áhugasamir með hljómsveitinni
spila.
SPENNINGUR að fá eigm-
liandaráritanir á plakbtin...
ALLIR fengu áritað plakat með sér heim.
KRISTJÁN Vignir Hjálmarsson
og Hilmar Már Jónsson.
FRIÐA Kristjánsdóttir, Karólína Steinback Kjartansdóttir og Bóas
Hreindal Sigurbjömsson.
Skítamórall skemmtir í Öskjuhlíðarskóla
Dansað og trallað og’
plakat með heim
DANSINN stiginn á ballinu.
Dior
KYNNIN GARDAGAR
í Hygea-verslununum í dag,
fimmtudag, föstudag og laugardag.
NYTT-NYTT
Spennandi nýjungar sem ekki hafa
verið kynntar áður
- Nýtt augnkrem
- Nýr farði
Nýjungar fyrir nútímakonur.
Frí förðun í verslunum okkar
HYGEA HYGEA HYGEA
snyrtivðrui'erjlun jnyrt ivöruvcr<tlun .< ny rt ivö ru ve ra / u n
Laugavegi Austurstræti Kringlu
;lunm
KVÖLDSKEMMTUN var í Öskju-
hlíðarskóla á fímmtudagskvöldið var.
Félagsmálanefnd skólans sér um að
halda skemmtanir mánaðarlega í
skólanum og er þá oft opið hús með
diskóteki, eða farið í bíóferðir. Hins
vegar var þessi skemmtun óvenjuleg
fyrir þær sakir að hljómsveitin
Skítamórall kom og hélt uppi fjörinu
bróðurpart kvöldsins.
Frumkvæðið hjá
hljómsveitinni
Umboðsmaður Skítamórals átti
frumkvæðið að veru hljómsveitarinn-
ar og var því afar vel tekið af forráða-
mönnum skólans, enda nánast í
fyrsta skipti sem hljómsveit skemmt-
ir á þessum kvöldskemmtunum.
Hljómsveitin spilaði og söng fyrir
nemendur skólans og var dansað og
trallað lengi vel. Auk þess voru liðs-
menn sveitarinnar með plaköt sem
þeir árituðu fyrir ánægða nemendur,
og allir fengu með sér plakat heim.
Frábær mæting
Attatíu nemendur mættu á kvöld-
skemmtunina, nemendur úr 7.-10.
bekk og eldri nemendur skólans, en
þeim er stundum boðið á skemmtan-
ir skólans þegar mikið er um að vera
eins og var á fimmtudagskvöldið.
Einn starfsmaður skólans sagði að
það hefði verið geysilegt fjör, enda
ekki oft sem skólinn fær heimsóknir
frá þekktri hljómsveit, og eigi hljóm-
sveitin þakklæti skilið.
250 pör gifta sig
250 PÖR gengu í það heilaga í
Egyptalandi um helgina. Fjölda-
brúðkaupið var fjármagnað af rík-
inu og fór það fram í Kaíró. Hér
sjást nokkur pör bíða í röð eftir
heilögu Guðs orði og blessun.