Morgunblaðið - 16.12.1998, Blaðsíða 48
48 MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 1998
AÐSENDAR GREINAR
MORGUNBLADIÐ
Meistari
Thor
ÞAD er mikið fagnaðarefni öllum
læsum íslendingum að Thor Vil-
hjálmsson skuli hafa sent frá sér
nýja bók: Morgunþulu í stráum.
Kynni okkar Thors ná svo langt aft-
ur sem nokkur önd hefur hikst í
mínu brjósti - þannig að líf mitt hef-
ur alltaf verið upplýst eða tvílýst af
hans stóra anda og sterku nærveru.
Ég ólst upp í raðhúsi inni í Karfavogi
þai- sem hann skar sig úr hópi borg-
aralegra nágranna sem héldu til
vinnu sinnar á morgnana og skildu
okkur strákana í götunni eftir í fót-
bolta og tindátaleik án þess við sæj-
um fullorðinn karlmann allan daginn
- nema póstburðarmanninn og Thor.
„Hvað gerir hann?“ - „Hann skrifar
bækur.“ - „Já, en vinnur hann ekki
eitthvað?" var spurt. Einhvers stað-
ar inni á milh heimuglegi'a
bókastafia, undh- skini furðumynda á
vegg sat þessi eldmóðugi maður og
lagði út net sín til að fanga hugsun
og drauma nútímamannsins á fljúg-
andi ferð um heiminn allan og skila
/Éionum til okkar eftir aðgerð með
sínum htskrúðuga, myndræna og til-
fínningaheita stíl sem íslenskar bók-
menntir hafa ekki séð annan slíkan.
Rannsakar mannshugann
Menn vissu ekki hvað þetta var.
„Þetta er engin saga,“ var sagt.
„Hvar byrjar þetta?“ „Er enginn
söguþráður?" „Fer ekki allt vel að
lokum?“ „Hvað verður um elskend-
urna?“ „Ná þau saman í sælu hjóna-
sængur?" Viðmið Islendinga um
^ivað væru bókmenntir dugðu ekki
til að nema þessi verk. Einn maður
og myndir bruna hjá og inn í huga
hans sjálfs, jafnt í svefni sem í vöku,
sífelld rannsókn á manninum og
hlutskipti hans á okkar öld, miðlað
með sprengikrafti málsköpunar
sem færði mörk hins mögulega í
okkar bókmenntum langt út í óviss-
una að berja á nátttröllum hinnar
almæltu stöðnunar - eins og Þór
sjálfur þrumuguðinn, verndari
menningarinnar, gerir jafnan í aust-
urvegi - þangað sem enginn hefur
enn getað íylgt Thor á stílfluginu þó
að hann hafi með öræfaferðum sín-
I
»1
ipmmmmmmmmmmmmmmmmm
GA-NGA 1 GARÐ
•ólasveinn í heimsókn
á hverjum degi frá
um um jötunheima styrkt varnir
okkar, bægt háskanum frá um sinn
og búið til andrými og numið víðátt-
ur sem gera okkur hinum lífið bæri-
legra og ríkara.
í skáldsögunum hefur Thor farið
víða um lendur mannshugans, skoð-
að okkur í blíðu og stríðu og lýst því
óræða, hraðanum, angistinni og ein-
semdinni. Þrátt fyrir alla mann-
mergðina hafa persónur hans farið
um í örvæntingu og oft ekki náð
sambandi við aðrar manneskjur
nema í örskotsblossa ástarlostans.
Um skeið var íslenska þjóðin eins og
Sagan er fagur vitnis-
burður, segír Gísli Sig-
urðsson, um kynngi
höfundar sem ruddi nú-
tíma eftirstríðsáranna
braut inn í íslenskar
bókmenntir.
mannmergðin í þessum sögum, hún
náði ekki sambandi við þær gjafír
sem henni voni gefnar. I kringum
1960 þýddi Thor dálítið af leiki-itum
og á 9. áratugnum gerðist hann
helsti miðill stói-virkja utan úr hin-
um víða heimi bókmenntanna, færði
okkur til dæmis Hlutskipti manns
eftir André Malraux, Nafn rósarinn-
ar eftir Umberto Eco og Hús and-
anna eftir Isabel Allende. Mitt í
þessari stórskotahríð kom hann svo
með Grámosann þar sem hann söng
sig loks inn í hjörtu landsmanna.
Enda höfðu eldri sögur hans þá
skotið frjóöngum og búið jarðveginn
undir að taka við hinu nýja stórvirki.
Af eldri bókum skar Folda sig úr
í viðtökum. Þar kom Thor heim og
skrifaði söguþætti, bæði klassískan
svaðilfaraþátt um lífsháska í ís-
lensku óveðri á heiði, og ferðaþætti
um nútímalegri svaðilfarir meðal-
jónsins: í verkalýðssendinefnd í
austurveg og á sólarströnd. í þess-
um þáttum sá þjóðin sig í hetjulegri
. • • ’ • • •
• • * * / *•
sœtir sofar*
HÚSGAGNALAGERINN
• Smiðjuvegi 9 • Sími 564 1475 *
Jakkapeysuúrvalið
er í Glugganum
Glugginn
Laugovegi 60, sími 551 2854
Gíróseölar tiggja frammi í
öUum bönkum, sparisjóðum
og á pósthúsum.
Þú getur þakkað fyrir þitt hlutskipti
Gefum bágstöddum von
fortíð og spéspegli nú-
tíðar og gat notað sem
lykil að sagnaheimi
Thors til að feta sig ut-
ar á djúpmiðin. Sams
konar lykil fundu menn
í styttri ferðaþáttum
hans og syrpuskrifum í
tímaritinu Birtingi
forðum tíð. Og þegar
Grámosinn kom var
eins og allir væru nú
loksins tilbúnir.
Kannski var það líka
sú hugmynd að kanna
sögulegan atburð,
sögulega persónu og
gera henni skil með að-
ferðum nútímaskáld-
sögu sem höfðaði til söguþjóðarinn-
ar. Fornsöguþjóðarinnar.
Eys úr gnægtabrunni
fornsagnanna
Og nú hefur hann endurtekið leik-
inn, kafað að uppsprettulindum
voiTar tungu í fornsagnaarfinum og
komið upp með persónu Sturlu Sig-
hvatssonar, höfðingjann ættstóra og
metnaðarfulla sem var blóðugur upp
fyrir axlir í átökum Sturlungaaldar,
manninn sem sá á eftir Tuma stóra
bróður sínum undir öxi biskups-
manna á Hólum og elti menn Guð-
mundar góða biskups allt út í
Grímsey til hefndar, þar sem æsku-
vinur hans Ai'on Hjörleifsson slapp
naumlega, manninn sem náði Sol-
veigu Sæmundsdóttur úr Odda áður
en Snorri föðurbróðir hans Sturlu-
son hafði ráðrúm til þess, manninn
sem var niðurlægður ógurlega af
ungum sveinum úr Vatnsfírði sem
réðust á heimakonur á Sauðafelli
þegar Sturla hafði brugðið sér af bæ
- eftir að hann sjálfur hafði staðið á
bak við víg fóður þeirra, manninn
sem gekk suður til Róms að leita sér
sáluhjálpar eftir óhæfuverk og
grimmilegar hefndir, manninn sem
féll loks með Sighvati fóður sínum á
Örlygsstöðum í ráðleysi fyrir of-
urefli óvinaliðs. Þessi maður er þeg-
ar orðinn ódauðlegur í íslendinga-
sögu Sturlu Þórðarsonar - en þeir
Sturlungar voru bræðrasynir.
Þennan mann rannsakar Thor í
Morgunþulu í stráum og leiðir hann
fram úr myrkri aldanna með upp-
safnaðri kynngi orða sinna og yfir-
vegaðri snilld meistarans sem hefur
náð svo algjöru taki á listforminu að
hann getur lagt fyrir okkur að því
er virðist með áreynslulausu flæði
og meitlaðri djúphygli vandlega
slípaða gimsteina . í
stuttum köflum sem
lýsa upp andrána og
hlutskipti manns í ná-
vígi við náttúru, dauða,
Guð og aðrar mann-
eskjur á þeirri öld sem
þekkti ekki hraða nú-
tímans og angur okkar
tíma - en lagðist engu
að síður þungt á fólk, líf
þess og limi.
Og færir okkur
lifandi mann
Nálægðin er mikil í
þessu verki, bæði milli
okkar og persónanna
en líka milli þeirra
sjálfra. Það er ekki horft á mannlíf-
ið í gegnum gler heldur fínnum við
fyrir lífinu, hitanum, kuldanum,
veðrinu, manneskjunum, hugmynd-
unum, og göngum inn í þann mið-
aldaheim sem Thor hefur smíðað
okkur utan um Sturlu og þá veröld
sem hann hrærðist í, bæði hinn
holdlega og jarðneska þátt en líka
hugmyndirnar sem voru á sveimi
meðal trúfræðinga og mennta-
manna á hans dögum. Þetta er saga
einstaklings sem mætir miklum ör-
lögum og er jafnvel stundum eins
og stefnulaust rekald sem öldur
mannlífsins brotna á. Við lesum
hægar lýsingar á óhaminni náttúni
þar sem mennimir feykjast til og
frá, jafnt í ofviðri á sjó sem í hríðar-
byl á heiðum uppi, við fínnum lykt-
ina og hina hægu framvindu ferðar-
innar miklu sem Sturla tekst á
hendur með suðurgöngu sinni, allt
til Rómar þar sem hraðinn eykst í
mannmergðinni og borgarmenning-
unni og saga Sturlu verður að sögu
okkar og nútímans í verkum Thors
sjálfs þar sem tilveran þyrlast í
kringum persónurnar.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
Thor sendir persónu i skáldverki í
langt ferðalag suður um Evrópu og
til Rómar. Hér hefur allt þó annan
róm, annan hraða, en við hljótum að
hugsa um það í sömu andrá og
ferðalög annarra persóna Thors um
sömu slóðir. Og það er kannski í
Róm, borginni eilífu, sem við tengj-
umst lífi og persónu Sturlu best.
Þessi borg laðar fram nútímamann-
inn í honum, og um leið fornmann-
inn í okkur.
Thor lætur Sturlu hitta mennta-
menn og trúfræðinga álfunnar á
viðkomustöðum hans og opnar
þannig hugmyndaheim kirkjunnar
sem má ætla að hafí verið á margra
vitorði um þessar mundir. Sturla
svelgir í sig fræði um Frans frá
Assisi, krossferðimar og Parísar-
skólann í heimspeki en segja má að
almennir Islendingar hafí miklu
veraldlegri lífssýn og fornlegri hug-
myndir um Sturlunga og þeirra ver-
aldlegu samtímamenn, að þeir hafi
fremur hrærst í dróttkvæðum, goð-
sögum og fornum fræðum um land-
námsmenn og konunga en í nýjustu
trúmálum sunnan úr álfu - eins og
Guðmundur góði sem tók upp hug-
myndir betlimunka og gerði litla
lukku hjá þeim sem studdu hann til
embættis, þar á meðal ættmennum
Sturlu. Með þessari áherslu á trú-
málin blandar Thor sér í umræðu
miðaldafræðinga um hugmynda-
heim íslendinga á miðöldum, leggur
skáldverk sitt fram til fræðanna á
sambærilegan hátt og Umberto Eco
gerði með Nafni rósarinnar.
Meginhluti Sturlungu, Islendinga
saga, er ski'áð af Sturlu Þórðarsyni,
ættingja þátttakenda í valdabaráttu
og pólitík sturlungaaldar. Hann
segir sögu samtíðar sinnar og lætur
hana hnitast um helstu persónur og
stóratburði sem honum þykir vera.
Nú hefur Thor samið nútímasögu
um forna atburði, skoðað og rann-
sakað þann hugarheim og aðstæður
sem gætu hafa búið að baki því sem
Sturla Þórðarson segir um frænda
sinn Sturlu Sighvatsson í sögu
sinni. Thor reynir að skilja hvað
knýr Sturlu Sighvatsson áfram og
af hverju hann bilar að lokum - ef
hann þá gerir það. Þetta er nútíma-
saga um persónu í fomri sögu þar
sem Thor beitir sínu mikla innsæi
til að nálgast mann úr annarri
menningu og skilja lífsgrundvöll
hans. Hann segir sögu einstaklings
sem verður okkur nákominn og
snertir okkur með svo beinum hætti
að þekking á sjálfri Sturlungu verð-
ur óþarfur milliliður. Sturla var
virkur þátttakandi í valdabaráttu
aldar sinnar en í Morgunþulu í strá-
um hverfum við inn í huga hans og
fylgjumst með angist og átökum í
óblíðum heimi þar sem líf og dauði
stóðu mönnum miklu nær en nú er
tíðast. Sagan er fagur vitnisburður
um kynngi og töfrabrögð þess
meistara sem ruddi nútíma eftir-
stríðsáranna braut inn í íslenskar
bókmenntir og hefur alla tíð síðan
staðið í orrustunni miðri þar sem
hriðin er hörðust.
Höfundur er íslenskufræðingur
Gísli
Sigurðsson
Stjórnvöldum ber skylda
til að varðveita atvinnu-
réttindi allra
EKKI er óeðlilegt að
menn deili um stjórnun
fískveiða. Ég hef oft
blandað mér í þær deil-
ur enda haft um þær
meiningar. Það er þó
ekki efni þessa greinar-
korns.
Hvernig sem við
stjórnum fiskveiðunum
þá eru þeir sem eru
handhafar veiðileyf-
anna handhafar sér-
stakra atvinnuréttinda.
Þessi atvinnuréttindi
ber stjórnvöldum að
verja með öllum ráðum.
Þeim ber skylda til að
varðveita atvinnurétt-
indi allra - jafnt þeirra sem róa á
aflamarki og hinna sem hafa króka-
leyfi. Og þetta er að sjálfsögðu
hægt. Löggjöfín um stjórnun físk-
veiða er fyrst og fremst hagstjórn-
artæki. Vandamálið er að sjávarút-
vegsráðuneytið, sem er haldið
þorskveiðifælni, er alltaf að rugla
þessu tvennu saman - hagstjórn og
fiskfriðun. Það að tryggja króka-
bátum afkomu er pólitísk ákvörðun
sem kemur öllum til góða. Króka-
bátarnir eru í dag alls ekkert
vandamál. Tekist hef-
ur að ná utan um
stærð þessa flota og
þokkalegri sátt ætti að
vera auðvelt að ná um
fjölda sóknardaga sem
tryggði þeim rekstrar-
grundvöll. Þessir bát-
ar taka í raun ekkert
frá öðrum eins og
sjávarútvegsráðuneyt-
ið er því miður svo oft
að staglast á. Afli
þeirra kemur að sjálf-
sögðu úr hafinu og
hann sveiflast til frá
ári til árs.
Stundum er tíðin
erfið og þorskurinn
leggst frá landinu. Þá veiða þessir
bátar lítið og ekkert við því að geraj
menn harma bara hlutinn sinn. I
annan tíma gengur betur - eins og á
undanförnum misserum. Veðráttan
hefur verið hagstæð og mikið físk-
magn á grunnslóðinni. Tímabundin
velgengni þessara báta má þó ekki
rugla menn í ríminu. Að sjálfsögðu
hefur það engin áhrif á lífríki hafs-
ins hvort þessi skip veiða fímm eða
tíu þúsund tonnum meira eða minna
af þorski frá ári til árs. Það er hrein
Að sjálfsögðu hefur það
engin áhrif á lífríki
hafsins, segir Einar
Oddur Kristjánsson,
hvort krókabátar veiða
fímm eða tíu þúsund
tonnum meira eða
minna af þorski frá
ári til árs.
firra að halda öðru fram. Ég er þess
fullviss að lögin um stjórnun fisk-
veiða standast og því er auðveldlega
hægt að tryggja atvinnuréttindi
allra.
Hins vegar eru aðrir sem trúa því
að í dómi Hæstaréttar felist þau
skilaboð að fiskveiðum við Island
megi ekki stjórna öðruvísi en
þannig að útdeilt sé kvótum jafnt til
allra landsmanna. Ég ráðlegg
mönnum eindregið að reyna ekki að
hugsa til enda afleiðingar slíks fyi'-
irkomulags fyrr en eftir jól.
Höfundur er alþingismaður.
Einar Oddur
Kristjánsson