Morgunblaðið - 16.12.1998, Blaðsíða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 1998
ERLENT
MORGUNBLADIÐ
Réttarhöldin yfír Anwar í Malasiu
Götótt dýna af-
hjúpuð í réttarsal
Kuala Lumpur. Reuters.
SAKSÓKNARAR í máli Anwars
Ibrahims, fyrrverandi aðstoðarfor-
sætisráðherra Malasíu, lögðu í gær
fram dýnu sem sönnunargagn en
þeir halda því fram að Anwar hafi
haft kynmök við eiginkonu fyrrver-
andi ritara síns á dýnunni, og að á
dýnunni sé að finna sæðisbletti því
til sönnunar. Skyggði þessi uppá- ,
koma algerlega á deilu lögmanna
Anwars við dómarann í málinu
vegna skriflegra yfirlýsinga tveggja
manna þess efnis að lögi’egla hefði
neytt þá til að gangast við því að
hafa átt samræði við Anwar.
Dýnan var pökkuð inn í brúnan
pappír þegar lögi-eglumenn báru
hana í réttarsal og hölluðu þar upp
að vegg. Hafnaði Augustine Paul,
dómari í málinu, mótmælum verj-
enda gegn því að dýnan væri borin
fram sem sönnunarggn en verjend-
ur segja hana ótengda ákærum á
hendur Ariwar, sem sakaður er um
spillingu og um að hafa átt samræði
við karimenn, sem er bannað með
lögum í Malasíu.
Rifu starfsmenn réttarins pappír-
inn af dýnunni við upphaf vitna-
leiðslna í gær og sagði Musa Hass-
an yfirlögregluforingi síðan í vitnis-
burði sínum að þetta væri sama
dýna og lögregla hefði fjarlægt úr
íbúð þar sem Anwar er sakaður um
að hafa haft samræði við Shamsidar
Taharin, eiginkonu fyrrverandi rit-
ara síns. „Orthoflex Classic,“ sagði
Musa þegar hann var spurður um
gerð dýnunnar, sem var götótt og
þakin brúnum skellum. Greindi
Musa frá því að þrettán holur hefðu
verið skomar í dýnuna svo hægt
væri að rannsaka hvort þar væri að
finna lífsýni, og hvort þau væru úr
Anwar.
Sagði Musa að talið væri að blett-
irnir brúnu, sem sjáanlegir eru á
dýnunni, væra sæðisblettir. Sak-
sóknarar færðu samt engin rök fyr-
ir þeim staðhæfingum né heldur
hvemig hægt þeir tengdu blettina
við Anwar.
Beitti lögregla óprúttnuin að-
ferðum við yfirheyrslur?
Verjendur Anwars þjörmuðu
nokkuð að Musa sem viðurkenndi í
gær að blóðsýni, sem tekið var úr
Anwar átta dögum eftir að hann
var handtekinn, hefði verið notað
án vitundar Anwars til að kanna
hvort hann væri faðir barns
Shamsidars Taharins. „Satt er það,
Anwar hafði ekki gefið samþykki
sitt fyrir DNA-prófi,“ sagði Musa,
en illa gekk að rannsaka blóðið „því
aukaefnum hafði verið blandað
saman við það.“ Vitnaði Musa
einnig að lögmenn Anwars hefðu
hafnað óskum lögreglunnar um að
fram færi nákvæm rannsókn á kyn-
færam og endaþarmi Anwars.
Kom til deilna milli dómara og
verjenda Anwars í gær þegar einn
verjenda Anwars gerði tilraun til að
lesa upp úr skriflegri yfirlýsingu
Munawars Anees, fyri-verandi
ræðuskrifara Anwars, þar sem
hann heldur því fram að lögregla
hafi neytt hann til að gangast við
því að hafa átt samræði með Anwar
gegn vilja sínum.
Sögðu verjendur Anwars að yfir-
lýsingar Munawars og Sukmas
Dermawans, stjúpa Anwars, í þessa
vera sýndu að þeir hefðu verið
„píndir til að búa til sannanir gegn
Anwar“. Dómarinn í málinu úr-
skurðaði hins vegar að yfirlýsingar
mannanna væru málinu óviðkom-
andi og því væri ekki hægt að
leggja þær fram á þessu stigi.
Reuters
LOGREGLUMENN bera dýnuna, sem saksóknarar lögðu fram í máli Anwars Ibrahims, inn í réttarsalinn.
Richard Holbrooke kominn aftur til Kosovo
Ottast að endurnýjuð
átök ógni vopnahléi
Prístína, Kusnin, Madríd. Reuters.
RICHARD Holbrooke, sendimaður
Bandaríkjastjórnar á Balkanskaga,
varaði í gær stríðandi fylkingar í
Kosovo við því að þau væru að „leika
sér með dýnamít" ef þau héldu
áfram þeim átökum sem brotist hafa
út undanfarna daga. Sagði Hol-
brooke á blaðamannafundi í Prístína
í gær að átökin myndu ekki koma í
veg fyrir friðarumleitanir erlendra
ríkja í Kosovo.
Þrjátíu og sjö era sagðir hafa fall-
ið í tvennum ótengdum róstum í
m
Boðað
haldinn
TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN HF
HLUTHAFAFUNDUR
er til hluthafafundar í Tryggingamiðstöðinni hf. og verður hann
í Súlnasal Hótel Sögu í Reykjavík, fimmtudaginn 17. desember
1998 og hefst kl. 16:00.
Dagskrá:
Kosovo á mánudag, þar af þrjátíu og
einn liðsmaður Frelsishers Kosovo
(KLA) í átökum við serbneska her-
menn við landamæri Kosovo og Al-
baníu. Kom Holbrooke í gær til Jú-
góslavíu til að reyna að blása lífi í
friðaramleitanir í Kosovo.
Javier Solana, framkvæmdastjóri
Atlantshafsbandalagsins (NATO),
fordæmdi einnig atburði mánudags-
ins en hann er staddur í Madríd á
ráðstefnu um gang friðarumleitana í
Bosníu. Kvaðst hann óttast um ör-
yggi erlendra eftirlitsmanna sem
staddir eru í Kosovo. Sagði Solana
að andstætt því sem Milosevic hefur
haldið fram þá hafi NATO samþykki
öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna
fyrir því að svokallað brottflutnings-
herlið, sem hefur bækistöðvar í Ma-
kedóníu, komi eftirlitsmönnunum til
bjargai- sé lífi þeirra ógnað. I New
York varaði Kofi Annan, fram-
kvæmdastjóri SÞ, við því að stríð
gæti brotist út í Kosovo á nýjan leik
og lét hafa eftir sér að menn „hefðu
alla ástæðu til að óttast hið versta á
nýju ári.“
Þótt Kosovo sé ekki formlega á
dagskrá áðurnefndrar ráðstefnu í
Madríd settu fregnir um átök í
Kosovo engu að síður skugga á upp-
haf hennar, en þetta er mesta mann-
fall á einum degi frá því að KLA lýsti
yfir vopnahléi í október og Milosevic
samþykkti að draga herlið sitt frá
Kosovo.
Sex ungmenni myrt á kaffíhúsi
Eftiriitsmennirnir segja að Kos-
ovo-Albanarnir 31 hafi fallið þegai’
serbneski herinn kom um hundrað
og fjörutíu manna hópi skæruliða
KLA í opna skjöldu í þann mund
sem þeh’ hugðust smygla vopnum
inn í Kosovo.
Auk KLA-mannanna myrtu
byssumenn sex serbnesk ungmenn
og særðu þrjú önnur á kaffihúsi í Pec
í vestur-Kosovo. Fengu vestrænir
eftirlitsmenn í gær að kenna á reiði
heimamanna vegna þessa atburðar,
köstuðu nokkur ungmenni grjóti að
eftirlitsmönnunum og farið var fram
á að þeir yfirgæfu bæinn, sem þeir
og gerðu.
Blair segir Ihaldsflokk á
valdi hatursmanna ESB
Tillaga stjórnar um hlutafjárhækkun.
Lögð verður fram tillaga um að hækka hlutafé félagsins um kr.
50.699.042, þannig að hlutafé hækki úr kr. 182.400.000 í allt að kr.
233.099.042. Hlutafjárhækkunina skal alla nýta til skipta á útistand-
andi hlutafé í Tryggingu hf., að nafnverði kr. 203.599.696, samkvæmt
samkomulagi stjórna Tryggingamiðstöðvarinnar hf. og Tryggingar hf.,
sem gert var í nóvember 1998. Vikið er frá forkaupsrétti hluthafa til
áskriftar að hinum nýju hlutum og hafa eigendur hlutafjár íTryggingu hf.
einir rétt til að skrifa sig fyrir aukningarhlutunum og greiða þá með
hlutabréfum íTryggingu hf.
Tillaga stjórnar ásamt greinargerð mun liggja frammi á skrifstofu
félagsins, Aðalstræti 6-8, Reykjavík, hluthöfum til sýnis viku fyrir
hluthafafundinn.
Stjórn Tryggingamiðstöðvarinnar hf.
Lundúnum. Reuters. The Daily Telegraph.
TONY Blair, forsætisráðherra
Bretlands, vísaði í spurningatíma á
þingi í fyrrakvöld á bug ásökunum
íhaldsmanna um að hann hefði
„svikið" hagsmuni landsins á leið-
togafundi Evrópusambandsins
(ESB) í Vín um helgina, og sagði að
stefna stjórnarandstöðuflokksins
væri nú á valdi ofstækisfullra and-
stæðinga Evrópusamvinnunnar.
„Brjálæðingarnir hafa tekið yfir
völdin á hælinu," sagði Blair þegar
William Hague, leiðtogi Ihalds-
flokksins, hafði ögrað honum í þing-
inu með því að fullyrða að hann
segði eitt heima hjá sér en annað er
áheyrendur hans væru útlendingar.
íhaldsmenn, sem eru í stjórnar-
andstöðu og njóta samkvæmt skoð-
anakönnunum um 20% minna fylgis
en Verkamannaflokkur Blairs,
reyna nú að ganga á lagið þegar
sumir þykjast sjá vísbendingar um
að forsætisráðherrann eigi undan
höggi að sækja í samskiptum við
Evrópusambandið. Hague skoraði á
Blair að taka af allan vafa um hvort
hann vildi frekari samruna í Evrópu
eða ekki.
Áður hafði Hague sagt á blaða-
mannafundi, að vegna þess hversu
Blair veiti landinu lélega forystu
stæði „Bretland nú frammi fyrir
stærstu ógn við sjálfstæði sitt í ára-
tugi“.
Blair sagði að árás Hagues sýndi
að flokkur hans væri nú á valdi hat-
rammra andstæðinga Evrópusam-
vinnunnar. „Ef þeir væru við völd
núna hefðum við engan bandamann
neins staðar, engin áhrif, ekkert
vægi,“ sagði hann. En hann sagði
einnig að ríkisstjórn sín myndi
halda áfram að berjast fyrir brezk-
um hagsmunum.
„Öll önnur lönd í Evrópu hika
hvergi við að verja eigin þjóðar-
hagsmuni en fylgja samt uppbyggi-
legri stefnu í Evrópusamvinnunni.
Mér er það lífsins ómögulegt að
skilja hvers vegna ekki ætti að vera
hægt að gera það sama í okkar
landi,“ lýsti Blair yfir.