Morgunblaðið - 23.01.1999, Page 8
8 LAUGARDAGUR 23. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÞAÐ sparaðist óhemju dýr og flókin aðgerð með þessum brandara, systir. Hann dó úr hlátri.
Morgunblaðið/Golli
GAT kom á togarann og voru iðnaðarmenn fljótlega kallaðir til og
hófust þeir handa við að logsjóða í gatið.
Togari bakkaði
á flotkví
NOKKRAR skemmdir urðu á
minni flotkví í eigu Vélsmiðju
Orms og Víglundar undir mið-
nætti á fimmtudagskvöld þegar
rdssneskt skip bakkaði á kvína í
Hafnarfjarðarhöfn.
Verið var að lóðsa skipið út úr
höfninni þegar óhappið viidi til
og er talið að stjórntæki hafi tek-
ið völdin af skipstjórnendum,
jafnvel að skipið hafi fest í bakk-
gírnum. Skipið, sem einnig
skemmdist nokkuð, var kyrrsett í
Hafnarfjarðarhöfn og var lög-
regluskýrsla tekin vegna máls-
ins.
Rannsóknardeild Hafnarfjarð-
arlögreglunnar fær málið til
meðferðar og rannsóknarnefnd
sjóslysa.
Finnur Ingólfsson
„Ég er mjög
ánægður
með niður-
stöðuna“
ARNÞRÚÐUR Karlsdóttir
kaupmaður og Alfreð Þor-
steinsson borgarfulltrúi lýstu
því sem skoðun sinni í Morg-
unblaðinu í gær, að Finnur
Ingólfsson hefði ekki fengið
góða kosningu í prófkjöri
framsóknarmanna í Reykja-
vík. Sagði Arnþrúður að vara-
formaðurinn hefði fengið „al-
gjöra útreið“ og Alfreð sagðist
vona að Finni takist að „end-
urvekja traust á sér þannig að
hann geti verið sannur for-
ingi“.
Inntur eftir ummælum Arn-
þrúðar sagði Finnur, að þau
kæmu sér ekki á óvart í Ijósi
niðurstaðnanna og um afstöðu
hennar og Alfreðs sagði hann:
„Er það ekki oft þannig að
þeir sem tapa eru sárir? Aðal-
atriðið er að listinn er mjög
sterkur. Eg er mjög ánægður
með þessa niðurstöðu og tel að
listinn geti náð mjög góðum
árangri í kosningunum í vor.“
Finnur sagðist hafa fengið
mjög góða kosningu í sam-
keppninni við Arnþrúði og Al-
freð. „Niðurstaðan er sú að ég
fæ tæp 1.000 atkvæði í 1. sæt-
ið, Alfreð rétt rúmlega 400 og
Arnþrúður rúmlega 200,
þannig að það voru nokkuð af-
gerandi úrslit um 1. sætið,“
sagði Finnur.
Var ekki með Iiðssafnað
„Það er vitað að það var
talsverð liðssöfnun inn í flokk-
inn fyrir prófkjörið. Eg var
enginn þátttakandi í því og
kom með sárafáa menn inn á
mínum vegum. Alfreð segir
sjálfur að hann hafi komið með
400 manns og Arnþrúður með
á þriðja hundrað manns, hef
ég heyrt. Þess vegna held ég
að þetta eigi að teljast mjög
góð niðurstaða."
Sólstöðuhópurinn stendur fyrir fyrirlestri
Tengsl með-
virkni o g
hjúkrunar
Páll Biering
Idag verður uppákoma
á vegum Sólstöðu-
hópsins klukkan 14 í
Norræna húsinu þar sem
Páll Biering geðhjúkrun-
arfræðingur mun halda
fyrirlestur um meðvirkni
og hjúkrun. Einnig verður
flutt tónlist og á eftir
verða pallborðsumræður
um efni fyrirlestursins.
En hvað ætlar Páll að
segja um samspil með-
virkni og hjúkrunar í
þessum fyrirlestri?
„Bandarískar rann-
sóknir hafa sýnt fram á að
hjúkrunarfræðingar eru
allt að helmingi líklegri en
aðrir til að hafa ahst upp
við alkóhólisma. Þetta á
reyndar einnig við um
aðrar umönnunarstéttir,
svo sem félagsráðgjafa, sálfræð-
inga og iðjuþjálfa. Það hefur ver-
ið gengið út frá því sem vísu að
þessir hjúkrunarfræðingar leiti í
starfíð til þess að uppfylla eigin
þarfír og hafí nánast sjúklega
áráttu til að þóknast og þjóna
öðrum. Mér þótti þessi umræða
svo neikvæð og gert svo lítið úr
erfíðri reynslu þessa fólks, auk
þess sem ég hef kynnst persónu-
lega mörgum hjúkrunarfræðing-
um sem hafa þessa reynslu og
hefur vegnað mjög vel í starfi og
einkalífi, að ég ákvað að skoða
tengslin milli hjúkrunar og með-
virkni frá öðru sjónarhomi. Eg
tók viðtöl við hjúkrunarfræðinga
sem höfðu alist upp við alkóhól-
isma og hafði vegnað vel í starfi
og bað þá um að segja mér
hvemig viðkomandi sæi tengslin
á milli sinnar erfiðu reynslu og
starfsferilsins. Það kom í ljós að
þessi erfiða reynsla hafði kennt
þeim ýmislegt sem þeir gátu nýtt
sér í hjúkrunarstarfinu. Mín nið-
urstaða er sú að það sé ekki
vegna sjúklegrar áráttu sem
þessir hjúkrunarfræðingar lögðu
fyrir sig hjúkrun heldur fundu
þeir vettvang þama til þess að
nýta þá eiginleika sem þessi erf-
iða reynsla hafði þroskað með
þeim.“
- Hvaða eiginleikar eru þetta?
„Einn sameiginlegan eigin-
leika áttu þessar konur, því þetta
vom allt konur, þær vom næmar
fyrir því ósagða. í alkóhólistafjöl-
skyldum er sjaldnast talað út um
hlutina, fólk fær ekki að tjá til-
finningar sínar og hugsanir á
eðhlegan hátt og þær lærðu því í
æsku að skynja tilfinningar og
jafnvel hugsanir þótt þær væm
ósagðar og þetta er eiginleiki
sem kemur sér mjög vel þegar
þarf að annast um fólk sem jafn-
vel er ófært um að tjá sig af ein-
hverjum orsökum. Að öðm leyti
var mjög einstaklingsbundið
hvaða eiginleika þessar konur
höfðu tileinkað sér og nýttust
þeim í hjúkrun sem setur spurn-
ingamerki við hugtak-
ið meðvirkni - hvort
hér sé um að ræða eitt
ákveðið fyrirbæri. Það
em ekki allir sammála
um tilvist meðvirkni,
þótt allir séu sammála um að þeir
sem búa með alkóhólistum þjáist
fyrir þær sakir.“
- En geta ekki aðrir eiginleikar
í fari þessara kvenna hafa valdið
því að þeim hefur vegnað vel í
starfi?
„Það er aldrei hægt að slíta
einstaka eiginleika fólks úr sam-
►Páll Biering er fæddur 1951 í
Reykjavík. Hann lauk stúdents-
prófi frá Menntaskólanum í
Reykjavík árið 1972 og BA-prófi
í hjúkmn lauk hann árið 1989
frá Háskóla íslands. Hann fékk
mastersgráðu í geðhjúkmn frá
Texas-háskóla Austen 1994 og er
nú langt kominn með doktors-
nám við sama háskóla. Páll er
sérfræðingur á Rannsóknar-
stofnun í hjúkranarfræði við Há-
skóla Islands. Hann er kvæntur
Hólmfríði Garðarsdóttur,
stundakennara í spænsku við Há-
skóla íslands. Þau eiga einn son,
átta ára, og einnig á Páll 26 ára
dóttur frá fyrra þjónabandi.
hengi við heildina. Það er summ-
an af þessum eiginleikum sem
skiptir máli. Þær áttu allar það
sameiginlegt að fyrir utan að al-
ast upp við alkóhólisma höfðu
þær gert sitthvað í sínum málum
og höfðu einnig átt góða að í
æsku. Allar höfðu sýnt mikinn
kjark til þess að breyta afstöðu
sinni og kringumstæðum. Það
eru margir aðrir sem hafa sams
konar reynslu en sem ekki hafa
megnað að nýta sér hana til góðs.
Það er von mín að þeir geti
kannski lært eitthvað af þessum
konum sem ég ræddi við.“
- Hefur þetta hugtak, með-
virkni, verið mikið gagnrýnt?
„Það hefur mest verið gagn-
rýnt af femínistum, sem sjá í því
ákveðna viðleitni til þess að sjúk-
dómsgera kvenlega eiginleika,
jafnvel eiginleika sem hingað til
hafa verið taldir bera vott um
kvenlegar dyggðir. Til dæmis
finnst þeim fráleitt að telja það
sjúklega áráttu að taka þarfir
annarra fram yfir sínar vegna
þess að sú hegðun sé undirstaða
þess að koma börnum á legg.
Bai-n myndi ekki lifa af nema
móðirin setti þarfir þess framar
sínum eigin. Femínistar hafa líka
gagnrýnt það að meðvirknihug-
takið geri maka og böm alkó-
hólista jafnábyrg fyrir ástandinu
og þá og finnst frá-
leitt að segja að þeir
séu veikir sem eru að
reyna að lifa af við
erfið skilyrði - að þau
skilyrði séu sjúk-
dómsgreind. Femínistar halda
því fram að í karlasamfélagi séu
börn alkóhólista leiksoppar að-
stæðna en séu ekki virkir ger-
endur. Niðurstaða mín er að erfið
tilfinningareynsla gerir fólk ekki
endilega veikara heldur getur
hún með góðum stuðningi gert
fólk hæfara í starfi og einkalífi."
Næmar
fyrir því
ósagða