Morgunblaðið - 23.01.1999, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 23. JANÚAR 1999 35
LISTIR
NEYTENDUR
Ókleifur
hljóðmúr
TÖJVLIST
Kaffileikhúsið
FRJÁLSDJASSTÓNLEIKAR
Andrew D’Angelo altósaxófónn og
bassaklarinett, Oskar Guðjónsson
sópran- og tenórsaxófónn, Eyþór
Gunnarsson píanó, Bryndís Halla
Gylfadóttir selló, Hilmar Jensson gít-
ar og Matthías MD Hemstock tromm-
ur og ásláttarhljóðfæri. Kerfill og
fleiri verk eftir Hilmar Jensson auk
smámuna eftir Andrew D’Angelo og
búlgörsku þjóðina. Fimmtudag 21.
janúar.
ÞAÐ er ekki ónýtt þegar djassárið
byrjai’ jafn vel og nú með tónagaldri
Andrews D’Angelo, Hilmars Jens-
sonar og félaga. Hilmar er iðinn við
kolann. Fyrir utan að kenna við Tón-
listarskóla FÍH sér hann um djass-
þátt á Rás 1 þar sem hann kynnir
ýmislegt forvitnilegt úr Prjóna-
smiðju New York-borgar og svo er
hann að sjálfsögðu á fullu í tónsköp-
un sinni. Að öðrum ólöstuðum má
segja að Hilmar hafi verið hvati
frjálsdjassspuna hérlendis síðasta
hálfa áratuginn - þar á undan var
svo sem enginn frjálsspuni innlendur
- en margir helstu frjálsdjassarar
heimsins heimsóttu Island. Má þar
nefna Art Ensembel of Chicago,
frelsissveit Charlie Haden með Don
Cherry innanborðs, Anthony
Braxton, Leo Smith og alla Evrópu-
búana með Peter Brötzmann og Ev-
an Parker í broddi fylkingar. Af inn-
lendum spiluðu Áskell Másson og
Pétur Grétarsson stundum frjálst
með gestum og þar með var sagan
öll.
Frjálsdjassarar hafa nokkrir leikið
á RúRek-djasshátíðinni. Pierre Dor-
ge bæði með Frumskógarsveit sinni
og tríói, Skúli Sverrisson kom hér
með Gregg Bendian, Biggan Krauss
og Jamie Saft og Hilmar Jensson
hefur leikið á RúRek með Tim Ber-
ne, Chris Speed, Jim Blake og
Andrew D’Angelo.
Tónleikar Andrews D’Angelo,
Hilmars, Kjartans Valdimarssonar
og Matthíasar MD Hemstock voru í
Leikhúskjallaranum í september
1995. Þeir voru ekki fjölsóttir og hinn
frjálsi djass átti þá heldur undir högg
að sækja hjá djassunnendum. Or-
nette Coleman og þeir frændur höfðu
farið framhjá þeim flestum - hvað þá
yngi'i menn. En nú er öldin önnur og
upp vaxin ný kynslóð sem sækir tón-
listai-viðburði af þessari ætt stíft.
Teknóið, rappið og ambíenttónlistin
koma þar til hjálpar, svo og nútíma
tónskáldatónlist og heimstónlist úr
öllum áttum. Menn einblína ekki
lengur á hljóma, laglínur og fjór-
skiptan takt, heldur skynja jafnt
hljóð sem hryn og skala úr fjarlæg-
um menningarheimi. Hvernig má
það líka vera að hin eina „sanna og
göfuga” tónlist veraldarinnar hafi
eingöngu verið sköpuð eftir evrópsk-
um formúlum af béunum þremur,
Mozai-t og öðrum útvöldum. Það er
eins og að halda að bókmenntir og
myndlist hafi hvergi risið í hæstu
hæðir utan „álfunnai’ einu“.
Tónleikarnir í kaffileikhúsinu
hófust á Andrew’s Ditty eftir D’Ang-
elo. Þetta er einfalt riff samið í sama
anda og strákarnir í Kansas City
gerðu á æskuárum Counts Basies.
Andrew blés í altóinn og Óskar ten-
órinn. Hilmar og Matti sáu um ryt-
mann. Þeir sem afgreitt hafa tónÚst
Hilmars og félaga sem ping-
pongdjass hefðu átt að vera þama.
Rytmísk spenna, sveifla nútímans,
var í hámarki og það sauð og bullaði
á söxunum. Þetta minnti mig helst á
senuna í Kansas City, kvikmynd Alt-
mans, þegar Joshua Redman og
James Carter þöndu sig sem mest.
Næst á dagskrá voru tvö verk eftir
Hilmar, Dofinn og Von, af Jazzís-
diski hans. Það fyrra er ljóðræn ball-
aða, en túlkun Andrews, er blés í
bassaklarinett, og Óskars á sópran-
inn leiddi hugann að Coltrane og
Dolphy, ólíkt því þegai’ Tim Beme og
Chris Speed blésu það á diskinum.
Von var enn ólíkari útgáfunni á disk-
inum. Hér var blásið í klassískum
frjálsdjassstíl af miklum krafti með
höggnum rytma. Sífelld sköpun. Síð-
asta lag fyrir hlé var búlgörsk al-
þýðuvísa sem þeir Andrew og Hilmar
túlkuðu af næmi.
Eftir hlé fjölgaði á sviðinu, því í
hóp frjálsdjassai’anna fjögurra bætt-
ust klassíski djasspíanistinn Eyþór
Gunnarsson og klassíski sellistinn
Bryndís Halla Gylfadóttir. Á efnis-
skránni var verk Hilmars, Kerfill,
fjörutíu mínútna langt. Þetta er
magnþrungið verk; ókleifur hljóðmúr
á stundum en svo allt í einu líður
fram konan einmana úr söngbók Or-
nette. Hér fóru sexmenningarnir á
kostum, enda nýbúnir að hljóðrita
verkið, og er réttast að bíða með
frekari umsögn þar til diskurinn birt-
ist. Eitt er þó víst að séu spunakafl-
arnir jafn vel heppnaðir og samspuni
Andrews og Óskars og Eyþórs og
Hilmars og hrynkrafturinn, sem
Bryndís Halla og Matthías mögnuðu
með Eyþóri og Hilmai’i, jafn grípandi
og í Kaífileikhúsinu eigum við von á
einhverjum besta frjálsdjassdiski
norrænum í langan tima.
I lokin léku þeir félagar Bryndís-
arlausir dittíið hans Andrews og mik-
ið var gaman að sóló Eyþórs Gunn-
arssonai-. Hann minnti mig að sumu
leyti á Art Tatum í Tatum pole
boogie. Þegar löngu línumar komu
og allir héldu að búgginn væri úr
sögunni skall hann hárrétt á. Þannig
lék Eyþór - þar skeikar aldrei hi’yn-
urinn.
Vernharður Linnet
Nýjar bækur
• AUÐUR úr iðrumjarðar - Saga
hitaveitna ogjarðhitanýtingar er eft-
ir Sveinn Þórðarson og er XII bindi í
Safni til iðnsögu
íslendinga.
í kynningu seg-
ir að þetta sé
fyrsta alþýðlega
yfirlitsritið um
sögu jarðhitanýt-
ingar á Islandi.
Fjallað er um
sambúð lands-
manna og jarðhit-
ans í tímans rás
allt frá laugarferð-
um fommanna til beislunar háhita-
svæða. Greint er frá rannsóknum,
jarðborunum og gerð hitaveitna um
land allt. Einnig er ijallað um hagnýt-
ingu jarðhita til þvotta, sundiðkunar,
ylræktar, iðnaðar og raforkufram-
leiðslu.
„Island er eldfjaUaeyja og oft hafa
jarðeldar valdið þjóðinni búsifjum.
Eldvirkni á sér þó bjartari hhðar.
Lengi var jarðhiti þó lítt nýttur og
þótti fremur til skaða en hlunnindi.
Eitt merkasta nýmæli nútímans er
hagnýting jarðhita sem orkugjafa. í
bókinni ber hæst sögu beislunar jarð-
hita til húsahitunar, en hún umbreytti
lífsháttum hjá stónnn hluta þjóðar í
eldsneytisvana landi, en fæstir leiða
hugann að þessum sjálfsagða hlut,
heita vatnið rennm’ hvort eð er úr
krananum. Hitaveitur og fram-
kvæmdir þeim tengdar munu er ft’am
líða stundir verða taldar með merkari
verklegum framkvæmdum á íslandi á
þessari öld. Jarðhitinn hefur sannar-
lega reynst „auður úr iðrum jarðar“.“
Mikill fjöldi mynda eykm’ og skýr-
ir efni bókarinnar, þær hafa fæstar
komið fyrir á prenti áður.
Utgefandi er Hið íslenska bók-
menntafélag. Bókin er 658 bls. Verð:
6.990 kr.
Nokkrar nýjar Hraðkaupsverslanir á árinu
Hraðkaup á Egilsstöðum
opnað um mánaðamótin
Á NÆSTU vikum verður Hraðkaups-
verslun opnuð á Egilsstöðum. Það er
þriðja verslunin með þvi nafni á lands-
byggðinni en Hraðkaup er í eigu
Baugs. Fyrir eru Hraðkaupsverslanh’
á Akureyri og í Borgamesi. Að sögn
Jóns Scheving, framkvæmdastjóra
þróunarsviðs hjá Baugi, er verið að
semja við eigendur verslunarhúsnæð-
isins á Akureyii um endurbætm- á
húsnæði verslunarinnar þar og hefj-
ast þær um mánaðamótin febrúar-
mai-s.
Fyrirhugað er að opna nokkrar nýj-
ar Hraðkaupsverslanir á þessu ári.
„Hraðkaup á Egilsstöðum verðm í
um 340 fermetra húsnæði að Mið-
vangi 1-3 á Egilsstöðum. Verslunar-
stjóri búðarinnar er Þorkell Hróar
Bjömsson, fyrrverandi starfsmaðm
matvömdeildar Hagkaups í Skeif-
unni.“
Jón segir að Hraðkaupskeðjunni sé
eingöngu ætlað að vera utan höfuð-
borgai’svæðisins. „Við leggjum allt
kapp á gott úrval ferskrar vöra og
veitum hraða og vinalega þjónustu.
Afgreiðslutími verslana er langm til
að tryggja góða þjónustu og búðimar
era einfaldar, bjai’tar og hreinar.“
Þrýstikönnur
geta verið vara-
samar ef notkun-
in er ekki rétt
NAUÐSYNLEGT er að fara eftir
leiðbeiningum þegar hellt er upp
á kaffi í þrýstikönnu eða
pressukönnu eins og þær eru
kallaðar.
Sé ekki hellt upp á kaffið eftir
kúnstarinnar reglum geta óhöpp
átt sér stað. Með slíkum könnum
fylgja yfírleitt nákvæmar leið-
beiningar en því miður eru þær
sjaldan þýddar á íslensku.
Samkvæmt upplýsingum frá
markaðsgæsludeild Löggilding-
arstofu hafa nokkrar ábendingar
borist um óhöpp sem orðið hafa
vegna rangrar notkunar slíkra
kanna. Slík óhöpp hafa orðið
með þeim hætti að sjóðandi heitt
vatn skvettist uppúr könnunum
þegar pressunni er þrýst niður.
Óruggasta aðferðin við að hella
upp á kaffi í þrýstikönnu er eftir-
farandi:
Seljið kaffiduft í botn þrýsti-
könnu. Hellið sjóðandi vatni í
könnuna svo rétt fljóti yfir kaff-
ið. Bíðið meðan kaffið tekur í sig
vatnið.
Hellið síðan heitu vatni í könn-
una, allt eftir því hversu mikið
kaffi á að laga. Látið vatnið og
kaffið samlagast með því að
hræra aðeins í því.
Látið lokið með pressunni á
könnuna og bíðið í nokkrar mín-
útur. Pressið varlega niður og
kaffið er þá tilbúið til drykkjar.
RISA
á Fosshálsi og því seljum við
allan lagerinn með aílt að
sunnudag kl. 12 -22
♦Columbia
Sportxwcar (imipanv*
—SþOltVÖRUáÚS
Fosshálsi 1 - Sími 577-5858