Morgunblaðið - 23.01.1999, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 23. JANÚAR 1999 55
Að njóta
trausts af
eigin verkum
Sigríður Ingileif Sigurbjömsdóttir
skrifstofumaður skrifar:
Miklu skiptir að
margir taki þátt í
prófkjöri Samfylk-
ingarinnar í
Reykjavík 30. janú-
ar nk. Sem trúverð-
ugur fulltrúi þeirr-
ar samhjálpar sem
Samfylkingin hefur
að meginmarkmiði,
er æskilegt að Al-
þýðubandalagið fái góða útkomu í
prófkjörinu.
Til þess að svo geti orðið þarf að
styðja frambjóðanda í 2. sæti í hólfi
Alþýðubandalagsins sem nýtur
trausts sem ótvíræður stuðnings-
maður samfylkingar.
Bryndís Hlöðversdóttir alþingis-
maður hefur um langan tíma barist
við hlið Margrétar Frímannsdóttur
fyrir hugsjónum samfylkingarinnar.
Hún þarf engan sérstakan stuðning
sér eldri karla úr heimi stjómmála-
manna til að njóta trausts. Fyrir þvi
stendur hún sjálf.
Til að tryggja glæsilega útkomu
bæði Samfylkingarinnar og Alþýðu-
bandalagsins í prófkjörinu styðjum
við því Bryndísi í 1. sæti.
Kjósum
Vilhjálm í
prófkjörinu
Haraldur Guðni Eiðsson
háskólanemi skrifar:
Eftir langan að-
draganda og nokkr-
ar fæðingarhríðir er
Samfylking félags-
hyggjuflokkanna
orðin að veruleika.
Nú gefst okkur
tækifæri á að velja
fulltrúa Samfylk-
Haraidur Guðni ingarinnar í próf-
Eíðsson kjöri hennar í
Reykjavík í lok janúar. Vilhjálmur H.
Vilhjálmsson háskólanemi hefur gef-
ið kost á sér í 3. sæti í hólfi Alþýðu-
bandalagsins og þar er komið tæki-
færi til að velja nýjan og kraftmikinn
mann í forystu þeirrar hreyfingar
sem í mótun er á vinstrikantinum.
Vilhjálm þekki ég mætavel úr
störfum okkar beggja í stúdentapóli-
tíkinni. Ég tók við af Villa sem for-
maður Stúdentaráðs og veit af eigin
reynslu að þar fer hörkumaður sem
gott er að fá í stjórnmálin. Ég vil
hvetja fólk til að veita Vilhjálmi
brautargengi og kjósa hann í próf-
kjörí Samfylkingarinnar. Nú sem
aldrei fyn- er þörf fyrir nýjar hug-
myndir og kraftmikið fólk og Villi er
verðugur fulltrúi okkar unga fólksins
á þeim vettvangi.
Arnbjörgu
áfram á
Alþingi!
Aðallieiður Borgþórsdóttir ferða- og
menningarmálafulltrúi, Seyðisfirði,
skrifar:
Þegar ég hugsa
til alþingiskonunn-
ar Arnbjargar
Sveinsdóttur þá
dettur mér í hug
lína úr ljóði Davíðs
Stefánssonar: „Hún
fer að engu óð, er
öllum mönnum góð
Aðalheiður og vinnur verk sín
Borgþórsdóttir hljóð.“ Arnbjörg
eða Abba eins og við köllum hana
vinnur verk sín hljóð og hefur m.a.
fengið ákúrur fyrir það. En það eru
ekki endilega þeir sem láta hæst sem
vinna best.
Austfirðingar, við þurfum konu
eins og Arnbjörgu til að koma mál-
efnum okkar örugglega í höfn.
Gleymum því ekki að hún hefur
mikla reynslu á sviði bæjar- og sveit-
arstjórnarmála og fjögurra ára
reynslu á þingi. Stöndum því saman
um að tryggja Arnbjörgu áfram setu
á Alþingi og kjósum hana í fyrsta
sæti á lista sjálfstæðismanna á Aust-
urlandi í prófkjörínu 23. janúar nk.
►Meira á Netinu
Þórunni á þing
Steinunn Valdfs Óskarsdóttir
borgarfulltrúi skrifar:
Dagana 5.-6.
febrúar næstkom-
andi gefst Reyknes-
ingum tældfæri á
að taka þátt í próf-
kjöri og velja for-
ystusveit Samfylk-
ingarinnar til næstu
fjögurra ára.
Steinunn Valdís Þórunn Svein-
Óskarsdóttir bjamardóttir, sem
býður sig fram í 3.-4. sætið, hefur
víðtæka reynslu af stjórnmálum,
m.a. sem kosningastjóri Reykjavík-
urlistans og varaþingkona Kvenna-
listans. Hún hefur einnig sinnt hjálp-
arstörfum erlendis fyrir Rauða
krossinn og samþætt reynsla af
stjómmálum og mannúðarstörfum
gerii- Þórunni að verðugum fulltrúa
á Alþingi.
Það skiptir máli að framboðslisti
Samfylkingarinnar á Reykjanesi
endurspegli reynslu og endurnýjun.
Ég vil því hvetja sem flesta til að
taka þátt í að velja sigurstranglegan
lista fyrir næstu Alþingiskosningar
og velja Þómnni í 3.-4. sætið.
►Meira á Netinu
Ólaf Björns-
son á þing
Gunnar H. Sigurðsson deildartækni-
fræðingur hjá Landsvirkjun skrifar:
Ólafur Bjömsson
hrl. frá Úthh'ð í
Biskupstungum
hefur ákveðið að
gefa kost á sér í 1.
tfl 3. sæti lista
Sjálfstæðisflokks-
ins á Suðurlandi.
Ólafur þekkir vel
Gunnar H. til í kjördæminu og
Sigurðsson veit gjörla hver
hagsmunamál þess era. Hann þekkir
af eigin raun þann veruleika sem ís-
lenskar bamafjölskyldm- búa við í
dag, hvernig það er að koma yfir sig
þaki og ala upp böm. Það hlýtur að
vera mjög mikilvægt fyrir stjóm-
málamann að þekkja til kjósenda
sinna og hver lífskjör þeirra era til
þess að mega vinna hagsmunum
þeirra brautargengi á hinu háa Al-
þingi.
Eg veit eftir ái-alöng kynni mín af
Ólafi að þarna fer óvenju duglegur
og kraftmikfll ungur maður sem hef-
ur þann styrk sem þarf til að leiða
lista sjálfstæðismanna á Suðurlandi.
Ég vfl því hvetja kjósendur á Suður-
landi tfl að setja Ólaf Bjömsson í
fyrsta sæti.
► Meira á Netinu
Eining um
trausta
forystu
Anna Karólína Vilhjálmsdóttir,
framkvæmdastjóri hjá
Iþróttasambandi fatlaðra, skrifar:
Samfylkingin á
Reykjanesi getur
náð árangri ef ein-
ing rfldr um foryst-
una. Ég tel Rann-
veigu Guðmunds-
dóttur réttu mann-
eskjuna til að leiða
þann lista.
Anna Karólína Sem þingflokks-
Vilhjálmsdóttir fonnanni jafnaðar-
manna tókst henni að þjappa fólki
saman eftir mjög erfitt átakatímabil
og er einn helsti baráttumaður sam-
fylkingarinnar. Hún hefur staðið af
sér harða pólitíska vinda og sýnt elju
og hörku þegar á þarf að halda. En
mfldlvægast nú, er að Rannveig er
persóna sem kann að umgangast fólk,
hlusta og _ sýna skoðunum annarra
virðingu. Ég treysti Rannveigu best
til að fá fólk til að vinna af krafti að
sameiginlegum baráttumálum, þrátt
fyrir ólíkan pólitískan bakgrunn.
Samstaða og traust er grundvall-
aratriði í baráttunni framundan. Ég
skora á fólk að tryggja Rannveigu
góða kosningu í efsta sæti í prófkjöri
Alþýðuflokksins á Reykjanesi og
stuðning í forystusveit Samfylking-
arinnai'.
Rannveigu
Guðmunds-
dóttur efsta!
ÓIi Hilmar Jónsson, arkitekt, skrifar:
Maður spurði
mann: „hvort
mundirðu vflja hafa
sólina eða tunglið?“
Hinn svaraði:
„Tunglið - það er
hvort sem er bjart
á daginn.“ Hætt er
við að honum hefði
ÓHHHmar brugðið ef honum
Jónsson hefði orðið að ósk
sinni.
Rannveig er eins og sólin. Hún
starfai- án strits. Hún er ekki kaldur
hnöttur með aragrúa af gemtungl-
um á sveimi eins og títt er í sólkerf-
um stjórnmálaheimsins. Þeir sem
ekki mæla lífshamingjuna í hluta-
bréfum og náttúrana í megavöttum
kjósa Rannveigu í efsta sætið á
Reykjanesi. Hún er vammlaus,
traust og jákvæð. Hún vill stuðla að
velferð allra, byggja upp atvinnu og
hlúa að fjölskyldunni. Hún er alltaf
tfl viðtals. Henni má treysta. Við
skulum sameinast um trausta for-
ystu!
Arnbjörg
Austurlandi
til heilla
Gunnþór Ingvason, bæjarfulltrúi á
Seyðisfirði, skrifar:
Ambjörg er
fædd og uppalin
hér austanlands í
nánum tengslum
við undirstöðuat-
vinnuvegi okkar.
Hún vann í fiski og
sinnti öðrum verka-
mannastörfum á
skólaáram sínum
eins og við gerum
flest hér eystra. Hún á að baki far-
sælan ferfl á vettvangi sveitar-
stjórna. Ofantalin atriði, auk þess
sem við þekkjum hana að dreng-
lyndi, prúðmennsku og dugnaði,
ættu að duga okkur til að sjá að hún
er góður málsvari okkar á Alþingi.
Ai’nbjörg er að ljúka sínu fyrsta
kjörtímabili sem þingmaður. A þess-
um tíma hefur henni verið treyst fyr- *'
ir fjölda mikilvægra verkefna á veg-
um þingsins. A framboðsfundum
hefur Arnbjörg sýnt að hún býr yfir
krafti, þekkingu og reynslu sem þarf
til að þjóna Austurlandi. Austfirðing-
ar, þar talaði stelpan í hópnum sem
sú sem valdið hefði, þar leyndu leið-
togahæfileikarnir sér ekki. Þama
talaði kona með reynslu, kraft og
áræði sem við Austfirðingar þurfum
svo sannarlega á að halda inn í 21.
öldina.
Austfirðingar, ég hef þá trú að
Arnbjörg sé sá fulltrúi sem við eig-
um að tryggja 1. sæti á lista Sjálf- *
stæðisflokksins í komandi kosning-
um.
I3ICMIEGA
Fólínsýra
Takist fyrir þungun
og á meðgöngu.
Fæst í næsta apóteki.
Gunnþór
Ingvason
Árni Þó
Nýtt forystuaf I
Árni Þór er nýtt forystuafl - málsvari þinn í þjóðfélagi jöfnuðar, ekki einkavina.
Hugsjón félagshyggjunnar:
Sjálfstæði, jöfnuður og réttlæti á nýrri öld
Leggjum okkar af mörkum til að tryggja að hugsjónir og viðhorf félagshyggju verði
hornsteinar í íslensku þjóðfélagi 21. aldar.
Auðlindir íslands í þágu þjóðarinnar
Stöndum vörð um náttúru landsins - tryggjum komandi kynslóðum arð af
auðlindum okkar.
Hugvit er dýrmætasta eign þjóðarinnar
Styrkjum stoðir menntunar, rannsókna og vfsinda á nýrri öld.
Kosningaskrifstofa Hafnarstræti 20, 3. hæð v/Lækjartorg, símar 562 4116, 562 4117, 562 4118, netfang aths@ismennt.is
;ri»
«