Morgunblaðið - 28.01.1999, Blaðsíða 58
MORGUNBLAÐIÐ
; 58 FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 1999
Dýraglens
HVe&N/6 Aið f>/)0 ve&t /U£> !//£>
etGO/U EKK/ GAF/HA6NS
ÆTTART/M-A? ÉG EB KIÚ HRTODOR U/M (>AD•'
Ljóska
Ég hef áhyggjur af
bróður þínum ... hann
hefur verið í slagtogi
við óæskilega náunga
að undanfömu
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Karlrembulegar álykt-
anir í Lesbókinni
Frá Sesselju Guðmundsdóttur:
í LESBÓK Morgunblaðsins 19. ds-
ember síðastliðinn var grein sem hét
„A Miklabæ svo margt til ber“ eftir
Ragnar Fjalar Lárusson en greinin
fjallar um Miklabæjar-Sólveigu og
séra Odd. Þar er að fínna svo gamal-
dags og karlrembulegar ályktanir að
mér hreinlega blöskraði. Hér koma
tvær tilvitnanir en leturbreytingar
eru mínar:
1. „Sr. Oddur tók við Miklabæ
vorið 1768 og innan húss réð ráðs-
konan Sólveig ríkjum. Engar sagnir
eru um það hve lengi hún dvaldi þar
og varla víst hvort hún var ráðskona
hans. En líklegt má það teljast. En
hitt er víst að fyrstu árin var prestur
ókvæntur og bjó með ráðskonu,
hvort ást hefír verið þar í meinum
eða ekki skal ekki fullyrt. Fremur er
hallast á þá sveif, að ráðskonan hafi
sóst eftir presti en hann haldið
henni frá sér. Hitt kann þó vel að
vera að ástarsamband hafi verið
milli þeirra og á því byggjast skáld-
sögur og leikrit.“
2. „... Hin unga prestsmaddama
tók nú við búsforráðum á Miklabæ
en Sólveig vai’ þar þó kyrr. Þykir
mér það fremur benda til þess að
Sólveig hafi verið hjú prestsins en
ástkona hans. Það má fullvíst telja
að hún hafi þá verið orðin sinnisveik
og var hún í gæslu af þeim sökum.
Hún komst þó úr gæslunni og farg-
aði sér.“
Hvernig í ósköpunum getur Ragn-
ar Fjalar „hallast á þá sveif ‘ að Sól-
veig hafi sóst eftir presti? Veit mað-
urinn ekki að prestarnir og sýslu-
mennirnir höfðu öll völdin á þessum
tímum? Vinnukonur (og ráðskonur)
höfðu engin völd, aðeins undirgefni.
Skyldi það nú vera að séra Oddur
hafi „haldið Sólveigu frá sér“!? Hefir
Ragnar Fjalar virkilega ekki lesið
um valdníðslu og ruddaskap prest-
anna sem uppi voru hér fyrr á öld-
um? Af hverju ætti að hvítþvo séra
Odd? Var hann ekki veiklundaður?
Hvað í ósköpunum bendir til þess
að úr því Sólveig stökk ekki burt
þegar prestur kom með eiginkonu að
Miklabæ að hún hafi eingöngu „verið
hjú prestsins en ekki ástkona"? Veit
Ragnar Fjalar ekki að það var ótrú-
lega algengt fyrrum að húsbóndinn
átti mök við tvær konur á sínu heim-
ili, eiginkonu og vinnukonu (að vísu
gátu prestamir falið það betur en al-
múginn enda valdamiklir)?
Og að lokum aðeins að „sinnis-
veiki“ Sólveigar. Ef Sólveig var að-
eins hæf sem hjásvæfa Odds en ekki
eiginkona var þá ekki líklegt að hún
yrði „sinnisveik" eftir slíka niður-
lægingu?
SESSELJA GUÐMUNDSDÓTTIR,
Urðarholti 5, Mosfellsbæ.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Nú gerast góðu kaupin best!
fm.mmðk kæliskápar - frystiskápar - frystikistur
Einnig verslunarkœlitœki
KÆLISKÁPAR - FRYSTISKÁPAR
I IVI ÞVOTTAVÉLAR - ÞURRKARAR - UPPÞVOTTAVÉLAR
ÞVOTTAVÉLAR - ÞURRKARAR - UPPÞVOTTAVÉLAR
AA Scenskar og sérstakar
NILFISK
RYKSUCUR - Allargerbir fóaniegar
ELDAVÉLAR - INNBYGCINCAROFNAR - HELLUR
ÖRBYLGJUOFNAR - BORÐOFNAR - RYKSUCUR
ÞILOFNAR - CASOFNAR - SMÁRAFTÆKi
ELDHÚSVIFTUR OC HÁFAR
KAFFIVÉLAR - KATLAR o.fl. smóraftœki
Orville sœlkerapopp fylgir öllum örbylgjuofnum
Heitt kaffi á könnunni og ís fyrir börnin
Útsalan stendur frá 25/1 til 6/2
FYRSTUR KEMUR FYRSTUR FÆR!
OPIÐ
Mánudaga - föstudaga
Laugard. 30/1 og 6/2
Sunnudag 31/1
9-18
10-18
13-18
FYRST OE FREMST.
í verði, gæðum ag þjúnustu
VrQnix
HÁTÚNI6A REYKJAVlK SÍMI 552 4420