Morgunblaðið - 28.01.1999, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 1999 49 ‘V*
Veljum Magn-
ús Ingólfsson
Kristján Jóhann Jónsson skrifar:
Það er mikill
fengur að því fyrir
samfylkingu vinstri
manna að Magnús
Ingólfsson skuli
gefa kost á sér í
prófkjöri. Það
skiptir jafnframt
meginmáli að Al-
þýðubandalagið
skuli nú reka af sér
slyðruorðið og bjóða fram óþreytt
fólk innan samfylkingar. Magnús
býr yfir ómældri þekkingu og
reynsíu í skólamálum. Hann hefur
kennt árum saman, starfað sem
trúnaðarmaður og er þaulkunnugur
kjaramálum kennara.
Skólamál eru eitt stærsta hags-
munamál samfélagsins. Þau eru að
vísu langtímamál ef svo mætti
segja, krefjast þrautseigju og upp-
byggingar, og hafa oft orðið að
gjalda þess. Stjórnmálamenn hafa
legið á því lúalaginu í skólamálum
að lofa öllu fögru en síðan hafa for-
eldrar og kennarar mátt leita eftir
efndunum eins og saumnál í hey-
stakki. Magnúsi Ingólfsyni er
treystandi til þess að láta ekki sitja
við orðin tóm þegar skólamál eru
annars vegar.
Eflum vinstri
hliðina,
kjósum
Árna Þór
Jón Yngvi Jóhannsson,
bókmenntafræðingur, skrifar:
Ef samfylkingin
á að ná raunveru-
legum árangri í
kosningunum í vor
verður vinstri hlið
hennar að vera
sterk. Til að
tryggja það þarf
Alþýðubandalagið
að leiða lista sam-
fylkingarinnar í
Reykjavík. Þess vegna þurfum við,
sem viljum að samfylkingin nái til
sem flestra, að taka sérstaklega á í
prófkjörinu 30. janúar til að tryggja
að talsmenn eindreginnar vinstri
stefnu verði þar í forystuhlutverk-
um.
Til að efla vinstri hlið samfylking-
arinnar þarf ekki síður að kjósa
trausta liðsmenn Alþýðubandalags-
ins til forystu. Þessa vegna styð ég
Árna Þór Sigurðsson og hvet aðra
til að gera slíkt hið sama. Leiðin til
að tryggja raunverulega breidd
samfylkingarinnai- og efla rödd trú-
verðugrar vinstri stefnu innan
hennar er að efla Árna Þór til for-
ystu og tryggja honum fyrsta sætið
í Reykjavík.
Vilhjálmur er
okkar maður
Harpa Hrönn Frankelsdóttir,
stjórnarmaður í Drífandi, félagi ungs
Alþýðubandalagsfóiks í Rvk. og
KR-ingur, skrifar:
Vilhjálmur H.
Vilhjálmsson gefur
kost á sér í 3. sæti
fyrir Alþýðubanda-
lag í prófkjöri
Samfylkingarinn-
ar. Vilhjálmur er
tvímælalaust fram-
bærilegasta þing-
mannsefnið úr röð-
um Verðandi, ung-
liðahreyfingar Alþýðubandalagsins.
Vinnubrögð Vilhjálms einkennast af
fádæma dugnaði og dirfsku. Hann
brýtur upp hefðbundna flokkshugs-
un og lætur ekki draga sig í gamlar
skotgrafir, heldur fylgir sinni sann-
færingu er lýtur að því hvernig hag
borgaranna sé best fyrir komið.
Eg tel nauðsynlegt að ungt fólk
gegni þingstörfum og beri með sér
ferska strauma nýrrar kynslóðar
sem krefst breytinga í þjóðfélaginu.
Nýrrar hugsunai- er þörf þar sem
huga þarf betur að kjörum og
starfsumhverfi ungs fólks, þannig
Harpa Hrönn
Frankelsdóttir
að við vöknum ekki upp við vondan
draum þar sem helstu vaxtarbrodd-
ar þjóðfélagsins hafa flust nauða-
flutningum á erlenda grund.
Reykvíkingar, stöndum saman
allir sem einn. Stuðlum að kjöri Vil-
hjálms á þing - þótt hann sé Þrótt-
ari!
►Meira á Netinu
Guðnýju í
forystu
Helga Sigrún Sigurjónsdóttir,
Sæviðarsundi 84, Reykjavík, skrifar:
Guðný Guð-
björnsdóttir á
brýnt erindi á
þingi. Verði fæð-
ingarorlofsfrum-
varp hennar að lög-
um ryður það úr
vegi einni stærstu
hindruninni fyrir
Heiga Sigrún jafnri stöðu kynj-
Sigurjónsdóttir ^ Fmmvarpið
gerir ráð fyrir 12 mánaða fæðingar-
orlofi, sem foreldrar geta skipt jafnt
með sér á fullum launum. Stofnaður
verður fæðingarorlofssjóður sem
allir atvinnurekendur greiða jafnt í,
þannig að byrðarnar deilast á alla.
Þannig er tryggður réttur feðra til
samveru með bömum sínum, réttui-
barna til tengslamyndunar við báða
foreldra og með jafnari ábyrgð mun
staða kvenna gjörbreytast á vinnu-
markaði. Guðný þarf að fylgja þessu
máli eftir ásamt öllum hinum góðu
málunum sínum. Ég skora á þig að
veita henni brautargengi með því að
taka þátt í prófkjöri Samfylkingar-
innar, setja x við Kvennalistann og
1 við Guðnýju.
Áfram,
Vilhjálmur
Hilmar Þór Guðmundsson,
Ijósmyndari, skrifar:
Alllengi hefur
ungt fólk beðið eft-
ir tækifæri til þess
að koma talsmanni
sínum að. Það er
því gleðiefni að sjá
nafn Vilhjálms H.
Vilhjálmssonar á
lista samfylkingar.
Á alþingi ætti að
vera þverskurður
þjóðarinnar. Hugsjónir og lífssýn
okkar fær talsmann með Villa enda
hefur hann raunhæfan möguleika á
að komast á alþingi okkar Islend-
inga. Með því að setja Villa í 3. sæti
G hólfs samfylkingar eigum við
ungt fólk okkar talsmann.
Mætum öll í prófkjörið.
Nýja strauma
á Alþing
Atli Bergmann, Álakvísl 38,
Reykjavík, skrifar:
Heimir Már Pét-
ursson hefur heitið
því að berjast fyrir
félagslegu réttlæti
og leggur áherslu á
jöfn tækifæri til
menntunar. Menn-
ingarlífíð mun án
efa einnig eignast
öflugan liðsmann í
ljóðskáldinu og
textahöfundinum Heimi Má Péturs-
syni. Hann er fulltrúi ungu kynslóð-
arinnar og ekki síst þess vegna er
nauðsynlegt að honum verði tryggt
öruggt sæti í prófkjöri Samfylking-
arinnar á laugardag. Þetta er sú
kynslóð sem er að breyta stjórn-
málalífinu á Islandi, kynslóðin sem
þorir að tala hreint út um hlutina og
gerir kröfu um heiðarlega og mál-
efnalega pólitík. Heimir Már er
maður sem þorir.
Atlí
Bergmann
Styðjum Huldu
Ólafsdóttur!
Hildigunnur Bjarnadóttir
félagsráðgjafi skrifar:
Þegar kjósa skal
fólk til starfa á Al-
þingi viljum við
fólk sem við treyst-
um og sem lætur
sig velferð almenn-
ings varða. Við vilj-
um fólk sem tekur
sjálfstæða og
Hiidignnnur ábyrga afstöðu til
Bjarnadóttir mála_ ójafs.
dóttir, sem tekur þátt í prófkjöri
Samfylkingarinnar í Reykjavík, er
sú kona sem Reykvíkingar ættu að
sameinast um og kjósa á þing.
Hulda hefur alla þá kosti sem prýða
þarf góðan þingmann. Hún er rétt-
sýn, ákveðin og fylgin sér. Hún hef-
ur góða þekkingu á heilbrigðis-,
mennta- og atvinnumálum. Hulda
hefur látið sig varða vinnuumhverfi
hinna ýmsu starfsstétta. Hún hefur
í gegnum atvinnumálanefnd
Reykjavíkurborgar unnið að því að
auka tækifæri kvenna á vinnumark-
aði. Hulda hefur verið í framvarða-
sveit Kvennalistans frá upphafi. Nú
er mikilvægt að við tryggjum Huldu
öruggt sæti á lista Samfylkingar-
innar.
Bíðið ekki
lengur
Helgi Guðmundsson, rithöfundur
og fyrrverandi ritstjóri Þjóðviljans,
skrifar:
Fylgjendur Al-
þýðubandalagsins í
borginni verða að
fjölmenna í próf-
kjörið, ella blasir
sú hætta við að
Samfylkingin rísi
ekki undir nafni,
verði lítið annað en
Alþýðuflokkui'inn,
með nýjum liðs-
mönnum. Stuðningsmenn Alþýðu-
bandalagsins eiga líka kost á fram-
úrskarandi manni í 1. sætið, þar
sem Árni Þór Sigurðsson, aðstoðar-
maður borgarstjóra, er. Ég kynntist
honum árið 1991. Hann sagði þá
lausri tryggri stöðu sinni í sam-
gönguráðuneytinu og gekk til liðs
við okkur, sem þá rérum lífróður til
bjargar Þjóðviljanum. Hann reynd-
ist dugandi blaðamaður og stjórn-
andi.
Árni Þór Sigurðsson hefur
margra ára reynslu af að vinna á
samfylkingargrundvelli, þar sem
fjórir flokkar mynda R-listann. Slík
reynsla er afar dýrmæt þeim sem
takast á hendur það hlutverk að
leiða Samfylkinguna í alþingiskosn-
ingunum í vor.
Bryndís er
framtiðar-
leiðtogi
Vilhjálmur Þorsteinsson, Einarsnesi 8,
skrifar:
í prófkjöri Sam-
fylkingarinnar 30.
janúar verður at-
kvæðaseðillinn
„hólfaður", þannig
að kjósandi velur
fyrst flokk og síðan
fjóra frambjóðend-
ur á vegum þess
flokks. Því miður
er með þessari að-
ferð erfitt að raða saman „óskalist-
anum“. Ef ég mætti velja „óska-
lista“ óháð flokkshólfum setti ég
Bryndísi Hlöðversdóttur alþingis-
mann í fyrsta sæti. Bryndís er fyrst
og fremst nútímalegur lýðræðis-
jafnaðarmaður, bráðskörp, dugleg
og fylgin sér. Hún hefur hinn hár-
VUbjálmur
Þorsteinsson
Helgi
Guðmundsson
fína og nauðsynlega skilning á jafn-
væginu milli markmiða okkar um
frelsi, jafnrétti og bræðralag. Þetta
jafnvægi greinir gegnheilan jafnað-
armann frá hvoru tveggja: tals-
mönnum hugsjónalausrar henti-
stefnu og boðberum ábyrgðarleysis
og óraunsæis. Bryndísi treysti ég
manna best sem framtíðarleiðtoga í
hreyfingu íslenskra jafnaðarmanna.
Heimi Má
í 2. sæti
Harpa H. Frankelsdóttir í stjórn
Drífanda, félags ungs Alþýðubanda-
lagsfólks í Reykjavfk, skrifar:
Einn af vænlegri
kostum í prófkjöri
samfylkingarinnar
í Reykjavík er
Heimir Már Pét-
ursson, en hann
hefur á seinustu ár-
um unnið ötullega
að sameiningu fé-
rZLldóuir lagshyggjuaflanna
sem íramkvæmda-
stjóri Alþýðubandalagsins. Samein-
ing vinstri manna hefur lengi verið
hugleikin Heimi og var hann einn af
frumkvöðlum að stofnun Röskvu í
Háskólanum.
Upplýsingaskylda við almenning
og aðhald með stjórnvöldum hafa
leikið stórt hlutverk í lífi Heimis
Más sem fulltrúa „fjórða valdsins".
Fréttamennskan hefur einnig gefið
honum víðfeðma þekkingu á lands-
málapólitík sem ásamt reynslunni
sem framkvæmdastjóri Alþýðu-
bandalagsins er ómetanleg undir-
staða þingstarfa. Heimir er traust-
ur og skeleggur málsvari jafnaðar-
manna; maður sem ver hagsmuni
þína gegn sérhagsmunahyggju
íhaldsins. Veljum heilsteyptan og
heiðarlegan mann til hagsmuna-
gæslu. Veljum Heimi Má í prófkjör-
inu.
Öryrkjar -
Kjósum Arnór
Jóhannes Þór Guðbjartsson,
framkvæmdastjóri Sjálfsbjargar
á höfuðborgarsvæðinu, skrifar:
Ef þú nýtir ekki
kosningarétt þinn
þá gerir einhver
annar það? Þetta
er sýnt í sjónvarp-
inu sem áminning
til kvenna um að
nýta kosningarétt
sinn, en ég vil
einnig beina þessu
til öryrkja og
minna þá á að nú er tækifærið.
Arnór Pétursson slasaðist í
bílslysi 13.1. 1971 og hefur síðan
verið bundinn við hjólastól. Hann
hefur starfað sem fulltrúi hjá
Tryggingastofnun ríkisins frá því í
júlí 1974. Amór hefur unnið að fé-
lagsmálum fatlaðra í mörg ár og
verið þai- í trúnaðarstörfum.
Ég skora á öryrkja og aðstand-
endur þeirra að standa saman og
kjósa Arnór Pétursson í prófkjöri
Samfylkingarinnar og tryggja
þannig að fulltrúi sem kemur úr
þeirra eigin röðum verði á Alþingi
því hver er betur til þess fallinn en
sá sem þekkir málefnið af eigin
raun?
Jóhannes Þór
Guðbjartsson
Þórunn
til forystu!
Aagot Árnadóttir, Dalatanga 16,
Mosfellsbæ, skrifar:
PRÓFKJÖR ________
Samfylkingar í
Reykjanesi verður
5. og 6. febr. Að-
dragandinn var
strangur, en nú er
unnið ötullega að
því að mynda
sterkan lista.
í forystusveit
Kvennalistans á
Reykjanesi er Þórunn Sveinbjarn-
ardóttir, stjórnmálafræðingur, sem
stefnir á 3.-4. sæti. Þessi unga kona
hefur sérstöðu hvað varðar mennt-
un og fjölbreytta starfsreynslu
heima og erlendis. Hún er þraut-
reynd í félagsmálum, var t.d. fyrsti
formaður Röskvu og hefur gegnt
mikilvægum trúnaðarstörfum fyrir
Kvennalistann.
Þórunn hefur unnið með fólki úr
ýmsum geirum stjórnmála og er
gædd þeirri bjartsýni og kjarki sem
til þarf í starfinu framundan. Hún
er glæsilegur fulltrúi ungu kynslóð-
arinnar, ekki síst ungra kvenna,
sem stefna að jafnrétti kynjanna og
bættum hag landsmanna. Samfylk-
ingarfólk - tryggjum Þórunni góða
kosningu!
Aagot
Árnadóttir
Tryggjum
Alþýðubanda
laginu
öruggan hlut
Sigþrúður
Gunnarsdóttir
Sigþrúður Gunnarsdóttir, formaður
kjördæmisráðs Alþýðubandalags-
félaganna íReykjavík, skrifar:
I prófkjöri Sam-
fylkingarinnar í
Reykjavík 30. janú-
ar veljum við ein-^i
staklinga til for-
ystu í hinu nýja
afli. Um leið má
hafa áhrif á stefnu
framboðsins með
því að styðja einn
af flokkunum sem
að því standa, sem ræður því hve
marga fulltrúa í forystusveitinni
hann fær.
Fyrir fjölmarga kjósendur Al-
þýðubandalagsins til margi-a ára
skiptir verulegu máli hvemig út-
komu flokkurinn fær í prófkjörinu,
og kann að ráða því hvort þeir
styðja Samfylkinguna í vor eða
ekki. Því er mikilvægt að sem flestir
kjósi í hólfi Alþýðubandalagsins og
tryggi þannig að rödd róttækrar fé-
lagshyggju og jafnaðar heyrist vel í
nýju hreyfingunni. Það skiptir máli
þegar að kosningum kemur í vor.
PCI lím og fuguefi 1 —| 1 íi
L >. k
1
JE L JjL Stórböfða 17, við GuUinbr sími 567 4844 6,
HOTEL SKJALDBREIÐ, LAUGAVEGI 16
VETRARTILBOÐ
NÝTT HÓTEL Á BESTA
STAÐ I MIÐBORGINNI
VerðJrd kr. 2.700 d mann i 2ju manna herbergi.
Morgunverðarhlaðborð innifolið.
Frir dryhkur d veitingahúsinu Vegamótum.
Sími 511 6060, fax 511 6070
www.eyjar.is/skjaldbreid
mbl.is mbl.is mbl.is mbl.is mbl.is mbl.is mbl.is mbl.is mbl.is mbl.is mbl.is mbl.is mbl.is