Morgunblaðið - 10.02.1999, Page 14
14 MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Hreinsson fararstjóri sagði að ekki
hefði snjóað á því svæði og skíða-
færi væri gott, en öðru máli gegndi
um suðurhluta Þýskalands og
Austurríki. „Fannfergið hefur
valdið skaða, manntjóni og
skemmdum á mannvirkjum. Þeir
sem eru að renna sér á skíðum í
Austurríki eru á kafi í snjó,“ segir
hann. Halldór kvað hópa á vegum
ferðaskrifstofunnar og Úrvals-Út-
sýnar hafa orðið iýrir talsverðum
töfum á leiðinni, bæði frá skíða-
svæðinu að flugvellinum í Miinchen
og þaðan til flugvallarins.
„Menn eru að rekast saman í
hálkunni, auk þess sem tré hafa
brotnað niður. Áhrif óveðursins
hafa því verið mikil. Þessar um-
ferðarstíflur hafa sérstaklega verið
slæmar á austurrísku vegunum og
hópamir sem vom á leið heim vora
um 12 tíma á leiðinni. Hópamir
sem vora að koma töfðust einnig
talsvert,“ segir hann.
Hilmar Björnsson fararstjóri
sem annast hóp Islendinga á veg-
um ferðaskrifstofunnar Urvals-Út-
sýnar í bænum Val di Fassa, tók í
sama streng, sagði snjókomuna
endalausa en ekki væri þó sama
fannfergi og í Austurríki og Sviss.
Hins vegar hefðu spár bent til að
veður gæti orðið tvísýnna á þessum
slóðum. „Hér era um tveir flug-
farmar af íslendingum, eða á milli
200 og 300 manns, sem hafa aðal-
lega orðið fýrir töfum á ferðum sín-
um, en ekki lent í neinum óhöpp-
um,“ segir hann.
Miklir hvellir
og sprengingar
Theódór Sólonsson var staddur,
ásamt tuttugu og tveimur Islend-
ingum sem ferðast undir nafninu
SIS-Reisen, i bænum Serfaus í
Austurríki þegar Morgunblaðið
náði tali af honum í gær. Fleiri Is-
lendingar era væntanlegir þangað
næsta laugardag.
„Síðan við komum á laugardag-
inn er búið að kyngja niður snjó og
heimamenn tala um að ekki hafí
snjóað svona mikið í fjölda ára.
Frostið er á milli 11 og 12 gráður. I
allan morgun hafa menn sprengt
snjóhengjur umhverfis okkur. Við
sjáum ekkert en við heyrum mikla
hvelli og sprengingar og sumar
lyftur hafa verið lokaðar vegna
snjóflóðahættu,“ segir hann. „Við
höfum samt sem áður farið á skíði
og vel hefur farið um okkur.“
Mikil snjóflóðahætta í Sviss og Austurríki
Hættulegur snjór á þökum
um Islendinga
Guðrún Berner-Vemharðsdóttir
kveðst aldrei hafa upplifað aðra
eins snjókomu síðan hún fluttist til
Göschenen, norðan við Gotthard-
göngin í hjarta svissnesku
Alpanna, fyrir 15 árum. „Það er
rosalega mikill snjór,“ sagði hún í
gærmorgun. „Þvottasnúrastang-
imar fýrir utan gluggann hjá mér
era að fara í kaf og þær eru öragg-
lega tveggja metra háar.“
Það er vetrarfrí í þorpinu en
bömin geta ekki verið úti að leika
sér. „Það er svo mikill snjór á hús-
þökum að hættulegt getur verið að
verða fýrir honum þegar hann
hrynur niður.“
Snjóflóð féll við Göschenen árið
1974 og hafði alvarlegar afleiðingar
í fór með sér. „Margir óttast að það
endurtaki sig núna,“ sagði Guðrún.
„Búið er að flytja fólk úr húsum í
fjalladalnum. Skyggnið er svo
slæmt að það er ekki vitað hversu
mikill snjór hefur safnast saman
þar fýrir ofan. En fólk vonar það
besta. Flestir hér eru kaþólskir og
margir þeirra hafa kveikt á sér-
stökum snjóflóðakertum. Þau eiga
að forða þeim og þeirra frá snjó-
flóðum."
Fólk hefur einnig verið flutt úr
húsum á ýmsum stöðum í Bem-
Reuters
SNJÓSKAFLAR hreinsaðir af götum Ziirich, en þar snjóaði mikið í gær eins og seinustu daga. Slæmt veð-
ur, fannfergi og snjókoma ásamt snjóflóðum, olli öngþveiti víða á meginlandi Evrópu um seinustu helgi og
hefur áhrifanna einnig gætt seinustu daga.
Ölpunum. Anna Birna Furrer-
Michelsen býr í Interlaken.
„Ástandið er ekki slæmt héma
niðri á láglendinu en það er alvar-
legt í fjöllunum fyrir ofan.“
Leiðinni til Grindelwald frá
Interlaken var lokað um miðjan
dag í gær og einnig til Murren.
Fólk komst til Wengen en allar
skíðalyftur þar fyrir ofan voru lok-
aðar. Þessi þorp era helstu skíða-
staðir Bem-Alpanna. Peter
Wengen, talsmaður Jungfrauba-
hnen, sem rekur lestir og lyftur á
svæðinu, sagðist ekki muna eftir
öðru eins ástandi í þau þrjátíu ár
sem hann hefur starfað hjá lestar-
félaginu.
„Snjónum kyngir niður,“ sagði
hann. „Það er ekki hægt að hafast
neitt að vegna snjókomu. Við get-
um ekkert gert nema beðið og von-
að það besta.“
Skíðafærið var gott og lyftumar
gengu í Lech í Austurríki í gær.
„Snjórinn í þorpinu er þriggja
metra djúpur," sagði Armin
Eckart, ferðamálastjóri. „Hér ríkir
rómantískt andrúmsloft. En leiðin
hingað uppeftir er lokuð og það er
auðvitað slæmt fyi-ir þá sem þurfa
að komast leiðar sinnar."
I bænum Madonna di Campiglio
í ítölsku Ölpunum er staddur um
fjörutíu manna hópur frá Sam-
vinnuferðum-Landsýn. Halldór
Ekki væsir
Zttrích. Morgunblaðið.
SNJÓ kyngdi niður í svissnesku
Ölpunum og í vesturhluta Austur-
rílds í gær og alla fyrrinótt. Leiðin
til Lech í Vorarlberg er lokuð og
svipaða sögu er að segja af mörg-
um stöðum í Sviss. Hraðbrautinni á
Göschenen var lokað seinni partinn
á þriðjudag. Hætta á snjóflóðum er
mikil. Ekki væsti um þá íslendinga
sem Morgunblaðið hafði spurnir af
í austurrísku og ítölsku Ölpunum í
gær.
Hjón fórust í snjóflóði fyrir ofan
Wengen í Bern-Ölpunum aðfara-
nótt mánudags og ungur Þjóðverji
varð úti á sunnudag. Þá hrifsaði
snjóflóð með sér nokkur mannlaus
hús í kantónunni Wallis aðfaranótt
þriðjudags. Snjókomu var spáð
áfram fram á miðvikudag.
Nýr stjórnarformaður íshúsfélags fsfírðinga hf.
Fyrirtækið verður
áfram í fiskvinnslu
NÝR stjórnarformaður íshúsfé-
lags ísfirðinga hf., Guðni Geir Jó-
hannesson, segir að framundan
sé að breyta rekstri félagsins til
að snúa tapi í hagnað en hann
leggur áherslu á að fyrirtækið
muni starfa áfram að bolfisk-
vinnslu. Nýja stjórnin vinnur nú
að úttekt á stöðu fyrirtækisins
með fulltrúum viðskiptabanka
þess, sem er íslandsbanki, og
fleiri ráðgjöfum.
Guðni Geir kvaðst ekki reiðubú-
inn að tjá sig um taprekstur und-
anfarinna ára, sagði tap einnig
hafa verið á síðasta ári en minna
en árin áður og nú væri ætlunin að
snúa þessu við. Hjá íshúsfélagi ís-
firðinga starfa um 100 manns og
sagði Guðni fyrirtækið mikilvægt
starfsmönnum, eigendum og bæj-
arfélaginu og það yrði áfram í
rekstri.
í aðalstjórn Ishúsfélagsins sátu
Magnús Reynir Guðmundsson,
sem var stjórnarformaður, Gunn-
ar Þórðarson og Jón Kristmanns-
son. Töldu fulltrúar eigenda rétt
að þeir vikju úr stjórn m.a. vegna
þess að þeir hafa einnig starfað
hjá félaginu og staðfesti Guðni
þetta í samtali við Morgunblaðið í
gær. Sagði hann eigendur ekki
hafa fundið að störfum þeirra en
ekki talið rétt að þeir sætu bæði í
stjórn og væru starfsmenn, væru
beggja vegna borðs, nú þegar
taka þyrfti ákvarðanir um fram-
tíðarrekstur fyrirtækisins. Ásamt
Guðna í stjórn eru Jón Ólafur
Þórðarson og Kristján G. Jó-
hannsson.
Á liðnu hausti fjárfesti Ishúsfé-
lagið í rækjuvinnslubúnaði sem
hefur þó ekki verið tekinn í notkun
ennþá, m.a. vegna óvissu á rækju-
mörkuðum. Einnig hefði verið til
umræðu að ganga til samstarfs við
Hraðfrystihúsið hf. 1 Hnlfsdal.
Sagði Guðni bæði þessi mál vera í
sérstakri skoðun og væru þau í
raun óháð þeim aðgerðum sem
gera yrði hjá Ishúsfélaginu varð-
andi fiskvinnsluna. Hann sagði
ráðgjafa koma vestur til viðræðna
næstu daga og leggja fram hug-
myndir sínar og væri ekki unnt að
greina nánar frá málinu fyrr en
þær lægju fyrir og stjórnin hefði
fjallað um þær.
Björgvin Bjamason, fram-
kvæmdastjóri íshúsfélagsins, hef-
ur sagt starfi sínu lausu eins og
fram kom í Morgunblaðinu í gær
og sagði Guðni hann hafa gert það
fyrir nokkru. Engin ákvörðun hef-
ur verið tekin um eftinnann hans.
Hráefni frá Stefni og
llskmörkuðuni
íshúsfélag ísfirðinga hf. er nú í
eigu útgerðarfélagsins Gunnvarar
sem gerir út frystitogarann Júlíus
Geirmundsson. Framkvæmda-
stjóri þess er Kristján G. Jóhanns-
son, einn hinna nýu aðalstjórnar-
manna hjá Ishúsfélaginu. Áður átti
útgerðarfélagið Hrönn einnig stór-
an hlut í íshúsfélaginu, en í eigu
Hrannar var m.a. Guðbjörgin.
Báðir þessir togarar lögðu upp hjá
íshúsfélaginu á árum áður meðan
þeir voru ísfisktogarar. I dag gerir
Ishúsfélagið út togarann Stefni,
sem áður hét Gyllir og var gerður
út frá Flateyri, og leggur hann
upp afla sinn hjá Ishúsfélaginu. Þá
kaupir fyrirtækið hráefni á mörk-
uðum og hefur einnig unnið Rússa-
fisk.
Samfylkingin á Vesturlandi
Prófkjörs-
reglum hafnað
ÁGREININGUR er um prófkjörs-
reglur Samfylkingar á Vesturlandi.
Alþýðuflokkurinn, eða a.m.k. hluti
hans, hefur hafnað þeim reglum
sem samþykktar höfðu verið í sam-
eiginlegri nefnd flokkanna sem
standa að Samfylkingunni. Unnið er
að því að miðla málum og er stefnt
að niðurstöðu í vikunni. Stefnt var
að því að halda prófkjör 20. febrúar,
en reiknað er með að því verði
frestað.
Prófkjörsreglurnar gerðu ráð
fyrir að kjósendur mættu aðeins
merkja við einn frambjóðanda frá
hverjum flokki, þ.e. Alþýðuflokki,
Alþýðubandalagi og Kvennalista.
Þó nægði að aðeins væri merkt við
einn frambjóðanda. Þessar reglur
voru samþykktar samhljóða í fram-
boðsnefnd flokkanna. Einn af þrem-
ur fulltrúum Alþýðuflokksins í
nefndinni sat hjá, en bæði formaður
og varaformaður kjördæmisráðs
flokksins greiddu tillögunni atkvæði
sitt.
Þrír stefna á fyrsta sætið
Fyrirfram er reiknað með að
Gísli Einarsson, alþingismaður Al-
þýðuflokksins, Jóhann Ásælsson,
fýrrverandi alþingismaður Alþýðu-
bandalagsins, og Hóhnfríður
Sveinsdóttir, stjórnmálafræðingur
og alþýðuflokksmaður, berjist um
fýrsta sæti listans. Að baki ágrein-
ingsins um prófkjörsreglurnar
liggja m.a byggðasjónarmið, en
bæði Gísli og Jóhann eru frá Akra-
nesi, en Hólmfríður er frá Borgar-
nesi. Einnig má búast við að fylgi
Alþýðuflokksins dreifist að ein-
hverju leyti milli Gísla og Hólmfríð-
ar, sem væntanlega ætti að auka
möguleika Jóhanns á að ná íýrsta
sætinu.
Gísli hefur lýst efasemdum sínum
um ágæti reglanna, en Hólmfríður
sagði í samtali við Morgunblaðið að
hún sætti sig við reglumar eins og
þær væra. Hún sagði að byggða-
sjónarmið væru meginskýringin á
þessum ágreiningi. Formaður og
varaformaður kjördæmisráðs Al-
þýðuflokksins, sem era frá Stykkis-
hólmi og Borgarnesi, hefðu sam-
þykkt reglumar, en þriðji fulltrúi
Alþýðuflokksins í framboðsnefnd-
inn og sá sem sat hjá í nefndinni, er
frá Akranesi. Hólmfríður kvaðst
vonast eftir að þessi ágreiningur
yrði jafnaður í þessari viku.