Morgunblaðið - 10.02.1999, Blaðsíða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Lvfjabúð Háskóla íslands
Rekstri Reykjavíkur
Apóteks hætt
STJÓRN Lyfjabúðar Háskóla ís-
lands hefur með samþykki Háskóla-
ráðs ákveðið að hætta rekstri
Reykjavíkur Apóteks frá 31. mars
næstkomandi.
I fréttatilkynningu frá stjórn
Lyfjabúðarinnar segir að vegna
breyttra aðstæðna á lyfjamarkaði á
undanfórnum árum sé Háskóli ís-
lands ekki heppilegur aðili til þess
að reka fyrirtæki á slíkum markaði.
A fyrri hluta ársins 1998 var
rekstur Reykjavíkur Apóteks boð-
inn til sölu og boðið upp á þann
möguleika að nýr rekstraraðili fengi
iangtíma leigusamnig vegna hús-
Storebrand
býður„ekki
nógu hátt“
Ósi(í. Reuters.
STJÓRN Finansbankens í
Ósló segir að 40 norskra króna
tilboð á hlut Storebrand trygg-
ingafélagsins í bankann sé ekki
nógu hátt, en mælir með því að
hluthafar samþykld það, ef
hærri boð berist ekki.
Finansbanken kvaðst hins
vegar ekkert hafa á móti
stefnumótandi áætlunum á bak
við tilboð Storebrand. Sam-
kvæmt tilboði Storebrand er
Finansbanken metinn á 1,6
milljarða norskra króna, 14,4
milljarða íslenskra króna.
næðis apóteksins. Samkvæmt til-
kynningunni bárust engin gild til-
boð og því er ekki um annað að
ræða en að hætta rekstri Reykja-
víkur Apóteks, segir í tilkynning-
unni.
Óhagkvæmt húsnæði
„Það er því miður staðreynd að
húsnæði Reykjavíkur Apóteks í
Austurstræti 16 hentar ekki fyrir
rekstur apóteks í dag. Húsnæðið er
mjög óhagkvæmt og friðun innrétt-
ingar hefur þau áhrif að mjög erfítt
er að hagræða í rekstrinum eins og
nauðsynlegt væri. Af þessum sökum
er ekki lengur grundvöllur fyrir
rekstri Reykjavíkur Apóteks,“ segir
í tilkynningunni.
Erfiður rekstur
Ingjaldur Hannibalsson, formað-
ur stjórnar Lyfjabúðar Háskóla Is-
lands, segir að rekstur apóteksins
hafi verið erfiður á undanförnum
árum og staðsetning apóteksins sé
ekki lengur góð. „Það eru fáir íbúar
í miðbænum og ekki margir læknar
með skrifstofu í grenndinni auk
þess sem bílastæðavandamál eru
fyrir hendi,“ sagði Ingjaldur.
Háskóli íslands tók við rekstri
apóteksins árið 1982 og keypti síðan
húsnæði þess árið 1995. Um síðustu
áramót seldi Háskólinn fyrirtækinu
Kirkjuhvoli húseignina.
Reykjavíkur Apótek er elsta fyr-
irtæki landsins, það var stofnað árið
1760 sem Nesapótek en fiuttist síð-
an til Reykjavíkur árið 1823.
Apótekið hefur verið til húsa í
Austurstræti 16 í um 70 ár.
Auglýsing þessi er eingöngu birt í upplýsingaskyni.
Skráning þingvíxla
Kaupþings hf. á
Verðbréfaþing íslands
Veröbréfaþing íslands hefur samþykkt að
taka þingvíxla Kaupþings hf. á skrá. Bréfin
verða skráð mánudaginn 15. febrúar nk.
Skráningarlýsingu er hægt að fá hjá umsjónaraðila
skráningarinnar, Kaupþingi hf. Þar er einnig hægt að
nálgast þau gögn sem vitnað er til í skráningarlýs-
ingunum.
KAUPÞING HF
Fjárfestingarbanki
Ármúla 13A, 108 Reykjavík
Sími 5151500, fax 5151509
S
Hagnaður Þróunarfélags Islands 492 m.kr. árið 1998
Mesti hagnaður
í sögu félagsins
Þróunarfélag Islands hf.
Úr ársreikningi 1998
Rekstrarliðir Milljónir króna 1998 1997 Breyting
Fjármunatekjur Fjármagnsgjöld 706,0 31,8 685,4 44,1 +3,0% ■27.9%
Hreinar fjármunatekjur Rekstrargjöld 674,3 25,5 641,3 26.0 +5,1% ■1.9%
Hagnaður f. skatta Reiknaðir skattar 648,8 156.6 615,3 183,0 +5,4% ■14.4%
Hagnaður ársins 492,2 432,3 +13,8%
Efnahagsiiðir 31/12'98 31/12'97 Breyting
| Eignir: | Milliónir króna
Fastafjármunir 29,5 30,7 ■4,1%
Hlutabréf 2.422,8 1.791,1 +35,3%
Aðrir veltufjármunir 582.4 499.5 +16.6%
Eigniralls 3.034,7 2.321,3 +30.7%
| Skuldir og eigið fé: |
Eigið fé 2.339,2 1.922,6 +21,7%
Tekjuskattsskuldbinding 466,0 313,9 +48,4%
Skuldir 229,5 84.8 +170.7%
Skuldir og eigið fé alls 3.034,7 2.321,3 +30,7%
Sióðstrevmi og kennitölur 1998 1997 Breyting
Eiginfjárhlutfall 77% 83%
Arðsemi eigin fjár 26% 28%
Innra virði 2,13 1,73
Veltufé frá rekstri Milljónir króna 677,2 647,0 +4,7%
Handbært fé frá rekstri -68,8 185,3 ■
ÞRÓUNARFÉLAG íslands hf. skil-
aði 649 milijóna króna hagnaði fyrir
skatta á síðasta ári, en 492 m.kr.
hagnaði þegar tekið hefur verið tillit
til 157 m.kr. skatta. Hagnaður ársins
er 16% meiri en árið þar á undan
þegar hann nam 425 m.kr.
Andri Teitsson, framkvæmda-
stjóri félagsins, kveðst mjög ánægð-
ur með útkomuna. Hagnaðurinn sé
sá mesti sem félagið hafí náð og
1998 er þriðja árið í röð sem hagn-
aður er meiri en 400 milljónir
króna.
„Hækkun á heildarvísitölu Aðall-
ista VÞI er 6,3% yfir árið en arðsemi
eigin fjár okkar er 26% þannig að
miðað við það sem við lögðum upp
með er útkoman betri en við gátum
þorað að vona,“ sagði Andri í samtali
við Morgunblaðið.
Hann sagði að þar sem um 80% af
eignum félagsins séu í hlutabréfum,
hefði verið ljóst að útkoman myndi
ráðast af þróun á hlutabréfamarkaði.
Hlutabréf í tölvufyrirtækjum
skýra afkomuna
Andri segir að miklar hækkanir á
verði hlutabréfa í tölvufyrirtækjum
skýri að mestu leyti góða útkomu.
Fyrirtækið átti um áramót 27%
hlut í Opnum kerfum og á 11,2% í
Nýherja, en verð á bréfum þessara
fyrirtækja hafa hækkað mikið að
undanförnu. „Þetta eru stærstu hlut-
uTiir í hlutabréfasafninu okkar og
þessi grein vegur alls 50% í safninu,"
sagði Andri.
Aðspurður hvort hann væri ekki
uggandi um að verð bréfanna myndi
lækka í ár, miðað við ummæli manna
á markaði um að fyrirtækin séu
verðlögð of hátt, sagði Andri að
vissulega væru þau verðlögð hátt en
það væri vegna mikilla væntinga.
„Við höfum fulla trú á að þær vænt-
ingar muni standast og við ætlum
okkur að halda í okkar hlutabréf í
fyrirtækjum í þessum geira, þrátt
fyrir að í fjárfestingarstefnu okkar
eigi einstakar atvinnugreinar ekki að
vega meira en 33% af heildareign fé-
lagsins. Þetta sýnir því hve mikla trú
við höfum á félögunum í þessum
geira.“
í fréttatilkynningu frá félaginu
kemur fram að hlutabréf í félaginu
hafi hækkað um 23% að teknu tilliti
til 7% arðgreiðslu. Hlutafé félagsins
er 1.100 milljónir króna og er félagið
ski-áð á Aðallista Verðbréfaþings Is-
lands.
I tilkynningunni kemur fram að
stjórn félagsins leggi til að hluthöf-
um verði greiddur 10% arður af
hlutabréfaeign sinni í félaginu og
munu arðgreiðslur nema 110 m.kr. í
ár en voru til samanburðar 77 m.kr.
árið áður.
Þorsteinn Víglundsson, deildar-
stjóri hjá Kaupþingi hf., segir að
fyrirtækið hafi verið að gera vel á
markaði sem var sveiflukenndur á
síðasta ári, og ávöxtun á eignum fé-
lagsins sé talsvert betri en úrvals-
vísitala Aðallista VÞÍ.
„Þetta er mjög gott uppgjör. Þeir
njóta mikilla hækkana í tölvufyrir-
tækjum á síðasta ári, Opin kerfi ríf-
lega tvöfólduðust t.d. að mark-
aðsvirði og Nýherji hækkaði álíka
mikið. Einnig eiga þeir talsvert í
öðrum fyrirtækjum sem sýndu góða
ávöxtun á síðasta ári, eins og t.d.
Granda og ÚA,“ sagði Þorsteinn.
Þorsteinn sagði að út frá innra
virði fyrirtækisins kynni að vera
eitthvert svigrúm til hækkana á
gengi félagsins en menn yrðu þó að
hafa í huga að þær miklu hækkanir
sem orðið hefðu á tæknifyrirtækj-
um að undanförnu, kynnu að ganga
til baka með tilheyrandi áhrifum á
gengi Þróunarfélagsins."
Leitarvélin
AltaVista aðskilin
frá Compaq
New York. Reuters.
ALTAVISTA, ein vinsælasta leit-
arvélin á Netinu, verður aðskilin
frá nýjum eiganda sínum, Compaq,
og gerð að sjálfstæðu fyrirtæki.
Um leið hefur AltaVista stofnað
til bandalags með Microsoft og
verður AltaVista aðalleitarvél
tölvuþjónustu fyrirtækisins,
Microsoft Network. Þar með er
vonað að hið nýja fyrirtæki verði
enn þekktara þegar hlutabréf í því
verða boðin til sölu.
Hátækniverðbréf hafa stigið
mjög í verði að undanfórnu - til
dæmis hækkaði verð bréfa í net-
fjármálablaðinu MarketWatch.com
um 474% eftir að þau voru boðin út
í fyrsta sinn fyrir skömmu.
Vinsæl leitartæki
AltaVista var uppgötvun Digital
Equipment fyrirtækisins. Þegar
Compaq keypti Digital í fyrra fyrir
9 milljarða dollara fylgdi AltaVista
með í kaupunum.
Sérfræðingar telja að hægt verði
að afla 2-3 milljarða dollara með
aðskilnaði AltaVista og skyldra
deilda. Fyrr í þessum mánuði var
önnur netleitarvél, Excite, seld
dótturfyrirtæki kapalfyrirtækisins
TCI fyrir tæpa 7 milljarða dollara.
Hið nýja AltaVista fyrirtæki
mun hafa bækistöð í Palo Alto í
Kaliforníu og forstjóri þess verður
Rod Schrock, sem hefur verið yfir-
maður neytendavörudeildar
Compaq. Nýlega hafði Schrock for-
göngu um að Compaq keypti vin-
sæla verzlun á Netinu, Shopp-
ing.com.
Bandalag Microsoft og AltaVista
er alvarlegt áfall fyrir Inktomi,
sem Microsoft hefur stuðzt við á
Netinu.
AltaVista er 12. vinsælasti stað-
ur á Netinu í Bandaríkjunum sam-
kvæmt könnun sem var gerð í des-
ember. I Bretlandi er AltaVista í
fímmta sæti.
Nýjung hjá Tali hf.
Sala á Tal-
frelsiskortum
FARSÍMAFYRIRTÆKIÐ Tal
hf. hefur hafið sölu á fyrirfram-
greiddum símakortum undir
heitinu Talfrelsi. Segir í tilkynn-
ingu frá fyrirtækinu að notend-
ur greiði fyrirfram fyrir notkun-
ina og fái því ekki símreikninga
og greiði ekkert fast mánaðar-
gjald.
Segir í tilkynningu að Tal-
frelsi henti vel þeim sem sjá öðr-
um fyrir takmörkuðum afnotum
af farsíma, t.d. foreldrum, fyrir-
tækjum og stofnunum. Þá henti
Talfrelsi fyrir þá sem hringja lít-
ið úi- farsíma, en vilja geta látið
hringja í sig.
„Mínútugjaldið í Talfrelsi er
15% lægi-a en hjá GSM Frelsi
Landssímans, eða 28 kr. mínút-
an í stað 33 kr. á dagtaxta. Mín-
útugjald á kvöld- og næturtaxta
er einnig lægra,“ segii- í tilkynn-
ingu frá Tali.
Fjölbreytt þjónusta er sögð
fylgja Talfrelsi. Notendur fá tal-
hólf, geta tekið á móti smáskila-
boðum og geta látið skrá síma-
númerið jafnt í símaskrána, 118
og netsímaskrá Tals.