Morgunblaðið - 10.02.1999, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 1999 21
Lycos
og USA
Networks í
eina sæng
New York. Reuters.
LYCOS, hin kunna nettenging-
ar- og vefskoðunarþjónusta,
hefur verið seld USA
Networks, brautryðjanda inn-
kaupa í kapalsjónvarpi.
Nýja fyrirtækið nefnist
USA/Lycos Interactive
Networks og verður kjarni
nýs, geysistórs fjölmiðla- og
tölvuviðskiptafyrirtækis.
USA Networks mun eiga
meirihluta hlutabréfa og sam-
einar Lycos Home Shopping
sjónvarpsneti sinu. Um leið
mun USA Networks sameinast
símaþjónustunni Ticketmaster.
Heildarverðmæti útgefínna
hlutabréfa í hinum þremur íyr-
irtækjum nemur um 20 millj-
örðum dollara.
Hluthafar USA Networks
munu ráða yfír rúmlega 60%
hlutabréfa í hinu nýja fyrir-
tæki, hluthafar Lycos 30% og
eigendur hlutabréfa í
Ticketmaster-afganginum.
Næstvinsælastir
Lycos er næstvinsælasta
miðstöðin á Netinu og kunn
fyrir vefsíður eins og
tripod.com, angelfire.com,
whowhere.com og hotbot.com
auk útgáfustaða eins og Suck,
Wired News og Hotwired.
Sameiginlegar tekjur hins
nýja fyrirtækis verða 1,5 millj-
arðar dollara og yfirmaður
þess verður Barry Diller, gam-
alreyndur sjónvarpsmaður.
Sjónvarpsnet USA/Lycos
nær til 70 milljóna heimila.
Home Shopping-sjónvarpið og
Ticketmaster afgreiða meira
en eina milljón símtala og rúm-
lega 200.000 pantana.
Skýrsla Landsbankans
Von á
lækkun af-
urðaverðs
ÓLÍKLEGT er að útflutning-
ur aukist á árinu og enn síður
að afurðaverð haldist jafn hátt
og á síðasta ári. Pessu til
stuðnings er bent á í ársfjórð-
ungsskýrslu Landsbanka Is-
lands að flakaverð er í há-
marki að margra mati og verð
á saltfiski.
Pjóðhagsstofnun spáir því að
útflutningur aukist að magni til
um 4,3% á þessu ári og að inn-
flutningur dragist saman um
1%. Pó svo að áætluð magn-
breyting útflutnings á síðasta
ári verði neikvæð um 1,5% þá
var afurðaverð mjög hátt og
nálægt sögulegu hámarki.
„Verð á lýsi og mjöli náði
sögulegu hámarki á síðasta ári
en hefur lækkað talsvert nú í
byrjun þessa árs. Þorskkvóti
var aukinn á síðasta ári og
reiknað er með að hann verði
aukinn aftur á því næsta.
Þrátt fyrir aukningu á þorsk-
kvóta gerum við ráð fyrir
minni kvóta í öðrum bolfisk-
tegundum á næsta fiskveiði-
ári. Hér nægir að nefna karfa,
ýsu og ufsa. Einnig má benda
á að rækjuveiðar hafa nánast
hrunið. Samantekið er því var-
legt að búast við mikilli aukn-
ingu á útflutningstekjum
vegna sjávarútvegs, bæði í
magni og með tilliti til afurða-
verðs,“ að því er fram kemur í
ársfjórðungsskýrslu Lands-
bankans.
Fraiikfurt. London. Reuter. Telegraph.
NÝ stjóm BMW í Múnchen ætlar
að gefa sér hálfs mánaðar frest til
að ákveða framtíð dótturfyrirtaek-
isins Rovers í Bretlandi eftir
óvænta brottvikningu tveggja
æðstu manna BMW.
Bemd Pischetsrieder stjómarfor-
maður og staðgengill hans og keppi-
nautur, Wolfgang Reitzle, vom
reknir vegna mikils taps á Rover
Group, sem BMW keypti 1994.
Nýir stjórnendur undir forystu
prófessors Joachims Milbergs
koma saman í dag til að ræða fram-
tíðarstefnu fyrirtækisins í Bret-
landi. Verð hlutabréfa í BMW
hækkaði um 10% á þýzkum hluta-
bréfamarkaði í gær vegna ánægju
með mannaskiptin og vegna bolla-
legginga um að önnur fyrirtæki
reyni að yfirtaka BMW.
BMW gefur sér
hálfs mánaðar frest
Annar tveggja stjórnarformanna
DaimlerChrysler, Robert Eaton,
sagði að hann gerði ráð fyrir að
þrjú eða fjögur tilboð mundu ber-
ast í BMW eftir breytingamar í
stjórn fyrirtækisins. Hann sagði að
fyrirtæki sitt yrði ekki meðal bjóð-
enda.
Forstjóri Volkswagens, Ferdin-
and Piech, vill ekkert segja um
fréttir um að VW hyggist kaupa
hlut í BMW. Piech hefur oft lagt til
að VW, stærsti bílaframleiðandi
Evrópu, myndi bandalag með
BMW.
„Ég vil ekkert segja sem getur
valdið óróa,“ sagði Piech í samtali
við Der Spiegel. „Starfsfélagar
okkar í Múnchen verða að geta ein-
beitt sér að starfi sinu.“
Brezk ríkisaðstoð?
Framtíð Rover verður helzta
mál fundarins í stjórn BMW. Þrátt
fyrir margra milljarða dollara fjár-
festingu BMW í Longbridge bfla-
verksmiðju Rovers í Birmingham
er hún meðal hinna afkastaminnstu
í Evrópu.
Mikið er undir því komið hvort
brezka stjórnin er reiðubúin að
veita Longbridge verksmiðjunni
fjárhagsaðstoð. Stephen Bryers
verzlunar- og iðnaðarráðherra
ræddi í gær við fulltrúa starfs-
manna og stjórnenda Rover verk-
smiðjunnar. Hann mun einnig
ræða við Milberg, hinn nýja stjóm-
arformann BMW, um ríkisstuðning
við verksmiðjuna.
BMW hefur staðfest að fyrir-
tækið hafi átt í samningaviðræðum
við brezku stjórnina um aðstoð.
Samkvæmt fréttum um helgina
kann hún að nema 150-300 milijón-
um punda.
Nýjar gerðir eiga að koma í stað
Rover 200 og 400, sem nú em fram-
leiddir í Longbridge, á næsta ári. Til
greina kemur að framleiða bflana í
Longbridge, en einnig í Austur-Evr-
ópu - líklega Ungverjalandi.
Lokagjalddagi spariskírteina ríkissjóðs í í.fl.D 1994, - 5 ár
(RS99-0210/K) er í dag, miðvikudaginn
10. febrúar 1999.
Eigendum þessara skírteina er boðið að innleysa skírteinin
hjá Lánasýslu ríkisins. Innlausnarverð er 136.397 kr. fyrir
100.000 kr. skírteini að nafnverði.
Atímabilinu 10. - 26. febrúar er aðeins einstaklingum sem
eiga þessi skírteini boðið að skipta þeimyfir í ný spariskírteini
en öllum er boðið að skipta spariskírteinunum í ríkisvíxla.
Vaxtakjör taka mið af daglegum markaðskjörum.
Afgreiðsla spariskírteina og ríkisvíxla með skiptikjörum fer
aðeins fram hjá Lánasýslu ríkisins en áskilinn er réttur til að
takmarka hámarksfjárhæð á skiptum fyrir hvem einstakan aðila.
Starfsfólk Lánasýslunnar er reiðubúið að aðstoða á allan hátt
við innlausn þessara spariskírteina.
LÁNASÝSLA RÍKISINS
Hverfisgata 6, 2. hæð • Sími: 562 6040 • Fax: 562 6068
Heimasíða: www.lanasysla.is • Netfang: lanasysla@lanasysla.is
iNmausN
Ida£
er innlausn
sparisldrteina í
1.FL.D 1994-5 ár.