Morgunblaðið - 10.02.1999, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 1999 25
ERLENT
Réttarhaldið yfír fyrrverandi aðstoðarforsætisráðherra Malasíu
Dómari vísar
samsæriskenn-
ingum frá
Gusmao
í stofu-
fangelsi
INDÓNESÍSK stjórnvöld
munu í dag færa Xanana
Gusmao, skæruliðaleiðtoga A-
Tímorbúa, úr
fangelsi í
Jakarta í
stofufangelsi.
Vilja þau
með þessu
móti koma til
móts við
frelsishreyf-
ingu A-
Tímor en
stjórnvöld í Indónesíu léðu ný-
lega máls á því að A-Tímor
hlyti sjálfstæði, færu íbúar
landsins fram á það.
Bin Laden
ekki vísað
úr landi
TALEBANAR, sem fara með
völd í Afganistan, sögðust í
gær geta leitt Sádí-Arabann
Osama bin Laden íyrir rétt ef
nægilega sterk sönnunargögn
þættu sanna aðild hans að
alþjóðlegum hryðjuverkum.
Sögðust þau hins vegar ekki
munu vísa honum úr landi.
Bandaríkjamenn vilja leiða bin
Laden fyrir rétt í Bandaríkjun-
um vegna aðildar að sprengju-
tilræðunum í Tanzaníu og
Kenýa á síðasta ári og hafa
farið fram á það að hann verði
gerður brottrækur frá
Afganistan.
Hagur Khat-
amis vænkast
QORBANALI Dorri Najafa-
badi, innanríkisráðherra
Irans, sagði af sér í gær og
þykir fyrir vikið staða Mo-
hammads Khatamis, forseta
Irans, hafa styrkst verulega
en Khatami hefur átt í valda-
baráttu við íhaldsöfl í landinu.
Afsögn Najafabadis er hins
vegar talin til marks um að
íhaldssamir bókstafstrúar-
menn eigi nú undir högg að
sækja í stjórnmálum landsins
eftir hrinu pólitískra morða í
landinu. Er talið líklegt að
Khatami útnefni bandamann
sinn, AIi Yunesi, í hið valda-
mikla ráðherraembætti, en
innanríkisráðherra er ábyrgur
íyrir bæði öryggismálum inn-
anlands og njósnum erlendis.
Enn fækkað
í her Rússa?
RÚSSLAND verður að fækka
liðsmönnum herja sinna um
helming miðað við þá fjármuni
sem hernum er úthlutað í ár.
Þetta er mat vikurits sem gef-
ið er út af rússneska hernum.
Til að bregðast við breyttri
heimsmynd og erfíðum ríkis-
fjárhag fækkuðu stjórnvöld í
Moskvu í hemum um fjögur
hundruð þúsund í fyrra, og er
mannaflinn nú um 1,2 milljónir
manna. Vikuritið Neza-
visimoye Voyennoye Obozr-
eniye segir hins vegar að
rannsóknir þess hafi leitt í ljós
að enn frekari niðurskurður sé
nauðsynlegur, einungis sé
hægt að halda úti um 600.000
manna her með þeim fjárveit-
ingum sem nú séu til staðar.
Kuala Lumpur. Reuters.
VERJENDUR í réttarhöldunum yf-
ir Anwar Ibrahim, fyrrverandi að-
stoðarforsætisráðherra Malasíu,
„töpuðu leik“ í málaferlaþráteflinu í
gær, þegar dómarinn vísaði frá
röksemdum þeirra um að ákærurnar
á hendur Anwar væru sprottnar upp
úr pólitísku samsæri.
A mánudag létu verjendurnir það
verða sitt fyrsta verk, er þeir hófu
málsvörnina, að kalla Anwar sjálfan í
vitnastúkuna. Hélt Anwar því þar
fram að hann væri fórnarlamb fyrr-
verandi samstarfsmanna í ríkis-
stjórn landsins sem koma hefðu
viljað í veg fyrir rannsókn á spillingu
í stjórnkerfinu.
En í gær sagði dómarinn,
Augustine Paul, að „hvers konar
kenningar um að sakborningurinn sé
fómarlamb pólitísks samsæris"
væru óviðkomandi málinu sem fyrir
réttinum væri.
Réttarhöldin yfir Anwar hafa nú
staðið í þrjá mánuði. Hefur Anwar á
þeim tíma reynt að færa sönnur á
þær staðhæfingar sínar að hann sé
fórnarlamb samsæris pólitískra and-
stæðinga sinna. Anwar var rekinn úr
ríkisstjóminni í september og stuttu
síðar handtekinn. Hann hefur lýst sig
saklausan af öllum tíu ákæmatriðum
um spillingu og kynferðisafbrot.
Anwar, sem lék á als oddi í
vitnastúkunni á mánudag, sagði að í
störfum sínum sem forseti nefndar
sem rannsakaði spillingu í malasísk-
um stjómmálum hefði sér borist
fjöldi kvartana um slæma stjórnar-
hætti og mútuþægni ráðamanna.
Sagði hann að fram hefðu komið
ásakanir á hendur ýmsum háttsett-
um aðilum, jafnvel sjálfum forsætis-
ráðherranum, Mohamad Mahathir.
Þetta skýrði hvers vegna samstarfs-
menn sínir í ríkisstjórn hefðu haft
hom í síðu sinni.
Sækjendur málsins sögðu þessi
mál hins vegar með öllu óviðkomandi
málarekstrinum gegn Anwar og úr-
skurðaði Augustine Paul, dómari í
málinu, þeim í hag. Neitaði verjandi
Anwars því að þetta markaði mikinn
ósigur fyrir vömina og sagði að þeir
myndu áfram reyna að sýna fram á
að samsæri hefði verið til staðar á
æðstu stöðum um að bregða fæti fyr-
ir Anwar.
Miklabraut - Skeiðarvogur
Nú er að hefjast á vegum Vegagerðarinnar og
Borgarverkfræðings Reykjavíkur gerð nýrra mislægra
gatnamóta á Miklubraut við Skeiðarvog.
Miðvikudagskvöldið 10. febrúar verður
Skeiðarvogi lokað frá Miklubraut að Fákafeni og
Mörkinni.
Umferð af Miklubraut til norðurs verður beint
um bráðabirgðaveg sem nær yíir á Suðurlandsbraut.
Umferðarljós verða á gatnamótum Miklubrautar
og bráðabirgðavegarins.
Hér eru á döfinni viðamiklar framkvæmdir sem
skipt er niður í nokkra áfanga.
Gatnamótin verða opnuð fyrir umferð í
september nk.
Lokað framkvæmdasvæði
Bráðabirgðavegur
Umferðarljós
m
Vegagerðin
Borgarverkfræðingur
VEGAGERÐIN
Gusmao