Morgunblaðið - 10.02.1999, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
______________MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 1999 39C
UMRÆÐAN/PRÓFKJÖR
Erum við ekki
lausir við
Technopromexport?
LAUGARDAG 6.
febrúar birtist í Mbl.
viðtal við einn fram-
kvæmdastjóra
Technopromexport,
þar kemur fram að fyr-
irtækið hafi áhuga á að
taka að sér virkjana-
framkvæmdir hér á
landi. Hann heldur því
fram að þeir hafi átt
mjög góð samskipti við
alla hér á landi utan
stéttarfélögin, þrátt
fyrir að staðið hafi ver-
ið við alla samninga og
greidd of há laun! Þess-
ar yfirlýsingar koma
ekki á óvart ef litið er
til háttalags starfsmanna samtaka
atvinnurekenda og opinberra emb-
ættismanna eftir deilurnar í haust.
Yfírlýsingar framkvæmdastjóra
hvað varðar tæknilega getu eru
ósvífnar. Allir vita að þegar að
byggingu línunnar var komið þá réð
Teehnopromexport ekki við tækni-
lega hluti eins og að reisa hæstu
möstrin og þaðan af síður við út-
drátt og strekkingar á línum. Það
eina sem þeir réðu við var að skrúfa
saman lægstu möstrin og reisa þau.
Til þess að bjarga málinu varð
Landsvirkjun að taka af þeim öll
fióknari verkefnin og setja þau í
hendur íslenskra og norrænna raf-
iðnaðarmanna. Það væri með ólík-
indum ef Landsvirkjun ætlar síðan
að ganga fram hjá íslenskum fyrir-
tækjum og án útboðs að semja við
Technopromexport um Sultar-
tangalínu. Rafiðnaðarsambandið og
Landsvirkjun hafa ítrekað fengið
bréf frá framleiðanda mastranna
með beiðnum um að séð verði til
þess að Technopromexport standi
við samninga og greiði möstrin svo
að þeir geti gi'eitt starfsmönnum
sínum laun.
I haust lýsti ég því ítrekað yfír að
þessi barátta snerist í raun ekki um
þetta eina verkefni, hún snerist um
stöðu íslenskra fyrirtækja gagnvart
erlendum fyi-irtækjum. Afstaða
starsfmanna samtaka atvinnurek-
enda kom á óvart, þegar þeir ítrek-
að tóku upp hanskann fyrir
Technopromexport. Framkvæmda-
stjóri VSI viðhafði þau ummæli að
laun við línuna væru of há. Laun við
línuna voru samkvæmt þeim kjara-
samningi sem hefur gilt um allar
línur. Islenskir og norrænir línu-
flokkar, sem voru að störfum við
línuna á vegum Landsvirkjunar og
norsks fyrirtækis, voru með um
30% hærri laun en starfsmenn
Technopromexport og undirverk-
taka þeirra. Þeir fengu greitt fyrir
atriði sem Technopromexport
komst hjá að greiða starfsmönnum
sínum fyrir með þeim ógeðfellda
hætti að hóta þeim og fjölskyldum
þeirra ævilöngum ærumissi og at-
vinnuleysi þegar heim kæmi. Is-
lensku starsfmennirnir létu þá und-
an beiðnum rússneskra félaga sinna
um að láta þetta frekar yfír sig
ganga. Allir Islendingar vita hvern-
ig opinberir embættismenn bái'u
fyrirtækið á höndum sér og vörðu
það þrátt fyrir að það virti íslenskar
reglugerðir um atvinnuleyfi og að-
búnað margítrekað að vettugi. Vit-
anlega túlka forsvarsmenn
Technopromexport þetta á þann
veg að hér sé lag og fyrirtækið geti
með aðstoð þessara aðila brotið á
bak aftur óvinveitta íslenska laun-
þegahreýfíngu.
Islenskir starfsmenn
Technopromexport og undirverk-
taka þeirra þurftu að leggja niður
vinnu til þess að þvinga fram að
staðið væri við gerða kjarasamn-
inga og aðbúnaður væri lagaður,
m.a. að mötuneyti í bílaverkstæði
væri lokað. Islendingar höfðu ítrek-
að verið sendir heim um miðja
vinnudaga og sagt að athuga hvort
þeir mættu kannski koma til vinnu
eftir nokkra daga. Hér
var ekki síður um
hagsmuni undirverk-
takans að ræða. Það
kom því mörgum í
opna skjöldu þegar
starfsmenn samtaka
atvinnurekenda sendu
bréf með hótunum um
aðgerðir ef starfsmenn
létu ekki af ólöglegum
aðgerðum! Síðar
reyndu þeir að rétt-
læta gerðir sínar með
því að halda því fram
að starfsmennirnir
hefðu verið að knýja
fram breytingar á
kjarasamningum! Allir
vita að í framhaldi af þessu var
trúnaðarmaður rafiðnaðarmanna
rekinn þegar hann vann að því að
staðið væri við samkomulagið um
bættan aðbúnað. Lögmaður VSÍ
tapaði því máli glæsilega. Mikill
fjöldi forsvarsmanna íslenskra fyr-
irtækja hefur haft samband við mig
og þakkað baráttu okkar í þessu
máfi og um leið fordæmt afstöðu
Verkalýðsmál
Það eina sem
Technopromexport réð
við, segír Guðmundur
Gunnarsson, var að
skrúfa saman lægstu
möstrin og reisa þau.
starfsmanna atvinnurekendasam-
takanna. Sömu menn hafa ásamt
fjölda launamanna lýst óblandinni
fyrirlitningu á vinnubrögðum opin-
berra embættismanna. Island er í
þeirri ógeðfelldu stöðu að vera Evr-
ópumeistari í að vilja ekki staðfesta
lög og reglugerðir er vernda rétt-
indi launamanna. Landsmenn hafa
orðið vitni að því undanfarið að
dómstólar kveði upp hvem dóminn
á fætur öðrum sem tryggir réttindi
íslenskra þjóðfélagsþegna. Það er
mikil skammsýni hjá embættis-
mönnum og starfsmönnum atvinnu-
rekendasamtakanna að halda að
það sé íslendingum til hagsbóta að
inn í landið sé hleypt álíka fyrir-
tækjum og Technopromexport.
Hver á að borga skatta og hver á að
greiða félagsgjöld í samtök atvinnu-
rekenda? Með leyfí, halda þessir
menn virkilega að Technopromex-
port komi til með að gera það?
Höfundur er formaður Rafíðnaðar-
sambands íslands.
Guðmundur Rafn
Geirdal
skólastjóri og félagsfræðingur
Ég meeli elndreglð gegn hugsanlegri
þingsályktunartillögu á Alþingi um að
hef)a skuli hvalveiðar að nýju. Sam-
kvæmt nýlegri skoðanakönnun kemur
fram að meirihluti erlendra ferðamanna
telur að hvalvelðar og hvalaskoðunar-
ferðir fari ekki saman. Jafnframt kemur
fram að „...44,3% sögðust líklega
myndu styðja harkalegar aðgerðir
gagnvart íslendingum ef hvalvelðar
yrðu hafnar á ný“ (Mbl. 29.1.99).
Guðmundur
Gunnarsson
Blessað
barnalán
UM 1/3 íslensku
þjóðarinnar er undir
tvítugu og er það
hærra hlutfall en þekk-
ist annars staðar í hin-
um vestræna heimi. Is-
lenskai- konur eiga að
jafnaði um tvö börn,
sem er helmingi meira
en tíðkast á Italíu eða
Þýskalandi. Reykjavík
telst vel birg af æsku-
lýð miðað við aðrar
evrópskar borgir þar
sem 30% Reykvíkinga
eru undir 20 ára aldri.
Bamalán landsbyggð-
unga er þó mun meira.
En í nýlegri skýrslu
Háskólans á Akureyri kemur fram
að konur í dreifbýli á Norðurlandi
vestra eignast nálægt því fjögur
Munurinn á efnislegum
lífskjörum, segir Jón
Bjarnason, virðist vera
orðinn of mikill dreif-
senda böm sín langa
vegu til menntunar og
halda þeim uppi í öðr-
um sveitarfélögum.
Hlutir sem teljast
sjálfsagðir í uppeldi
barna í þéttbýli, s.s.
félagsstarfsemi,
standa oft ekki til
boða eða krefjast
fórna af hálfu foreldr-
anna. Þar fyrir utan
kostar meira að fæða
og klæða bömin því
verðlag er hæma úti á
landi.
Að vega og meta
Foreldrar úti á
landi standa því oft í þeim spomm
að þurfa að vega saman þau lífs-
gæði sem fylgja búsetu í heima-
byggð og fjárhagslegan ávinning af
þvi að flytja í meira þéttbýli. En
því miður virðist munurinn á efnis-
legum lífskjöram vera orðinn of
mikill, dreifbýlinu í óhag. A þessu
kjörtímabili hafa stórir hópar fólks
Jón
Bjarnason
flust af landsbyggðinni til suðvest-
urhornsins og margt af því bama-
fjölskyldur. Hér verður að grípa
inn í áður en við missum kjamann
úr byggðunum og jafna efnalegar^
aðstöðumun með sérstökum bama-
bótum eða menntunarstyrkjum.
Með þessu vinnst tvennt. Fjöl-
skyldufólki er gert kleift að búa
áfram í sinni heimabyggð og jafn-
framt verður eftirsóknarverðara að
flytja út á land. En eftir því sem
meiri stórborgarbragur kemst á
Stór-Reykjavíkursvæðið munu lífs-
gæði landsbyggðarinnar verða eft-
irsóttari fyrir barnafólk.
Styrkir til barnafjölskyldna er
milliliðalaus og skjótvirk leið til
þess að stemma stigu við þeirri^-
byggðaröskun sem nú á sér stað.
Hins vegar breyta þeir ekki þeim
kerfisbundna vanda sem lands-
byggðin þarf að glíma við í atvinnu-
málum og það óhagræði sem skatt-
kerfið veldur í þeim efnum. En í
það minnsta gefa slíkir styrkir
tíma til þess að bregðast við þeim
málum. A næstu áram mun þetta
gjöi-va æskufólk yfirgefa foreldra-
hús og sækja þangað sem tækifær-
in gefast. Það er okkar að tryggja
að tækifærin skapist um landið allt.
Höfundur er skólastjóri Hólaskóla í
Hjaltadal og býður sig fram í 1. sæti
í prófkjöri Samfylkingar á Norður-
landi vestra.
býlinu í óhag.
börn að meðaltali. Og víða um ís-
land era staðir þar sem æskufólk
undir tvítugu er rúmlega 40% af
öllum íbúum. Þessi staðreynd býð-
ur upp á mjög góða möguleika í
byggðamálum þar sem fjöldi ungs
fólks er að alast upp úti á landi.
Mismunandi gildismat
Þessi mismunur í barneignum
sýnir fyrst og fremst gildismat.
Það fólk sem kýs að búa úti á landi
er greinilega mjög fúst til þess að
leggja fram tíma og efni til bama-
uppeldis. Jafnframt ætti þetta að
gefa vísbendingu um að hagur
bama vegur þungt þegar þetta fólk
velur sér búsetu. Lítil samfélög
hafa líka upp á töluverða kosti að
bjóða fyrir fjölskyldufólk, s.s. ör-
yggi og samhygð, auk þess sem
auðveldara er fyrir foreldra að
ráða þeim áhrifavöldum sem koma
inn í líf bama þeirra. Hins vegar er
einnig ljóst að dreifbýlið hefur líka
ókosti. Foreldrar verða oft að
Effirlits- og öryggiskerfi
fyrir fyrirtæki, stofnanir, heimili,
ClIííL/X er stærsti sérhæfði framleiðandi
öryggismyndavéla í Japan. Meðal notenda
hérlendis eru: Verslanir, sjúkrahús,
heilsugæslustöðvar, kirkjur, skólor, sundlougar,
íþróttahús, fiskvinnslur o.fl. Sérhæfð rúðgjöf.
Leitið upplýsinga.
ELBEX Toppgæði á
hagstæðu verði!
Einar
Farestveit&Co.
Borgartúni 28, « 562 2901 og 562 2900
Sérhæffl fasteigna-
sala fyrir atvinnu-
og skrifstofuhús-
næði
tf
STDREIGN
FASTEIGNASALA
Austurstræti 18 sími 55 - 12345
Amar Sölvason,
sölumaður
Jón G. Sandholt,
sölumaður
Gunnar Jóh. Birgisson hrl.
löggildur fasteignasali
Sigurbjöm Magnússon hrl.
löggildur fasteignasali
Atvinnuhúsnædi til sölu.
Lyngháls 10 Reykjavík
Erum með í sölu atvinnuhúsnæði sem skiptist í eftirfarandi
einingar: ca 820 fm. Jarðhæð, 4ra metra lofthæð, miklir
nýtingarmöguleikar, m.a. hægt að skipta plássinu í tvær til
þrjár einingar, á annarri hæð (jarðhæð), er um að ræða ca.
320 fm. Skrifstofu- og lagerhúsnæði, 4ra metra lofthæð,
góðar innkeyrsludyr. A þriðju hæð er til sölu 180m2. íbúð
auk ca. 80 fm vinnurýmis. Á fjórðu hæð (rishæð) eru til sölu
118 fm. íbúð, fm. íbúð, 130 fm. íbúð auk 130 fm. Veislu- og
fundarsalar.
Fossháls 1 Reykjavík.
Erum með í einkasölu glæsilegt verslunarhúsnæði á jarðhæð
u.þ.b. 814 fm. Mjög góð lofthæð, frábær staðsetning. Áhv.
-hagst. lán til 20 ára að upphæð u.þ.b. 41 millj. Með 6,25%
vöxtum.
Stapahraun 7-9 Hf.
Erum með í einkasölu iðnaðarhúsnæði á 3 hæðum, samtals
1299 fm auk lóðar undir iðnaðarhúsnæði. Þar af er jarðhæð
eignarinnar ca 840 fm. Húsnæðið er í mjög góðu ástandi,
mjög hagstætt verð kr. 59.500.000,-
Fiskislóð
Vorum að fá í einkasölu mjög gott atvinnuhúsnæði á þremur
hæðum samtals 617,7 fm, þar af er jarðhæðin 162,7 fm,
önnur hæð er 312,9 fm auk tveggja eininga á annarri og
þriðju hæð spm eru hvor um sig ca 70,5 fm. Verð kr.
28.000.000,- Ýmis eignaskipti skoðuð.
Suðurhraun Gbæ.
Erum með í sölu iðnaðarhúsnæði við Suðurhraun í
Garðabæ, sem er skipt niður í einingar allt frá ca 150 fm. 8
metra lofthæð.
Bíldshöfði
Erum með í sölu mjög góða 294,5 fm skrifstofuhæð vel
staðsetta við Bíldshöfðann. Eignin getur verið laus nú þegar,
hentar vel fyrir t.d. verkfræðinga eða arkitekta. Hagstætt
verð.
Lækjargata 34b, Hf. -
Erum með í einkasölu 149,8 fm verslunarhúsnæði auk
tveggja bílastæða í bílgeymslu, til afhendingar strax.
Lyngás Gbæ.
Erum með í sölu mjög gott atvinnuhúsnæði 189,2 fm. Tvær
stórar innkeyrsludyr, eldvarnar- og hljóðeinangrandi efni í
lofti, hægt að skipta í tvær einingar. V. 10.000.000.-
Seljendur atvinnuhúsnæðis athugið
Vegna mikillar sölu undanfarið óskum við eftir öllum gerðum
atvinnuhúsnæðis á skrá, skoðum og verðmetum
samdægurs.
Höfum til ieigu verslunar-, atvinnu- og
skrifstofuhúsnæði víðs vegar á
höfuðborgarsvæðinu.