Morgunblaðið - 10.02.1999, Blaðsíða 40
j*10 MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 1999
UMRÆÐAN/PRÓFKJÖR
MORGUNBLAÐIÐ
Kjördæma-
málið
legar reikningskúnstir hafa greini-
lega ráðið ferðinni án nokkurrar
hugsunar um þjóðleg gildi. Pað get-
ur ekki verið að Alþingi Islendinga
fari að samþykkja tillögur sem
byggjast á því einu að reglustiku er
brugðið yfír landið og héruðum stí-
að í sundur eins og þeir sem þar búa
séu nafnnúmerin ein. Tilfinningar,
LAGÐAR hafa verið
fram tillögur um
breytta skipan kjör-
dæma í landinu. Ohætt
er að segja að ekkert
kjördæmi kemur eins
illa út úr þeim tillögum
og Norðurlandskjör-
dæmi vestra. Það er
^ ekki einungis að gert er
ráð fyrir því að kjör-
dæmið sé rifið í sundur,
heldur það sem vera er:
Norðurland er rifíð í
sundur. Sögulega séð
er nú í fyrsta skipti
gert ráð fyrir því að
gamla Hólastifti sé end-
anlega kastað fyrir
róða og sinn hvor helm-
ingurinn gerður að viðhengi
arra landshluta.
til
Þótt Norðurlandi hafi hingað
verið skipt í tvö kjördæmi var
Norðurland enn í heilu lagi sem
landshluti með víðtæka samvinnu
íþróttir á Netinu
milli kjördæma. Sjálfs-
virðingu og metnaði
Norðlendinga er mis-
boðið með þessum
nýju tillögum. Þær
mega aldrei verða að
veruleika.
Þegar hugsað er til
þeirrar samvinnu og
þeirra blóðbanda sem
liggja milli Fljóta og
Siglufjarðar er það al-
veg óhugsandi, að það
sem þama er vaxið
saman skuli nú eiga að
stía í sundur þannig að
sveitin tilheyri Akra-
nesi suður á Skaga, en
bærinn heyri með
Höfn í Hornafirði suð-
ur undir jökli.
Eina mögulega lausnin, ef nauð-
synlegt þykir að leggja saman kjör-
dæmi á landsbyggðinni, er að leggja
það saman sem saman heyrir. Þar á
ég við að eina mögulega lausnin í
þessu sambandi er að sameina
Hólastifti á nýjan leik og nú í einu
kjördæmi. Norðurland allt á auðvit-
að í þessu samhengi að verða að
einu kjördæmi og koma fram sem
landshluti í einu lagi eða höfum við
ekki í aldaraðir talað um Norðlend-
inga, Austfirðinga, Sunnlendinga
o.s.frv.
Þessar tillögur, sem ganga þvert
á aldagamalar hefðir og tilvistar-
bönd, lýsa fullkomnu skilningsleysi
þeirra sem um málið hafa fjallað
gagnvart því fjöreggi sem þeir köst-
uðu þarna á milli sín. Einfeldnings-
Jón Sæmundur
Sigurjónsson
ann-
Þótt Norðurlandi hafí
hingað til verið skipt í
tvö kjördæmi, segir
Jón Sæmundur Sigur-
jónsson, var Norður-
land enn í heilu lagi
sem landshluti með víð-
tæka samvinnu milli
kjördæma.
saga og hefðir eru látin lönd og leið.
Við Norðlendingar allir eigum að
lýsa fullkomnu frati á þessar tillög-
ur. Þær eiga að þjóna þeim tilgangi
einum að ná fram meira vægi fyrir
kjörseðlana sunnanlands, en skeyta
ekkert um yfir hvað er valtað í
framhaldinu. í því sambandi er
skipting höfuðborgarinnar í tvö
kjördæmi beinlínis hlægileg.
Ef ekki næst samkomulag um
annað en að fara einhvem milliveg
milli þess að hafa óbreytt ástand
eða að gera landið allt einu kjör-
dæmi kemur ekki til mála annað en
að Norðurland allt verði gert að
einu kjördæmi. Það er hér með heit-
ið á þingmenn Norðurlands, svo og
þingmenn alla, að láta ekki þessa
ósvinnu yfir okkur ganga, sem þess-
ar tillögur eru. Við viljum Norður-
land eitt og óskipt.
Höfundur býður sig fram í 2. sætí
Samfylkingar á Norðurlandi vestra.
Morgunblaðið/Arnór
Góð þátttaka er að venju í Bridshátíð sem fram fer um næstu helgi. Svip-
myndin er af yngsta þátttakandanum í fyrra, Andra Má Bergþórssyni, en
hann var aðeins 13 ára gamall. Mótið verður sett á föstudagskvöld kl. 19.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ilagnarsson
Dagskrá bridshátíðar
um helgina
Tvímenningur:
Föstudagur 12. febrúar
Mótið sett kl. 19.
I. -10. umferð kl. 19.15-0.30.
Laugardagur 13. febrúar
II. -14. umferð kl. 11-13.10.
Matarhlé kl. 13-14
15.-23. umferð kl. 14-19.30.
Sveitakeppni:
Sunnudagur 14. febrúar
1.-4. umferð kl. 13-19.
Matarhlé kl. 19-20.30.
5.-6. umferð kl. 20.30-23.15.
Mánudagur 15. febrúar
7.-10. umferð kl. 13-19.15. Verð-
launaafhending kl. 19.30.
Mjög góð þátttaka er í tvímenn-
ingnum og aðeins pláss fyrir örfá
pör í viðbót, en ennþá er hægt að
bæta við sveitum í sveitakeppnina.
Bridsfélag Kópavogs
Þriðja og 4. umferð í aðalsveita-
keppni félagsins voru spilaðar sl.
fimmtudag. Staðan eftir 4 umferðir:
Sveit stig
MagnúsarAspelund 83
ekki Ragnar 76
Ragnars Jónssonar 71
í sveit Magnúsar spila auk hans:
Steingn'mur Jónasson, Jón Steinar
Ingólfsson og Sigurður ívarsson
Hæstu kvöldskor náðu:
ekki Ragnar 44
Frejju Sveinsdóttur 39
Magnúsar Aspelund 36
í sveitinni „ekki Ragnar“ spila:
Ragnar Björnsson, Sigurður Sigur-
jónsson, Jón Páll Sigurjónsson, Ár-
mann J. Lárusson og Þorsteinn
Berg.
Næst verður spilað fimmtudag-
inn 11. ferbrúar og spilamennskan
hefst kl. 19.45. Spilað er í Þinghóli,
Hamraborg 11, Kópavogi.
Bridsfélag eldri borgara
í Kópavogi
Þriðjudaginn 2. febr. sl. spiluðu
24 pör Mitchell-tvímenning og urðu
eftirtalin pör efst í N/S:
Asthildur Sigurgíslad. - Lárus Arnórsson 258
Jón Stefánsson - Sæmundur Bjömss. 249
Einar Einarsson - Hörður DavMsson 241
Lokastaða efstu para í A/V:
Þórhildur Magnúsd. - Sigurður Pálsson 252
Anton Sigurðsson - Hannes Ingibergss. 246
Ólafur Ingvarss. - Magnús Jósefsson 243
A föstudaginn var spiluðu 26 pör
og þá urðu úrslit þessi í N/S:
Ásthildur Sigurgíslad. - Lárus Amórsson 357
Magnús Jósefsson - Böðvar Magnússon 345
Einar Einarsson - Hörður Davíðsson 338
Lokastaðan í A/V:
Jón Stefánsson - Sæmundur Bjömss. 392
Eysteinn Einarss. - Lárus Hermannss. 353
Magnús Halldórss. - Guðlaugur Sveinsson 349
Meðalskor var 216 á þriðjudag en
312 á föstudaginn.
Bridsfélag Hafnaríjarðar
Spilaðar voru 7 umferðir í A-
Hansen mótinu mánudaginn 8.
febrúar. Hæstu skor það kvöld
hlutu eftirtalin pör:
Friðþj. Einarss. - Guðbrandur Sigurbergss. 50
Þórður Bjömsson - Páll G. Valdimarsson 49
Sverrir Jónsson - Gunnlaugur Óskarsson 48
Jökull Kristjánsson - Sveinn Vilhjálmsson 42
Eins og sjá má er hart barist og
lítur heildarstaðan þannig út þessa
stundina:
Sverrir Jónsson - Gunnlaugur Óskarsson 72
Friðþj. Einarss. - Guðbrandur Sigurbergss. 65
Pórður Bjömsson - Páll G. Valdimarsson 52
Halldór Einarsson - Þórarinn Sófusson 38
Enn er eitt kvöld eftir í keppninni
og engan vegin ráðið hverjir verða
sóttir heim á limósínunni til að fara
út að borða á A-Hansen.
30 ára reynsla
Hleðsluglersteinar
Speglar