Morgunblaðið - 10.02.1999, Side 52

Morgunblaðið - 10.02.1999, Side 52
52 • MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ Grettir Ljóska Ð&tfarstiorinh irtcuSurinn, /7 Otkar.. Otj/m er iO \ \ fCcUlar mia dfumynQfO 1 ^ - ■' htyt/d&dnú 'SBcuvc.'fyrirc& þctta céfátSa?] \ verco þú^_J r4 m Ferdinand Smáfólk Stans! Þetta er nógu langt! BREF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Súnbréf 569 1329 Negld eða ónegld dekk Frá Guðvarði Jónssyni: NIÐURSTAÐA könnunar sem gerð hefur verið á öryggisgildi nagla- dekkja í umferðinni eru taldar benda til þess að gagnsemi þeirra sé fremur lítil. Ég tel þó að nagla- dekk hafí öryggisgildi við vissar að- stæður, ef bílstjórinn kann að meta þær rétt. Það er töluverður munur á veðurfari hér og erlendis. Þess vegna gætu kannanir sem gerðar eru þar haft lítið gildi fyrir okkur. Hér eru ör skipti í veðurfari milli hita og kulda, sem veldur miklum svellalögum á vegum utan þéttbýlis. Við þessar aðstæður eiga nagladekk að geta veitt aukið öryggi, séu akst- ursaðstæður rétt metnar. Ónegld dekk veita ekkert öryggi á svelluð- um vegi, þó ný séu. Mín reynsla er sú, hvort heldur ég hef verið á venjulegum fólksbíl eða stórum bflum, að þeir láti mun betur að stjórn og spyrnugrip sé ör- uggara á negldum dekkjum, þegar ekið er á svelluðum vegi. Hraðinn þarf aftur á móti að vera réttur til þess að naglarnir veiti slíkt öryggi. A blautu svelli getur þurft að færa hraðann niður í 20-30 km og enn neðar ef ekið er undan halla, svo naglarnir geti veitt viðnám. Þetta ætti að vera öllum ökumönnum ljóst að nokkrir naglaoddar hafa ekki grip á svelli þegar bremsað er, ef hraðinn er það mikill að vatnslag myndast undir hjólbörðunum svo þeir fljóti, því þá ná naglarnir ekki niður. Það er kannski lítil von til þess að fólk almennt kunni að meta aksturs- aðstæður í hálku, þegar menn geta ekki ekið á þurru malbiki án þess að það kosti tugi manna lífið. Þess vegna munu nagladekk eða korna- dekk ekki hafa neitt öryggisgildi fyrir stóran hluta ökumanna, en því ætti að vera hægt að breyta með því að skapa aðstæður fyrir kennslu í hálkuakstri. Aðstæður ökukennara tfl þess að kenna fólki akstur í hálku við raun- verulegar aðstæður hér í Reykjavík, eru nánast engar. Það er einnig neftit í matsgerðinni, að þeir sem aka á negldum dekkjum hafi valdið færri slysum, en þeir sem óku á ónegldum. Ekki er talið hægt að rekja það beint til notkunar naglanna, heldur muni þeir sem aki á nagla- dekkjum vera gætnari ökumenn en hinir. Það er ekki ólfldegt að þeir sem aka á negldum dekkjum leggi meira upp úr því að aka af öryggi og aki því á nagladekkjum. Það eru einnig miklar líkur á því að stór hluti þessara manna kunni að nýta sér naglana til öryggis. Rétt er að hafa það í huga að fólks- bíla-nagladekk þarf helst að skipta um árlega, en þau eru of dýr til þess að bíleigendur almennt hafa efni á því. Vegna svellalaga úti á landsbyggð- inni teldi ég það mjög varhugavert að banna nagladekk. Aftur á móti er hugsanlegt að hægt væri að hætta notkun nagladekkja hér í Reykjavík, ef hálkueyðing væri framkvæmd víðar í borginni en á strætisvagnaleiðum. Það er aftur á móti spuming hvort yrði þá dýrara, hálkueyðingin eða malbikunin og einnig hversu stór hluti ökumanna í Reykjavík þyrfti að vera á negldum dekk,jum, vegna ferða út á land. Það vekur aftur á móti furðu mína, að í allri þessari umræðu um nagla- dekk og malbikseyðingu, skuli aldrei vera talað um þá malbikseyðingu sem verður vegna aksturs bíla á mjög breiðum dekkjum, sem hitna svo að þau ausa malbikinu upp úr götunum. Það væri ekki úr vegi að huga aðeins að þeim þætti. GUÐVARÐUR JÓNSSON, Hamrabergi 5, Reykjavík. V araborgarstj óri Frá Steinþóii Jónssyni: í STJÓRNKERFI borgarinnar er ekki til embætti varaborgarstjóra. I forföllum borgarstjóra kemur forseti borgarstjórnar fram fyrir hönd borgarinnar og er því eins konar varaborgarstjóri. Að vísu hefur R- listinn skapað embætti aðstoðar- manns borgarstjóra, sem Arni Þór Sigurðsson gegnir nú um stundir. Ekki gerir maður ráð fyrir því að að- stoðarmaðurinn sé staðgengill borg- arstjórans. Hlutverk aðstoðar- mannsins er frekar óijóst og ekki er alveg sannað að þörf sé á slíku emb- ætti við stjórnun borgarinnar. A.m.k. hafa fyrri borgarstjórar kom- ist af án aðstoðarmanns. Kannski er það fullt starf fyrir hina ýmsu að- stoðarmenn að sækja þá fundi sem borgarstjóri telur ekki vert að sækja? Líkt og í hafnarstjórn! Fundi sem borgarstjóri fær þó greitt fyrir að sitja _ að sjálfsögðu! Krónprinsinn Nú liggur fyrir að skipti verða á forseta borgarstjórnar í vor og mun Guðrún Ágústsdóttir víkja fyrir krónprinsi R-listans, Helga Hjörvar. Þannig mun Helgi Hjörvar verða annar æðsti embættismaður borgar- innar á eftir borgarstjóra. Mun Helgi væntanlega njóta töluverðra valda sem slíkur og vera í aðstöðu til að beita áhrifum víða í borgarkerf- inu. Komi til þess að Ingibjörg Sólrún ákveði að draga sig út úr borgarmál- um er Helgi Hjörvar sá sem líkleg- astur er til þess að taka við af henni. Nú hefur Ingibjörg Sólrún að vísu sagt að ekkert slíkt standi til en reynsla Reykvíkinga undanfarið ætti að segja þeim að treysta varlega því sem fulltrúar R-listans segja þeim hvað standi til og hvað ekki. Ef Helgi yrði síðan borgarstjóri, sem ekki er hægt að útiloka, væri honum í lófa lagið að ráða fóstbróður sinn, Hrannar B. Amarson, sem aðstoðar- mann sinn. Væru þeir félagar þá al- deilis komnir í feitt og bóksölubiss- ness þeirra forðum daga væri sem flóamarkaður miðað við það sem þeir gætu gert í slíkri aðstöðu. Þessum staðreyndum er Reykvíkingum skylt að velta fyrir sér. STEINÞÓR JÓNSSON bakari, Hléskógum 18, Reykjavík. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt tii að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.