Morgunblaðið - 10.02.1999, Qupperneq 53

Morgunblaðið - 10.02.1999, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 1999 53 BREF TIL BLAÐSINS Gætið varúðar í viðskiptum við Tal hf. Frá Kristjáni Friðbert Friðbertssyni: SERT þú að hugsa um að festa kaup á gsm-síma ber að huga að mörgu. Það fyrsta sem flestir at- huga er verðið. Tal hf. hefur að undanförnu boðið gsm-síma á, að því er virðist, mjög hagstæðu verði. Þetta ætti fólk þó að athuga betur. Ekki ætla ég að nefna hér mörg dæmi, en þó hyggst ég benda á eitt. Eftir því sem að mér skildist á sölumanni Tals hf. þarf maður að borga 1.700 á mánuði í eitt ár (12x1700=20400) aukalega við kaupvirði símans. Þetta fannst mér soldið mikið og spurði hvort hér væri um að ræða raðgreiðslusamn- ing á síma, sem væra þá kaup á allt öðram forsendum en auglýst væri, því svaraði hann neitandi. Við nán- ari athugun kom í Ijós að hér var um að ræða mánaðargjald fyrir notkun símkerfis Tals hf. (en með kaup á síma hjá Tali hf. skuldbind- ur maður sig til 12 mánaða notkun- ar á þeirra þjónustu) - samskonar gjald og hjá símanum-gsm nema hvað að þar er gjaldið u.þ.b. 500-600 kr. Innifalið í þessu gjaldi hjá Tali hf. er reyndar einnar klukkustundar notkun. Kaupi mað- ur símann annars staðar og fari síðan til Tals hf. getur maður valið annan möguleika. Þar er mánaðar- gjaldið um 600 kr. og hringi maður úr Tal gsm í Tal gsm kostar mínút- an 10 kr. (60x10=600; 600+600=1200; 1700-1200=500). Þá borgar maður 500 kr. minna á mánuði - eða 14.000 á ári í stað 20.000 - era þá þessar 6.000 kr. ekki greiðsla upp í símann? Enn- fremur ber að varast SMS þjónust- una hjá Tali hf. og þann hluta Tal- hólfsins sem lýtur að SMS (skilji einhver eftir skilaboð er maður lát- inn vita gegn um SMS). Að mæla tímann með tommustokk Frá Finni Jónssyni: VANDAMÁLIÐ 2000 hefur á sér tvær býsna ólíkar hliðar. Annars- vegar vanda þeirra sem allt sitt eiga undir tölvukerfum, sem ekki gera ráð fyrir aldamótum. Hins- vegar er vandi þeiri-a sem ekki geta komið sér saman um hvenær ný öld hefst og henni skuli fagnað á viðeigandi hátt. Reiknað hefur verið fram og aftur, reikningslist- arinnar vegna, en lítið fengist um forsendur. Þær era svo leiðinlegar og flækja bara málin. Lausn þessa vandamáls snýst eins og svo oft vill verða um skilgreiningar og for- sendur, og í þessu tilfelli má senni- lega rekja misklíðina að miklu leyti til óvandaðra skilgreininga í töluðu máli, jafnt manna á milli sem í fjölmiðlum. Oft heyrist talað um „áramótin 1998“. Vora þetta áramótin þegar árið 1998 hófst eða áramótin þegar árinu 1998 lauk? Orðið áramót þýðir auðvitað þann tímapunkt þegar ár mætast, það ár sem er að renna sitt skeið og það sem er að byrja. Ef skýrt á að tala eða rita ber að tiltaka tvær tölur í sambandi við orðið áramót og fer þá ekki á milli mála við hvað er átt. Nefna má áramótin 88/89, áramótin 88-89 eða hvernig menn kjósa að tjá þetta. Sama gildir um aldamót. Það er sá tímapunktur þegar aldir mætast, ein öld rennur sitt skeið og ný byrjar. Tommustokkur, reglustika eða málband úr saumaskúffunni eru nytsöm áhöld og getur eitthvert þeirra greitt úr vanda þeirra sem ekki eru klárir á því hvenær ný öld hefst. Að vísu var aldrei til þess ætlast að mælistikur væra notaðar til að mæla tíma, en þær gagnast vel í lausn þessa vanda. Málið má leysa á eftirfarandi hátt, að gefinni þeirri forsendu, að tímatal vort miðist við fæðingu frelsarans, þ.e. að árið eftii- fæðinguna og fram að eins árs afmæli hans sé árið 1 eftir kristsburð (e.k.) eða bara árið 1 eins og við segjum. Lítum á stik- una, tommustokkinn eða málband- ið. Við annan enda áhaldsins stend- ur talan 0 eða ekki neitt, t.d. á tommustokk og breytir það engu. Síðan koma tölumar 1, 2, 3,...7, 8, 9, 10, 11 o.s.frv. Gott er að leggja pappírsörk undir stikuna, festa stikuna á pappírinn með límbandi, og skrifa töluna 1 á pappírinn á móts við mitt bilið frá 0 til 1 á stikunni, töluna 2 á móts við mitt bilið frá 1 til 2 og halda þannig áfram upp í 11 eða 12. Tölumar á stikunni þýða eftir- farandi miðað við ofangreinda for- sendu: Talan 0 er fæðing frelsar- ans. Talan 1 er eins árs afmæli hans, talan 2 er tveggja ára afmæli hans o.s.frv., talan 11 er ellefu ára afmæli hans. Tölurnar á pappírs- örkinni þýða hinsvegar árin eftir OROBLU Kynníng 20% afsláttur af öllum OROBLU sokkabuxum fimmtudagínn 11. febrúar kl. 14.00-18.00 fæðingu frelsarans, eða eins og við segjum bara árið 2, 5, 7, 9 eða 1999, sem sagt ártalið. Hvað kem- ur nú í ljós? T.d. talan 7 á stikunni þýðir áramótin 7/8, auk þess að vera 7 ára afmælisdagur frelsar- ans, þ.e. 7 ár liðin frá fæðingu hans, talan 10 á stikunni þýðir þá á sama hátt áramótin 10/11 og jafn- framt 10 ára afmæli hans. Hann hafði lifað í einn áratug og næsti áratugur að hefjast. En gætið nú að tölunum á pappírsörkinni sem þýða einmitt ártalið! Þessi merkú tímamót í lífi frelsarans urðu þeg- ar árið 10 var á enda og árið 11 að byrja. Eigi einhver nógu langa stiku getur hann haldið þessum leik áfram og sannfærst um að alda- mótin era þegar árið 2000 er á enda. Þetta var nokkuð löng leið til að sýna fram á, að milli 5 fingra ann- arrar handar era 4 bil, en það kom að gagni. FINNUR JÓNSSON, verkfræðingur. í neyð ber að nota alla aðra möguleika en SMS skilaboð Tals hf. Hvort sem um er að ræða stór- slys, óveður í vændum, viðvaranir einhvers konar eða bara að ná í einhvern vin sinn vegna bíóferðar um kvöldið. Oftar en ekki komast nefnilega SMS skilaboð ekki til skila fyrr en mörgum klst. eftir að þau era send. Mörg dæmi veit ég þess að menn hafi fengið skilaboð frá því um 20:00 á fimmtudegi, eft- ir kl. 01:00 aðfaranótt fóstudags og skilaboðin oft löngu búin að missa marks og vita gagnslaus. Verst er þó með skilaboðin frá Tal-hólfinu, sem koma oft ekki fyrr en 6-8 tím- um eftir að_ skilboð eru lögð inn í Tal-hólfið. Ég vil þó taka það fram að þetta er mjög algengt en ekki al-gilt, ég er einungis að hvetja til varúðar og að biðja um að taka gagnsemi SMS með fyrirvara. Þetta var þó ekki svona frá upp- hafi, heldur hefur þjónusta Tals hf. versnað til muna undanfarið. Einnig skal kannski nefna hinn ranglega nefnda „þjónustusíma“ Tals hf. en þar er enga þjónustu að fá. Astæðan fyrir þessu er að það ,er ómögulegt að ná sambandi við hann. Slæmt er það á daginn en mun verra seint að kveldi og að nóttu til. Maður nær hins vegar sambandi við „skemmtilegan" sím- svara sem segir manni að maður hafi náð sambandi en allir séu upp- teknir og maður skuli bara bíða. Ég er mjög þolinmóður maður og hef beðið allt upp í tæpar 20 mínút- ur, þegar neyðin er stærst, en ekki hefur það dugað til, aldrei í 15-20 aðskildum tilraunum hef ég náð sambandi við lifandi vitsmunavera í „þjónustusíma" Tals hf. Sömu sögu segir hver einn og einasti, undantekningalaust, af vinum mín- um og kunningjum sem nota „þjón- ustu“ Tals hf. og þeir era ekki fáir. Besta kenning sem ég hef heyrt um þessi mál er að einungis sé einn starfsmaður á kvöld- og næturvakt og hann sé ýmist sofandi (eftir að hafa tekið símann úr sambandi) eða blaðrandi við vini sína í símann og fylgir þessari kenningu að ráða- mönnum Tals sé alveg sama, þar sem kjánar eins og ég og mínir vin- ir muni ávallt reyna aftur og aftur, í von um að Tal hf. standi við orð sín og að við munum láta glepjast af símsvaranum í hvert skipti. (En við þurfum að borga Tali hf. fyrir hverja mínútu sem við bíðum - þrátt fyrir að þeir haldi öðra fram.) Geti maður ekki staðið við gefin loforð á maður að draga þau til baka og ekki gefa slík loforð fram- vegis. Þetta lærði ég sem smábarn og vonandi fer einhver að kenna ráðamönnum Tals hf. þetta sem fyrst! KRISTJÁN FRIÐBERT FRIÐBERTSSON, Fífuhvammi 3, Kópavogi. Hef hafiö s törf á Snyrti- og nuddstofu tlönnu Kristínar, Laugavegi 40a, sími 561 8677. Helga Björk Ólafsdóttir, nuddari. 0 'ÁX éf Landsfundur Sjálfstæðisflokksins 11.-14. mars 1999 Félagsfundir vegna kjörs landsfundarfulltrúa verða haldnir í sjáífstæðisfélögunum í Reykjavík sem hér segir: Sjálfstæðiskvennafélagið Hvöt miðvikudaginn 17. febrúar kl. 20.30 í Valhöll. Heimdallur FUS miðvikudaginn 17. febrúar kl. 20.00 í Valhöll. Félag sjálfstæðismanna í: Nes- og Melahverfi miðvikudag 17. febrúar kl. 17.30 í Valhöll. Vestur- og miðbæ mánudag 22. febrúar. kl. 17.30 íValhöll. Austurbæ og Norðurmýri þriðjudag 16. febrúar kl. 18.00 í Valhöll. Hlíða- og Holtahverfi miðvikudag 17. febrúar. kl. 18.00 í Valhöll. Laugarneshverfi fimmtudag 18. febrúar. kl. 20,00 í Valhöll. Langholtshverfi mánudag 15. febrúar. kl. 18.00 í Valhöll. Háaleitishverfi miðvikudag 10 febrúar. kl. 19.00 íValhöll. Smáíbúða- Bústaða og Fossvogshverfi fimmtudag 11. febrúar. kl. 20.30 íYalhöU. Arbæjar- Selás og Artúnsholt mánudag 15. febrúar. kl. 20.00 í Félagsheimili sjálfstæðismanna, Hraunbæ 102b. Bakka- og Stekkjahverfi mánudag 15. febrúar. kl. 18.00 í Félagsheimili sjálfstæðismanna, Álfabakka 14a. Hóla- og Fellahverfi miðvikudaginn 10. febrúar. kl. 18.00 í Félagsheimili sjálfstæðismanna, Álfabakka 14a. Skóga- og Seljahverfi laugardag 13. febrúar. kl. 10.30 í Félagsheimili sjálf- stæðismanna, Álfabakka 14a. Grafarvogshverfi fimmtudaginn 11. febrúar. kl. 20.00 í Félagsheimili sjálf- stæðismanna, Hverafold 1-3. Sjálfstæðisfélögin í Reykjavík
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.