Morgunblaðið - 10.02.1999, Qupperneq 64
www.vr.is
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
Drögum
í ðag!
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ISLANDS
vænlegast til vinnings
MORG UNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 1999
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Mikið tap á
La Bacaladera
Yfírmaður hjá danska rikissjónvarpinu
Dreifíng Breiðbands-
ins á efni DR ólögmæt
DREIFING á efni danska ríkis-
sjónvarpsins DR TV á Breiðbandi
Landssímans er ólögmæt og brýt-
ur í bága við samning DR TV við
fyrirtækið Telenor, sem annast
hefur endurvarp á efni norrænna
sjónvarpsstöðva. Þetta kemur fram
í bréfi sem Finn Rowold, yfirmaður
TV International, deildar innan
DR TV, sendi fyrirtækinu World-
vision 5. febrúar sl., en Worldvision
annast framleiðslu og sölu sjón-
_varpsefnis um heiminn. í bréfinu
■ 'Sem Morgunblaðið hefur undir
höndum heldur Finn Rowold því
einnig fram að endurvarp þessa
sjónvarpsefnis á íslandi stangist á
við íslensk höfundarréttarlög.
Samstarf endurskoðað verði
útsendingum ekki hætt
Landssíminn hóf að senda út
dagskrá sex norrænna sjónvarps-
rása í seinasta mánuði, tveggja
rása sænska ríkissjónvarpsins,
SVTl og SVT2, tveggja rása
norska ríkissjónvarpsins, NRKl og
NRK2, og dagskrá DRl-rásar
danska ríkissjónvarpsins og
dönsku sjónvarpsstöðvarinnar
TV2. Fram kom hins vegar í Morg-
unblaðinu sl. laugardag að Lands-
síminn ákvað að hætta að endur-
varpa efni TV2 vegna þess að á
dagskrá hennar er efni, sem Is-
lenska útvarpsfélagið hefur keypt
á sýningarrétt á Islandi. í hennar
stað var ákveðið að endurvarpa
efni annarrar rásar danska ríkis-
sjónvarpsins DR2.
í bréfi Finns Rowold kemur
einnig fram að DR TV hefur til-
kynnt Telenor að ef þessu ólöglega
endurvarpi á sjónvarpsútsending-
um DR TV verði ekki hætt strax
muni danska ríkissjónvarpið taka
samstarf sitt við Telenor til endur-
skoðunar.
NORSKA saltfiskfyrh’tækið Troms-
fisk og samstai-fsbanki þess, Fokus
Bank, hafa tapað hundruðum millj-
óna íslenzkra króna á kaupum og
rekstri spænsku saltfiskverksmiðj-
unnar La Bacaladera. Norðmennim-
ir komust upp á milli eigenda La
Bacaladera og SIF fyrir rúmum
tveimur ái’um, þegar undirrituð
hafði verið viljayfirlýsing beggja að-
ila um kaup SIF á fyrirtækinu.
Norska sjávarútvegsblaðið
Fiskeribladet greinir frá þessum
taprekstri La Bacaladera í nýjasta
tölublaði sínu. Þar segir að ekki hafi
tekizt að fá nákvæmar tölur um tap-
reksturinn, en hann sé gífurlegur,
hundmð milljóna. Fulltrúar Fokus
Bank hafa ekki viljað tjá sig um mál-
ið, enda er um trúnaðarmál milli
bankans og viðskiptavina hans að
ræða.
Þegar samningar SIF og eigenda
La Bacaladera voru komnir á loka-
stig kom inn í þá ákvæði um hækkun
eða lækkun kaupverðs á fyrirtækinu
í samræmi við afkomu þess. Ymis-
legt benti þá til þess að yrði sú leið
farin, yi’ði kaupverðið lágt vegna
bágrar afkomu. A þeim tímapunkti
komu Norðmennirnir inn og buðu
betur en SÍF. SÍF hóf þá skaðabóta-
mál en hvarf síðan frá þeim mála-
rekstri gegn skilvíslegri greiðslu
útistandandi krafna vegna saltfisk-
sölu SIF til La Bacaladera. Við þær
greiðslur hefur verið staðið enda var
SIF með trygg veð fyrir þeim.
■ Tromsfisk tapar/Bl
Samningur OZ hf. og Ericsson
OZ fær verulega
hlutdeild í sölu
hugbúnaðar
SAMNINGUR sá sem hugbúnað-
arfyrirtækið OZ hf. hefur gert við
stórfyrirtækið Ericsson um sam-
starf felur meðal annars í sér að
OZ fær verulega hlutdeild í sölu
hugbúnaðarins sem Ericsson mun
dreifa um allan heim en fyrirtækið
er með útibú í 132 löndum.
Að sögn Skúla Mogensen, eins af
eigendum OZ, felst í samningnum
að Ericsson kaupir af OZ ákveðna
tækni sem fyrirtækið hefur verið
'áð þróa undanfarin ár.
Aukin umsvif á næstunni
„I annan stað er um að ræða
mjög umfangsmikið samstarf um
að þróa áfram þessa tækni á næstu
þremur árum að minnsta kosti og
að þróa og rannsaka nýjar lausnir
innan samskiptageirans. I þriðja
lagi munum við fá verulega hlut-
deild í sölu þessa hugbúnaðar. Það
er eiginlega það sem við bindum
mestar vonir við. Þessum hugbún-
aði verður dreift og hann seldur og
studdur af Ericsson um allan
heim,“ segir hann.
„Eriesson er með útibú í 132
löndum og með um 100 þúsund
starfsmenn. Það hefur gríðarlega
möguleika í fór með sér. Sala á
þessum búnaði mun hefjast í maí á
þessu ári. Þetta er því komið mjög
langt á veg,“ segir Skúli. Hann
sagði það einnig þýðingarmikið
fyrir fyrirtækið að vörumerki OZ
muni koma skýrt fram á þessum
hugbúnaði.
Samstarfið við Ericsson hefur þá
þýðingu að umsvif OZ aukast veru-
lega en fyrirtækið er með starfs-
stöðvar í Reykjavík, San Fransisco
og Stokkhólmi. „Ég á fastlega von
á að við munum auka töluvert við
okkur á öllum vígstöðvum núna á
næstunni, ekki síst í Stokkhólmi,"
sagði Skúli.
■ Hvetur okkur/6
Skólaást
Morgunblaðið/Kristinn
ÞEGAR ástin tekur völd gleymist
bæði staður og stund og tilfínning-
arnar stjórna gerðum elskendanna.
Ljdsmyndurum er fátt óviðkomandi
og með annars konar tilfinningum,
svo sem fyrir mynduppbyggingu,
lýsingu og þess háttar, hleypa þeir
af þegar síst skyldi.
Fiskistofa svarar umsdknum um kvóta og veiðileyfí
Sumir fá jákvæð svör
Á ALLRA næstu dögum fara bréf
fi’á Fiskistofu í póst til þeirra sem
sóttu um veiðileyfi og kvóta í kjölfar
dóms Hæstaréttar í máli Valdimars
Jóhannessonar, en u.þ.b. 4.000 aðilar
sendu inn umsóknir. Að sögn Þórðar
Ásgeirssonar fiskistofustjóra eru
svörin ekki á einn veg. Sumir þeirra
sem óska eftir veiðileyfi fái jákvæð
^Svör. Hann segir að séu menn ekki
ánægðir með svörin geti þeir lögum
samkvæmt skotið málinu til sjávar-
útvegsráðuneytisins.
Flestar umsóknirnar voru send-
ar sjávarútvegsráðuneytinu, en
lögum samkvæmt gefur Fiskistofa
út veiðileyfi og þess vegna voru
•^Jmsóknirnar sendar til Fiskistofu.
„Það er mikið verk að svara
Hægl að skjóta niðurstöðu Fiskistofu
til sjávarútvegsráðuneytisins
þessu. Þetta voru margar umsókn-
ir eins og menn vita og af ýmsum
toga. Það hefur verið mikil vinna
bara að flokka umsóknirnar eftir
því hvað menn era að biðja um og
eftir því hvort menn era með skip
eða ekki o.s.frv. Menn era enn ekki
farnir að fá svör, en útsending á
fyrstu svöranum fer að hefjast,"
sagði Þórður.
Svörin ekki á einn veg
Þórður sagði að svörin gætu ekki
verið á einn veg vegna þess að um-
sóknirnar væra svo ólíkar. Um-
sóknirnar hefðu verið flokkaðar
eftir því hvort menn væra að biðja
um veiðileyfi eðá kvóta eða hvort
tveggja. Eins þyrfti að taka tillit til
þess hvort menn væru með skip og
þá hvers konar skip.
Þórður sagði að sumir af þeim
sem hefðu óskað eftir veiðileyfi
fengju leyfi. Hins vegar væri ekki
hægt að veita mönnum veiðileyfi
nema á eitthvert tiltekið skip. Áð-
spurður hvort einhver fengi kvóta
sagði Þórður að það væri búið að
úthluta öllum kvóta þessa fiskveiði-
árs.
„Lögum samkvæmt er það
Fiskistofa sem gefur út veiðileyfi
og þess vegna er það Fiskistofa
sem svarar umsóknunum. Ef menn
era hins vegar ekki ánægðir með
þau svör sem þeir fá hér geta þeir
skotið málinu til sjávarútvegsráðu-
neytisins sem úrskúrðar," sagði
Þórður.
Hann sagði að ef menn hefðu
hug á að láta reyna á svörin fyrir
dómstólum væri hinn eðlÖegi
gangur málsins að skjóta málinu
fyrst til ráðuneytisins áður en far-
ið væri með málið fyrir dómstóla.
Það væri ekki sjálfgefið að sjávar-
útvegsráðuneytið hefði sömu af-
stöðu til einstakra umsókna og
Fiskistofa.
Ráðherra
heimilaði
framsal
BORGARLÖGMAÐUR kemst að
allt annarri niðurstöðu en Hreinn
Loftsson hæstaréttarlögmaður
komst að í álitsgerð sem hann vann
fyrir Hafnarfjarðarbæ, um lögmæti
og gildi orkusamnings sem Hita-
veita Reykjavíkur og Hafnarfjarð-
arbær gerðu árið 1973.
Lögmanni Hafnarfjarðarbæjar
var ekki kunnugt um samþykki iðn-
aðarráðherra íyrir framsali á einka-
leyfi til rekstrar hitaveitu í bænum.
í greinargerð borgarlögmanns seg-
ir að í gögnum Reykjavíkurborgar
sé að finna bréf iðnaðarráðherra til
bæjarstjórans í Hafnarfirði sem
heimilar framsal einkaleyfisins.
1 niðurstöðum endurskoðunarfjT-
irtækisins Deloitte & Touche kemur
fram að Hitaveita Reykjavíkur
hefði þurft að selja orku til Kópa-
vogs, Garðabæjar, Hafnarfjarðar og
Bessastaðahrepps á um 80% hærra
verði en gert hefur verið. Þá hafi
fórnarkostnaður Hitaveitunnar
vegna viðskiptanna verið samtals
um 3,1 milljarður króna fyrir árin
1993-1997.
■ 80% hærra/10