Morgunblaðið - 12.02.1999, Side 1

Morgunblaðið - 12.02.1999, Side 1
35. TBL. 87. ÁRG. FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Deilt um hvort beita eigi Serba hervaldi hindri þeir samkomulag um frið í Kosovo Albright segir að íhlutun hafi verið ákveðin París. Reuters. MADELEINE Albright, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í gær að þegar hefði verið ákveðið að gera árásir á serbnesk skotmörk ef viðræð- urnar um frið í Kosovo færu út um þúfur vegna þrákelkni Serba. Rússar sögðu hins vegar að þeir væru enn andvígir hernaðaríhlutun í Júgóslavíu, sambandsríki Serbíu og Svartfjallalands, og að Atlantshafsbandalagið ætti ekki að reyna að hafa áhrif á friðarviðræðurnar með því að hóta árásum. „Ef Serbar eiga sökina á því að viðræðumar renna út í sandinn verða árásir gerðar á serbnesk skot- mörk,“ sagði Albright í viðtali við íranska sjónvarpsstöð. „Friðai-um- leitunum okkar verður fylgt eftir með valdbeitingu og sú ákvörðun, að beita hervaldi beri viðræðurnar ekki árangur hefur þegai- verið tekin.“ Albright sagði að Kosovo-Albön- um yrði einnig refsað ef þeir hindr- uðu að samkomulag næðist um frið í Kosovo. „Ef leiðtogar Frelsishers Kosovo og Albanar eiga sökina þá missa þeir þann alþjóðlega stuðning sem þeir reiða sig á til að ná fram markmiðum sínurn." Friðarviðræðurnar hófust í Frakklandi að tilhlutan tengslahóps- ins svokallaða og fara fram undir stjórn þriggja sáttasemjara frá Bandaríkjunum, Rússlandi og Aust- un’íki. Vladímír Rakhmanín, tals- maður rússneska utanríkisráðuneyt- isins, sagði að Rússar væru andvígir því að hótunum um hernaðaríhlutun yrði beitt til að knýja fram friðar- samkomulag. „Við höfum áhyggjur af tilraunum til að tengja ákvarðanir tengslahópsins við áform NATO um að beita hervaldi," sagði hann. Robin Cook, utanríkisráðherra Bretlands, sakaði í gær fulltrúa Júgóslavíu í friðarviðræðunum um að hindra að þær bæru árangur en taldi líklegt að þeim yrði haldið áfram í næstu viku. Hann sagði að Serbar hefðu tafið viðræðurnar með því að halda til streitu kröfu um að Kosovo-Albanar undirrituðu yfirlýs- ingu um grundvallaratriði hugsan- legs friðarsamkomulags, m.a. um að landamærum Júgóslavíu yrði ekki breytt. Reuters Kosovo-Albanar bornir til grafar ALLT að 10.000 manns fylgdu 40 Kosovo-Albönum til grafar í þorpinu Racak í gær, þremur vikum eftir að serbneskar öryggissveitir urðu þeim að bana. Willam Walker, yfirmaður eftirlitssveita Öryggis- og sam- vinnustofnunar Evrópu í Kosovo, sagði í ávarpi við jarðsetninguna að drápin væru óréttlætanleg og ákæra þyrfti þá sem stóðu að þeim. Walker lýsti dráp- unum sem „fjöldamorði" þegar líkin fundust. Líkkisturnar voru allar sveipaðar albanska fánan- um. Jarðsetningin tafðist þar sem líkin urðu peð í valdatafli serbneskra yfirvalda og Kosovo-Albana, sem berjast fyrir sjálfstæði héraðsins. Apar fái „mannréttindiu Búist er við að Bandaríkjaforseti verði sýknaður í dag Minni stuðningur við vítur á Clinton Washington. Reuters. GERT er ráð fyrir að öldungadeild Bandaríkjaþings greiði atkvæði í dag um ákæruna á hendur Bill Clinton og talið er að mikið vanti á að forsetinn verði sakfelldur og sviptur embættinu þar sem nokkr- ir þingmenn repúblikana hafa lagst gegn sakfellingu. Demókrat- ar hafa stefnt að því að leggja fram tillögu um að forsetinn verði víttur eftir að réttarhaldinu lýkur en stuðningurinn við hana hefur einnig minnkað. Þrír þingmenn repúblikana, James Jeffords, Arlen Spector og John Chafee, hafa sagt að þeir ætli að greiða atkvæði gegn ákærunni og Jeffords sagði í gær að sex eða sjö af 55 þingmönnum repúblikana kynnu að greiða atkvæði gegn báðum ákæruatriðunum. Búist er við að allir 45 þingmenn demókrata hafni ákærunni, þannig að óvíst er hvort rúmur helmingur þingmannanna samþykkir sakfell- ingu. Til að víkja forsetanum úr embætti þurfa tveii’ þriðju þing- manna öldungadeildarinnar, eða 67, að sakfella hann og því yrði það mik- ið áfall fyrir repúblikana ef þeim tækist ekki einu sinni að tryggja ein- faldan meirihluta. Clinton var ákærður fyrir að hafa framið meinsæri og hindrað fram- gang réttvísinnar og talið er að meinsærisákæran verði felld með miklum mun. Óvissa er hins vegar um hvort meirihluti öldungadeildar- innar telur forsetann sekan um að hafa lagt stein í götu réttvísinnar til að leyna sambandi sínu við Monicu Lewinsky, fyrrverandi starfsstúlku í Hvíta húsinu. Ætla að hindra atkvæða- greiðslu um vítur Trent Lott, leiðtogi repúblikana í öldungadeildinni, sagði í gær að stefnt væri að því að ákæruatriðin yi’ðu borin undir atkvæði ekki síð- ar en kl. 17 í dag. Tveir þriðju þingmannanna þurfa einnig að greiða atkvæði með því að reglum öldungadeildarinnar verði breytt til að hægt verði að taka fyrir tillögu demókrata um vítur á forsetann þegar réttarhald- inu lýkur. Andstæðingar ályktun- artillögunnar sögðust ætla að koma í veg fyrir að hún yrði borin undir atkvæði með því að hafna breyting- unni. „Eg tel að ályktunin um vítur sé dauð,“ sagði repúblikaninn Connie Mock. Lundúnum. Daily Tclegnraph. FRUMVARP til dýraverndunarlaga, sem m.a. kveður á um réttindi mannapa, er til um- fjöllunar í nýsjá- lenska þinginu. Verði það að lögum verða simpansar, górillur og órangútan-apar fyrstu dýrin sem tryggður er réttur- inn til lífs, og vernd gegn grimmilegri og lítillækkandi meðferð, sem þýðir í raun vernd gegn næstum öllum teg- undum tilrauna. Fylgismenn aukinna réttinda mannapa vilja einnig að Samein- uðu þjóðirnar samþykki yfirlýs- ingu um réttindi mannapa, sem yrði hliðstæð Mannréttindayfir- lýsingu SÞ. „Hugmyndin er að sýna öðrum þjóðum gott fordæmi,“ segir Penny, líffræðingur við Massey- háskólann, en hann er í forsvari 38 nýsjálenskra vísindamanna sem þrýst hafa á um setningu laganna. Tilraunir á mannöpum eru bannaðar á Nýja-Sjálandi og Bretlandseyjum. I Bandaríkjun- um eru 1.700 apar notaðir til til- rauna um þessar mundir. Fólk sem berst fyrir auknum réttind- um apanna segir dýrin hafa sjálfsmeðvitund og persónuleika, þau myndi tilfinn- ingasambönd og séu greind. Einnig hafi aparnir málþroska á byrjunarstigi og ým- islegt annað bendi til þess að þeir séu „mannlegir" og eigi því ótvírætt að njóta þeirrar verndar sem mannréttindi veita mannkyni. Vísindamenn sem stunda læknisfræði- legar rannsóknir og tilraunir á dýrum telja fylgismenn aukinna réttinda apa vilja í raun banna allar tilraunir á dýr- um. Frans de Waal, vísindamaður hjá Yerkes-stofnuninni í Atlanta í Bandaríkjunuin, telur að með sömu röksemdafærslu og notuð er um tengsl apanna við menn megi færa rök fyrir því að ekki skuli nota rottur til læknisrann- sókna. I grein í tímaritinu New Scient- ist er varað við því að draga of víðtækar ályktanir af skyldleika manna og dýra, þótt hann sé mik- ill. Þar segir að skyldleiki dýra við menn hljóti að veita á því hvort „hugsun um hugsun sé til staðar. Búi skepna ekki yfir þess- um hæfileika - og ekkert hefur sannað að mannapar geri það - þá er örðugt að færa sönnur á siðferðilegt eðli hennar.“ Sýknudómi í nauðgunar- máli harðlega mótmælt Rdm. Reuters. DÓMARAR, lögfræðingar og stjórnmálamenn í öllum flokkum Ítalíu brugðust í gær ókvæða við þeirri niðurstöðu æðsta áfrýjun- ardómstóls landsins að ekki hefði verið hægt að nauðga konu vegna þess að hún klæddist gallabuxum. 45 ára ökukennari hafði verið dæmdur í tæplega þriggja ára fangelsi fyrir að nauðga 18 ára nemanda sínum, en áfrýjunar- rétturinn hnekkti dómnum á þeirri forsendu að „ógjörningur" væri að færa konur úr gallabux- um ef „þær streittust á móti af öllu afli“. Italski dómarinn Simonetta Sotgiu sagði að úrskurðurinn færði dómskerfið aftur um 30 ár. Sex þingkonur efndu til mótmæla við þinghúsið í Róm klæddar gallabuxum og héldu á spjöldum með áletruninni: „Gallabuxur: af- sökunin fyrir nauðgun."

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.