Morgunblaðið - 12.02.1999, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Öldungadelld Bandaríkjaþings lokar enn að sér:
ÞAÐ er ekki illa meint Monica litla, bara aldurinn góða ...
ÍSAL og Eimskipafélagið gegn Sjómannafélagi Reykjavíkur
Héraðsdómur staðfest-
ir ólögmæti aðgerða
AÐGERÐIR félaga í Sjómannafé-
lagi Reykjavíkur, þegar þeir hindr-
uðu affermingu álskauta í Straums-
nesi í október á síðasta ári, voru úr-
skurðaðar ólögmætar af Jónasi Jó-
hannssyni héraðsdómara í dómi á
dómþingi Héraðsdóms Reykjaness,
sem kveðinn var upp á þriðjudag.
Héraðsdómari staðfesti allar kröf-
ur stefnenda í máli íslenska álfélags-
ins hf. og Eimskipafélags Islands
gegn Sjómannafélagi Reykjavíkur.
Dómkröfurnar voru þrjár: Farið var
fram á staðfestingu lögbannsins,
staðfestingu á ólögmæti aðgerða
stefnda og að stefndi greiddi stefn-
endum málskostnað.
Tildrög málsins voru aðgerðir fé-
lagsmanna Sjómannafélags Reykja-
víkur í þá veru að hindra affermingu
á álskautum úr leiguskipi Eimskipa,
ms. Hanseduo, þar sem það lá við
höfn í Straumsvík, mánudaginn 26.
október 1998. Þetta gerðu félags-
menn m.a. með því að setjast á lyft-
ara í eigu ISAL og komu þannig í
veg fyrir að staiísmenn ISAL gætu
unnið störf sín.
Að beiðni stefnenda lagði sýslu-
maðurinn í Hafnarfírði lögbann við
aðgerðum stefnda. Lögregla fór í
framhaldi á vettvang og stöðvaði að-
gerðir.
Astæður fyrir aðgerðum félags-
manna Sjómannafélags Reykjavíkur
voru þær að félagið taldi sig eiga í
vinnudeilum við hinn þýska útgerð-
araðila m.s. Hanseduo, út af kjara-
samningum áhafnar skipsins. En af
ellefu manna áhöfn voru níu erlendir
ríkisborgarar og tveir íslenskir. Til-
gangur aðgerðanna var sá að knýja á
um gerð nýs kjarasamnings við út-
gerðarfélagið en eldri kjarasamning-
ur var fallinn úr gildi vegna van-
efnda útgerðarfélagsins.
Stefíiandi Eimskip hélt því hins
vegar fram að ekkert vinnuréttar-
samband væri milli þeirra og skip-
verja á ms. Hanseduo „og eigi heldur
milli þeirra og stefnda“, eins og segir
í dómnum.
Dómsorð Jónasar Jóhannssonar
héraðsdómara er orðrétt þannig:
„Staðfest er lögbann, sem Sýslumað-
m’ í Hafnarfírði lagði 27. október
1998 við því að stefndi, Sjómannafé-
lag Reykjavíkur, hindri losun og
lestun á vörum stefnenda Islenska
álfélagsins hf. úr og í leiguskip stefn-
enda HF Eimskipafélags Islands,
m.s. Hanseduo, með veru og aðgerð-
um félagsmanna stefnda á hafnai’-
bakkanum í Straumsvík.
Stefndi greiði hvorum stefnenda
fyrir sig 100.000 kr. í málskotnað."
Þú getur látiðþau segja
nánast hvað sem er,
við hvem sem er.
ÍSLENSK
GARÐYRKJA
- okkar allra vegna
Mjólkursamsalan og Islensk málstöð
Samningurinn
endurnýjaður
Baldur Jónsson
AMSTARF Mjólk-
ursamsölunnar í
Reykjavík og Is-
lenskrar málstöðvar hef-
ur staðið í nokkur ár, eða
frá árinu 1994 þegar
þessir aðilar skrifuðu
undir viijajd'irlýsingu
þess efnis að vinna saman
að íslenskri málrækt. í
þessum samningi kemur
m.a. fram að Mjólkur-
samsalan muni leggja sitt
af mörkum til þess. að
örva umræðu um íslenskt
mál og efla þekkingu í
samráði við Islenska mál-
stöð, en að sögn Baldurs
Jónssonar, markaðsstjóra
hjá Mjólkursamsölunni í
Reykjavík, hefur Mjólk-
ursamsalan ekki litið á
það sem hlutverk sitt að
kenna fólki íslensku, það telur
hann vera iyrst og fremst verk-
efni heimili og skóla. En hvemig
hefur þessu samstarfí þá verið
háttað?
- Þegar samstarfið hófst árið 1994
háði fjárskortur starfsemi Is-
lenskrar málstöðvar. Til að koma
að litlu leyti til móts við það
vandamál þá hafði Mjólkursam-
salan forgöngu um að endurnýja
tölvubúnað hjá málstöðinni. í
mars næstkomandi stendur til að
Mjólkursamsalan og íslensk mál-
stöð endurnýi samstarfssamning
sinn til næstu ára. Við sama tæki-
færi mun Mjólkursamsalan form-
lega afhenda málstöðinni tölvu-
búnað í framhaldi af því sem þegj
ar hefur verið gert á því sviði. I
Ráðhúsinu í Reykjavík mun þá
einnig verða fjölskylduskemmtun
og upplestrar á vegum Mjólkur-
samsölunnar.
- Hvemig hefur þetta samstarf
helst birst almenningi?
- Það hefur verið sýnilegast í 132
ábendingum alls um íslenskt mál
sem birst hafa á mjólkurumbúð-
um, sem hefur vonandi glætt
áhuga almennings á móðurmál-
inu. Þessar ábendingar hafa m.a.
vakið athygli skólafólks og í fram-
haldi af áhuga þeirra aðila þá höf-
um við gefið út safnmöppur í
tvígang og dreift til kennara í
grunnskólum. Þessar möppur er
hægt að nálgast hjá okkur og þær
eru komnar á heimasíðu Mjólkur-
samsölunnar á Netinu, (MS.IS)
þannig að fólk gæti prentað þær
út ef áhugi er fyrir hendi. A
heimasíðunni er þó nokkuð mikið
af ítarefni um það sem Mjólkur-
samsalan hefur látið til sín taka
til þess að glæða áhuga íslensku
þjóðarinnar á sínu móðurmáli. Þá
má geta þess að í upphafi fyrr-
greinds samstarfs var birt aug-
lýsing þar sem Alexandra Gunn-
laugsdóttir söng ljóð Þórarins
Eldjárns, sem var frumsamið af
þessu tilefni og er við lag Atla
Heimis Sveinssonar. Þessi aug-
lýsing birtist á hátíðis- og tylli-
dögum og er orðin nokkuð svo sí-
gild.
- Hvernig veljið þið
áletranir á
umbúðirnar?
- Það höfum við gert í
samráði við verktaka
sem fæst við almannatengsl,
þessir textar hafa síðan verið
valdir í samráði við íslenska mál-
nefnd og hefur nefndin verið leið-
beinandi varðandi það efni. Á
næstunni koma út nýir textar á
umbúðum. Þar er dregið úr
ábendingum og umvöndunum en
dregnir fram athyglisverðir text-
ar sem sýna fjölbreytileika ís-
lenskra bókmennta og íslenskrar
► Baldur Jónsson er fæddur í
Reykjavík 13. júlí 1947. Hann
Iauk verslunarskólaprófi 1966
og hóf störf eftir það við sölu-
og markaðsmál og hefur unnið
óslitið siðan að þeim málum.
Nú starfar hann sem markaðs-
stjóri hjá Mjólkursamsöluuni í
Reykjavík, en Mjólkursamsal-
an á um þessar mundir hlut að
samstarfi við íslenska málstöð
með það að markmiði að styðja
íslenskt mál. Baldur er kvænt-
ur Ragnheiði Brynjólfsdóttur
fíugfreyju og eiga þau þrjú
börn.
tungu. Það verður minna talað
um málnotkun en íslenskan látin
tala fyrir sig sjálf. Birt verða
m.a. brot úr ýmsum bókmennta-
textum, svo sem úr verkum Hall-
dórs Laxness, Einars Benedikts-
sonar og fleiri höfunda.
- Hafíð þið gert fleira til þess að
styðja við móðurmálið?
- Já, við höfum tekið þátt í Degi
íslenskrar tungu, árlega hafa ver-
ið birtar auglýsingar á vegum
Mjólkursamsölunnar í Reykjavík
til þess að vekja athygli á þessum
degi. Við gáfum m.a. út vegg-
spjald með mynd af Jóni Sigurðs-
syni forseta og á bakhlið þessa
spjalds var nafnalisti yfir sex
hundruð Islendinga en myndin
var sett saman með ákveðinni
Ijósmyndatækni þar sem myndir
af þessum Islendingum mynduðu
heildarmyndina af Jóni. Þess má
einnig geta að Mjólkursamsalan
hlaut viðurkenningu Lýðveldis-
sjóðs árið 1995 íyrir að hafa sýnt
hugmyndaauðgi og lofsvert fram-
tak til þess að vekja athygli á ís-
lenskri tungu.
- Hvers vegna var ákveðið að
styðja á þennan hátt við íslenska
tungu?
- íslensk menning og íslenskt at-
vinnulíf eiga sameiginlegra hags-
muna að gæta í síauknum alþjóð-
legum samskiptum. Mjólkursam-
salan og samstarfsfyrirtæki í
mjólkuriðnaði vinna á íslenskum
markaði úr íslensku
hráefni frá íslenskum
framleiðendum og
fyrir íslenska neyt-
endur. Þessi tengsl öll
og tengslin við Is-
lenska málstöð hafa skotið styrk-
ari stoðum undir neyslu á okkar
framleiðsluvörum. Loks má geta
þess að til stendur að bregða á
leik í Kringlunni 12. og 13. febrú-
ar nk. þar sem nýir textar á um-
búðum Mjólkursamsölunnar
verða kynntir, efnt verður til
upplestra og getrauna og rithöf-
undar og söngvarar flytja eigið
efni.
mjólkur-
Islenskan
látin tala fyrir
sig sjálf