Morgunblaðið - 12.02.1999, Blaðsíða 22
22 FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1999
ERLENT
MORGUNB LAÐIÐ
Grein í breska dagblað-
inu The Times
Keiko
bjargar
þjóðar-
hag
SÚ STAÐREYND að Keikó
er aftur kominn til Islands
gæti forðað Islendingum frá
gjaldþroti, að sögn dagblaðs-
ins The Times, sem gefíð er út
í Lundúnum. Vegna gífurlegs
áhuga ferðamanna á Keikó og
aðlögun hans að íslensku vist-
kerfí, sé íslenska ríkisstjórnin
undir enn meiri þrýstingi að
hefja ekki hvalveiðar á ný.
Fiskurinn sé aðalútflutnings-
vara þjóðarinnar og eftirspum
eftir honum myndi minnka
verulega ef Islendingar virtu
þennan þrýsting að vettugi.
Islenska þjóðin orðin
óþreyjufull
Blaðamaðurinn Michael
Binyon segir íslensku ríkis-
stjórnina standa frammi fyrir
erfiðri ákvörðun varðandi
hvalveiðar. Nú séu 10 ár liðin
frá því að Islendingar neydd-
ust til að hætta hvalveiðum
vegna alþjóðlegs þrýstings, en
íslenska þjóðin sé nú orðin
óþreyjufull. Hann segir tvö
sjónarmið helst stangast á í
umræðunni. Fyrir það íyi’sta
gangi hvalurinn á fiskistofna
og til að stöðva þá þróun þurfi
Islendingar að hefja hvalveið-
ar á ný. Minnst 100 hvali þurfí
að veiða á ári til að veiðarnar
borgi sig, en Islendingar sjálf-
ir gætu aðeins neytt um 50
hvala. Útflutningur á hinum
helmingnum, segir Binyon, að
sé nánast ógerlegur, þar sem
jafnvel Japanar vilja ekki
lengur kaupa af Islendingum
hval. Einnig óttist ríkisstjórn-
in aðallega viðbrögð Breta,
Bandaríkjamanna og Þjóð-
verja, en stærstu fiskmarkaðir
íslendinga séu þar.
Hvalveiðar dragi úr
straumi ferðamanna
I annan stað heldur Binyon
því fram að verulega muni
draga úr straumi ferðamanna
til landsins hefjist hvalveiðar á
ný og tekjur af ferðaþjónustu
Islendinga því minnka umtals-
vert. Aftur á móti sé líklegt að
ferðaþjónustan blómstri, ekki
síst vegna komu Keikós til
landsins hefji Islendingar ekki
hvalveiðar.
&jmmaa B löndunartæki
Hilastillui Mora Mega
blöndunartækin fyrir bað tryggja
öryggi og þægindi. Mora Mega er
árangur margra ára vöruþróunar
og betrumbóta.
Mora sænsk gæðavara
Þrengingar f brasilfsku efnahagslífí ógna stöðugleikanum
Stjórn Cardosos tekst
á við sambandsríkin
Brasiliu. Reuters.
RIKISSTJORN Brasilíu tilkynnti í
gær, að hún myndi lána sambands-
ríkinu Minas Gerais fyrir helmingi
skulda þess en ríkið er skuldugast
hinna 27 sambandsríkja Brasilíu.
Viðræður hafa staðið að undan-
fömu milli ríkisstjómarinnar og
sambandsríkjanna í því augnamiði
að sefa fjárfesta, sem óttast að
stjómin geti ekki knúið fram
sparnaðaraðgerðir til að rninnka
fjárlagahallann. Reyndi stjómin þó
að letja önnur sambandsríki í að
reyna að fá viðlíka aðstoð - lánið
yrði innheimt.
Sýnt þykir að sambandsríkið
eigi fjármuni til að greiða hinn
helming skuldanna en frestur sá
sem það krafðist í janúar á endur-
greiðslum lána til alríkisstjórnar-
innar olli miklum titringi á fjár-
málamörkuðum heims og 35%
gengisfellingu realsins, gjaldmið-
ils Brasilíu, í kjölfarið. Talið er að
ef hertar aðhaldsaðgerðir Brasil-
íustjórnar mistakist, muni hún
ekki ná að minnka fjárlagahallann,
sem er nú 8% af vergri landsfram-
leiðslu og kunni það að grafa und-
an trausti fjárfesta og valda út-
streymi fjármagns frá Brasilíu.
Ríkið stendur nú frammi fyrir al-
varlegustu efnahagskreppu í land-
inu í þrjá áratugi og áætlað er að
landsfrainleiðslan minnki um
3-7% á árinu.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
krefst aðhalds
Fjármálasérfræðingar eru enn
uggandi og segja að meira þurfí að
koma til svo sambandsríkin fallist
öll á aðhaldsaðgerðirnar, sem
Fernando Henrique Cardoso, for-
seti Brasilíu, hefur lofað Alþjóða-
gjaldeyrissjóðnum (IMF) gegn því
að landið fái umfangsmikla lánafyr-
irgreiðslu. Fundir fulltrúa ríkis-
stjórnarinnar og IMF standa nú
yfir en þar verða teknar ákvarðan-
ir um hvaða efnahagsmarkmið rík-
isstjómin muni setja sér. Sam-
komulag mun þýða að IMF greiðir
strax út einn fjórða hluta 41,5
milljarða dala láns sem samið var
um í nóvember sl.
Þrátt fyrir erfíðar samningavið-
ræður við sambandsríkin og IMF
virðist ró vera að nást á fjármála-
mörkuðum. Realinn hefur á undan-
förnum dögum haldist stöðugur
gagnvart Bandaríkjadal.
Seðlabanki Brasilíu skipaði á
miðvikudag 5 nýja bankastjóra og
koma þrír þeirra úr fjármálageir-
anum. Aðalbankastjóri seðlabank-
ans er Arminio Fraga sem áður var
aðstoðarmaður auðkýfingsins Ge-
orge Soros og era vonir bundnar
við að skipan hans við stjórnvölinn
og fjármálamanna við hans hlið,
verði undanfari þess að realnum
verði búið stöðugt efnahagsum-
hverfi.
Vaxandi verðbólga
Mjög mikilvægt er fyrir Fern-
ando Henrique Cardoso, forseta
Brasilíu, að ná samkomulagi við
ríkisstjóra sambandsríkjanna til
að sýna landsmönnum og fjárfest-
um að stjórn hans sé fær um að af-
stýra alvarlegri efnahagskreppu,
miklu atvinnuleysi og óðaverð-
bólgu.
Nýir efnahagsvísar seðlabanka
Brasilíu sem birtir voru í gær
sýndu að verðbólga væri á uppleið í
landinu. Verðlag í iðnaðarhéraðinu
Sao Paulo, sem þykir góður vísir
fyrir almennt verðlag í landinu,
hafði hækkað um 0,75% frá því 8.
janúar. Síðan þá hefur gjaldmiðill
Reuters
FERNANDO Henrique Cardoso
forseti nýtur lítillar hylli brasil-
ískra kjósenda um þessar
mundir. Samkvæmt nýjustu
skoðanakönnunum telja 36%
landsmanna forsetann hafa
staðið sig illa í starfí.
landsins misst um 40% af verðgildi
sínu.
Skoðanakönnun, sem birt var á
sunnudag, bendir til þess að forset-
inn njóti nú minni stuðnings meðal
landsmanna en nokkra sinni fyrr
frá því hann komst til valda árið
1995. 36% aðspurðra sögðust telja
að forsetinn hefði staðið sig illa í
embættinu og aðeins 21% var
ánægt með störf hans.
Reuters
S
Iranska
byltingin
20 ára
MIKIL hátíðahöld hafa verið í
Iran vegna 20 ára afmælis ís-
lömsku byltingarinnar. Komu
um 100.000 manns saman á
Frelsistorginu í Teheran í gær
til að hlýða á ræðu Mo-
hammads Kliatamis forseta en
hann Iagði áherslu á, að þriðji
áratugur byltingarinnar ætti
að einkennast af virðingu fyrir
lögunum og auknum borgara-
legum réttindum. Khatami er
fulltrúi hófsamra manna í íran
en hart er að honuin sótt, af
harðlínumönnum. Skoraði
hann jafnframt á landa sína að
taka þátt í fyrstu sveitarstjórn-
arkosningunum, sem verða 26.
þessa mánaðar.
Tveir falla
í árásum á
Norður-Irak
Bagdad, Washington. Reuters.
TVEIR óbreyttir borgarar féllu í
árásum bandarískra herþotna á
skotmörk í Norður-írak í gær, að
sögn stjómvalda í Bagdad. Höfðu
bandarískar herþotur skotið ílug-
skeytum á skotmörk í Suður-írak í
fyrradag og sögðu Irakar þá að einn
hefði fallið. Sneru allar herþotur
Bandaríkjamanna heilu og höldnu í
gær til bækistöðva sinna í Incirlik í
Tyrklandi, að sögn talsmanna
Bandaríkjahers.
Þessar nýjustu skærur era í sam-
ræmi við þá stefnu bandaríska
varnarmálaráðuneytisins að taka
harðar á ferðum íraskra herflugvéla
yfir flugbannssvæðinu sem verið
hefur í gildi frá því í Persaflóastríð-
inu. Sögðu talsmenn varnarmála-
ráðuneytisins í gær að séu staðhæf-
ingar íraka réttar, og að um mann-
fall hafí verið að ræða í árásunum,
verði Saddam Hussein Iraksforseti
að axla ábyrgðina þar sem Irakar
haldi áfram að hunsa flugbannið og
ógna bandarískum herþotum.
Var haft eftir Tareq Aziz, aðstoð-
arforsætisráðherra Iraks, í gær að
írakar myndu halda áfram að virða
flugbannið að vettugi „hvað sem það
kostaði". Sagði Aziz einnig að hann
hygðist fara fram á það við tyrk-
nesk stjórnvöld, er hann heldur í
heimsókn til Ankara í næstu viku,
að þau felldu úr gildi leyfi sem Bret-
ar og Bandaríkjamenn hafa haft til
að nota bækistöðvarnar í Incirlik
sem stökkpall til árása í írak.
Samkomulag um kröfur gyðingasamtaka
Þýsk fyrirtæki stofna
nýjan skaðabótasjóð
Bonn, Frankfurt, New York. Reuters.
ÞYSK fyrirtæki eru reiðubúin til
þess að stofna bótasjóð fyrir fórnar-
lömb helfararinnar gegn gyðingum
að því tilskildu að fallið verði frá
frekari skaðabótakröfum á hendur
þeim. Þetta er niðurstaða tveggja
daga samningaviðræðna sem fram
fóru í Washington á milli fulltrúa
þýskra stjórnvalda og samtaka gyð-
inga í Bandaríkjunum og ísrael.
Fjöldi þýskra fyrirtækja og banka
eiga yfír höfði sér málsókn í Banda-
ríkjunum vegna ásakana um að þau
hafí hagnast á samstarfí við nasista-
stjórnina í Þýskalandi fyrir síðari
heimsstyrjöld og á meðan á henni
stóð.
Að sögn Bodo Hombach, nánasta
samstarfsmanns Gerhai’ds Schröders
kanslara Þýskalands, verður sjóður-
inn stofnaður 1. september á þessu
ári en þá verða 60 ár liðin frá því að
seinni heimsstyrjöldin braust út.
Alan Hevezi, fjármálastjóri New
York-borgar, hefur leikið lykilhlut-
verk í að þrýsta á yfírvöld í borgum
og ríkjum Bandaríkjanna að þau beiti
sér gegn evrópskum fyrirtækjum
sem sýnt þyki að hafí hagnast í skjóli
nasismans. Hann hvatti á mánudag á
ný til þess að alríkisyfirvöld sam-
keppnismála í Washington legðu ekki
blessun sína yfír kaup Deutsche
Bank, stærsta banka Þýskalands, á
Bankers Trust, einum stærsta fjái’-
festingarbanka Bandaríkjanna, fyn-
en þýski bankinn hefði gert upp allar
kröfur tengdar helfórinni.
Talsmenn Deutsche Bank höfðu
áður varað við því að svo kynni að
fara að ekkert yrði úr kaupunum á
Bankers Trust ef yfirtakan drægist
úr hófí vegna samninga um slíkar
skaðabótaki’öfur.