Morgunblaðið - 12.02.1999, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 12.02.1999, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1999 23 LISTIR Varpaðu af þér okinu og vertu barn á ný AF SYNINGU Gabríelu Friðriksdóttur. MYNDLIST Gallcrf Sævars Karls, ltankastra;ti MÁLVERK OG HÖGGMYNDIR GABRÍELA FRIÐRIKSDÓTTIR Til 19. febrúar. Opið á verslunartíma. Aðgangur ókeypis. GABRÍELA Friðriksdóttir hefur náð merkilegum árangri á þeim ör- skamma tíma sem liðinn er frá því hún sagði skilið við listnámið. An þess að festa sig á einni ákveðinni bylgjulengd í hinu margradda há- loftaútvarpi samtíma listhræringa eins og títt er um listamenn sem taka frumspor sín, kýs hún að halda öllum dyrum opnum. Hún brennir ekki kerti sín frá báðum endum eins og gjaman hendir þá sem byrja of þröngt af einskærri hræðslu við óreiðu frelsisins. Gabríela leyfir sér að benda til margra ólíkra, og oft þversagnakenndra átta í verkum sín- um og nýtur þess bersýnilega að vasast óheft í listsköpun sinni. Hins vegar markar hún sér mjög ákveðinn vettvang með afgerandi stílbrigðum og samræmdu yfir- bragði. Hún býr sér til ímyndaðan heim, ekki óskyldan teygjudýrafrum- skógi Barbapabba og ættingja hans. En þegar þeim formræna saman- burði sleppir virðist nokkuð ljóst að frá bamaheimi ofurbarbanna er afar- stutt yfir í aldingarðinn Eden og syndafallið. Gabríela gerir okkur einmitt grein fyrir því hve leiðin er greiðfær frá Piaget til Lacan; bama- sálarfræðinni til vitundarfræða hvatalífs og langana. Allur þessi frumskógur, eiginlegur og táknrænn, er settur fram af mik- illi tilfinningu fyrir lífrænu formspili, sterkum Iitasamsetningum og grafískum töktum sem oft era unaðslegir í teiknimyndakenndum áherslum sínum. Ósjálfrátt verður manni hugsað til Öyvinds heitins Fahlström, sænska popplistar- mannsins, sem virkjaði svo einstak- lega vel sýningarrýmið með leikræn- um tilbúningi sínum, sem sýninga- gestir gátu gjarnan breytt og mótað eins og böm í sandkassa. Samanburðurinn við Fahlström er engin hending því grafískir hæfileik- ar Gabríelu minna sterklega á þann leikandi, lokkandi teiknistíl sem dró listáhugamenn ósjálfrátt að lista- manninum sænska. Lína hennar er kvik og skerandi eins og hans. Hins vegar minna útsagaðar og fagur- málaðar tréhöggmyndir hennar oftar en ekki á alþýðufóndur Hohen- biichler-systranna og skjólstæðinga þeirra án þess að um bein líkindi sé að ræða. Höggmyndir Gabríelu eru uppfullar af galsa og fjöri, sem ekki verður hermt upp á tvíburana aust> urrísku. En nota bene; undir húmom- um kraumar óræð alvara, uppfuU af getspám og óvæntum spumingum. Þannig er ekkert sem það er séð nema ágæti framtaksins. Gæði sýn- ingarinnar fara ekki mUli mála. Halldór Björn Runólfsson leikir Tíska 01. llil. 22. lirp. \cr4 Kr. W;' Kristine úsdóttir Líf að loknum skilnaði Heilsa og hollusta Gómsætt grænmetis- fæði luki hluti af lífinu Birna Björnsdóttir tannlæknir og sálfræðingur -og baksturínn: iMrnclSlf jöl^j^lgiunrulá óvart. JpMunSu efrirbolludeginum! ■ / ■ ■■ ■s'fl ■ mjorlíki NIIS Kauptu saltkjöt í og þú fœrð 2 kíl kartöfKim í kauftxeti!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.