Morgunblaðið - 12.02.1999, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1999 43
RAOAUGLVSINGA
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
Iþróttakennarar
Grunnskólinn á Hellu
og Rangárvallahreppur auglýsa
Erum aö leita aö áhugasömum íþróttakennara
til kennslu og þjálfunar í nýju og glæsilegu
íþróttahúsi, sem tekið verður í notkun næsta
haust. Um er að ræða hvetjandi og áhugavert
starf við uppbyggingu og framtíðarmótun á
íþrótta- og æskulýðsstarfi í byggðarlaginu.
Hafið samband við undirritaða og fáið upplýs-
ingar um kjör og aðstöðu.
Ath.: Grunnskólinn á Hellu er einsetinn 140 nemenda skóli sem starfar
I lOfámennum bekkjardeildum. í skólanum erfrábær vinnuaðstaða
fyrir kennara í nýju og glæsilegu húsnæði. Ódýrt íbúðarhúsnæði
er fyrir hendi auk sérsamnings á milli kennara og sveitarstjórnar.
Á Hellu er auk nýja íþróttahússins, góð sundlaug, leikskóli á skóla-
svæðinu og tónlistarskóli. Einnig er á Hellu góð aðstaða til að iðka
hin ýmsu áhugamál svo sem hestamennsku, golf og fjallamennsku.
Á svæðinu starfa öflugir kórar og leikfélag.
Hella er friðsælt bæjarfélag í aðeins 90 km fjarlægð frá Reykjavík.
Nánari upplýsingar veita:
Sigurgeir Guðmundsson, skólastjóri,
vs. 487 5441, hs. 487 5943.
Helga Garðarsdóttir, aðstoðarskólastjóri,
vs. 487 5442, hs. 487 5027.
Guðmundur Ingi Gunnlaugsson, sveitarstjóri,
vs. 487 5834.
MENNTASKOLINN
VIÐ SUND'
Starfsmaður
í mötuneyti
Óskum eftir starfsmanni í mötuneyti kennara
og annarra starfsmanna Menntaskólans við
Sund. Umsóknarfrestur er til 25. febrúar nk.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Starfið felst í því að sjá um mötuneyti fyrir
starfsmenn skólans; að annast innkaup og taka
til morgunkaffi, hádegismat og síðdegiskaffi.
Um er að ræða heilsdagsvinnu í 9 mánuði og
hálfsdagsvinnu í einn mánuð eða 80% starf
á ársgrundvelli. Fullt starf kemurtil greina að
viðbættum öðrum verkefnum.
Reynsla og góð þekking á sviði mat- og fram-
reiðslu er nauðsynleg.
Launakjör skv. kjarasamningum starfsmanna
ríkisins.
Umsóknir skulu sendar skólanum á eyðublöð-
um sem þar fást.
Nánari upplýsingar veita rektor og fjármála-
stjóri í síma 553 7300.
Rektor.
SMAAUGLYSINGAR
FELAGSLIF
I.O.O.F. 1 = 1792128'/! = Dn.
I.O.O.F.12 = 1792128'/2 ■ 9.0.
Olive
Laust starf í USA
Olive LLPer 15. stærsta endurskoðunar- og ráðgjafafyrirtæki i Banda-
ríkjunum með ellefu skrifstofur i Indiana, lllinois og Ohio fylkjum
og yfir 800 starfsmenn. Tekjur Olive á rekstrarárinu sem endaði i
maí 1998, voru 68 milljónir bandaríkjadollara og í dag eru starfsmenn
i ráðgjöfnálægt 90. Fyrirtækið, sem hefur verið í rekstri í 80 ár, hefur
að markmiði að 50% af tekjum komi frá ráðgjöf í lok ársins 2002.
í gegnum árin hefur Olive selt fjölda upplýs-
ingakerfa og síðasta viðbótin er Axapta frá
danska fyrirtækinu Damgaard AS. Olive hefur
verið „Authorized Axapta Business Partner"
í Bandaríkjunum síðan í maí 1998, og tengt
því leitar Ólive nú að starfsmönnum með
reynslu af uppsetningu á viðskiptakerfum líkt
og Concorde XAL, Navision Financials og
Axapta.
Olive leitar að starfsfólki, sem mun verða
ábyrgt fyrir uppsetningu á og þjónustu við
Axapta í norðurhluta Indiana fylkis og í ná-
grenni Chicago borgar í lllinois. Viðkomandi
munu leika lykilhlutverk í uppbyggingu Axapta
deildar Olive, þar sem markmiðið er að gera
Axapta að þeirri lausn, sem flestir viðskipta-
vinir Olive munu kjósa.
Hæfniskröfur:
★ Haldgóð reynsla af uppsetningu á viðskipta-
hugbúnaði (Concorde XAL, Navision Fin-
ancials og Axapta)
★ Víðsýni, þolinmæði, sveigjanleiki og gott
viðmót
★ Metnaður og drifkraftur
★ Góð enskukunnátta
Vinsamlegast sendið fyrirspurnir á ensku
með tölvupósti til Jeff Balyeat (jbalyeat@-
ftwayne.olivellp.com) fyrir sunnudaginn
21. febrúar. Einnig er hægt að hafa samband
í síma 001-219-460-4000.
FUMDIR/ MANNFAGNAÐUR
Aðalfundur
Félag jarðeigenda við Þingvallavatn heldur
aðalfund sinn laugardaginn 20. febrúar nk.
Fundurinn verður haldinn á Kringlukránni í
Borgarkringlunni í Reykjavík og hefst hann
kl. 14.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Reifaður verður ýmiss konar misskilningur
varðandi búsetu við vatnið.
3. Önnur mál.
Stjórn Félags jarðeigenda
við Þingvallavatn.
NAUÐUNGARSALA
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins í Hafnarstræti
1, Isafirði, þriðjudaginn 16. febrúar 1999 kl. 14.00 á eftirfar-
andi eignum:
Álfabyggð 4, Súðavík, þingl. eig. Halldór Rúnar Jónbjörnsson, gerð-
arbeiðandi Byggingarsjóður rikisins, húsbréfadeild.
Fjarðarstræti 2, 0101, ísafirði, þingl. eig. Jens Friðrik Magnfreðsson,
gerðarbeiðandi Vátryggingafélag íslands hf.
Frá Guðspeki-
félaginu
Ijigólfsstræti 22
Askriftarsími
Ganglera er
896-2070
í kvöld kl. 21 heldur Njörður P.
Njarðvik, prófessor, erindi: „Yð-
ur er í dag frelsari fæddur" í
húsi félagsins, Ingólfsstræti 22.
Á laugardag kl. 15—17 er opið
hús með fræðslu og umræðum,
kl. 15.30 í umsjón Halldórs Har-
aldssonar, sem sýnir myndband
með Krishnamurti. ■
Á sunnudag kl. 17—18 er hug-
leiðingastund með leiðbeining-
um fyrir almenning.
Á fimmtudögum kl. 16.30—
18.30 er bókaþjónustan opin
með miklu úrvali andlegra bók-
mennta.
Guðspekifélagið er 122 ára
alþjóðlegt félaga um andleg
mál, hið fyrsta sem byggði á
hugmyndinni um algert frelsi,
jafnrétti og bræðralagi meðal
mannkyns.
....SAMBAND ÍSLENZKRA
r^r KRISTNIBOÐSFÉLAGA
Háaleitisbraut 58
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.30.
Gunnar Hamnöy frá Noregi talar.
Kanga-kvartettinn syngur.
Allir velkomnir.
DULSPEKI
Sálarrannsókna-
félag Suðurnesja
Skyggnilýsingafundur
María Sigurðardóttir miðill
verður með skyggnilýsingafund í
húsi félagsins, Víkurbraut 13,
Keflavík, sunnudaginn 14. febrú-
ar kl. 20.30. Húsið verður opnað
kl. 20.00. Allir velkomnir.
Stjórnin.
Miðlun — spámiðlun
Einkatimar í miðlun/spámiðlun.
Uppl. og bókanir i síma 568 6149
virka daga kl. 9—12 og 18—20.
Margrét Hafsteinsdóttir, miðill.
Hafnarstræti 9—11, hraðfrystihús, Þingeyri, þingl. eig. Rauðsíða
ehf., gerðarbeiðendur Byggðastofnun, Fjárfestingarbanki atvinnulífs-
ins hf. og Landsbanki islands hf., aðalbanki.
Hlíðarvegur 9,0103, bílskúr nr. 3, isafirði, þingl. eig. Kristján Finnboga-
son, gerðarbeiðandi Búnaðarbanki Islands hf„ Self.
Hrannargata 8, 0101, isafirði, þingl. eig. Sölvi Magnús Gíslason og
Kanjanapron Gíslason, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður ríkisins,
húsbréfadeild.
Iðnaðarhúsnæði á Sólbakka, Flateyri, þingl. eig. Eiríkur Guðmundsson,
gerðarbeiðandi (safjarðarbær.
Ólafstún 14, Flateyri, þingl. eig. isafjarðarbær, gerðarbeiðandi
Vátryggingafélag íslands hf.
Ólafstún 6, Flateyri, þingl. eig. ísafjarðarbær, gerðarbeiðandi
Vátryggingafélag (slands hf.
Túngata 23, Suðureyri, þingl. eig. isafjarðarbær, gerðarbeiðandi
Byggingarsjóður verkamanna.
Urðarvegur 24, ísafirði, þingl. eig. Eiríkur Brynjólfur Böðvarsson
og Halldóra Jónsdóttir, gerðarbeiðendur Byggingarsjóður ríkisins,
húsbréfadeild, Húsasmiðjan hf„ ísafjarðarbær og Kreditkort hf.
Vallargata 1, Þingeyri, þingl. eig. Rauðsíða ehf„ gerðarbeiðandi Kaup-
félag Dýrfirðinga.
Sýslumaðurinn á Isafirði,
11. febrúar 1999.
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins á Hörðuvöllum
1, Selfossi, þriðjudaginn 16. febrúar 1999 kl. 10.00 á eftirfar-
andi eignum:
Gauksrimi 19, Selfossi, þingl. eig. Katrín Stefanía Klemenzdóttir,
gerðarbeiðendur Byggingarsjóður verkamanna og Málningarþjónust-
an ehf.
Jörðin Brautartunga, Stokkseyrarhreppi, að undanteknum spildum,
þingl. eig. Hörður Jóelsson og Sævar Jóelsson, gerðarbeiðendur
Lánasjóður landbúnaðarins, Upphaf ehf. og Vátryggingafélag íslands
hf.
Lóð nr. 54 á svæði 1, í landi Hraunkots, Grímsneshreppi, þingl. eig.
Jón Guðmundsson, gerðarbeiðandi Bláfell ehf„ Grindavík.
Sýslumaðurinn á Selfossi,
11. febrúar 1999.
TILKYNNINGAR
BORGARSKIPULAG REYKJAVÍKUR
BORGARTÚN 3-105 REYKJAVlK • SlMI 563 2340 ■ MYNDSENOIR 562 3219
Sóltún 24, breyting á
skipulagi - leiðrétting
í auglýsingu birtri í Lögbirtingarblaðinu
22. janúar 1999 varðandi breytingu á
deiliskipulagi að Sóltúni 24 misritaðist
að í húsinu ættu að vera íbúðir, hið rétta
er að það mun hýsa skrifstofur, eins og
glöggt kemur fram á auglýstum upp-
dráttum.
Tillagan er til sýnis í sal Borgarskipulags
og Byggingarfulltrúa í Borgartúni 3, 1.
hæð, og þangað skal senda skriflegar
athugasemdir. Kynning og skilafrestur
athugasemda er til 5. mars 1999.
SFÉIAG
ELDRI
BORGARA
Tilkynning
frá Félagi eldri borgara í Reykjavík
og nágrenni.
Tillögur kjörnefndartil stjórnarkjörs Félags
eldri borgara í Reykjavík og nágrenni liggja
frammi á skrifstofu félagsins í Glæsibæ,
Álfheimum 74.
Tillögur féiagsmanna um einstaka menn til
sjórnarkjörs skulu berast skrifstofu eða kjör-
nefnd minnst hálfum mánuði fyrir aðalfund,
sem haldinn verður 7. mars nk. í Ásgarði,
Glæsibæ.
Almennur félagsfundur Félags eldri
borgara í Reykjavík og nágrenni verður
haldinn sunnudaginn 21. febrúar kl. 14.00.
Dagskrá:
Tillögur til breytinga á lögum félagsins
og önnur mál.
Stjórnin.
Skilafrestur rennur út
Vatnsveita Reykjavíkur vill minna á, að skila-
frestur í hugmyndasamkeppninni um gerð
vatnspósta (drykkjarfonta) í Reykjavík rennur
út kl. 16.00 mánudaginn 15. febrúar nk.
Væntanlegir þátttakendur geta nálgast sam-
keppnislýsinguna á Vefheimum Vatnsveitunnar
— netslóð www.vatn.is
Trúnaðarmaður dómnefndar, Ólafur Jónsson,
veitir allar nánari upplýsingar, þar til skilafrest-
ur rennur út, í síma 565 0120, GSM 898 9383
og fax 555 0346.
Vatnsveita
^ Reykjavíkur
Eirhöfða 11, sími 569 7000.