Morgunblaðið - 16.02.1999, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.02.1999, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 38. TBL. 87. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS 170 ára gömul kona í Kenýa? Nairobi. The Daily Telegraph. ÍTALSKUR mannfræðingur segist hafa fundið konu í Iíenýa sem sé að minnsta kosti 150 ára gömul. Hann segir konuna jafnvel geta verið 170 ára gamla. Konan, sem heitir Wangui, er af Kikuyu-ætt- bálknum og býr í strákofa í þorpi um 35 km frá höfuðborg- inni Naírobí. Giovanni Perrucci, prófessor við Chieti-háskólann, segist trúa fullyrðingum þorpsbúa um að Wangui sé 170 ára göm- ul. Gamla konan er orðin blind og gerir vart annað en að biðj- ast fyrir. Hún er sögð nærast á kornmeti og ávöxtum en sjald- an leggja sér kjöt til munns. Engin opinber gögn eru til sem geta sannað aldur konunn- ar en prófessorinn segir að auðveldlega megi færa sönnur á hinn háa aldur með því að rekja munnmælasögur liðinna tveggja alda með Wangui og ættingjum hennar. Vesturveldin sögð sek um stríðsglæpi efni þau til árása á Serbíu Líkur á samkomu- lagi sagðar litlar Rambouillet. Reuters, Thc Daily Telegraph. LÍKUR á samkomulagi í viðræðum um frið í Kosovo sem fram fara í Rambouillet í Frakklandi minnkuðu í gær þegar fulltrúar stríðandi fylk- inga þrjóskuðust enn við að ganga að kröfum vesturveldanna. Höfnuðu fulltrúar Frelsishers Kosovo (UCK) kröfum um að herinn afvopnaðist og Milan Milutinovic, forseti Serbíu, ítrekaði þá afstöðu sína að ekki kæmi til greina að leyfa veru alþjóð- legi-a friðargæslusveita í héraðinu. Sagði Milutinovic að aðildarríki Atl- antshafsbandalagsins (NATO) myndu fremja „stríðsglæpi" ef þau efndu til loftárása til að refsa Ser- bum fyrir að ná ekki samkomulagi við Kosovo-Albana í friðarviðræðun- um. „Við erum andsnúnir því að er- lendar hersveitir komi til Kosovo," sagði Milutinovic á fréttamanna- fundi. „Ef samningm- sá sem vestur- veldin vilja að við gerum er svo góð- ur og svo viðunandi fyrir íbúa Kosovo, hvers vegna þarf þá herlið til að þvinga honum upp á fólk?“ Bætti Milutinovic því við að Serb- um yrði nauðugur einn kostur að verja hendur sínar ef vesturveldin gripu til aðgerða gegn þeim. „Loft- árásir munu ekki leysa nein vanda- mál. Þær myndu einungis valda gífur- legri eyðileggingu og kosta mannslíf," sagði Milutinovic, en Madeleine Al- bright, utanríkisráðherra Bandaríkj- anna, hafði á sunnudag ítrekað að til hernaðaríhlutunar NATO kæmi ef ekki næðist samkomulag. ívanov spáir samkomulagi Albright tókst á sunnudag að fá deilendur til að hittast augliti til auglitis og var í kjölfarið tekin sú ákvörðun að framlengja um eina viku þann frest sem Serbar og Kosovo-Albanar hafa til að ná sam- komulagi. Mun Albright þó hafa ver- ið allt annað en bjartsýn á árangur er hún yfirgaf Ramþouillet. I gær hitti Igor Ivanov, utanríkis- ráðherra Rússlands, sendinefndir deilenda og sagði að fundunum lokn- um að samkomulag væri væntanlegt. Fréttaskýrendur sögðu afstöðu Ivanovs hins vegar svo mjög taka mið af kröfum Serba að ólíklegt væri að hann fengi ósk sína uppfyllta. Sagði ívanov að ætlaði NATO að senda 30.000 manna friðargæslulið til Kosovo, eins og ráðgert er, þá yrði að nást samkomulag um það fyrirfram við stjórnvöld í Belgrad. Serbar hafa hins vegar hafnað utanaðkomandi hemaðaríhlutun og sögðu frétta- skýrendur að líklega yrðu loftárásir að koma til áður en Slobodan Milos- evic, forseti Júgóslavíu, sambandsrík- is Serbíu og Svartfjallalands, gæfi eftir hvað þetta varðar. ■ Þrýstingur eykst/24 Kúrdi kveikir í sér UM sextíu Kúrdar efndu í gær til mótmælaaðgerða fyr- ir framan þinghús Aþenu- borgar í Grikklandi gegn þeirri ákvörðun grískra stjórnvalda að veita Abdullah Ocalan, skæruliðaleiðtoga Kúrda, ekki pólitískt hæli í landinu. Greip einn Kúr- danna til örþrifaráða þegar óeirðalögregla gerði sig lík- lega til að fjarlægja fólkið, bar olíu að sjálfum sér og kveikti síðau í. Varð maður- inn fyrir alvarlegum bruna- sárum og einnig slasaðist annar Kúrdi þegar eldurinn barst í föt hans. Félögum mannanna tókst hins vegar um síðir að slökkva eldinn og voru mennirnir báðir fluttir á sjúkrahús. Grísk stjórnvöld segja að Öcalan hafi aldrei sóst eftir hæli og segja líka útilokað að hann fengi það. Hlut Rússa í vopna- viðskiptum neitað London. Reuters. RÚSSNESK stjórnvöld neituðu í gær fréttum þess efnis að írakar hefðu samið við Rússa um stórfellda vopnasölu til landsins í desember síðastliðnum, skömmu áður en Bret- ar og Bandaríkjamenn hófu flug- skeytaárásir á Irak. Sagði í yfirlýs- ingu stjómvalda í Moskvu að Rúss- land héldi fast við skuldbindingar sínar samkvæmt ályktunum öi-yggis- ráðs Sameinuðu þjóðanna í málefn- um er vörðuðu Irak. í frétt breska blaðsins The Sunday Telegraph á sunnudag var því haldið fram að írösk stjórnvöld hefðu samið við Rússa um stórfellda vopnasölu í desember, skömmu áður en loftárásir Breta og Bandaríkja- manna vom gerðar. Var því haldið fram að Tareq Aziz hefði í heimsókn sinni til Moskvu í desember átt fund með ráðamönnum í Kreml um þessi mál, og að hann hefði m.a. hitt Jev- gení Prímakov, sem þá var nýskipað- ur forsætisráðherra Rússlands. Opinber ástæða heimsóknarinnar var á sínum tíma sögð hafa verið sú að ræða stuðning Rússa við Iraka í deilu þeirra við vopnaéftirlit Sam- einuðu þjóðanna (UNSCOM), en The Sunday Telegraph hafði eftir háttsettum embættismönnum í Moskvu að á fundinum hefði verið lagður grunnur að leyfi handa rússneskum vopnaframleiðendum til sölu hergagna til íraks. Eftir að loftárásir bandamanna hófust var sú ákvörðun tekin að leyfa söluna. Telur blaðið að Irakar hafi undirrit- að tvo samninga við Mapo-MiG samsteypuna, framleiðanda MiG- herþotna, um endurnýjun, viðhald og varahluti í herþotur, auk sölu á nýjum rafeindabúnaði. írakar hvetja/24 Kosið verður til grænlenska heimastjórnarþingsins í dag Fylgja Dönum taki þeir upp evruna Nuuk. Reuters. GRÆNLENSKIR stjómmálamenn virtust sammála um það um helgina að Grænland myndi líklega íylgja í kjölfar Danmerkur og taka upp evr- una ákvæðu Danir að ganga til liðs við Efnahags- og myntbandalag Evrópu (EMU). Grænlendingai' not- ast við dönsku krónuna sem gjald- miðil en haft hefur verið eftir Poul Nyrup Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, að haldin verði þjóðar- atkvæðagreiðsla um það fyrr en síð- ar hvort Danir fylgi í kjölfar ellefu ESB-ríkja og taki upp evruna. „Ef Danir ákveða í þjóðarat- kvæðagreiðslu að ganga til liðs við EMU þá held ég að við fylgjum strax í kjölfar þeirra,“ sagði Jona- than Motzfeldt, formaður heima- stjórnarinnar grænlensku og leið- togi Siumut-flokks jafnaðarmanna. „Við yrðum þá utan ESB en innan EMU,“ bætti Motzfeldt við, en heimastjórn Grænlendinga ákvað árið 1985 að segja skilið við ESB. Er tekið undir það í kosninga- bæklingum Atassut-flokks frjáls- lyndra, sem aðild á að ríkisstjórn ásamt Siumut, að óraunhæft sé að Grænland hafi sinn eigin gjaldmiðil. Josef Motzfeldt, leiðtogi Inuit Ataqatigiit-flokks vinstrimanna sem er í stjórnarandstöðu, tekur í svip- aðan streng en segir þó aðra kosti einnig í stöðunni. „Við gætum líka ákveðið að taka upp kanadíska eða bandaríska dollarann." Danir veittu Grænlendingum heimastjórn árið 1979 og er kosið til grænlenska heimastjórnarþingsins í dag. Sýna skoðanakannanir að mjótt verður á mununum og hafa flokkarnir þrír ekki útilokað neitt stjórnarmynstur að kosningum loknum. Þrjátíu og níu þúsund manns eru á kjörskrá. ■ Stefnir í/26 Reuters Clinton hitt- ir Zedillo VEL fór á með þeim Ernesto Zedillo, forseta Mexíkó, og Bill Clinton Bandarikjaforseta í gær, en Clinton var í heimsókn í Mexíkó. Hrósaði Clinton Zedillo fyrir góðan árangur í baráttunni gegn eiturlyfjum og sagði að sam- starf ríkjanna tveggja í þessum málum hefði „augsýnilega batnað mjög“ í stjórnartíð Zedillos. Urðu forsetarnir sammála um það á fundi sínum í gær að auka enn samstarf sitt og verður viðbúnaður við landamæri ríkjanna m.a. auk- inn til muna til að taka á eitur- lyQasmygli. Reuters ■ Repúblikanar/26
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.