Morgunblaðið - 16.02.1999, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Leigubílstjóri tilkynnti lögreglu
um óðan farþega
„Varðstjórinn
gaf mér engan
gaum4í
SIGURÐUR Olafsson, bifreiða-
stjóri í Reykjavík, sem lenti í því að
þurfa að horfa á eftir leigubíl sín-
um með drukkinn farþega undir
stýri, sem stal bílnum fyrir utan
lögi-eglustöðina á Hverfisgötu að-
faranótt laugardags, segir fram-
göngu lögreglunnar óviðunandi,
þegar hann leitaði eftir aðstoð
hennar vegna farþegans.
„Varðstjórinn var að tala við út-
lending og sá benti varðstjóranum
á að mér lægi meira á en sér, en
varðstjórinn gaf því engan gaum
Lést er
bifreið ók
á staur
BIFREIÐ var ekið á ljósa-
staur á gatnamótum Bústaða-
vegar og Sogavegar um klukk-
an 1 að-
faranótt
sunnudags.
Ökumaður
reyndist
látinn við
komu á
slysadeild.
Lögregl-
an telur að
ýmislegt
bendi til að skyndileg veikindi
ökumanns hafi valdið árekstr-
inum. Farþegi í bifreiðinni
fékk skurð á hnakka og heila-
hristing og var einnig fluttur á
slysadeild.
Hinn látni hét Sigurður 0.
Markússon, skipstjóri, til
heimilis að Lautarsmára 1
Kópavogi, áður til heimilis að
Skógargerði 5, Reykjavík. Sig-
urður var 74 ára gamall, fædd-
ur 12. maí árið 1924, og lætur
eftir sig eiginkonu og þrjú
uppkomin börn.
Banaslys í
Skagafirði
Sauðárkróki. Morgunblaðið.
RÉTT um kiukkan 10 á
sunnudagsmorgun barst lög-
reglunni á Sauðárkróki til-
kynning
um slys við
bæinn
Sleitustaði,
en þar
hafði mað-
ur farið á
vinnuvél til
að hreinsa
krapa og ís
úr inn-
takslóni rafstöðvar, sem notað
er fyrir Sleitustaðaþéttbýlið.
Þegar komið var að var vél-
in á hvolfi í lóninu, en fljótlega
náðist hún upp á land, og var
notaður til þess öflugur krani,
en lík mannsins fannst nokkru
síðar. Hafði honum tekist að
brjóta rúðu í vélinni og komast
út úr henni en ekki til lands.
Björgunarsveitarmenn frá
Sauðárkróki og kafarar, sem
komu á vettvang, fundu lík
mannsins í vatninu.
Hinn látni hét Ólafur Jóns-
son, 66 ára að aldri, búettur að
Artúni við Sleitustaði. Hann
lætur eftir sig eiginkonu og
fjögur uppkomin böm.
og hélt bara áfram að tala við út-
lendinginn.“
Sigurður tók farþegann upp í bíl-
inn á mótum Hverfisgötu og
Snorrabrautar og þegar hann
spurði hann hvert hann vildi fara
svaraði hann: „Snú, snú!“ Ég sagði
honum að ég gæti ekki ekið honum
neitt nema hann segði mér hvert
hann ætlaði. Þá ýtti hann við mér
og sagði „snú, snú!“ Ég sagði hon-
um að hann yrði að fara út úr bíln-
um ef hann vissi ekki hvert hann
vildi fara. Því ansaði hann engu
þrátt fyrir að ég endurtæki þessi
tilmæli. Þá sagði ég honum að ég
yrði að rúlla niður á lögreglustöð
til að fá hjálp þar, en hann hélt
áfram að segja „snú!“.“
Þegar Sigurður kom að lög-
reglustöðinni sté hann út úr bíln-
um og gekk að farþegadyrunum
og opnaði þær, en þá streittist far-
þeginn á móti og skellti dyrunum
og læsti.
„Þá fór ég inn á lögreglustöð og
sagði varðstjóranum að ég væri
með brjálaðan mann úti í bíl, en
varðstjórinn var að tala við annan
mann og skeytti erindi mínu engu.
Ég var inni á lögreglustöðinni í
a.m.k. fimm mínútur án þess að
varðstjórinn gerði neitt."
Sá manninn aka á brott
Sigurður leit nokkrum sinnum út
um glugga lögreglustöðvarinnar til
að gæta að bíl og farþega og í eitt
skiptið sá hann að farþeginn vai-
kominn í ökumannssætið og ók burt.
„Ég hljóp inn og sagði að maður-
inn væri farinn á bílnum og þá birt-
ist fullt af lögregluþjónum sem byrj-
uðu að elta manninn. Ef varðstjór-
inn hefði sinnt erindi mínu strax
hefði þetta aldrei komið fyrir.“
Aðspurður segir Sigurður að
hann hafi ekki minnst á það við
lögregluna að lyklarnir væru í
kveikjulásnum og segir líklegt að
lögreglan hafi haldið að farþeginn
færi varla langt og því þyldi málið
smábið.
Sex ára strákur vann allt að helmingi eldri keppinauta í skák
TORFI Ólafsson við taflborðið.
Morgunblaðið/Golli
„Ætla aldrei að hættaa
SEX ára gamall drengur, Torfi
Ólafsson, sigraði örugglega
skákmót sem Landakotsskóli
hélt fyrir skömmu en þar
kepptu á fjórða tug nemenda á
aldrinum sex til ellefu ára. Torfi
vann sjö skákir en það fyrir-
komulag var haft á að þeir
sterkustu tefldu í hverri umferð
þangað til einn sigurvegari stóð
uppi.
Mótið hefur ekki verið haldið
um nokkurra ára skeið en þátt-
taka að þessu sinni var mjög góð
og skráði um þriðjungur nem-
enda í skólanum sig til keppni,
ekki síður stúlkur en strákar.
Torfí var útnefndur skólameist-
ari og fékk auk viðurkenningar-
skjals ritsafn með norskum æv-
intýrum í verðiaun.
Telst vera afrek
„Ég vil nú ekki segja að
þarna hafi skáksnillingar keppt.
en hins vegar var Torfi mjög
góður og það telst afrek að
vera aðeins sex ára og vinna
miklu eldri krakka í röðum.
Hann gerði sér lítið fyrir og
vann alla sína andstæðinga,"
segir Þorkell Ólafsson, kennari
við skólann, en hann hafði veg
og vanda af skipulagningu
keppninnar.
Torfi kveðst ekki hafa átt von
á að vinna mótið og hann hafi
verið svolítið undrandi þegar úr-
slitin lágu fyrir. Hann eigi hins
vegar von á að hinir krakkarnir
reyni að bera sigurorð af honum
á næsta taflmóti skólans. Það
verði þó ekki á næstunni.
Torfi segir að hann hafi feng-
ið skákforrit lánað hjá vini sín-
um og sett það í tölvuna eftir
seinustu jól. „Mér finnst gaman
að tefla og tefli mest við tölv-
una. Ég vinn hana oft,“ segir
Torfí. Hann segir að honum
finnist „allt“ í sambandi við tafl-
ið skemmtilegt. „Ég ætla að
tefla miklu meira. Ég ætla
aldrei að hætta.“
Oktavía Guðmundsdóttir,
móðir Torfa, segir að hvorki
hún né faðir hans, Ólafur Torfa-
son, hafi lagt áherslu á að kenna
stráknum að tefla. Þau hafi að-
eins teflt lítilsháttar við hann.
Kom foreldrum á óvart
„Pabbi hans kenndi honum
mannganginn og hann var fljót-
ur að læra hann, en það
skrýtna við þetta var að hvorki
við né eldri bróðir hans höfum
gefið okkur sérstaklega mikinn
tíma til að tefla við hann eftir
það, aðeins eina og eina skák.
Niðurstöður skákmótsins komu
okkur því í rauninni mjög á
óvart. Hann er að vísu með
ágæta rökhugsun og efnilegur í
meðferð talna og stærðfræði,
en við áttum ekki von á að
hann ynni mótið. Hann hefur
þó aðgang að skákforriti í tölv-
unni og seinustu þrjár eða fjór-
ar vikur eða svo hefur hann
annað slagið verið að tefla við
hana. Sennilega hefur hann
lært mest á því,“ segir Oktavía.
Hún segir að þau hafi óttast í
fyrstu að úrslit skákmótsins
myndu stíga Torfa til höfuðs, en
í ljós hafi komið að hann virðist
ekki leiða hugann að því að
hann hafí unnið sér eldri krakka
með meiri reynslu af skáklist-
inni.
„Ég var líka hissa á að hann
gæti einbeitt sér svona lengi í
einu, en það virtist ekki vefjast
fyrir honum þegar skákirnar
hófust," segir Oktavía.
Norsk Hydro heldur áfram hagkvæmnisathugun vegna álvers á Reyðarfírði
Ekki ákvörðun um fjár-
festingu í náinni framtíð
HAGNAÐUR norska stórfyrirtækisins Norsk
Hydro var næstum helmingi minni á síðasta ári
en 1997 og hefur verið ákveðið að fækka störfun-
um um 1.500. Samtímis verða nýjar fjárfestingar
skornar niður og aðrar endurmetnar. Að sögn
Thomas Knutzen, upplýsingafulltrúa Norsk
Hydro, hefur niðurskurðurinn engin áhrif á hag-
kvæmniathuganir fyrirtækisins á álveri við
Reyðarfjörð.
„Niðurstöður okkar hingað til eru það áhuga-
verðar að við munum halda áfram að rannsaka
möguleika á álveri við Reyðarfjörð," segir Thom-
as Knutzen. Segir hann að nú sé í framkvæmd 1.
stigs hagkvæmnisathugun og niðurstöður hennar
muni leiða í ljós hvort ráðlegt þyki að fara yfir í
2. stigs hagkvæmnisathugun. Ékki liggi þó ljóst
fýrir hvenær 1. stigs athugun muni Ijúka, né
hvenær ákvörðun um bindandi fjárfestingu verði
tekin. Þær séu gerðar í mörgum þrepum og taki
töluverðan tíma, a.m.k. nokkur ár. „Við erum
ekki að tala um ákvörðun um fjárfestingu í náinni
framtíð,“ segir Knutzen.
„Útkoman á síðasta ári hefði átt að vera 45
milijörðum króna betri en hún er. Nú verðum
við að setja okkur djarft en raunhæft markmið,"
sagði Egil Myklebust, aðalforstjóri Norsk
Hydro á blaðamannafundi í gær, en það eru
fyrst og fremst minni tekjur af olíunni sem
dregið hafa úr hagnaðinum. Þá vegur einnig
þungt mikið tap á framleiðslu tilbúins áburðar
auk þess sem álverðið hefur lækkað mikið á fá-
um árum. Á móti því vegur þó, að Hydro var bú-
ið að selja fyrirfram alla álframleiðslu síðasta
árs á töluvert hærra verði en þá var á heims-
markaði.
Hagnaður Norsk Hydro fyrir skatt á síðasta
ári var um 53 milljarðar ísl. kr. en búist hafði ver-
ið við, að hann yrði um 54 milljarðar kr. Á árinu
1997 var hagnaðurinn um 93 milljarðar kr. Er
skýringin á muninum að mestu lægra verð en
einnig meiri fastakostnaður.
Ekki komist hjá uppsögnum
Eins og fyrr segir hefur verið ákveðið að
fækka heilsársstörfum um 1.500 og gefur
Myklebust í skyn, að helmingurinn muni snerta
aðkeypta ráðgjafa en auk þess verði eitthvað um
beinar uppsagnir. Segir hann, að þrátt fyrir mikl-
ar breytingar á rekstri fyi-irtækisins síðustu 10
árin, hafi verið komist hjá uppsögnum, aðallega
með því að flytja fólk yfir í olíustarfsemina, sem
hafi farið vaxandi. Um það sé ekki lengur að
ræða þar sem nú blasi við samdráttur í þeirri
grein.
Hydro ætlar einnig að spara með því að draga
úr fjárfestingum, sem munu svara til 109 millj-
arða ísl. kr. á þessu ári í stað 123 milljarða á síð-
asta ári. Segir hann, að á næstunni muni aðeins
verða ráðist í mjög mikilvæg og arðsöm verkefni.
Ákvarðanir Norsk Hydro snerta okkur ekki
Þórður Friðjónsson, ráðuneytisstjóri í iðnaðar-
og viðskiptaráðuneytinu, segir að niðurskurður
fyrirtækisins muni ekki hafa áhrif á þær athug-
anir sem fyrirtækið er að gera á álveri í Reyðar-
firði.
„Aðalatriðið er að þær ákvarðanir sem Norsk
Hydro kynnti í gær snerta okkur ekki og við
vinnum áfram samkvæmt þeirri vinnuáætlun
sem við höfum sett niður fyrir okkur,“ segir
Þórður, og í vísar í samtal sitt við Eivind Reiten,
einn af forstjórum Norsk Hydro. Þórður vonast
til að fyrir liggi nægar upplýsingar um mitt ár til
þess að hægt verði að taka ákvarðanir um fram-
hald málsins.