Morgunblaðið - 16.02.1999, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 16.02.1999, Blaðsíða 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ + MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1999 35 STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. ALDARAFMÆLI KNATTSPYRNUFÉLAGS REYKJAVÍKUR IDAG eru liðin 100 ár frá því að ungir drengir komu sam- an í verslun Guðmundar Olsens í Aðalstræti í Reykjavík, til að stofna félag um að kaupa knött frá Englandi - og lögðu fram 25 aura hver til kaupanna. Þennan dag, 16. febr- úar 1899, var Fótboltafélag Reykjavíkur, síðar Knatt- spyrnufélag Reykjavíkur, stofnað. Frá þeim tíma hafa fjöl- margir komið við sögu og gengið sameinaðir til verka, ekki látið bugast þótt stundum hafi á móti blásið. Knattspyrnufélag Reykjavíkur er meira en íþróttafélag. Félagið er fjöldahreyfing fólks, sem hefur það markmið að hlú að æskulýð, ala upp börn og unglinga til frekari fram- fara og afreka innan sem utan vallar. KR hefur fyrir löngu öðlast virðingu; samheldni félags- manna er mikil svo og metnaður. Oft hefur heyrst setning- in: Einu sinni KR-ingur, alltaf KR-ingur. Þessi setning lýsir styrk félagsins. KR, sem önnur íþróttafélög í landinu, vinnur mikið for- varnar- og uppbyggingarstarf æskulýðs landsins. Menn í sjálfboðavinnu eru í hlutverki uppalanda. Það hefur lengi verið vitað að börn og unglingar sem stunda íþróttir eru betur búin undir lífið en aðrir. Það er vitað að forvarnar- starf íþróttafélaga hefur skilað miklum árangri. Ríki og sveitarfélögum ber skylda til að styrkja og hlú að íþróttafélögum, fjöldahreyfingum sem hafa unnið mikið for- varnarstarf. Það á að skapa KR og öðrum góðum félögum starfsgrundvöll. Það er nú ljóst að KR þarf meira landsvæði til að geta haldið áfram farsælu uppeldisstarfi. Borgaryfir- völd þurfa að bregðast skjótt við þörfum KR og finna félag- inu nýtt landsvæði. Morgunblaðið óskar KR-ingum til hamingju með daginn. Þeir geta stoltir haldið upp á aldarafmæli Knattspyrnufé- lags Reykjavíkur. HÁSKÓLI, SÖFN OG SAMFÉLAG ÞAÐ HEFUR ÓNEITANLEGA viljað brenna við hjá op- inberum stofnunum að vera ekki nægilega opnar og sýnilegar. Almenningur á ekki alltaf greiðan aðgang að þessum stofnunum eða hreinlega þekkir ekki nægilega til starfsemi þeirra til þess að láta sig þær einhverju varða. í samtali við Ástráð Eysteinsson, prófessor í almennri bókmenntafræði við Háskóla íslands, voru tengsl Háskól- ans við samfélagið gerð að umræðuefni. Ástráður telur að háskólakennarar hér á landi taki talsverðan þátt í samfé- lagsumræðunni en það þurfi hins vegar að gera miklu meira í því að skapa ákveðnar samskiptaleiðir milli Háskólans og almennings. „Háskólinn þarf að gera meira af því að bjóða almenningi til sín. Ég held að fólk hafi heilmikinn áhuga á því sem er að gerast hérna innanhúss.“ Ástráður sagði enn- fremur að Háskólinn hefði skyldum að gegna við rannsóknir og uppfræðslu en hann yrði jafnframt að varast að verða eingöngu einhvers konar fagskóli, „honum ber að stunda gagnrýna umræðu sem er í alþjóðlegu samhengi og miðla henni út í samfélagið“. Það er augljóslega mikilvægt að stofnun eins og Háskóli íslands sé í góðum tengslum við almenning og taki virkan þátt í almennum umræðum sem fram fara í samfélaginu. En það sama á við um fleiri stofnanir, til dæmis á sviði menn- ingar og lista. Þannig er afar brýnt að vel sé staðið að kynn- ingarstarfi listasafna og menningarstofnana, að skapaðar séu ákveðnar samskiptaleiðir á milli safnanna og almenn- ings, svo notað sé orðalag Ástráðs. Með því móti er hægt að gera söfnin að meiri þátttakendum í samfélaginu og al- menning að meiri þátttakendum í söfnunum. Slíku kynning- arstarfi hefur verið sinnt að nokkru leyti í skólum landsins og í fjölmiðlaumfjöllun en svo virðist sem söfn hérlendis hafi verið smeyk við að fylgja slíkum kynningum eftir á af- gerandi hátt. Vafalaust er hér fjárskorti um að kenna en ljóst má vera að með því að leggja meiri áherslu á kynningarstarf er hægt að fjölga þeim gestum sem leggja leið sína í listasöfn og aðr- ar menningarstofnanir verulega. hefur verið nokkuð til umræðu síðustu vikur. Talsmenn útgerðanna segja hátt leiguverð og lítið framboð á leigukvóta gera rekstur þessara skipa ógerlegan og vilja gagngerar breytingar á leigumarkaðnum. Ekki eru þó allir á sama máli og segja vanda útgerðanna sjálfskapaðan. Helgi Mar Arnason ræddi við menn um stöðu þessa útgerðarhóps. TJÓRN Landssambands út- gerða kvótalítilla skipa hefur síðustu daga setið á rökstólum í Reykjavík og m.a. blásið til opins fundar um mál félagsmanna á Hótel Loftleiðum á laugardag. Forsvarsmenn LÚKS segjast vilja freista þess að ná eyr- um yllrvalda um stöðu sinna mála og vonast til að þannig megi leita leiða um lausn vandans. Þeir hafa hinsvegar ekki tekið ákvörðun um viðbrögð eða aðgerðir náist ekki samkomulag um slíkt. Enn sem komið er hefur aðeins eitt skip, Vatneyri BA frá Patreksfirði, róið til fiskjar án þess að aflaheimildir séu íyrir hendi. Vatneyri BA er kvótalaust skip en landaði engu að síður um 20 tonnum af fiski í gáma á Eskifirði í síðustu viku. Skipið hélt að lokinni löndun til veiða á ný og var ráðgert að afla veiðiferðarinnar, um 35 tonn- um af fiski, yrði landað á Patreks- firði í morgun. Svavar Guðnason, út- gerðarmaður Vatneyrar BA, sagðist í gær með þessu vilja láta reyna á réttlæti fiskveiðistjórnunarkerfisins með því að láta draga sig fyrir dóm. „Eg vil að ég verið kærður og málið komi fyrir dóm. Þannig vonast ég til að öll lög um stjórnun fiskveiða verði dæmd ógild. Ég er ekki að sækjast eftir kvóta á skipið, heldur aðeins að mér verði gert kleift að gera út og framfleyta þannig mér og mínum. Það er ekki grundvöllur til þess í dag og hefur reyndar ekki verið til margra ára. Eg tel það engu máli skipta til hvaða aðgerða verður gripið, vit- leysan viðgengst á meðan þessi fiskveiðistjómun er við lýði.“ Svavar sagðist í gær ekki hafa fengið nein við- brögð frá yfirvöldum vegna veiða skipsins, enda liti hann svo á lögbrot sé ekki framið fyrr en búið sé að landa aflanum og vigta hann. Svavar sagðist heldur ekki hafa fengið nein viðbrögð vegna fyrri veiðiferðar Vatneyrar BA án kvóta, enda verð- ur afli veiðiferðarinnar ekki seldur fyrr en í dag. Aðgerðirnar ekki að undirlagi LÚKS Svavar sagðist ekki hafa notið stuðnings Landssambands kvótalít- illa útgerða í aðgerðum sínum til þessa, hvað svo sem síðar verði. Hilmar Baldursson, framkvæmda- stjóri LÚKS, segir aðgerðir útgerð- ar Vatneyrar BA ekki að undirlagi sambandsins. Hann segir samtökin vilja láta reyna á vilja stjórnvalda til að vinna að lausn á vanda umbjóð- enda sinna, áður en gripið verði til jafn róttækra aðgerða. „Við eram enn að vinna að okkar málum og ætlum okkur þessa viku til þess. Við teljum aðgerðir útgerðar Vatneyrar BA einkennast af fljótfærai. Ef við færum út í slíkar aðgerðir yrðu þær gerðar á allt öðram forsendum,“ segir Hilmar. Vatneyri BA var í gær á leið til heimahafnar á Patreksfu'ði þar sem landa átti aflanum í morgun. Bjöm Kristjánsson, skipstjóri, sagðist í gær gera ráð fyrir að hann yrði sjálf- ur að sæta ábyrgð fyrir lögbrotinu. „Við hinsvegar brjótum engin lög fyrr en við vigtum fiskinn upp úr skipinu, því það er rúmlega tveggja tonna kvóti á skipinu. Við ákváðum hinsvegar að láta reyna á þessi lög því við höfum ekki getað keypt kvóta á skipið eins og áætlað var. Veiði- ferðin var hinsvegar hafin og þá var skaðinn skeður og þá gildir einu hvort við föram einu tonni framyfir eða 20 tonnum,“ sagði Bjöm. Hefur verið sviptur veiðileyfí I lögum um umgengni við nytja- stofna sjávar er kveðið á um að óheimilt sé að hefja veiðiferð skips sem leyfi hefur til veiða í atvinnu- skyni nema skipið hafi aflaheimildir sem telja má líklegt að dugi fýrir afla í ferðinni með hliðsjón af þeim veiðarfæram sem notuð eru. Afli sem fenginn er umfram veiðiheimfidir er ekki gerður upptækur, heldur er útgerðin sektuð um fjárhæð sem nemur andvirði ólögmæts afla. Fiskistofa hefur þegar sent skeyti til útgerðar og skipstjóra Vatneyrar BA þess efnis að skipið verði svipt öllum heimildum til veiða í atvinnu- skyni vegna umframafla. Arni Múli Jónasson, aðstoðarfiski- stofustjóri, segir lögin kveða skýrt á um viðbrögð Fiskistofu í málum af þessu tagi. Fiskistofa muni kæra málið til viðkomandi sýslumanns, lögreglan taki síðan málið til með- ferðar og gefin verði út ákæra telji menn tilefni til. Hann segir málið fara í hefðbundinn farveg, skip sem fiski umfram aflaheimildir séu svipt veiðileyfi uns kvótastaða þeirra sé leiðrétt. Hann segir að Landhelgis- „Menn gátu séð afleiðing- ar Kvótaþings fyrir“ Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson VATNEYRI BA frá Patreksfirði hefur í tvígang landað afla, alls um 60 tonnum af fiski, án þess að aflaheimildir sé fyrir hendi á skipinu. gæslunni sé gert viðvart um veiði- leyfissviptingar en minnist þess ekki að skip hafi verið fært til hafnar vegna þess. Hinsvegar lítur hann svo á að lagaheimildir séu til að grípa til slíkra aðgerða virði menn ekki veiði- leyfissviptingu. í áðurnefndum lögum kveður á um að við fyrsta brot um veiðar um- fram aflaheimildir skuli sekt nema a.m.k. 400.000 krónum en ekki meira en 4 milljónum króna eftir eðli og umfangi brotsins. Við ítrekað brot skuli sektin ekki verða minni en 800.000 krónur en ekki hærri en 8 milljónir króna. Ef um stórfelld eða ítrekuð ásetningsbrot er að ræða varða þau varðhaldi eða fang- elsi allt að sex árum. Árni Múli seg- ist telja að í máli Vatneyrar BA séu skipstjóri og útgerðarmaður refsiá- byrgir en minnir á að það sé dóm- stóla að kveða upp um slíkt. Hann segist ekki minnast þess að áður hafi komið upp mál þar sem liggi fyrir klár ásetningur til að fara á sjó án þess að nægilegar veiðiheimildir séu íýi'ir hendi. Ái-ni Múli segir Fiskistofu hafa vitneskju um afla þann sem Vatn- eyri BÁ landaði í gám í síðustu viku án þess að eiga fyrir honum afla- heimildir. Fiskistofa hafi ekki haft tök á að grípa til aðgerða vegna þess en við því verði að sjálfsögðu bragðist með viðeigandi hætti. Fáir sem hafa selt frá sér veiðiheimildir Við úthlutun aflaheimilda fyrir yf- irstandandi fiskveiðiár vora samtals 134 aflamarksskip án aflaheimilda með veiðileyfi. Það gefur hinsvegar ekki góða mynd af þeim fjölda út- gerða sem treysta nær eingöngu á kvótaleigumarkaðinn, því um er að ræða fjölda smábáta og jafnvel tog- ara og stærri skip. Þegar úthlutun til einstakra skipa er skoðuð eru að- eins sárafá skip á stærðarbilinu frá 30 tonnum upp í 100 tonn sem fengu úthlutað 50 þorskígildistonnum eða minna. Jón Ái-nason, formaður Landssambands útgerða kvótalítilla skipa, segir hinsvegar að í samtök- unum séu nú skráðir hátt í 100 fé- lagsmenn. Umbjóðendumir séu hinsvegar nokkuð fleiri og síðustu vikur hafi margir sett sig í samband við samtökin og því geti fjöldi um- bjóðenda nú verið hátt í 300. Þar sé um að ræða báta sem hafa þurft að meira eða minna leyti að fá afla- heimildir af leigumarkaðnum. Hann BJÖRN Kristjánsson, skipstjóri á Vatneyri BA. segir að ekki séu sett viðmið eða há- markskvótaeign til að útgerðir telj- ist gjaldgengar í samtökin. Miðað sé við að ekki sé mögulegt að fram- fleyta útgerðinni á þeim kvóta sem hún á, án þess að leita þurfi á leigu- markaðinn. Innan samtakanna sé nú einkum um að ræða útgerðir sem leigja meira en helming þess afla sem skip þeirra koma með að landi. Jón segir að erfitt sé að setja ákveð- in viðmið í þessu sambandi. Það sé misjafnt eftir bátum hve mikinn kvóta þarf til að hægt sé að reka út- gerðina svo vel sé. Þannig sé til dæmis 10 tonna bátur með 100 tonna kvóta þokkalega vel settur en 100 tonna bátur með 100 tonna kvóta illa settur. Hann segir stærsta hluta þeirra báta sem leitað hafi til samtakanna vera á stærðarbilinu 30 til 100 tonn, eða sem í daglegu tali era nefndir vertíðarbátar. Einkum sé um að ræða menn sem nýlega hafa byrjað í útgerð en einnig séu dæmi um menn sem selt hafi frá sér aflaheimildir. Jón þvertekur hins- vegar fyrir að útgerðarmenn innan raða LÚKS hafi selt frá sér afla- heimildir í stóram stíl fyrir háar fjárhæðir. „I einhverjum tilfellum kann að vera um að ræða aðila sem hafa átt örfá tonn en verið þvingaðir af lánastofnunum til að láta þau af hendi til að geta haldið útgerðinni áfram. En langflestir okkar félags- manna era nýir í greininni, kvótalitl- ir eða kvótalausir en gátu framfleytt sinni útgerð með leigu aflaheimilda áður en yfirvöld fóra að þrengja að þeim. Þar má fýrst nefna afnám línutvöföldunar, tilurð Kvótaþings og 50% veiðiskyldu sem hefur dreg- ið mjög úr framboði á leigukvóta- markaðnum." Sáralítið til skiptanna Jón tekur dæmi af útgerðarmanni sem leigir kvóta á 90 krónur og fær 140-150 krónur fyrir aflann. Þannig séu aðeins 50-60 krónur til skipt- anna þegar búið er að borga leiguna fyi’fr kvótann og þá muni mikið um 10 krónur. Þess vegna séu 100 krón- ur of hátt verð. „Það þarf að borga ýmis gjöld af þessum 50-60 krónum. Það hefur alltaf verið litið á 88 krón- ur sem hámark leiguverðsins. Hins- vegar hefur þótt mögulegt að borga 90 krónur vegna þess að afurðaverð hefur hækkað og þar af leiðandi verð á mörkuðunum verið hærra. Nú er hinsvegar ekkert framboð af leiguheimildum og þess vegna hækkar verðið skiljanlega. Það er mjög slæmt því nú fer netavertíðin að hefjast. Þegar hún verður komin á fullt þyrftu helst að fara 500- 1.000 tonn af þorski um Kvótaþing á dag. Á næstu vikum ræðst það hvort þessi útgerðarhópur þrífst í þessu kerfi eða ekki. Fjölmargir stóla á vetrarvertíðina og ef ekki fæst kvóti til leigu þýðir það hrein- lega endalokin fyrir marga. Hráefni af þessum bátum er eftirsótt fyrir saltfiskvinnslurnar í landi, enda í hæsta gæðaflokki." Jón segir kvótalitla útgerðar- menn gera þá einu kröfu að þeim verði gert kleift að lifa af útgerðinni, eins og þeim hafi tekist fram að þessu. „Helst vildum við róttækar breytingar á úthlutunarreglum kvótans. Hvað eigum við að stunda sjóinn lengi áður en við lifum við- miðunarár, líkt og árin 1980-1983? Þá er ég ekki að tala um að við fáum kvóta til eignar, heldur viljum við aðeins veiða fiskinn, ekki eiga hann,“ segir Jón. Lögin um Kvótaþing illa samin Einar Oddur Kristjánsson, sem sæti á í sjávarútvegsnefnd Alþingis, segir lögin um Kvótaþing einfald- lega illa samin. Þingið sé í raun óþarft og þjóni aðeins þeim tilgangi að hefta eðlileg viðskipti með afla- heimildir. Ennfremur leiði íýrir- komulag viðskipta á Kvótaþingi ein- ungis til hækkunar á leiguverði. Einar segir sjávarútvegsnefnd Al- þingis hafa reynt að laga framvarp um Kvótaþing þannig að viðskipti gætu orðið með eðlilegum hætti á þinginu. Innan nefndarinnar hafi hinsvegar ekki fengist samþykki fyiir breytingunum. „Ég greiddi þess vegna atkvæði gegn framvarp- inu á þinginu, enda var hægt að sjá þessa þróun fyrir. Þeir sem leigja til sín heimildir geta gert út ódýrt og hagkvæmt og það er rangt að hafa slíkar hömlur á viðskiptum með leigukvóta, enda er Kvótaþing hins- vegar að eyðileggja rekstargrund- völl þessara skipa. Það þarf því að afnema þessi lög,“ segir Éinar. Vissu hvað blasti við Sævai- Gunnarsson, formaður Sjó- mannasambands Islands, segir út- gerðarmönnum kvótalítilla skipa hafa mátt vera vel ljóst hvaða starfs- umhverfi blasti við þeim þegar þeir seldu kvóta frá sér eða keyptu kvóta- lítil skip og sé þeim því engin vor- kunn. Hann segir kvóta- lausum eða kvótalitlum út- gerðum mega skipta í þrjá hópa. Stór hluti þeirra séu útgerðir smábáta sem selt hafi frá sér veiðiheimildir og vilji fá úthlutað kvóta á ný. Þá séu í þessum hópi útgerðar- menn sem keypt hafi báta með kvóta en selt hann frá sér. I þriðja lagi sé um að ræða báta sem aðrar útgerðir hafi flutt veiðiheimildir frá vegna hagræðis og síðan selt bátana kvóta- lausa. „Þeir sem hafa leigt kvóta á Kvótaþingi eða sín á milli fyi-ir daga þingsins, hafa langflestir látið sjó- mennina taka þátt í kvótakaupunum. Kvótaþing er ekki komið til að undir- lagi sjómanna, heldur varð það til hjá nefnd sjávarútvegsráðherra fýrir um ári síðan og var inni í þeim pakka sem sjómönnum var boðinn til að leysa verkfallið. Sjómannasamtökin litu þannig á að Kvótaþing væri enn „Viljum að- eins veiða fiskinn, ekki eiga hann“ ein tilraunin til að ná utan um verð- myndunarvandann. Ég held reyndar að Kvótaþing geti verið til bóta en það getur líka verið skaðlegt, ekki síst þegar margir útvegsmenn vinna leynt og ljóst að því að eyðileggja það með því að svelta það eins og nú hefur komið á daginn,“ segir Sævar. Sævar leggur þó áherslu á að meðal kvótalítilla útgerða megi vissulega finna heiðarlega menn sem hafí ekki gert sér grein fyrir aðstæðum og sitji nú í súpunni. „En það era örfá dæmi og allflestir þess- arra manna era að svína á okkar umbjóðendum í verðmyndum á fiski með því að láta þá taka þátt í verð- myndun á fiski,“ segir Sævar. Menn áttu að vita um afleiðingar Kvótaþings Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegs- ráðherra, segh- Kvótaþing og aukna veiðiskyldu vissulega hafa takmark- að framboð á leigukvóta. Hinsvegar hafi verið óhjákvæmilegt að leysa kjaradeilu sjómanna en hún hafi einkum snúist um að takmarka möguleika skipa sem vora að leigja til sín kvóta og láta sjómenn taka þátt í kaupum á aflaheimildum. Þær takmarkanir sem gripið var tU á síð- asta vetri hafi hinsvegar verið nauð- synlegar til að ná friði við sjómenn og menn verði að finna aðrar leiðfr til að leysa þau mál áður en gerðar verða breytingar á þeirri skipan sem þá var ákveðin. Menn hafi mátt gera sér ljóst hvaða afleiðingar lagasetn- ingin myndi hafa fýrir þá sem byggja útgerð á því að leigja til sín aflaheim- ildir. „Menn verða einfaldlega að gera það upp við sig hvort þeir vilja stríð við sjómannasamtökin eða ekki. Þó gUd rök séu fýrir því að rýmka frekar reglur um framsal og gera viðskipti auðveldari þá verða menn að huga að því að það leiði ekki til nýrra átaka við sjómenn. Ég tel að það sé skynsamlegast að hafa sem minnstar takmarkanir á viðskiptum með aflaheimUdir. Það leiðir tU mests hagræðis eðhlegrar verð- myndunar," segir Þorsteinn. Þorsteinn segir ljóst að þeir sem keypt hafi skip með litlum eða eng- um kvóta geti ekki sakast um það við neinn annan en sjálfan sig. Það sama eigi við um þá sem selt hafa frá sér aflaheimildirnar. „Við rekum sjávarátveginn á grandvelli mark- aðshagkerfis þar sem útgerðarmenn bera sjálfir ábyrgð á sínum fjárfest- ingum. Stjórnvöld bera ekki ábyrgð á fjárfestingum í sjávarútvegi frek- ar en öðram atvinnugreinum. Hver og einn verður að axla þá ábyrgð.“ Sjálfskapaður vandi Eiríkur Tómasson, varaformaður Landssambands íslenskra útvegs- manna, segir margar kvótalausar eða kvótalitlar útgerðir umbjóðend- ur LIU. Vandi þessara útgerða sé hinsvegar í mörgum tilfellum sjálf- skapaður. Flest skipin séu kvótalaus vegna þess að menn hafi keypt þau kvótalaus eða selt af þeim kvótann einhverra hluta vegna. „Þeir sem eiga skip án kvóta vissu í hvaða stöðu þeir voru. Einnig hefur verið reynt að koma í veg fýrir að leigu- markaðurinn virkaði sem skyldi en leiga á aflaheimildum hefur verið sérstakur þyrnir í augum sjómanna- samtakanna.“ Eiríkur segir leiguverð alltof hátt, einkum vegna minnkandi framboðs á leigukvóta. Minna framboð sé meðal annars vegna færri verkefna fyrir fiskiskipaflot- ann, og hann bendir í því sambandi á samdrátt í rækjuveiðum og minni úthafsveiðar. „Staðreyndin er ein- faldlega sú að flotinn er alltof stór miðað við það sem hann má veiða. Við voram komnir áleiðis með að ná tökum á þessu en það starf var gert að engu með dómi Hæstaréttar og kostaði útgerðina gríðarlega mikla fjármuni sem varið var í úrelding- arkostnað. Ef færa á til kvóta til handa þeim sem era kvótalitlir eða kvótalausir þýðir það aðeins að þá verða aðrir kvótaminni og mögu- leikar þeirra sömuleiðis," segir Ei- ríkur. UtKerðarmenn kvótalítilla skipa segja framtíð sína ráðast á næstu vikum V andinn að margra mati sjálf- skapaður Vandi útgerða með lítinn eða engan kvóta
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.