Morgunblaðið - 16.02.1999, Blaðsíða 60
60 ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Kvikmyndahátíðin Berlinale í 49. skipti
MÓEIÐUR Júníusdóttir í Poppi í Reykjavík sem sýnd er á markaðnum í Berlín.
SHAKESPEARE ástfanginn þykir sigurstrangleg í Berlín.
Verða menn ástfangn
ir af Shakespeare?
Kvikmyndahátíðin í Berlín telst til
mikilvægari atburða í kvikmynda-
heiminum. Hún hófst á miðvikudag
með heimsfrumsýningu þýsku
myndarinnar Amieé og Jaguar undir
leikstjórn Max Fárberböck. Rósa
Erlingsdöttir, fréttaritari í Berlín,
kynnti sér dagskrá hátíðarinnar.
EDWARD Furlong og Edward Norton í American
History X.
ISÍÐASTA skipti er Berlinale-
hátíðin, sem löngum hefur ver-
ið hápunktur lista- og menn-
ingarlífs Berlínar, haldin í
miðborg gamla vesturhlutans. Árið
2000 heldur hátíðin upp á hálfrar
aldar afmæli sitt, rúmum tíu árum
eftir fall múrsins, í nýjum glæsileg-
um kvikmyndahúsum á Potsdamer-
Platz. Hátíðin í ár ber á þann hátt
merki um þær pólitísku og menn-
ingarlegu breytingar sem orðið hafa
á síðastliðnum ái’atug sem sýnir
jafnframt þróun Berlínar sem
heimsborgar.
Óhætt er að segja að hátíðin muni
endurspegla þrjú meginsvið kvik-
myndaframleiðslu í heiminum í dag;
Evrópu, Suðaustur-Asíu og Banda-
ríkin. Meira en helmingur mynd-
anna sem keppa til verðlauna kem-
ur að þessu sinni frá Evrópu eða er
undir evrópskri leikstjóm. Flestar
þeirra verða heimsfrumsýndar
núna í Berlín og spanna verk
óþekktra leikstjóra sem og verk
gamalkunnra meistara. Hátíðin
stendur yfir til 21. febrúar og tekur
til sýningar á sjötta hundrað kvik-
myndir frá öllum heimshornum. 25
myndir frá 13 löndum eru tilnefnd-
ar í samkeppnisflokki og eiga mögu-
leika á að hreppa Gullna björninn.
Hugniyndafræðin
er mannhyggja
Sannur kvikmyndaunnandi
myndi þó halda því fram að sjálfa
paradís hátíðarinnar væri að finna í
hinum flokkum hátíðarinnar, þ.e.
Panorama og Forum. í Panorama-
flokknum er leitast við að gefa yfir-
sýn yfir alþjóðlega kvikmyndafram-
leiðslu síðastliðins árs með tilliti til
áhrifa á þróun evrópsks kvik-
myndaiðnaðar og er sérstök áhersla
lögð á að velja myndir sem fást við
samfélagsleg málefni nútímans. Við
lok hátíðarinnar eru einnig veitt
verðlaun í Panorama, meðal annars
fyrir bestu heimildamyndina sem og
fyrir bestu kvikmynd ársins sem á
einn eða annan tengist lífi samkyn-
hneigðra.
Takmark Forum-flokksins er
annars vegar að kynna myndir
ungra leikstjóra frá öllum heims-
hornum og hins vegar að leiða at-
hygli áhorfenda að listrænu sem og
samfélagslegu gildi kvikmynda-
framleiðslu. Forum-flokkurinn hef-
ur verið rómaður fyrir pólitíska
hugmyndafræði sem byggist á
mannhyggju. Handan pólitískrar
hagsmunabaráttu er leitast við að
gefa óháðum kvikmyndum, jafnvel
þeim sem búa við ritskoðun í heima-
landi sínu, möguleika á alþjóða vett-
vangi. Sem dæmi má nefna kvik-
myndir frá Asíu, jafnvel N.-Kóreu.
Stjörnuskin í Berlín
Stjörnur hátíðarinnar í ár eru
meðal annarra Steven Spielberg
með heimildamyndina The Last
Days sem framleidd er af Shoah
Foundation, Alan Rudolph kynnir
nýjustu mynd sína Breakfast of
Champions sem byggð er á met-
sölubók Kurt Vonnegut Jr. með
Bruce Willis og Nick Nolte í aðal-
hlutverkum, en þeir eru báðir gest-
ir hátíðarinnar. Myndin segir á
gamansaman en gagnrýninn máta
frá neysluhyggju nútímamannsins
sem leiðir hann í tómhyggju og
geðveiki.
Mikla athygli vekur nýjasta
mynd Toni Kaye og David
McKenna, Ameiican History X,
sem tekur á kynþáttafordómum og
ofbeldisverkum „White-Power“-
hreyfingarinnar í Suður-Kalíforníu.
Edward Norton fer með aðalhlut-
verkið og var tilnefndur til ósk-
arsverðlauna fyrir leik sinn fyrir fá-
HEIMILDARMYNDIN „Non
Stop“ eftir Ólaf Sveinsson var
sýnd á kvikmyndahátíðinni í
Berlín 11. febrúar og hefur feng-
ið lofsamlegar umsagnir í blöð-
unum Tageszeitung og Zitty.
Myndin var valin til sýningar í
þeim hluta hátíðarinnar, sem
nefnist „Junges Forum“ og hefur
verið vettvangur leikstjóra á
borð við Aki Kaurismaki og Jim
Jarmusch þegar þeir hafa viljað
frumsýna myndir sínar.
Myndin gerist á bensínstöð,
sem er í hverfinu Moabit í Berlín
og er opin allan sólarhringin.
Þar safnast saman fólk úr öllum
áttum og er leikstjórinn sjálfur
meðal fastagesta þar.
Christina Nord, kvikmynda-
gagnrýnandi Tageszeitung, segir
að út úr því að fylgjast með
einum dögum. Sean Penn ásamt
Nick Nolte, sem einnig er tilnefnd-
ur til óskarsverðlauna, og öðrum
stórstjörnum leikur í stríðsmynd-
inni The Thin Red Line er einnig
gestur hátíðarinnar.
Myndin er í leikstjóm Terrence
Malick en titill hennar skírskotar til
bandarísks orðtaks er segir að að-
eins örþunnur rauður þráðm’ skilji
að heilbrigði og geðveilu í samfélagi
mannkynsins. í túlkun Malicks á
skáldsögu James Jones From Here
to Eternity, sem lýsir sturlun
stríðsins, verða fyrrnefnd skil að
engu, en sögusviðið eru bardagar
fastagestunum á bensínstöðinni,
sem fremur séu að Ieita að fé-
lagsskap og skemmtun en bens-
íni, komi „hin dásamlega og
mergjaða heimildarmynd „Non
Stop“ og bætir við að hún gefi
áhorfandanum kost á því að
finna takt, Iffstilfinningu og lund-
erni borgarinnar og íbúa hennar
að tjaldabaki. Nord segir að Ólaf-
ur leyfi hinu alræmda orðfæri
hins kjaftfora Berlínarbúa að
njóta sín og lýkur umsögninni á
því að segja að það hvernig þrír
menn tali hver í kross við annan
á portúgölsku, rússnesku og
þýsku megi teljast „með falleg-
ustu samræðunum á kvikmynda-
hátíðinni í Berlín þetta árið“.
í tímaritinu Zitty, sem er dag-
skrárblað fyrir Berlín, er bensín-
stöðinni líkt við tóbaksbúð
Bandaríkjamanna og Japana árið
1942.
Shakespeare verðlaunaður?
Einn helsti gullmoli hátíðarinnar
telst vera stórmynd Johns Madden
Shakespcare ástfanginn sem er til-
nefnd til 13 óskarsverðlauna. Hún
segir á gamansaman hátt frá því
hvernig hin raunverulega eina
sanna ást verður innblástur unga
leikritahöfundarins Shakespeares,
sem áður þjáðist af ritteppu, og
hjálpar honum að ljúka leikritinu
Rómeó og Júlíu. Arið er 1593 og
samkeppnin hörð í leikhúslífi Lund-
Augies Wrens í myndinni
„Smoke“. „Islenski leikstjórinn
[Ólafur] Sveinsson hefur fundið
hina sönnu Berlín á bensínstöð
sem er opin 24 tíma sólarhrings í
hverfinu þar sem hann býr,“ seg-
ir í dómnum. „Maður horfir á
myndina fullur af hrolli og unaði
- og gælir við þá hugmynd að
líta við á næstunni á bensínstöð-
inni í Paulstrafie, fá sér kaffi,
kaupa dagblað og hlusta á dá-
góðan skammt af lífspeki."
Mynd Ólafs var frumsýnd á
sjónvarpsstöðinni 3sat í Sviss,
Austurríki og Þýskalandi 31. júlí
1998. í umsögn, sem Barbara
Sichtermann skrifaði þá í viku-
blaðið Die Zeit, sagði að Ólafur
brygði „upp mynd af þessum
jaðri í Berlín af einstökum næm-
leika“.
únaborgar, sem auk þess er ógnað
af pestinni. Með aðalhlutverk fara
Joseph Fiennes, Geoffrey Rush og
Gwyneth Paltrow sem á þessu ári
vann Golden-Globe verðlaunin.
Fleiri bandarískar stórmyndir
teljast sigurstranglegar en helst
ber að nefna One True Thing í leik-
stjórn Carl Franklin með Meryl
Streep, Renee Zellweger og Willi-
am Hurt í aðalhlutverkum og mynd-
ina 8 mm en henni leikstýrir Joel
Schumacher og Nicolas Cage leikur
aðalhlutverkið.
Ný dogma-mynd Dana
Danska dogma-myndin Mifunes
sidste Sang eftir hinn þekkta leik-
stjóra Soren Kragh-Jacobsen er
eini fulltrúi Norðurlandanna i Sam-
keppnisflokknum en Valdís Óskars-
dóttir er klippari myndarinnar eins
og annarrar dogma-myndar Veisi-
unnar. Af þeim 13 evrópsku mynd-
um sem að þessu sinni keppa til
verðlauna telst spænska myndin
Entre Las Piernas, eða A milli fót-
leggjanna, eiga mesta möguleika á
viðurkenningu. Leikstjórinn Manu-
el Gómez Pereira segir sögu pars
sem sjúkt er í kynlíf sem ekki er
nýtt þema í spænskri kvikmynda-
gerðarlist. Óvanalegt er hinsvegar
að Pereira virðist sannfærður um
að hægt sé að stunda of mikið kyn-
líf, og unga parið leitar á náðir
stuðningshóps til að ráða niðurlög-
um vanda síns. Söguþráðurinn tek-
ur á sig ýmsar myndir og sameinar
íróníu, magnaðar ástríður, fallegar
kynlífssenur og tekur í lokin óvænta
stefnu. Myndin var frumsýnd á
fimmtudag og hefur hlotið mikið lof
gagni’ýnenda.
íslenskar kvikmyndir
Engin íslensk kvikmynd verður
sýnd í hefðbundnum flokkum á há-
tíðinni í ár. A evrópska markaðinum
verður Island með þrjár myndir eða
Popp í Rcykjavík, Dansinn og Spor-
laust.
Kvikmyndasjóður Islands er
þátttakandi í verkefni í samvinnu
við European Film Promotion sem
kallast Shooting Stars eða Stjörnur
á uppleið. Verkefnið felst í því að
kynna leikara sem aflað hafa sér
góðs orðstírs heima fyrir og koma
þeim á framfæri á alþjóða vett-
vangi. Upprennandi leikarar frá 18
Evi’ópulöndum taka að þessu sinni
þátt og munu halda fundi með leik-
stjórum, handritshöfundum og
blaðamönnum á Berlinale-hátíðinni.
Verkefnið var reynt í fyrsta sinn í
fyrra og þótti takast með eindæm-
um vel en það er undir verndar-
væng leikarans Bens Kingsley sem
margir muna eftir úr hlutverki
Gandhis í samnefdri kvikmynd. Nú í
ár mun Ingvar Sigurðsson taka
þátt, fyrstur íslenskra leikara.
Verkefnið og leikararnir verða
kynnt á blaðamannafundi nú um
helgina. Ben Kingsley var viðstadd-
ur opnunarhátíðina og lét þau orð
falla að evrópskur kvikmyndaiðnað-
ur væri kraftmesti og fjölbreyttasti
miðillinn á heimsmarkaðinum í dag.
„Non Stop“ eftir Ólaf Sveinsson valin til
sýninga á kvikmyndahátíðinni í Berlín
„Horfir á myndina fullur
af hrolli og unaðiu