Morgunblaðið - 16.02.1999, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 16.02.1999, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1999 25 ERLENT Spenna á stjórnarheimili jafnaðarmanna og græningja í Þýzkalandi Schröder hvetur græningja til stefnubreytingar MIKIL spenna ríkir þessa dagana á þýzka stjómarheimilinu í Bonn. Viku eftir ósigur héraðsstjórnar jafnaðar- manna (SPD) og græningja í sam- bandslandinu Hessen gengu um helg- ina fleiri „eftirskjálftar“ yiir miðju- vinstri-stjóm Gerhards Schröders kanzlara, sem sömu tveir flokkar standa að og „tapliðið“ í Hessen. Schröder hvatti græningja í sjón- varpsviðtali á sunnudag til að gera leiðréttingar á stefnu sinni. Sam- starfsflokkurinn yrði að hans sögn að miða stefnu sína að meira leyti við „hina þjóðfélagslegu miðju“ - og raunveruleikann. „Of kreddufastir“ I Welt am Sonntag gagnrýndi Heide Simonis, forsætisráðherra nyrsta þýzka sambandslandsins, Slésvíkur-Holtsetalands einnig stefnu græningja. Að hennar sögn væra þeir í dagsönn stjómarsamstarfsins „of kreddufastir". Auk þess hefði stjóm- in í Bonn gengið í að hrinda kosninga- loforðum í framkvæmd með of mikl- um asa. Áhyggjum almennings hefði verið of lítill gaumur gefinn. Réttara hefði verið að fara hægar í salamar í málum á borð við fyrirhugaða lokun kjamorkuvera landsins og breytingar á lögum um ríkisborgararétt - sem hvort tveggja era mikil hjai'tans mál græningja. Jiirgen Trittin umhverfisráðherra er sá fulltrúi græningja í stjórninni, sem gagnrýnin hefur hvað harðast beinzt gegn. Schröder hefur sagt græningja þurfa á „meiri Fischer og minni Trittin" að halda, en þar með á Kosningar 1 sambandslandinu Hessen fyrir skömmu hafa valdið miklu umróti í þýzkum stjórnmálum. Auðunn Arnórsson segir að þótt hrikti í stoðum stjórnar Gerhards Schröders haldi hún að öllum líkindum velli. Gerhard Jiirgen Schröder Trittin hann við að stjórnarstíll Joschka Fischer utanríkisráðherra, sem er einnig einn af leiðtogum græningja, væri ábyrgur og nyti stuðnings al- mennings, ólíkt stjómarstíl Trittins. Hann einkenndist um of af því að höfðað væri til „lítilla minnihluta- hópa“. Sagði Schröder í sjónvarps- viðtalinu á sunnudag að hann vonað- ist til að Trittin velti fyrir sér þeirri gagnrýni sem starf hans hefur sætt. Trittin aftur á móti gagnrýndi kanzlarann, án þess þó að nefna hann á nafn, í viðtali við Berlínarblaðið Ta- gcsspiegel á sunnudag. „Eg hef fram að þessu reynt að hella ekki olíu á eldinn. Skortur á samhæfingu og ein- hliða framsetning opinberlega hefur því miður leitt til þess, að komið hef- ur upp tortryggni milli samstarfs- flokkanna," hefur blaðið eftir honum. Kvartaði Trittin yfir því að í stað þess að gert væri upp um deilumál í bróðerni innan stjórnarinnar væri ágreiningur borinn á torg. Þetta væri báðum stjómarflokkum skaðlegt. Græningjar óttast meiri „útvötnun“ stefnumiða sinna Það sem kemur stjóminni í Bonn verst við að hafa tapað í Hessen er að þar með tapaði hún sjálfkrafa einnig hreinum meirihluta sínum í efri deild þjóðþingsins, Sambandsráðinu, þar sem fulltrúar sambandslandanna 16 eiga sæti. Þessar aðstæður knýja Schröder-stjómina til að leita mála- miðlana við kristilega demókrata, jafnvel þótt þeir hafi heldm' ekki meirihluta í Sambandsráðinu. Að sumu leyti kemur þetta Schi-öder vel. Áður en Ijóst varð eftir þingkosning- amar í haust sem leið að SPD og græningjar næðu öraggum meirihluta þingsæta í neðri þingdeildinni, Sam- bandsþinginu, hafði Schröder jafnvel vonast til að til myndunar „stóra sam- steypu“ kæmi, þ.e. stjómarsamstarfs SPD og CDU. Með tilliti til þessa gef- ur að skilja, að Schröder hefm- minni áhyggjur af þessum breyttu aðstæð- um löggjafarstarfsins en græningjar, sem óttast að með málamiðlunar- samningum stjómarinnai' við CDU „útvatnist" baráttumál þeirra, svo sem ríkisborgararéttai’frumvarpið og áformin um að hætta nýtingu kjam- orkunnar, enn meir en orðið er. Þetta stefni stuðningi grasrótarinnar í flokknum við forystumennina, ráð- hen-ana Trittin og Fischer þehTa fremsta, í alvarlega hættu. FDP ekki á leið í stjórn Fyrir helgina skutu upp kollinum vangaveltur um að jafnaðarmenn leit> uðu leiða til að skipta um samstarfs- flokk, þ.e. að slíta samstarfinu við græningja en fá frjálsa demókrata, FDP, inn í stjómina í staðinn. Schröder vísaði þessum vangaveltum á bug og Wolfgang Gerhardt, formað- ur FDP, einnig. Sagði hann flokks- menn sína reiðubúna að styðja stjóm- ina í ákveðnum málum, svo sem í rík- isborgararéttarmálinu, ef „skynsam- lega“ væri að verki staðið. Hann sagðist ekki búast við öðra en að stjómarsamstarf SPD og græningja tylldi út kjörtímabilið. Guido Westerwelle, framkvæmdastjóri FDP, sagðist einnig vantrúaður á að hin „rauð-græna“ stjórn „spryngi“. Aftur á móti vildi Rainer Brúderle, varaformaður FDP, ekki útiloka stjórnarsamstarf við SPD. Ekki væri óhugsandi að SPD yrði til- neydd að leita til FDP, hefur Die Welt eftir honum. Hörð viðbrögð við ummælum Aherns um afvopnun IRA Belfast, London. Reuters, Daily Telegraph. MIKIL spenna ríkti á fundi nýs heimastjórnarþings í Belfast á Norð- ur-írlandi í gær en gert er ráð fyrir að þingið samþykki í dag tillögur um stofnun tíu manna heimastjórnar, sem vonast hefur verið til að taki til starfa 10. mars næstkomandi en þann dag hafa bresk stjórnvöld hugsað sér að framselja völd sín á N- Irlandi í hendur heimastjórninni. Það setur hins vegar strik í reikning- inn að deilan um hvort fulltrúar Sinn Féin, stjómmálaarms írska lýðveld- ishersins (IRA), fái að setjast í stjórnina er enn óleyst og magnaðist hún reyndar mjög með misvísandi ummælum Berties Aherns, forsætis- ráðherra Irlands, um helgina. Ahern lét hafa eftir sér í viðtali við netútgáfu helgarblaðsins The Sunday Times að Ijóst væri að IRA yrði að aívopnast. Voru orð hans túlkuð á þann veg að írska stjórnin hefði breytt afstöðu sinni og teldi nú að IRA yrði að afvopnast áður en Sinn Féin yrði hleypt í heimastjóm- ina. Fögnuðu sambandssinnar á N- Irlandi ummælunum mjög, en þeir vilja ekki sitja í stjórn með Sinn Féin nema IRA byrji afvopnun fyrst. Leiðtogar Sinn Féin fordæmdu um- mælin hins vegar. Hafa leiðtogar Sinn Féin margoft ítrekað að afvopnun IRA sé óhugs- andi nú og munu hafa óttast að um- mæli Aherns yrðu til að gefa klofn- ingshópum úr IRA byr undir báða vængi. Eftir að hafa átt samtal við Martin McGuinness, aðalsamninga- mann Sinn Féin, sagðist Ahern seinna á sunnudag aldrei hafa sagt að Sinn Féin yrði „útilokaður“ frá heimastjórninni'og að orð hans hefðu verið mistúlkuð. CZffm ælisyj öfíilfin ? Auðvelt! Það er auðvelt að verða áskrifandi að Frjálsri verslun. Þú hringir: 561 7575, faxar: 561 8646 eða sendir okkur tölvupóst: fv@talnakonnun.is. ,^"orne& »1 smbimmí, «oras;:r "*'*** a í tilefni af 60 ára afmæli Frjálsrar verslunar fær einn áskrifandi helgarferð fyrir tvo að gjöf til einhvers af áfangastöðum Flugleiða. Auk þess fá 60 áskrifendur bíómiða fyrir tvo í eitthvert Sambíóanna. Gerist áskrifendur fyrir 25. mars! Borgart ni 23 • 105 Reykjavík • Sími 5617575 • Fax 561 8646
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.