Morgunblaðið - 16.02.1999, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ
PRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1999 17
L- Gœðavara
Gjafavara — matar- og kaffislell
Allir veröflokkar.
L,
Heimsfrægir hdnnuðir
m.a. Gianni Versace.
VERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.
órí&
\|aV\ð sa
o/tf
AUSTURSTRÆTl • BARÓNSSTÍG GLÆSIBÆ LAUGALÆK LÁGMÚLA* ARNARBAKKA SPORHÖMRUM LANGARIMA
ENGIHJALLA HJALLABREKKU SETBERGSHVERR • FIRÐI • OG HOLTI HAFNARFIRÐI
VIÐSKIPTI
Fær BMW tilboð frá
General Motors?
Frankfurt. Reuters.
VERÐ hlutabréfa í BMW AG
hækkaði um 3% í gær vegna bolla-
legginga um að mesti bílaframleið-
andi heims, General Motors Corp.,
íhugi yfírtöku, þrátt fyrir yfírlýs-
ingar BMW um að fyrirtækið sé
ekki til sölu.
Síðan Joachim Milberg var skip-
aður stjórnarfoiTnaður 5. febrúar
hefur áhugi á BMW aukizt vegna
frétta um að fyrirtækið kunni að
binda enda á 80 ára sjálfstæði með
bandalagi við stærri keppinaut.
BMW hefur oft ítrekað að fyi-ir-
tækið sé ekki í slíkum hugleiðing-
um og Quandt-fjölskyldan hefur
lýst yfir eindregnum stuðningi við
fyrirtækið, sem það á 45% í. Þó
halda bréf í BMW áfram að hækka
í verði. I gærmorgun hækkaði verð
þeirra um 3% í 748,50 evrur, þótt
það lækkaði í 734,60 evrur síðar um
daginn.
,jin Quandt-fjölskyldunnar getur
ekkert gerzt og í svipinn bendir
ekkert til þess að afstaða þeirra
muni breytast," sagði sérfræðingur
HypoVereinsbank AG í Múnchen.
Síðustu bollaleggingar stafa af
því að Die Welt hermdi um helgina
að General Motors (GM) íhugaði
yfirtöku BMW. Blaðið sagði að
GM mundi líklega gera tilboð ein-
hvern næstu daga, en vikuritið
Hlutafjárút-
boði Stofn-
físks lokið
HLUTAFJÁRÚTBOÐI Stofnfisks
hf., sem var í umsjón Islandsbanka
hf., lauk á föstudag. Útboðið var
tvískipt, annars vegar hlutafjár-
aukning fyrir 40 milljónir króna að
nafnvirði sem selt var með tilboðs-
fyrirkomulagi og hins vegar sala á
hlut ríkisins til starfsmanna Stofn-
fisks hf. fyrir 9 milljónir að nafn-
virði.
í tilboðshlutann bárust 25 tilboð
að upphæð 48 milljónir að nafn-
virði, kaupverð alls 105 milljónir
króna. Lágmarksgengi í útboðinu
var 1,4, en meðalgengi þeirra til-
boða sem gengið var að var 2,28.
Hlutur ríkisins, 9 milljónir að nafn-
virði, var boðinn starfsmönnum og
seldist allur.
Fyrir hlutafjáraukningu var
heildarhlutafé félagsins 47 milljón-
ir og þar af var ríkið með 93,6%
hlut, en eftir hlutafjárútboðið er
heildarhlutafé 87 milljónir og hlut-
ur ríkisins orðinn 40,2%.
Með hlutafjáraukningunni er fé-
lagið að auka framleiðslugetu sína
til sóknar á erlenda markaði.
-----------------------
Polygram
bjargaði Philips
Amsterdam. Reuters.
HAGNAÐUR hollenzka raftækj-
arisans Philips meira en tvöfaldað-
ist í fyrra í 13,34 milljarða gyllina
eða 6,87 milljarða punda, aðallega
vegna sölu stórs hlutar í Polygram-
skemmtanafyrirtækinu.
Ef ekki er tekið tillit til eignasöl-
unnar minnkuðu tekjur Philips um
rúmlega helming í 1,19 milljarða
gyllina. Árið á undan námu þær
2,71 milljarði.
I nóvember tilkynnti Philips að
þriðjungi verksmiðja fyrirtækisins
yrði lokað vegna „umframgetu".
Framleiðslustaðir fyrirtækisins
eru 244 í rúmlega 40 löndum og
starfsmenn um 256.000.
Fyrirtækið býst við að tveir
næstu ársfjórðungar verði erfiðir
en að síðan muni rofa til.
Der Spiegel hermdi að
Volkswagen keppti einnig að því
að koma á tengslum við BMW oy
yfirtaka hið bágstadda brezka
dótturfyrirtæki Rover.
„BMW er sjálfstætt og verður
sjálfstætt," sagði Milberg forstjóri
um helgina. Quandt-fjölskyldan ít-
rekaði einnig fjöguiTa áratuga
stuðning við bæverska íýrirtækið.
Fleiri bjóðendur?
VW og GM eru ekki einu fyrir-
tækin sem eru sögð hafa áhuga á
BMW. Ford Motor Co., Fiat og
Toyota Motor Corp. hafa einnig
verið talin koma til greina sem lík-
legir bjóðendur.
„Allir stórir framleiðendur með
fé aflögu gætu gert tilboð í BMW,“
sagði bflasérfræðingur DG Bank í
Frankfurt. „Eg held að þeir muni
allir gera tilboð að Daim-
lerChrysler undanskildum."
Búizt er við að BMW muni róa að
því öllum árum að snúa rekstri
Rover úr tapi í hagnað. Að sögn
sérfræðings DG Bank má vera að
BMW útiloki ekki samstarf við
stóran framleiðanda - ef til vill VW
eða Ford - til að framleiða fleiri
Rover-bfla.
HÖNNUN / SMÍÐI / VIÐGERÐIR / ÞJÓNUSTA
= HÉÐINN =
SM IÐJA
Stórási 6 »210 Garðabæ
sími 565 2921 • fax 565 2927