Morgunblaðið - 16.02.1999, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 16.02.1999, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1999 33 LISTIR Fögur fyrir- heit SJÓIWARP GUÐRÚN Ásmundsdóttir og Dofri Hermannsson í hlutverkum sínum í Deginum í gær. N u n nudagsleikhiisið DAGURINN í GÆR Eftir Árna Þórarinsson og Pál Kr. Pálsson. Búningar: Filippía Elísdótt- ir, leikmynd: Sigríður Guðjónsdóttir, tónlist: Hróðmar I. Sigurbjörnsson, leikstjóri: Hilmar Oddsson, framleið- andi: Jón Þór Hannesson. Leikendur: Dofri Hermannsson, Guðrún Ás- mundsdóttir, Björk Jakobsdóttir, Valdimar Orn Flygenring, Viðar Eg- gertsson, Hanna María Karlsdóttir, Margrét Vilhjálmsdóttir, Olafur Darri Olafsson o.fl. FRUMSÝNING fyrsta þáttar á Deginum í gær lofaði að mörgu leyti góðu um framhaldið. Jafnframt vai’ þetta fyrsta frumsýning ársins í Sjónvarpinu eftir endursýningar undanfarinna vikna á Föstum lið- um. Ef allt væri með felldu ætti að endursýna gamalt íslenskt efni síð- degis um helgar og nota aðaltíma dagskrárinnar til frumsýninga ein- göngu. Þetta er gert þar sem litið er á nýtt, innlent, leikið efni í sjónvarpi sem menningarlega nauðsyn en ekki óþarfa lúxus. Jafnframt er það sterkasta vopnið í samkeppninni um hylli áhorfenda. Aðalpersónan Dagfínnur, blað- burðarpiltur og húsvörður, er kó- mísk persóna þrátt fyrir spennu- kennt ívaf sögunnar. Útlit hans og tilburðir minntu einna helst á bræðing af Chaplin og Buster Keaton og skemmtilega stílfært út- lit myndarinnar skapaði henni eins konar períódískan ramma í þeirri nútíma Reykjavík sem hún á ann- ars að gerast í. Kvikmyndaþekking höfundanna og leikstjórans birtist í ótal stílbrögðum sem í þessum fyrsta þætti virtust allt að því bera ofurliði hinn ósköp einfalda sögu- þráð. Auk gi-unnupplýsinga um helstu persónur kom fátt annað fram en að maður nokkur hefði orðið fyrir slysi í húsinu og í lokin var spurning hvort kven- mannsöskrið hefði heyi’st úr sjón- varpinu eða úr húsinu. Spjallfélagi Dagfínns af Netinu gæti haft meiri áhrif þegar á líður. Vonandi dýpk- ar sagan og flækjast þræðirnir þegar á líður. Það vekur strax athygli að hér er á ferðinni annars konar meðferð á efni en hingað til hefur sést í Sunnudagsleikhúsinu. Efnistök leikstjórans eru á kvikmyndavísu og handbragðið er framúrskarandi. Kvikmyndatakan, tónlistin, leik- myndin, litasamsetningin, búning- ar og umhverfi er gi-einilega þaul- hugsað og lýtur listrænni lögmál- um en hefðbundin vinnsla á sjón- varpsefni gerir alla jafna. Vitnar það hvort tveggja um kunnáttu og metnað aðstandenda þáttaraðar- innai’ og að misjafnar forsendur eru lagðar til grundvallar fram- leiðslu þátta fyrir Sunnudagsleik- húsið. Hvort innihaldið rís svo und- ir íburðarmikilli meðhöndluninni kemur í ljós næstu sunnudaga. Hávar Sigurjónsson Osýnilegi blökkumaðurinn UM HÁLFRI öld eftir útkomu skáldsögunn- ar Ósýnilegi maður- inn eftir Ralph EIli- son, hyggst Randoni House útgáfan bandaríska gefa út aðra skáldsögu höf- undarins, „Junet- eenth“ sem hann vann að í fjörutíu ár og skildi eftir ófull- gerða þegar hann lést 1994. Ellison fæddist 1914. Hann byrjaði á skáldsögunni 1954, hafði nærri lokið henni 1967, en varð fyrir ýmsum hremmingum, m.a. brann hand- ritið og hann þurfti að byrja að nýju. Áætlað er að skáldsagan komi út 19. júní (Juneteenth), en nafnið vísar til þessa dags árið 1865 en þá varð þrælum í Texas fyrst kunnugt um frelsisyfírlýs- inguna sem hafði tekið gildi tveimur og hálfu ári áður. Ralpli Ellison var blökkumaður. Hann bjó uin tíma erlendis eins og annar kunn- ur svartur höfundur, Richard Wright, en sagðist hata of mikið hatursfull sjónarmið Bandaríkjamannna og vera of altekinn af því sem hann unni í Bandaríkjunum til þess að geta verið tjarri landinu. Ósýnilegi maður- inn hefur verið tal- inn ineðal höfuðverka banda- rískra samtímabókmennta og varð metsölubók. Ellison saindi smásögur, ritgerðir og var gagnrýnandi og háskólakennari. Merkir höfundar á borð við Kurt Vonnegut, Joseph Heller og Saul Bellow lýstu því yfír við dauða hans að verk hans hefðu haft gildi fyrir þá. Ralph Ellison Heldur þú að | E-vítamín sé nóg ? g NATEN 1 _______- er nóg /_5 Á fermingaborðið Borð dúlcaú rval i ð er hjá okkur Uppsetningabúðin Hverfísgötu 74, sími 552 5270. Láttu ekki deigan síga Guðmundur sýnt á Breiðumýri Morgunblaðið/Atli SNORRI Kristjánsson, Hörður Benónýsson, Friðrika B. Illugadóttir og Karl Ingólfsson í hlutverkum sínum. Laxamýri. Morgunblaðið. LEIKDEILD Eflingar í Reykjadal frumsýndi um helgina leikritið Láttu ekki deigan síga Guðmundur eftir Eddu Björgvinsdóttur og Hlín Agnarsdóttur. Leikdeildin á því láni að fagna að njóta lið- sinnis nemenda við Framhaldsskólann á Laugum og Litlulauga- skóla sem gerir það mögulegt að takast á við verk þar sem margir koma fram. í vetur hafa liðlega fjörutíu manns verið að undirbúa þessa fjölmennu sýningu og segja má að samstarf skólanna og Eflingar hafi gengið mjög vel. Láttu ekki deigan síga er leikrit sem vekur hlátur og léttleikinn er í fyrirrúmi og söngm’ líflegur. Guð- mundur, sem er aðalpersónan, er af 68-kynslóðinni og lítur yfir farinn veg með Garpi Snæ, syni sínum. Þar rifjast upp stúdentsprófíð, náms- mannauppreisnir, mótmæli gegn hernaðarbrölti, hippamenning og all- ai’ konurnar í lífi hans. Það eru heimamenn sem fara með stjórnina á fjölunum, en leikstjóri er Arnór Benónýsson og Valmar Valja- ots Reykdælingur af eistneskum ættum stjórnar tónlistinni. Með hlutverk Guðmundar fer Hörður Benónýsson en með hlutverk Garps fer Garðar Finnsson. Aðrir í aðalhlutverkum eru Hanna Þór- steinsdóttir, Friðrika B. Illugadóttir, Linda B. Guðmundsdóttir, Lára Kristín Jónsdóttir, Kristrún Krist- jánsdóttir, Jóhanna M. Stefánsdótt- ir, Stefán Jónsson, Karl Ingólfsson, Snon’i Ki’istjánsson, og Sigurveig Petra Björnsdóttir. Það er kaffihúsastemmning í fé- lagsheimilinu á Breiðumýri, en leik- húsgestir sitja allir við borð, drekka kaffi og borða vöfflur með rjóma í hlénu. Fyrir sýningu er leikin djass- tónlist og syngur Mai’got Kiis meðan gestir koma sér fyrir. Segja má að viðtökur áhorfenda á frumsýningunni hafi verið frábærar því lófaklappi ætlaði seint að linna og voru leikstjóra og leikendum færð blóm í tilefni af velheppnuðu kvöldi. Einn ffyrir alla, allir ffyrir einn Frábær bíll fyrir fjölskylduna, athafnamannlm og í íerðalaqið Ríkulegur siaðaibúnaður: - ABS hémialæsivöin ■ 2 loftþúðar - Rafdnfnar rúöur - Rafstýnðii b.'lb-’|tastrekk|arar Verð aðeíns kr. 1.260.000 ístraktor BÍLAR FYRIR ALLA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.