Morgunblaðið - 16.02.1999, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 16.02.1999, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ PRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1999 59 FÓLK í FRÉTTUM MYNDBÖND Þríleikurinn mikli um Indiana Jones Ránið á týndu örkinni (Raiders of the Lost Ark)_ Ævintýri/hasar ★★★★ Framleiðsla: Frank Marshall. Leik- stjórn: Steven Spielberg. Handrit: Lawrence Kasdan. Tónlist: John Williams. Aðalhlutverk: Harrison Ford og Karen Allen. 101 mín. Bandarísk. CIC myndbönd, janúar 1999. Aldurstakmark: 12 ár „Raiders of the Lost Ark“ mark- aði djúp og varanleg spor í kvik- myndasöguna þegar hún kom út ár- ið 1981. Hún sló aðsóknarmet hvar sem hún var sýnd og unglingar jafnt sem eldri spennu- myndafíklar um víða veröld stóðu ó öndinni meðan þeir gláptu og fóru síð- an beint í röðina aftur þegar myndin var búin. Þetta er einfaldlega skot- held hasannynd með stöðugri, út- hugsaðri, og dæmalaust skemmtilegri keyrslu frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu. Persónu- sköpun skarar fram úr flestu sem komið hefur fram í geiranum og tæknibrellumar voru svo magnaðar að hárin stóðu út í loftið, og standa þar enn átján árum síðar. Handrit Lawrence Kasdans eftir sögu meistaranna Georges Lucas og Philips Kaufman er óviðjafnanlegt og sérstakir leikstjórnarhæfileikar Spielbergs njóta sín betur en í nokkurri annarri mynd eftir hann. Það er heiður að fá að segja auð- mjúkt álit sitt á þessu meistara- stykki. Indiana Jones og hof dauðans (Indiana Jones and the Temple of Doom)______________________ Ævintvri/hasar ★V4 Framleiðsla: Robert Watts. Leik- stjdrn: Steven Spielbcrg. Handrit: Willard Huyck og Gloria Katz. Tón- list: John Williams. Aðalhlutverk: Harrison Ford og Kate Capshaw. 1984 mín. Bandarísk. CIC myndbönd, janúar 1999 Aldurstakmark: 12 ár Svo kom franihaldið og vonbrigð- in leyndu sér ekki. Væntingarnar voru gríðarlegar og þegar í ljós kom að myndin stóð hvergi undir þeim féll hún langar leiðir í áliti. Einhver hefur reiknað út velgengnisformúl- una fyrir fyrri myndinni og gert það vitlaust, því í stað þess að hrífa mann með sér í bamslegri ánægju vekur myndin stöðugan og illþol- andi pirring út í gegn. Ekkert er til sparað í peningaaustri varðandi Eigur Simpsons á uppboði sviðsmyndir, stórfengleg áhættuat- riði og tæknibrellur. En hér sannast að handritið er hjarta hverrar kvik- myndar og handrit myndar númer tvö um hetjuna miklu er einfaldlega handónýtt. Síðasta krossferðin (The Last Crusade)___________ Ævintýri/hasar ★★★V4 Framleiðsla: George Lucas og Frank Marshall. Leiksljórn: Steven Spiel- berg. Handrit: Jeffrey Boam. Tónlist: John Williams. Aðalhlutverk: Harri- son Ford, Sean Connery og Allison Doody. 119 mín. Bandarísk. CIC myndbönd, janúar 1999. Aldurstak- mark: 12 ár Hver hefði svo trúað að eftir rass- skellinn í annarri mynd veitti sú þriðja fulla uppreisn æru? Nú er upprunalegi andinn aftur svífandi yf- ir vötnum og sagan hn'fur. Ný per- sóna er kynnt til sögunnar, Dr. Jo- nes eldri, og er samband feðganna í brennidepli alla myndina. Sennilega hefði enginn getað gert þessu hlut- verki betri skil en erkisjarmörinn Sean Connery. Kvenhetjan bjargai- því sem bjargað verður eftir hroða- lega persónusköpun forvera hennar og nú er aftur komið verðugt verk- efni fyrir hetjuna sem fann Sátt- málsörkina, því nú leitar hann gralsins, hins heilaga bikars Krists. Hjarta myndarinnar slær öruggum og öflugum slögum því handritið er með allra besta móti. Eina ástæðan íyrir að „Síðasta krossferðin" fær ekki fullt hús er að þegar allt kemur til alls þá er hún stæling á hinni einu sönnu stórmynd um Indiana Jones. Guðmundur Ásgeirsson.. ►HEISMAN verðlaunagripur O.J. Simpsons frá árinu 1968 verður seldur á uppboði í Butterfíeld uppboðshúsinu í Los Angeles 16. febrúar næstkomandi. Er salan liður í uppboði á eigum Simpsons, en honum var gert að greiða rúmlega 38 millj- ónir dollara [um 2,4 milljarða króna] í einka- réttarhöldum sem fjöl- skylda Nicole Brown Simpson höfðaði gegn honum eftir að hann hlaut sýknu hæstaréttar í morðmáli Nicole og ástmanns hennar, Ron Goldman. Auk verðlaunagripsins eru til sölu fótboltabolir, sex golfsett og að sögn uppboðshaldara eru allir gripirnir í góðu ásigkomulagi. Væntanlega væru gripirnir til sölu á venjulegum flóamarkaði ef ekki kæmi til orðspor eigandans, en talið er að fótbolta- peysurnar geti selst á yfir 700 þúsund króna. Sljórnandi uppboðs- hússins segir að verð- launagripurinn frá 1968 muni seljast fyrir a.m.k. 7 milljónir króna. „Óháð því hvað fólki finnst um Simpson hefur enginn Heisman-verðlaunagripur verið seldur fyrr á uppboði og ég býst við að boðið verði grimmt í grip- inn.“ Netverjum býðst að taka þátt og er það í fyrsta skipti sem stórt uppboð er sett samtímis á Netið. HEISMAN-verðlaun Simpsons frá 1968. MORGAN Kringlunni 4-6, sími 533 1720. Nýjar vorvörur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.