Morgunblaðið - 16.02.1999, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 16.02.1999, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1999 47 hvor öðrum sögur og stríða Norð- mönnum í bland. Nú er lífshlaupið allt og Sigurð- ur farinn að finna okkur sumarbú- staðarlóð á annarri strönd. Ef eitt- hvert réttlæti er til þá bíður hans bæði góð heimkoma og góð lóð. Eins og hann sjálfur sagði við mig: „Það sem við eigum ógert saman í þessu lífi verðum við bara að gera í því næsta.“ Eg treysti á það. Stríðið síðasta háði hann af þeirri hetjulund sem honum var eiginleg og í faðmi fjölskyldu sinn- ar fékk hann hægt andlát. Karí og dætrunum bið ég bless- unai’ og þess að minning um góðan dreng verði þeim styi-kur í sorg- inni. Stefán Friðfínnsson. Nemendahópurinn, sem útskrif- aðist úr Verzlunarskóla Islands 1951, hefur misst einn af sínum beztu meðlimum og er það annað slíkt áfall á einu ári. Alls hafa nú fallið frá níu af þeim 59 ungmenn- um, sem yfirgáfu áhyggjulítið skólalífið á björtu vori fyrir tæpum 48 árum, og hófu lífsgönguna fyrir alvöru. Okkar árgangur var ábyggilega mjög svipaður öði-um árgöngum, sem brottskráðst hafa úr skólum fyiT og síðar. Einstaklingar hans bundust vináttuböndum, sem mynduðust á þessum viðkvæmustu árum ævinnar, og þau hafa enzt allt lífið. Marir bekkjarfélaganna hafa borið gæfu til geta haldið áfram að umgangast, en öðrum hafa forlögin stíað sundur. En vin- áttuböndin hafa ekki brostið. Og þegar bekkjarsystkin falla frá, hvolfast minningamar yfir þá sem eftir sitja. Nú hefir einn litríkasti og jafn- framt vinsælasti meðlimur bekkj- arins okkar, Sigurður Asmunds- son, dáið og yfirgefið okkur. Það hefir heldur betur hrært upp í huganum og framkallað feiknin öll af alls kyns minningum. Við Siggi áttum báðir heima í Hlíðunum og löbbuðum saman í gamla Verzlun- arskólann í fjóra vetur. Hann var stundum þungur að vakna á morgnana og þurfti að ýta við hon- um. Hann skrifaði í skólaminn- ingabókina mína 1951. „Vektu kon- una þína ekki eins harkalega og mig, því þá verður þú fjölkvænis- maður!“ Sigurður var vel gefinn og hon- um mart til lista lagt. Efiaust hefði hann getað þróað persónu sína meira og virkjað gáfurnar betur en hann kaus, eins og svo margir aðr- ir, að hverfa frá námi og demba sér út í lífið. Hann fór sínar eigin leiðir frekar en að berast með fjöldanum. Hann var afburða hnittinn í tilsvör- um og lá ekki á skoðunum sínum, en lét þær í ljós þótt hann vissi, að þær væru stundum ekki í samræmi við það, sem aðrir vildu heyra. T044um -od mww íjá ym íflflíDflVflflJUfl flÓTÍL flOfld MiTflUMIIT • (flf£ Upplýsingar í s: 551 1247 Erfisdrykkjur P E R L A N Sími 562 0200 liiiiiiiiiiiiui Við skólafélagar héldum hópinn að námi loknu, þegar hver út af fyrir sig byrjaði lífsstritið og hófst handa um að stofna heimili og fjöl- skyldu og búa henni sem beztar að- stæðurnar. Siggi kvæntist elskunni sinni, henni Kari Lund Hansen frá Krakerö í Noregi. Reyndist hún honum góður og tryggur lífsföru- nautur og eignuðust þau fjórar myndarlegar dætur. Voi-u þær arð- ur lífs Sigurðar og gáfu honum og Kari vexti og vaxtavexti í tengda- sonum og börnum. Hefur fjölskyld- an verið honum ómetanlegur styrkur í veikindum hans. Siggi var trúr og góður vinur, sem alltaf mátti treysta á, í stríðu sem blíðu. Samverustundum okkar fækkaði eðlilega, þegar við hurfum til hennar Ameríku, en alltaf urðu fagnaðarfundir, þegar við komum heim til Fróns í heimsóknir. Svo voru símtöl og bréfaskriftir þar í milli. Síðast sáumst við í fyrrasum- ar í heittelskaða sumarbústaðnum þeirra, á sunnudegi í hellirigningu. En inni vai- hlýja og kátína: Kari bauð upp á kræsingar og hellti upp á könnuna, en Siggi dró fram vín- flösku og fengu menn sér tár í glas. Svo var skálað og húsbóndinn fékk sér í pípu. Það kom þetta gamla góða glimt í augað á honum, þegar hann laumaði út úr sér bröndurun- um og hláturinn glumdi. Svona man ég bezt eftir honum. En nú er hann farinn og hluti af lífi okkar er horfinn með honum. En minningarnar eru margar og þær verðum við að láta okkur nægja. Sigurður var góður dreng- ur og nýtur borgari, en lifði lífi sínu af sæmd, og æðraðist ekki, þegar hann sá fram á endalokin, heldur brást við með hugrekki og virðuleik. Við Erla og Unna Maja og fjöl- skylda vottum Kari og fjölskyldu hennar allri okkar dýpstu samúð. Blessuð sé minning Sigga As. Þórir S. Gröndal. VILMUNDUR KRISTINN JÓNSSON + Vilmundur Kristinn Jónsson fæddist á Bæjum á Snæfjallaströnd 2. ágúst 1925. Hann lést í Sjúkrahúsi Akra- ness 6. febrúar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Akra- neskirkju 15. febrúar. Kær frændi minn hefur kvatt þessa jarðvist. Ég trúi því að nú hafi hann hitt móður mína, systk- inakærleikur þeirra var hreinn og sterkur og í anda þess kærleika ól- umst við systkinin upp. Það varð okkar veganesti. Við skynjuðum þá gagnkvæmu virðingu og hlýju sem ríkti á milli systkinanna alla tíð. Þau voru sístarfandi, iðjuleysi var óþekkt hugtak. Samgangur var mikill á milli fjölskyldnanna tveggja í barnæsku minni og bræðra minna og elskuðum við og dáðum Villa frænda sökum gæsku hans og gjafmildi. Villi var móður sinni stoð og stytta, en hún varð ung ekkja með stóran barnahóp, móður mína yngsta aðeins þriggja ára. Villi frændi var unglingur þá og axlaði þá ábyrgð ásamt Jónu elstu systur- inni og ömmu Steindóru að vinna hörðum höndum til að sjá fjöl- skyldunni farborða. Þetta tókst þeim svo sómi var að. Skyldu ekki þessi sterku fjölskyldubönd mynd- ast einmitt við aðstæður sem þess- ar? Það varð gæfa frænda míns að kynnast Matthildi sem varð eigin- kona hans og lífsforunautur í blíðu og stríðu. Þau börðust hetjulega við erfiðan sjúkdóm hans áratug- um saman án þess að bugast. Barnalán þeirra voru dæturnar Svandís og Kristný og Ingvar son- ur Matthildar. Þau og fjölskyldur þeirra hafa sýnt aðdáunarverðan styrk og þol í langvarandi veik- indum Villa frænda. Ég og fjöl- skylda mín erum öll fjarri heima- högum núna, en ég vil tileinka elsku frænda mínum lítið erindi sem amma mín Steindóra kenndi okkur: Vaktu, minn Jesú, vaktu í mér. Vaka láttu mig eins í þér. Sálin vakir þá sofnar líf. Sé hún ætíð í þinni hlíf. Elsku Matthildur, böm og fjöl- skyldur. Innilegar samúðarkveðjur heim til ykkar og Guð gefi ykkur styrk á sorgarstundu. Helga Ólöf Oliversdóttir. LEGSTEINAR 15 - 30% afsláttur ef pantað er í febrúar. 15% afsláttur af letri og skrauti. úrzmít 1 Helluhraun 14 Hafnarfjörður Sími: 565 2707 A TILBOÐI + 1 , Ástkær sambýlismaður minn, faðir okkar, I f stjúpfaðir, tengdafaðir og afi, VILMUNDUR JÓNSSON i 17 i'í U, :% f 'Jy netagerðarmeistari, . Æ Ljósheimum 2, % J Reykjavík, á'... lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur laugardaginn 13. febrúar. Jarðarförin auglýst síðar. Fjóla Ragnarsdóttir, Örn Vilmundarson, Ingibjörg Eyjólfsdóttir, Vilborg Vilmundardóttir, Böðvar Hrólfsson, Guðjóna Vilmundardóttir, Jón Torfi Þorvaldsson, Georg Þorvaldsson, Ingveldur Jónsdóttir, Eyvindur Gauti Vilmundarson og barnabörn. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR HELGASON húsgagnasmiður Leirutanga 41 a, Mosfellsbæ, lést á Landakotsspítala laugardaginn 13. febrúar. Elsa Guðmundsdóttir, Arnar Guðmundsson, Sigríður Guðmundsdóttir, Ásgeir Guðmundsson, Erla Hallbjörnsdóttir, Anna Kristín Einarsdóttir, Guðmundur Helgi Guðmundsson, Kristján Pétur Einarsson, Þóra Jóhannesdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, SIGURÐUR INGVI THORSTENSEN flugumferðarstjóri, Ekrusmára 27, Kópavogi, andaðist á krabbameinsdeild Landspítalans, 11E, sunnudaginn 14. febrúar. Guðríður Vestmann Guðjónsdóttir, Anna Margrét Sigurðardóttir, Ágúst Gunnarsson, Tryggvi Daníel Sigurðsson, Kristín S. Thorstensen, Vilhelm Gunnarsson og barnabörn. t Ástkær sambýlismaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, AÐALSTEINN SVEINBJÖRN ÓSKARSSON, Víðilundi 24, Akureyri, andaðist á heimili sínu laugardaginn 13. febrúar. Sigrún Guðbrandsdóttir, Haukur Haraldsson. Snjólaug Aðalsteinsdóttir, Þorsteinn Pétursson, Karlotta Aðalsteinsdóttir, Lárus Ragnarsson, barnabörn og barnabarnaborn. + Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, GEIRU HELGADÓTTUR, Hafraholti 8, ísafirði. Guðmundur S. Gunnarsson, Gunnar H. Guðmundsson, Hrefna Bjarnadóttir, Rögnvaldur Guðmundsson, Deborah Robinson, Katrín Guðmundsdóttir, Guðmundur Baldursson og barnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.